Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1989, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 13. MARS 1989.
Þriöja tapár Rafha í röð:
Stjórnin fær heimild
til að selja allar
fyrirtækisins
Fréttir
Menntamálaráðherra, Svavar
Gestsson, afhendir Gyröi Elias-
syni verðlaunin. DV-mynd: GVA
Gyrðir Elías-
son fékk stíl-
verðlaun
Þórbergs
Menntamálaráðherra afhenti
Gyrði Elíassyni rithöfundi stíl-
verðlaun Þórbergs Þórðarsonar í
gær. Þetta er í fyrsta sinn sem
þessum verðlaunum er úthlutað
en ætlunin er að veita þau annað
hvert ár héðan í frá.
Verðlaunin, sem eru 150 þús-
und krónur, eru veitt fyrir
óvenjulega vel unnin verk í ræðu
eða riti sem telja má til stílaf-
reka. Þrír aðilar standa að verð-
laununum, menntamálaráðu-
neytið, bókaútgáfan Mál og
menning og Háskóli íslands fyrir
hönd Styrktarsjóðs Þórbergs
Þórðarsonar og Margrétar Jóns-
idóttur.
i Gyrðir Elíasson hefur getið sér
': gott orð fyrir ritverk sín þótt ung-
lur sé að árum. Hann hefur samið
| ljóö, smásögur, stundað þýðingar
'og fyrir síðustu jól kom út skáld-
saga hans, Bréfbátarigningin.
-JJ
Sjónvarpið
sýnir hvala-
myndina
annað kvöld
„Það er þeirra eigin samviska
sem er að angra þá,“ sagði Magn-
ús Guðmundsson, höfundur
myndarinnar Lífsbjörg í noröur-
höfum, í samtali við DV um við-
brögð grænfriðunga og hótanir
þeirra um málsókn vegna sýning-
ar myndarinnar. „í myndinni eru
notuð brot úr myndum sem
grænfriðungar hafa framleitt og
úr myndum sem ég hef gögn upp
á að eru þeirra framleiðsla. Þegar
hetjuljómanum er svipt af kemur
annað í ljós. Þeir vita best hvað
kemur þeim illa og með þessu
brölti eru þeir að auglýsa mynd-
ina fyrir mig enda markaðssetn-
ing þeirra fag,“ sagði Magnús.
Lögmaður grænfriöunga hafði
samband við Magnús og krafðist
þess að fulltrúi samtakanna fengi
að sjá myndina. Þeirri beiðni var
hafnað. „Þessi beiðni þeirra rnn
fyrirfram ritskoðim er ekkert
annað en argasti dónaskapur,"
sagði Magnús. Bréf, sem græn-
friðungar sendu Sjónvarpinu þar
sem hótað er málsókn yrði mynd-
in sýnd þar, varð til þess að Sjón-
varpið fékk að sjá myndina og
ákvað að taka hana til sýningar,
en á þeim tíma hafði Magnús
ekki sóst eftir því að fá myndina
sýnda í sjónvarpi. Myndin er á
dagskrá Sjónvarpsins á þriðju-
dagskvöld.
Magnús sagði að fulltrúi Sjón-
varpsins hefði skoðað myndina
ásamt lögfræðingi þeirra og ekki
séð neitt í henni sem gefið gæti
ástæðu til máishöfðunar af hálfu
grænfriðunga.
-Pó
eigur
Sljórn Rafha var á aðalfundi fé-
lagsins síðastliðinn föstudag veitt
heimild til að selja fastar sem lausar
eigur fyrirtækisins. Þessi ákvörðun
er tekin til að endurskipuleggja fyrir-
tækið en það hefur tapað í þrjú ár í
röð. Tap þessara ára nemur um 55
til 60 milljónum á verðlagi síðasta
árs. Eigið fé fyrirtækisins er enn
traust, það var um síöustu áramót
61 milljón króna.
„Það er verið að grípa í taumana
áður en þaö verður of seint,“ segir
Sveinbjöm Óskarsson, stjómarmað-
ur í Rafha. Hann er fulltrúi ríkisins
í stjóm fyrirtækisins.
Rafha tapaöi um 25 milljónum
Félagsmálaráöherra, Jóhanna Sig-
urðardóttir, átti í gær fund með þeim
Guðmundi Bjamasym heilbrigðis-
ráðherra og Halldóri Ásgrímssyni
sjávarútvegsráðherra irni húsbréfa-
frumvarpið. Jóhanna heldur enn fast
í þá ákvörðun sína að leggja friun-
varpið fram í vikunni en kveðst þó
vera heldur bjartsýn á aö samkomu-
lag náist við Framsóknarílokkinn.
Eftir hádegi verður síðan lokafundur
um málið á milli þessara ráðherra.
