Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1989, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1989, Side 9
MÁNUDAGUR 13. MARS 1989. 9 Útlönd Cheney, fulltrúadeildarþingmaður repúblikana frá Wyoming, svarar spurnlngum fréttamanna i Hvrta husinu eftir að Bush forseti hafði tfl- nefnt hann sem vamarmálaráðherraefni sitt Símamynd Reuter Bush Bandaríkjaforseti lét ekki líða nema einn sólarhring frá því að öldungadeildin hafnaði John Tower þar til hann tiinefiidi nýjan mann í embætti vamarmálaráðherra. Hann valdi Dick Cheney, fulltrúadeildar- þingmann fiá Wyoming. Bush sagðist ekki ætla að erfa það við þingið hvemig meöferð John Tower fékk, nú væri mál að stefna fram á við. Margir stjórnmálaskýrendur telja að Towermálið hafi í raun styrkt Bush gagnvart þinginu. Aðfarimar gegn Tower hafi verið svo hrikalegar að margir demókratar séu ekki hreyknir af þeim sigri sem þar vannst. Því muni Bush eiga auðvelt með að keyra mál í gegnum þingið á næstunni. Botha verður áfram P.W. Botha, forseti Suöur-Afriku, hefur sagst ætla að silja áfram í emb- ætti forseta í aö minnsta kosti eitt ár í viðbót. Botha skammaði um helg- ina flokk sinn fyrir að hvefja til afsagnar hans. Sagöist hann vera hissa á landsþingi Þjóðarflokksins, að menn þar skyldu ekki hafa þann þroska og kærleika aðvilja ieita lausna á vandamál- um landsins undir sinni forystu. Yettsin ver heiður sinn Geimskutlan á loft í dag Verkfræðingar geröu í morgun allt klárt fyrir geimskot geimskutlunnar Discovery sem á að fara á loft í dag. Um borð verður ftmm manna áhöfii og rottur og kjúklingaegg. Geimskotið hefur tafist í þrjár vikur vegna tæknilegra örðugleika Þetta er fyrsta geimskutluferðin af sjö sem áætlaðar eru á þessu ári. Reuter Papandreou í árásarhug Papandreou, forsætisráöherra Grikklands, hefUr nú gert nýja atlögu aö Bandaríkjastjóm og segir að svindlaranum Koskotas sé haldið sem gísl í Bandaríkjunum. Vill hann fá Koskotas framseldan til Grikklands. Hann flúði frá Grikklandi í nóvember eftir aö hafa verið sakaður um að hafa dregið sér 200 milljónir dollara úr banka sínum á Krít. Koskotas hefur sakað stjóm Papandreou um að hafa samþykkt áætlun um peningasvindl. Sfjómarandstöðuflokkurinn Nýi demókrataflokkurinn hefur farið fram á atkvæöagreiðslu um vantraustsyfirlýsingu á stjómina snemma í þess- ari viku. Reuter Boris YeKsfn, fyrrum leiðtogi Kommúnistaflokksins f Moskvu, talar á kosningafundi fyrir kosningarnar i Moskvu sem fara fram i þessum mánuðí. Simamynd Reuter Boris Yeitsin, sem rekinn var úr embætti flokksleiðtoga í Moskvu, varði í gær heiður sinn í sjónvarpsútsendingu sem á sér ekki fordæmi innan Sovétrikjanna. Yeltsin sakaði háttsetta menn innan fiokksins um að vinna gegn þingframboði sínu. Sjónvarpsþátturinn, sem hann kom fram í, var níutíu mínútna umræðu- þáttur þar sem Yeltsin mætti mótframbjóðanda sínum. Þátturiim þótti dauflegur og virtust frambjóðendumir vera þreyttir dg ekki skarst almennilega í odda með þeim. Hans Schmidt og Ursula Gerhold, meðlimir i nýnasistaflokknum sem vann sigur i sveitarstjórnarkosningunum í Hessen í gaer. Símamynd Reuter Nýnasistar vinna sigur Öfgasinnaðir hægriflokkar, sem opinberlega hafa lýst yfir andúð á útlendingum, unnu um helgina sigur í sveitarstjómarkosningum í Hessen í