Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1989, Page 5
FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1988.
5
Fréttir
Björgólfur Guömundsson:
Þad er uggur í
Hafskipsmönnum
- vegna vinnubragöa Jónatans Þórmundssonar
„Því er ekki að leyna að það er
uggur í okkur Hafskipsmönnum
vegna ýmissa vinnubragða Jónatans
Þórmundssonar, sérstaks ríkissak-
sóknara í Hafskipsmálinu," sagði
Björgólfur Guðmundsson, fyrrver-
andi forstjóri Hafskips, þegar DV
innti hann álits á gangi Hafskips- og
Útvegsbankamálsins.
„Mér skilst að Jónatan Þórmunds-
syni prófessor, sérstökum saksókn-
ara, hafi nú loksins tekist að skila
gögnum frá sér til Sakadóms Reykja-
víkur, en það er hvorki meira né
minna en 18 mánuðir síðan hann
fékk máhð í hendur. Það er komið á
fjórða ár frá því að opnberir aðilar
neyddu Hafskip í gjaldþrot. Sakar-
efnin eru íjögurra til tíu ára gömul.
Flutningur málsins tekur sjálfsagt
nokkur ár og eyðileggur stóran hluta
starfsævi okkar sem saksóttir erum.
En að sjálfsögðu er það lítið áhyggju-
efni fyrir prófessor Jónatan Þór-
mundsson sem þiggur laim allan tím-
ann á meðan máhð stendur og við
hinir bíðum. Þó geri ég varla ráð fyr-
ir að hann hafi þegið laun eða þiggi
laun samtímis frá Háskóla íslands
sem prófessor í refisrétti eða hafi
tafið máhð með öðrum tímafrekum
nefndarstörfum, á kostnað sakbom-
inga.
Lítið við okkur rætt
Eins og ég sagði áðan em nú um
átján mánuðir, eða eitt og hálft ár,
frá því hann tók málið að sér og átti
að rannsaka það sjálfstætt. Sannleik-
urinn er sá að Jónatan Þórmundsson
prófessor hefur lítið sem ekkert,
helst til málamynda, rætt við okkur
Hafskipsmenn. Dæmi em því miður
um að hann hafi hvorki svarað skrif-
legum né munnlegum beiðnum frá
okkur um að koma að útskýringum
eða frekari rannsóknum á sakargift-
um.“
„Jónatan sagði í fjölmiðlum að
Vilja skera
ráðhúsfé
Minnihlutinn í borgarstjóm viU
auka félagslega þjónustu í borg-
inni og að sama skapi draga úr
framkvæmdum viö ráðhús og
veitingahús í Öskjuhlíð.
í sameiginlegri fiárhagsáætlun
leggja minnihlutaflokkamir í
borgarstjóm tíl að tæpur miUj-
arður verði fluttur frá verkefnum
sem meirihlutinn hefur ákveðið
og peningamir notaðir í bætta
félagslega þjónustu. Lagt er til að
borgin ráðstafi 4% af útsvarstekj-
um tíl dagvistunarmála og bent á
að 2000 böm bíða þess að fá dag-
vistarpláss. Fyrir ungUnga legg-
ur minnihlutinn til að komið
verði upp unglingahúsi í mið-
bænum en slíkt húsnæði ætti að
draga úr reiðUeysishangsi ungl-
inga í miðbænum, að áUti minni-
hlutans.
Minnihlutinn vUl auka útsvars-
og aöstöðugjöld tíl borgarinnar
um 130 mUljónir, draga úr fram-
kvæmdum við ráðhúsið þannig
að það verði aðeins bUageymsla
og spara þar 300 mUljónir. „Við
látum Tjömina síðan fljóta yfir
bílageymsluna og svæðið verður
jafnfallegt og áður,“ sagði Sigin--
jón Pétursson, borgarfuUtrúi Al-
þýðubandalagsins, þegar fjár-
hagsáætiun minnihlutans var
kynnt í gær.