Það er aðeins eitt atriði óleyst nú
en það er sú krafa Framsóknar-
manna að hafa þak á kerfinu. Jó-
hanna sagði aö það væri andstætt
eðJi kerfisins og ekki væri hægt að
sætta sig við þak á það, hvort sem
upphæðin yrði 500, 1.000 eða 1.500
miíljónir króna. „Ég er ekki vonlaus
um aö það geti fimdist lausn á þessu
líka en það getur brugðiö til beggja
vona,“ sagði félagsmálaráðherra.
Um annað viröist hægt að ná sam-
komulagi, sagði Jóhanna. Samkomu-
lag hefur náðst um lán til nýrri bygg-
inga. Einnig það atriði að hafa vexti
húsbréfa þá sömu og á ríkisskulda-
bréfum. Er þá rætt um að bréfin sjálf
gætu boriö sömu nafnvexti og spari-
skírteini þó að einhveiju leyti yrði
miðað við markaðsvexti. Þá sagði
króna á síðasta ári. Fyrirtækið er
gróið íslenskt fyrirtæki, til húsa við
Lækjargötu 22 Hafharfirði. Þar á það
5500 fermetra húsnæði. Ekki er nema
hluti þess húsnæðis nýttur og sama
er að segja um vélakostinn. Fyrir-
tækið býr því við mikla umframaf-
kastagetu.
Sveinbjöm segir að minnka eigi
þessa umframafkastagetu með því
að selja hluta af húsnæðinu og vélun-
um. „Þannig ætlum við að treysta
fjárhagsstöðu fyrirtækisins."
Rafha framleiðir eldavélar og vift-
ur. Auk þess flytur það inn Zanussi-
ísskápa, frystikistur og fleiri tæki.
Rafha er 52 ára. Þaö var stofnaö
Jóhanna að hún gæti sætt sig við að
kaupskylda lífeyrissjóða yrði óbreytt
gagnvart Byggingarsjóði ef hluti af
henni gæti rvmnið til húsbréfa.
Ef ráðherra leggur frumvarpið
árið 1937 og hefur alla tíð verið í
Hafnarfirði. Emil Jónsson, fyrrum
ráðherra og formaður Alþýðuflokks-
ins, var formaður stjómar þess í
mörg ár. Ríkið á 31 prósent í fyrir-
tækinu og hefur verið með frá upp-
hafi. Fljótlega keypti Axel heitinn
Kristjánsson sig inn í fyrirtækið.
Fjölskylda hans á stærsta hlutann
af einstaklingum. En alls em 70 hlut-
hafar í Rafha.
Ingvi Ingvason er framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins. Hann tók við
þeirri stöðu árið 1979 við fráfall Ax-
els Kristjánssonar.
-JGH
ar þá er oljóst um afdrif frumvarps-
ins því að mjög skiptar skoðanir em
um það meðal stjómarandstöðunn-
ar. -SMJ
HótelÖrfc
Fegurðar-
dansleskurinn
endaði með
siagsmálum
Dansleikurinn í Hótel Örk á
laugardagskvöldið endaði með
slagsmálum og veittist hópur
manna aö tveimur lögregluþjón-
um á staðnum og dyraverðL Til
nokkurra ryskinga kom en engin
meiösli urðu á mönnum svo að
vitaö sé.
Einn gestanna á dansleiknum
hafði verið meö ölvunarstæla og
látið illa megnið af kvöldinu. Beð-
ið var um aðstoö lögreglunnar við
að hafa afskipti af manninum.
Þegar lögreglan kom og handtók
gestinn upphófust mikil slagsmál
þar sem félagar mannsins og
fleiri blönduöu sér i málin.
Lögreglumennimir koraust
óskaddaðir út í lögreglubílinn
með þann sem verið hafði kolóð-
ur um kvöldið. Þegar fleiri lög-
regluþjónar komu á vettvang var
ró komin á mannskapinn. -JGH
Rúður brotnar
í Kínahúsinu
Rúðubijótar voru handteknir í
miðborg Reykjavíkur um helgina
eftir að hafa brotið rúður í Hjart-
arbúð í Traðarkotssundi. Engu
vor stolið í búðinni. Þá voru
brotnar rúður i matsölustaðnum
Kínahúsinu við Lækjargötu, við
hliðina á Skalla, um helgina. Ekki
er vitað hveijir voru þar að verki.
-JGH
Ölvunar-
akstur ekki
aukist efftir
bjórinn
Nítján ökumenn voru teknir
grunaðir um ölvun við akstur frá
hádegi á fóstudag til hádegis í
gær, sunnudag. Þetta er ekki
meira en vepjulega um helgar
áður en bjórinn var leyfður.
Mjög stíft eftirlit var meö ölv-
unarakstri um helgina af hálfu
lögreglunnar og margir ökumenn
stöövaðir.
