Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1989, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1989, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1988. . II MðffiköM: J jnr ■M&iyifc&FÍ Nú er hægt aö hringja inn smáauglýsingar og greiöa með korti. Þú gefur okkur upp: Nafn þitt og heimilisfang, síma, nafnnúmer og gildistlma og númer greiðslukorts. • Hámark kortaúttektar í síma kr. 5.000,- VISA |_«Ú**0CAf30 J £1 ■ÉMM$É&f£ SMÁAUGLÝSINGADEILD ÞVERHOLTI 11 VÍSA | SÍMI 27022 ' . ' zW* Andrews hitablásarar fyrirgaseðaolíu eru fáanlegir í fjölmörgum stærðumoggerðum Algengustu gerðirem nú fyHHiggjandi Skeljungsbúðin Síðumúla 33 símar 681722 og 38125 Nauðungaruppboð á eftirtöldum fasteignum fer fram í dómsal embættisins, Suðurgötu 57, á neðangreindum tíma: Einigrund 16, þingl. eig. Ásgeir Magn- ússon, föstudaginn 3. febrúar nk. kl. 11.15. Uppboðsbeiðendur eru Veðdeild Landsbanka íslands og Guðjón Ar- mann Jónsson hdl. Einigrund 36, þingl. eig. Magnús Ein- arsson, fostudaginn 3. febrúar nk. kl. 11.30. Uppþoðsbeiðendur eru bæjar- fógetinn á Isafirði og Veðdeild Lands- banka íslands. Bæjarfógetiim á Akranesi Nauðungaruppboð annað og síðara á eftirtöldum fasteignum fer fram í dómsai embættisins, Suðurgötu 57, á neðangreindum tíma: Mánabraut 17, þingl. eig. Halldór Ingi Ólafsson, fostudaginn 3. febrúar nk. kl. 11.45. Uppboðsbeiðendur eru Jón G. Briem hdl., Landsbanki íslands og Ásgeir Thoroddsen hdl. Ægisbraut 9, þingl. eig. Stuðlastál hf., fostudaginn 3. febrúar nk. kl. 11.45. Uppboðsbeiðandi er Iðnlánasjóður. Bæjarfógetiim á Akranesi Nauðungamppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum: Ægisbraut 13 a, þingl. eig. Sjávar- réttagerð hf., fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 3. febrúar nk. kl. 13.15. Uppboðsbeiðendur eru Brunabótafé- lag Lslands, Fiskimálasjóður, Fisk- veiðasjóður íslands, Skiptaráðandinn á Akranesi, Jón Sveinsson hdl. og Skarphéðinn Þórisson hrl. Bæjarfógetinn á Akranesi fæst á járnbrautar- stöðinni í Kaup- mannahöfn Utlönd Sévardnadse í Kína Fimbulkuldi vestra Edvard Sévardnadse, utanríkis- ráðherra Sovétríkjanna, kom til Pek- ing í Kína í gær til viðræðna við utan- ríkisráðherra Kína, Qian Qichen, um undirbúning heimsóknar Gor- batsjovs til Kína. Þetta er i fyrsta sinn í þrjátíu ár sem sovéskur utan- ríkisráðherra kemur til Kína. Sévardnadse tjáði fréttamönnum við komuna til Peking í gær að leið- togafundurinn, sá fyrsti frá því 1959, yrði ákaflega þýðingarmikill. Kvaðst hann vera meö bréf frá Gorbatsjov til leiðtoga Kína. Stjómarerindrekar búast við að Gorbatsjov muni hitta Deng Xiaoping í apríl eða maí. Sévardnadse lék á als oddi í gær og ávarpaði Qian sem félaga eins og til að undirstrika að sá fjandskapur sem ríkt hefur milli ríkjanna sé nú úr sögunni. Sagðist Sévardnadse hafa hitt Qian fimm sinnum á tæpu ári, jafnoft og hann hitti Shultz, fyrr- verandi utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, á sama tíma. Nú gæfist hins vegar ekki tækifæri til fleiri funda með honum, bætti Sévardnadse við. Austur-evrópskir heimildarmenn segja að sovéskir embættismenn muni leggja áherslu á formlega yfir- lýsingu um að eðlileg samskipti milli kommúnistaflokkanna tveggja hafi verið tekin upp á ný. Kínverjar eru hins vegar á móti slíkri yfirlýsingu þar sem þeir óttast að hún kunni að skaöa bætt samskipti við Vesturlönd og nýleg tengsl við Austur-Evrópu- ríki. Reuter Qian Qichen, utanrikisráðherra Kina, tekur á móti Edvard