Síödegis í dag hefst umræða um
fjárhagsáætiun borgarinnar og
er búist við aö gengið verði til
atkvæða undir morgun.
-pv
hann ætlaði að hafa sérstakan fuU-
trúa sinn í yfirheyrslum. Þetta stóð
hann ekki við að öUu leyti, að
minnsta kosti hvað mig varðar, í þau
örfáu skipti sem ég fékk að koma til
skýrslugjafar."
Alþingi sett í klípu
„Furðulegust era þó vinnubrögð
Jónatans Þórmundssonar við ákær-
ur. Hann hendir ákærum í hausinn
á sakbomingum án þess að afhenda
Sakadómi nauðsynleg gögn til þess
að rétturinn geti farið eftir lögform-
legum leiðum. Þessi buslugangur
varð til þess að Alþingi íslands var
sett í þá klípu að svipta Jóhann Ein-
varðsson þinghelgi."
„Löggiltur heiðarleiki"
„Jónatan segist svo, í viðtah við
DV 4. janúar 1989, hafa gert sam-
komulag við Sakadóm Reykjavíkur
um þessa vinnutUhöguh. Bréf frá
Sakadómi birtist sjötta janúar í DV
þar sem borin er til baka þessi fitil-
yrðing Jónatans. Þar sagði að ekkert
samkomulag hefði verið gert um
þessa vinnutilhögun. En viti menn,
11. janúar þar á eftir fitilyrðir Jónat-
an enn og aftur í samtah við blaða-
mann DV að þetta samkomulag sé í
gtidi.
Þetta hefðu sjálfsagt verið kahaðar
blekkingar hjá okkur Hafskips-
mönnum en auðvitað efast enginn
um „löggUtan heiöarleika“ Jónatans
Þórmundssonar, prófessors í refsi-
rétti við Háskóla Islands, og við það
verðum við sakbomigar senntiega
að lifa, eða hvað?“ sagði Björgólfur
Guðmundsson.
-sme
VERÐIÐ ALLTAF JAFN
HAGSTÆTT.
Skeljungsbúðin
Siðumúla33
símar 681722 og 38125
________.
TILKYNNING
23. janúar sl. gaf viðskiptaráðherra út „reglugerð um lánskjaravísitölu til
verðtryggingar sparifjár og lánsfjár." Samkvæmt þessari reglugerð er
grundvelli lánskjaravísitölu breytt á þann veg að framfærsluvísitala,
byggingarvísitala og svonefnd launavísitala gildi að þriðjungi hver í grundvelli
hinnar nýju lánskjaravísitölu. Þessi nýja lánskjaravísitala á skv. ákvæðum
reglugerðar að koma að fullu og öllu í stað þeirrar lánskjaravísitölu sem
reiknuð hefur verið skv. lögum nr..13/1979 og grundvallast að % á
framfærsluvísitölu og að 'A á byggingarvísitölu. Skal hin nýja vísitala
samkvæmt reglugerðinni taka gildi 1. febrúar 1989.
Samband almennra lífeyrissjóða og Landssamband lífeyrissjóða taka fram, að
þau telja vafa leika á um lögmæti þess að láta hina nýju vísitölu taka gildi um
fjárskuldbindingar sem stofnað var til fyrir 1. febrúar 1989.
Með vísan til þess gera samböndin fyrir hönd lífeyrissjóða, sem aðild eiga að
þeim, fyrirvara gagnvart öllum skuldurum sjóðanna, sem nú greiða af
fjárskuldbindingum'smum samkvæmt hinni nýju vísitölu og áskilja sér rétt til
að krefja þá um þann mismun sem leiðir af því að hinni nýju vísitölu er beitt
í stað hinnar eldri.
F.h. SAMBANDS ALMENNRA LÍFEYRISSJÓÐA
Benedikt Davíösson
F.h. LANDSSAMBANDS LÍFEYRISSJÓÐA
Pétur H. Blöndal