Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1989, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1989, Síða 12
12 MÁNUDAGUR 13. MARS 1989. Fréttir MikiU áhugi á fullorðinsfræðslu: Enska, bókfærsla og tölvufræði vinsælastar Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauöárkróki; Á fjórða hundrað manns sækir nú námskeið í fullorðinsfræðslu, sem haldin eru á 12 stöðum í Norður- landskjördæmi vestra. Þátttakan á stöðunum er víðast góð. Þar má til nefna að í Fljótunum eru tveir hópar í ensku og einn í bókfærslu og aka þangað þrír kennarar vikulega frá Sauðárkróki. Annars sjá kennarar á viðkomandi stöðum að mestu leyti um kennsluna. Tilhögun fullorðinsfræðslunnar er með tvennum hætti, reglubundið öldungadeiidamám, sem fylgir námsskrá framhaldsskóla, og hins vegar almenn námskeið þar sem námið er sveigjanlegt eftir námsefni og aðstæðum á hverjum stað. Vin- sælustu námsgreinarnar eru enska bókfærsla og tölvufræði. Tölvu- kennslan fer einungis fram í tölvu- veri Fjölbrautaskólans á Sauðár- króki og þangaö sækja námskeið all- margir hópar, meðal annars vestan úr Húnavatnssýslum. Kennslustaðimir 12 eru Sauðár- krókur, Siglufjörður, Sólgarðar, Hofsós, Héðinsminni, Steinsstaðir, Varmahhð, Blönduós, Skagaströnd, Hvammstangi, Húnavelhr og Lauga- bakki. Þorkell Þorsteinsson, kennari við Fjölbrautarskólann á Sauðár- króki, hefur umsjón með fullorðins- fræðslunni. 1 Klrkjubæjarklaustur: Allir nemendurnir skemmta á árshátíð Valgeix Ingi Ólafcson, DV. Klauatri: Félagslíf Kirkjubæjarskóla á Síöu hefur verið blónúegt í vetur því starfandi hafa verið nokkrir tómstundaklúbbar. Nú þessa dag- ana era nemendur og kennarar í óða önn aö skipuleggja og undirbúa árshátfö skólans, sem haldin verö- ur 17. mars. Á þeirri skemmtun koma nærallir nemendur skólans, 103 aö tölu, fram sem þátttakendur i einhveiju atriði. Hinn árlegi grímudansleikur neraenda skólans var mánudaginn 13. febrúar og tókst vel. Einkum bar mikið á hve nemendur voru skrautlega málaöir og á það eflaust sína skýringu. í vetur hefur veriö starfræktur leiklistarklúbbur á vegum skólafélagsins þar sem nemendur hafa notiö leiðsagnar í grunnatriöum fórðunar. Við Kirkjubæjarskóla er einnig starfsrækt fiskeldisbraut á fram- haldsskólastigi. í henni era 25 nem- endur og munu 7 þeirra útskrifast á vori komanda sem fískeldisfræð- ingar. í janúar var haidiö á vegum deildarinnar námskeið í bleikju- eldi. Það var fjölsótt af bændum og öðrum áhugamönnum víös vegar af landinu og þótti takast vel. Ann- að slíkt námskeið verður 21.-23. apríl nk. Lífsglaðir Strandamenn Regína Thorarensen, DV, Seliossi; Félag Ámeshreppsbúa hélt 49. árshátíö sína 4. mars sl. í Ártúni við Vagnhöfða í Reykjavík. Fólk skemmti sér vel enda eru Ámes- hreppsbúar orðlagðir gleðimenn. Ekki þunglyndið eða áhyggjumar sem þjaka þá þó Ámeshreppur sé afskekktur. Ég vildi óska að öll þjóö- in væri eins lifsglöö og hress og Strandamenn. Fólk kom á samkomuna úr öllum kjördæmum landsins, 350 manns. Eldra fólkinu er alltaf boðið á árs- hátíðina í góða matarveislu. Öll þjón- usta var til fyrirmyndar en hefði mátt vera betri á barnum. Ámes- hreppsbúar