Vestur-Þýskalandi. Fylgið tóku þeir fyrst og fremst frá flokki Helmuts Kohl, kristilegum demókrötum. Þjóðemislýðræðisflokkurinn, sem er nýnasistaflokkur, náði undra- verðum árangri í Frankfurt þar sem hann hlaut 6,6 prósent atkvæða í kosningunum í gær. Flokkur Kohls missti 7 prósentu- stig af fylgi sínu og náði einungis 33 prósentum að meðaltali í fylkinu. Fyrir aðeins sex vikum töpuðu kristilegir demókratar völdum í Vestur-Berlín, þegar nýnasistaflokk- ur þar náði miklu af fylgi hægri manna. Kristflegir misstu meirihluta í Frankfurt sem er fjármálamiðstöð Vestur-Þýskalands. Þar höfðu þeir haft meirihluta í tólf ár. Nú fengu þeir 35 prósent en fyrir fiórum árum hlutu þeir 50 prósent atkvæða. Jafnaðarmenn unnu örlítið á og hlutu um 45 prósent atkvæða að jafn- aði um allt fylkið. Þeir gagnrýndu kristilega demókrata fyrir að hafa tekið upp málflutning öfgamanna gegn útlendingum til að reyna að halda í atkvæði sín. Kristilegir eru andvigir því að leyfa útlendingum aö kjósa í kosningum en jafnaðarmenn í mörgum öðrum fylkjum eru sömu skoðunar. Þetta kom ekki í veg fyrir að nýnas- istar næðu sínum besta kosninga- árangri í tuttugu ár. Síðast áttu þeir fulltrúa í borgarstjóm í Frankfurt árið 1969. Talið er nær fullvíst að jafnaðar- menn og græningjar, sem hlutu 9 prósent, muni mynda meirihluta í flestum borgum sem þeir geta. Þessir tveir flokkar mynduðu í síðustu viku meirihluta í Vestur-Berlín. Öfgamenn í Frakklandi náðu ekki eins góðum árangri í sveitarstjómar- kosningunum þar um helgina. Töp- uöu þeir miklu fylgi. Reuter/Ritzau FLUGLEIDIR^W Aðalfundur Flugleiða hf. Aðalfundur Flugleiða hf. verður haldfnn þriðjudaginn 21. mars 1989 í Kristalsal Hótel Loftleiða og hefst kl. 13.30. DAGSKRA: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa og breyting á 4. gr. sam- þykkta því til samræmis. 3. Breytingar á samþykktum félagsins: a) Tillaga um breytingu á 4. gr. samþykkta félagsins, um heim- ild til stjórnar til að hækka hlutafé með áskrift nýrra hluta. b) Tillaga um breytingu á 10. gr„ um að frestur til boðunar aðal- fundar verði minnst 2 vikur. c) Tillaga um breytingu á 6. mgr. 9. gr., urh að fellt verði út á- kvæði um takmörkun á meðferð atkvæða í félaginu. d) Tillaga um breytingu á 4. gr. 3. mgr., 3. málsgrein orðist svo: „Til frekari hækkunar hlutafjár þarf sam- þykki hluthafafundar. Ákvæði 2. mgr. 17. gr. samþykkta gilda um tillögur um hækkun hlutafjár." e) Tillaga um að aðalfundur sé lögmætur, ef hann sækja hluthafar eða umboðsmenn þeirra, sem hafa yfir að ráða meira en helm- ingi hlutafjárins (11. gr.). Tillögur um að samþykktum Flugleiða um aukinn meirihluta við atkvæðagreiðslur, um breytingar á samþykktum, verði breytt til samræmis við ákvæði hlutafélagalaga, sbr. 76. gr. hlutafélagalaga (4. gr. og 17. gr. samþykkta). f) Tillaga um að 2. mgr. g. liðar 5 gr. falli niður. Dagskrá og endanlegar tillögur munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis 7 dögum fyrir aðalfund. Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á skrifstofu félagsins, hlutabréfadeild á 2. hæð. frá og með 14. mars nk. frá kl. 9.00 til 17.00. Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að vitja fundarganga sinna fyrir kl. 12 á fundardegi. Stjorn Flugleiða hf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.