Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1989, Qupperneq 17
MÁNUDAGUR 13. MARS1989.
17
Lesendur
Umræða um
EB
Anna Óskarsdóttir hrmgdi:
I tUefiii baráttudags kvenna
voru þættir í ýmsum fiölmiðlum
helgaöir umræðu um stöðu
þeirra.
Oft er talað um langan vinnu-
dag foreldra og nauðsyn þess að
báöir aðilar vinni utan heimilis.
Margar konur (jafnvel sumir
karlar) segjast verða að vinna úti
þótt þær vildu heldur vera heima
hjá bömum sínum.
í raun og vem er hægt að kom-
ast af með einar venjulegar
launatekjur. - Ekki „eina fyrir-
vinnu“ - þaö er bara orðaleikur.
Það kostar bara breyttar lífsvenj-
ur og gífúrlega vinnu þess aðilans
sem heima er.
Hvers vegna megum við konur
ekki viðurkenna að við vinnum
úti vegna þess að það er auöveld-
ara heldur en aö búa alla hluti til
heima og gæta jafiiframt bama?
Hringið í síma
27022
miUi kl. 10 og 12
eða skrifið
„Sauðþráinn“ er dýr
Ökumaður skrifar:
Sagt er að við íslendingar séum
sumir hverjir þrárri en sauðkindin
og er þá mikið sagt. Einnig eiga sum-
ir bágt með að játa yfirsjónir sínar
„Væri ekki ieið að læra af Akur-
eyringum?“ er spurt hér.
og halda oft og tíðum til streitu end-
emis vitleysu þótt það kosti ríki og
sveitarfélög stórfé.
Tjörusnjór gatnamálastjóra er að
verða ansi hvimleiður og þessi
blanda hans af salti, tjöru og snjó er
orðin borgarstjóra dýr. Öllum hugs-
andi mönnum (a.m.k. ökumönnum)
á að vera oröiö ljóst aö það er saltið
sem er að eyðileggja allar götur
Reykjavíkur - alls ekki nagladekk.
Strax og kemur út fyrir borgina,
þar sem ekki er ausið salti á malbik-
iö, er snjórinn hvítur og mun betra
aö aka heldur en í saltslabbinu.
Menn aka um á nöglum í mörgum
öðrum bæjar- og sveitarfélögum þar
sem yfirvöld hafa vit á aö ausa ekki
salti í snjóinn og þar þarf ekki að
„tjöruþvo" bílana.
Gatnamálastjórinn í Reykjavík
hefur sett á stofn þvottastöð fyrir
bíldekk. Þessi þvottastöö á að þvo
tjöruna af dekkjunum sem annars
eru líkt og smurö feiti og flughál. -
Væri nú ekki ráö, gatnamálastjóri
góður, að hætta saltaustrinum og
leggja niður þessar dekkjaþvotta-
stöðvar, leyfa mönhum að hafa
hreina bíla í hreinum snjó og eiga
skótau sitt óskemmt af salti?
Löggæslan hefur kvartaö yfir van-
búnum bílum í hálkunni aö undan-
fömu. Ástæöan er einföld. Mikili
áróður var hafður í frammi og menn
beinlínis hvattir til að aka ekki á
negldum hjólbörðum. Þetta hefur
orsakað mikið öngþveiti og árekstra.
Þetta var ábyrgðarleysi hið mesta og
raunar vítavert. Það á aö hvetja
menn til aö nota grófa hjólbarða
óneglda, þ.e.a.s. eftir aö hætt hefur
verið að ausa salti á göturnar. Þang-
að til ættu allir að aka á negldum
dekkjum.
Tjöruþvotturinn hefst um leið og
saltausturinn og sýnir það best að
saltið leysir upp tjömna. Þar sem
ekki er ausið salti á götur þarf ekki
að tjöruþvo bíla. - Hvernig fara Ak-
ureyringar aö því aö komast ferða
sinna án salts? Væri ekki ráð að læra
af þeim? Tjömslabbið í Reykjavík er
orðið til háborinnar skammmar fyrir
borgina og hin mesta armæða fyrir
alla íbúana. - Sauðþráinn verður að
víkja.
MALLORKA
Aðrar sólarlandaferðir
okkar: Benidorm - Malta -
Costa Brava - Costa del Sol
Mai, júni, okt. Júlí. ágúst, sept.,
22 dagar 22 dagar
Hótel m. morgunv. 2 i herbergi kr. 41.800,- kr. 45.300,-
fbúðahótel
4 i ibúð kr. 39.800,- kr. 49.700,-
3 í ibúð kr. 43.700,- kr. 49.800,-
2 i ibúð kr. 47.800,- kr. 55.700,-
Góð ferð - fyrir betra verð
Gerio sjálf
verðsamanburð
Þetta er kynningarverð fyrir takmarkaðan
sætafjölda ef pantað er fyrir 21. mars.
íslenskir fararstjórar og fjölbreyttar
skemmti- og skoðunarferðir. Allir gististaðir
á eftirsóttustu stöðunum nærri Palma.
— i inccania
= SOLRRFLUC
Vesturgötu 12 - Simar 15331 og 22100.
Heimilistæki
sem bíða ekki! ísskapm
eldaxél
Itvslikisla
Nú er ekki eftir neinu aö bíða, þú verslar í Rafbúö
Sambandsins fyrir 100 þúsund og getur þá keypt
öll heimilistækin í einu, vaiiö sjálfur hvert tæki af
ótal gerðum í pakkann, bætt sjónvarpi, videotæki
eöa hrærivél viö og skipt greiðslum jafnt niður á
24 mánuöi. Engin útborgun og fyrsta greiösla eftir
einn mánuð. Enginn íslenskur raftækjasali hefur
boðið slík kjör - hvorki fyrr né síðar. Hafðu sam-
band við Rafbúð Sambandsins strax - það er ekki
eftir neinu að bíða.
&SAMBANDSINS
HOLTAGÖRÐUM, SÍMI 685550
VIÐ HLIÐINA Á MIKLAGARÐI