eru komnir til að dansa og skemmta sér en ekki til að bíöa langan tíma eftir svaladrykkjum. Dansinn hófst kl. 10 og stóö til kl. 3 um nóttina. Formaöur félagsins er Pálmi Guðmundsson frá Bæ í Tré- kyllisvík. Óskandi væri að allir fjár- málaráðherrar landsins stjórnuðu ríkiskassanum jafnvel og Pálmi hef- ur stjómað Árneshreppsfélaginu. Þar ná endar vel saman þó svo félag- ið hafi stutt vel við bakið á ungum hjónum og aöstoðað þau vegna nýmasjúkdóms tveggja bama þeirra. Hjónin eftirlétu sitt hvort nýrað til bamanna og var aðgerðin framkvæmd erlendis. Félagið hefur oft gefið til líknarmála. DV-mynd Sigurgeir Akranes: Félagsheimili hesta- manna tekið í notkun Sgurgeir Sveiussan, DV, Akranesi: Það voru tímamót hjá Hesta- mannafélaginu Dreyra fyrir stuttu. Þá var tekið í notkun nýtt félags- heimili. Jafnframt var aðalfundur félagsins haldinn. Það var 1983 sem framkvæmdir hófust félagsheimili. Þá var grunnur kláraður en framkvæmdir lágu síðan niðri þar til í fyrra að hafist var handa á ný. Verkinu hefur miðað vel síðan og er nú langt komið. Að sögn Kristjáns Heiðars Baldurssonar for- manns er stefnt að þvi að félags- heimilið verði fullgert í vor. Þaö er athyglisvert að félagið hefur ekki tekið nein lán til verksins og er það reist að mestu leyti í sjálfboða- vinnu félagsmanna svo og fjárfram- lögum. Húsið er 2502 aö stærð. Arki- tekt Magnús H. Ólafsson. í stjóm Dreyra eru Kristján H. Bald- ursson formaður, Samúel Ólafsson varafirmaður, Bjöm Jónsson gjald- keri, Ari Jóhannesson ritari og Jón Guðjónsson meöstjómandi. Tolli sýndi á Höfn Júlía Imsland, DV, Höfm Tolh, öðru nafni Þorlákur Krist- insson, hélt myndlistarsýningu á Hótel Höfn um síðustu helgi. Á sýn- ingunnl voru 22 myndir sem allar voru tU sölu. Þetta er í fyrsta sinn sem Tolli heldur sýningu á myndum sínum á Höfn en hann hefur haldið sýningar víða um land. Það er ánægjuleg tilbreyting að fá lista- menn með verk sín í heimsókn út á landsbyggðina og mætti gjarnan vera meifa af slíku. Þorlákur Kristinsson við nokkur verka sinna á sýningunni. DV-mynd Ragnar OTTTXro CASIO SEIKO rakvélar og hnökrabanar. Rakvél sem nota má i sturtu með eða án sápu. verð kr. 2.200. Rakvélasett fvrir bæði kyn. Skáktölvurnar sem Kasparov mælir með. Verð frá kr. 5.990. Casio hljémborð og skemmtarar i miklu úrvali. Verð fré kr. 3.600. Ljósasjé, mixerar og gltareffektar é besta verði i bænum. Verð fré kr. 3. Mesta reiknivélaúrval landsins. Verð fré kr. 440. Rafgitarar og bassar. Verð fré kr. 11.750. Beykskyojari..,..........kr. 1.280. Sjónvarpsmagnarar...frá kr. 1.350. 5ampera12vspennir........kr.2.360. :|; 12 volta flúrljós....frákr. 1,080. Hljóénamar..............Irikr.225. I§ Bamapassarar..........frókr. 1.535. ' Heymartól................frékr.320. ||i Vasaútvarp.....................kr. 1.170. Stýripinnar.............Irákr.695. , I Mælar.......................frókr. 1.160. jfcv; Hlaóslutaaki...............kr. 760. Tengur frákr.220. allar sniirur og tangi i allra basta i verði. í 'mögulegt Laugavegi 26, sími 21615 Árs ábyrgð á öllum vörum - Sendum í póstkröfu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.