Sévardnadse, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, í Peking i gær. Símamynd Reuter Raunar var talið líklegt að í Flórída yrði tuttugu og sjö gráðu hiti á Cels- íus næstu daga. Á sama tíma verður fimbulkuldi norðar í Bandaríkjun- um. í Seattle, Washington, þar sem regn er algengt en snjór ekki, olli kalda loftið því aö það féll fimm sentímetra djúpur snjór og hitinn féll langt niður fyrir frostmark. Fólksflutningabílar reyndu árang- urslaust aö halda uppi ferðum um borgina, sem er byggð á mörgum hæðum. Skólar voru lokaðir og al- þjóöaflugvöllurinn í borginni lokað- ist um hríð. Rafmagnsleysi hrjáði þúsundir. „Bílar eru á ferð en umferðin geng- ur mjög hægt og strætisvagnaáætl- unin er farin til fjandans," sagði Chantal Trandifir, þrjátíu og þriggja ára, sem flutti til Seattle frá New Jersey, þar sem oft er kalt, fyrir fimm árum. „Það er tíu stiga frost og mik- iö rok. Það er kalt.“ Allt frá kanadísku sléttunum til hveitibeltisins í Bandaríkjunum þurftu bændur og bæjarbúar að klæða sig til að verjast heimskauta- kulda. Hjá mörgum ar janúar sá hlýj- asti frá upphafi þannig að viðbrigðin voru mikil. Ellefu manns biðu bana í Kanada. Flestir létust við að moka snjó eða ýta bílum sem sátu fastir. Tuttugu og eins árs gamall maður fraus til bana eftir að paUbíll hans drap á sér í kuldanum. Reuter Heimskautakuldi, sem hafði haldið Alaska í greipum sér í tvær vikur, kom niður yfir Texas í gær eftir að hafa farið með offorsi yfir Washing- tonríki með jökulkaldri snjókomu sem varð ellefu manns að bana í vest- urhluta Kanada. Þessi kona berst á móti stormi og hrið í tíu stiga frosti í Seattle i Was hingtonríki í gær á svipuðum tíma og Jóhann Hjartarson var að búa sig fyrir þriðju skákina gegn Karpov. Símamynd Reuter Þríhymingslaga kuldamassi náði frá Washingtonríki til norðurhluta Texas og austur til Detroit í Mic- higcin. Veðurfræðingar sögðust bú- ast við því að massinn myndi stoppa á þessu svæði og hlífa Flórída og nokkrum öðrum suölægum ríkjum. Þingi flýtt í Júgóslavíu Leiðtogar Kommúnistaflokksins í Júgóslaviu hafa ákveðið að halda þing fyrr en ella eftir að flokknum mistókst að jafna ágreining og klofning í röðum flokksmanna sem orsakast hefur af mikilli valdabar- áttu. Miðnefnd flokksins ákvað á fundi í gær, sem einkenndist af harkaleg- um deilum Stipe Suvar flokksleiö- toga og leiötoga serbneskra komm- únista, Slobodans Milosevics, að þingið skyldi haldiö á þessu ári, að minnsta kosti sex mánuðum fyrr en áætlaö hafði verið. Nefndin skýröi ekki frá þvi hvort þingið fengi vald sem neyðarþing en þaö gæti orðið lóð á vogarskál Milosevics. Nákvæm dagsetning vefður gefin upp innan þriggja mánaða. Fulltrúar á neyöarþing er hægt aö velja á grundvelli flokksþátt- töku í hveiju byggðarlagi. Þetta myndi vera gott fyrir Serba vegna þess að hvergi annars staðar í landinu er jafnstór hluti íbúanna meölimir í flokknum og þar. Ekki hafði verið ráðgert að halda þing fyrr en í júní 1990. Á allsheijarfundi Kommúnista- flokksins, sem lauk í gær eftir þriggja daga stöðugar deilur, hót- aði herinn að taka völdin til að komast hjá upplausn í landinu. Stane Brovet aöstoðarvarnarmála- ráðherra sagöi: „Við erum tilburiir að afstýra því að Júgóslavía klofni en ekki til að vernda hagsmuni ein- staklinga eða hópa.“ Á fundinum kröfðust Serbar þess ítrekað að Suvar flokksleiðtogi, sem er frá Króatíu, yröi látinn víkja. Króatar sögðu á móti að stefria Milosevics væri nýstalín- ismi. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.