Sú nýbreytni var um helgina
að læknir var á vakt á lögreglu-
stöðinni aöferanótt laugardags og
sunnudags til að taka blóðsýni
úr ökumönnum. Til þessa hefur
oröið að fera með ölvaöa öku-
menn á Borgarspítala í blóðtöku.
-JGH
Bruni á Akureyri:
ýjón um 15
milljónir
Gyifi KristjánsBon, DV, Akureyir
Tjóniö, sem varð er iðnaðar-
húsnæði að Óseyri á Akureyri
brann sL þriöjudagskvöld, er tal-
ið nema nærri 15 milljónum
króna við fýrstu athugun.
Mesta tjónið er á húsinu sjálfu,
en það er talið nær ónýtt. Innan
dyra varð mest tjón í bifreiöa-
verkstæði, en þar skemmdust eða
eyðilögðust 4 bílar, m.a stór hús-
bíll. Aðrar skemmdir á bifreiöa-
verkstæðinu urðu á tækjum og
verkfærum. Þá urðu skemmdir á
frystitækjum hjá fiskverkuninni
Skutli og áfram mætti telja.
Taliö er fullvist aö eldurinn hafi
komiö upp á bifreiðaverkstæðinu,
en þar haföi maður verið að vinna
með logsuðutækjum skömmu áð-
ur en eldsins varð vart
Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra fundaði með Steingrími Her-
mannssyni forsætisráðherra um helgina. I dag mun hún funda með þeim
Guðmundi Bjarnasyni og Halldóri Ásgrímssyni um framgang húsbréfafrum-
varpsins. DV-mynd GVA
Vínartónleikar
Sinfóníuhljómsveitin hélt tvenna
Vínartónleika nýlega í Reykjavík
og Keflavík. Gagnrýnandi DV
heyrði þá sem voru í Háskólabíói
föstudagskvöldið 10. mars. Stjóm-
andi var Vínarbúinn Peter Guth
en einsöngvari Ulrike Meisky frá
Austurríki.
Efnisskráin var tvískipt. Fyrir
hlé var músík eftir Mozart og Schu-
bert. En eftir það valsar og önnur
verk eftir Johann Strauss yngri.
Flutt var fyrst serenada í D-dúr
K 203 eftir Mozart. Hún er í mörg-
um þáttum og mjög yndisleg. Moz-
art var 18 ára. Leikur hljómsveitar-
innar var stílhreinn en helst til
daufur og karakterlaus. Hann var
lífmeiri og snarpari í balletttónlist
úr Rósamundu eftir Schubert. Ul-
rike Meisky söng konsertaríu eftir
Mozart. En einnig ágæta aríu,
„Könnt ich ewig hier verweilen",
Tónlist
Sigurður Þór Guðjónsson
úr óperunni Alfonso og Estrellu
eftir Schubert. Óperur hans heyr-
ast aldrei en sagt er að ágæta mús-
ík sé þar víöa að flnna. Og þessi
aria er mjög lýrísk og innileg tón-
hst og heyrist þó nokkuö síðustu
árin. En söngkonan söng hart og
ónærgætnislega og hljómsveitin
spilaöi líka þannig. Aftur á móti
söng Ulrike Mozartaríuna skil-
merkilega.
Eftir hlé var meira fjör. Þá var
hljómsveitin og söngkonan í tals-
verðu stuði. Hún söng aríu úr óper-
ettunum Nótt í Feneyjum og Leður-
blökunni í alveg ekta Vínarstíl. Og
hljómsveitin rubbaði upp úr sér
polkum og völsum eftir Johann
Strauss yngri.
Fyrir tónleikana og í hléi var veitt
áfengi. Undarlegt er það aö gefa
fólki eitur sem virkar á æðsfu
stöðvar heilans; lamar vitsmuni og
skilning, hversu lítið sem drukkiö
er. Skyldi maður þó halda að fæstir
mættu viö því að skerða þetta vit
sem guð gaf þeim. En áfengisdýrk-
un er nú mjög í tísku. Dýrkun á
eitri sem skemmir heilann. Margir
þeir sem hafa drukkið árum saman
hafa engan heila þó þeir haldi að
þeir séu bara þó nokkuð bræt. Al-
veg er þeim t.d. fyrirmunað aö
standa við gefrn loforð. Þama hitti
ég einn óvirkan alka sem „sprakk"
á þessu léttvínssulli. Það getur
kostað hann lífiö. Og er þetta ekki
óþarfa gaman af Sinfóníuhljóm-
sveitinni?
Samkomulag í sjónmali um húsbréfa&nmvarpiö?
Nú er aðeins deilt
um þakið á kerfið
fram án blessunar ríkisstjómarinn-