Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1989, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1989, Page 27
MÁNUDAGUR 13. MARS 1989. 27 Iþróttir Arnór Guðjohnsen, landsliðsmaðurinn íslenski, þykir með leiknari og fljótari leikmönnum í belgísku knattspyrnunni. Leiklestur hans þykir einstakur og sendingarnar splundra margar hverjar vöm andstæðinganna. Hér hefur hann snúið á einn leikmanna Standard Liege. Arnór vill nú söðla um og leitar hugurinn suður ð bóginn. DV-mynd Marc De Waele Fer Amór til Italíu? - aö komast til Ítalíu er tæklfæri sem gefst aðeins einu sinni á hinum stutta knattspymuferli Á undanfórnum mánuðum hafa umboðsmenn atvinnuknattspyrnumanna verið að vinna á fullu fyrir sína leikmenn. Svo er einnig með umboðs- mann Arnórs Guðjohnsen en hann leitar nú að góðu félagi handa kappanum á Ítalíu, í Frakklandi eða á Spáni. En er máhð svona einfalt? Amór, sem verður 28 ára gamall á þessu ári, veit að nú er rétti tíminn til að færa sig suður á bóginn eins og hann hefur dreymt um svo lengi. Ef hann hefur heppnina með sér gæti hann leikið í 5 ár í viðbót með toppfélagsliði, en hvernig standa málin í dag hjá Arnóri, íslenska landsliðsmannin- um sem nú leikur með Anderlecht í Belgíu? Kristján Bemburg, DV, Belgíu: „Anderlecht hefur fuUan hug á að semja vlð mig og hafa ráðamenn fé- lagsins nefnt þriggja ára samning en þetta eru óformlegar viðræður sem hafa átt sér stað milli mín og félags- ins um þann samning," sagði Amór í viötali við DV. Með slíkum samningi gæti Amór tryggt sér stöðu hjá einu stærsta fé- lagi Evrópu til 31 árs aldurs og gæti því á margan hátt vel viö unað. En hugurinn leitar annað hjá þessum snjaRa knattspymumanni: „Ég hef tekið þá ákvörðun að skrifa eingöngu undir samning til eins árs í senn og kemur það til vegna þess að ég skrifaði undir samning viö Anderlecht fyrir flórum árum til þriggja ára en þá vaknaði mikill áhugi hjá ráðamönnum ýmissa ít- alskra og spánskra félagshða en ég gat þá ekki hreyft mig um set vegna samningsins við Anderlecht," segir Amór. „Þetta hefur setið í mér og því skrifa ég aðeins undir til eins árs i senn og ég vona að það heppnist í ár að skipta yfir í nýtt félag.“ Erfiðleikum bundið að komast til Ítalíu „Til þess að skipta yfir til Ítalíu þarf maður að vera stórt nafn í knatt- spymuheiminum," segir Arnór. „Hér áður fyrr var hins vegar allt keypt ef svo má segja. Síðan kom í ljós að oft var verið að kaupa köttinn í sekknum, leikmenn sem vom ekki betri en þeir sem fyrir voru í hðun- um. Þjálfaramir fengu mikla gagn- rýni fyrir þessi kaup sín og misstu gjarnan starfið í kjölfarið og stuðn- ingsmenn félaganna urðu bálreiðir," segir Amór. „Þó að ég sé vel þekktur hér í Belgíu veit ég ekki hversu langt sá orðstír nær út fyrir Belgíu. í raun þarf maður aö leika í lokakeppni heimsmeistaramótsins í knatt- spyrnu eða í úrshtum Evrópumóts landsliða og ganga þar vel til að verða keyptur til einhvers stórhðs þama suöur frá. Ef svo er horfir máhð við á annan veg þar sem þá ná leikmenn að skapa sér nafn eða fá færi á að skapa sér nafn í hinum alþjóðlega heimi knattspymunnar. Það er í raun meira virði en flestar aðrar til- raunir til að öðlast frægð. Sjáðu til dæmis Ronald Koeman sem er góður leikmaður en enginn snihingm-. Þrátt fyrir það er hann keyptur til Barcelona fyrir metupphæð og á þar mikið að þakka úrshtakeppni Evr- ópumóts landshða og raunar einnig úrshtuffi í Evrópukeppni félagshða. Það em að mínu viti til margir betri leikmenn en hann. Margt háir íslenskum knattspyrnumönnum „Það mun ávaht há íslenskum knatt- spymumönnum hversu möguleik- amir eru hthr á að við komumst í úrsht á stórmóti. Það eina sem getur Arnór hefur verið einn lykilmanna Anderlecht sem vlll nú gera við hann þriggja ára samning. oröið til þess aö við bijótum okkur leið þangað er að íslenskir leikmenn eigi mjög gott tímabil með sínu fé- lagshði og verði til dæmis Evrópu- meistarar með því. Ég tala nú ekki um ef þeir eiga síðan stórleik í sjálf- um úrshtunum. Þessum leikjum er sjónvarpað beint um aha Evrópu og margar miUjónir horfa á úrshtin. Það getur fært mönnum frama á silfur- fati.“ ' -^Ósmeykur við að iara til Ítalíu - Þú ert ekki hræddur að fara tU hðs á Ítalíu, Ula hefur farið fyrir sumrnn leikmönnum og nefna má welska landshðsmanninn Ian Rush sem dæmi. Eftir á hefði hann betur verið kyrr í Englandi? „Nei, aUs ekki, ég er ósmeykur. Að komast tU ítaliu er tækifæri sem gefst aðeins einu sinni á hinum stutta knattspymuferh. Þetta er einnig próf fyrir mann sjálfan. Ef maður hefur metnað og viU ná lengra verður mað- úr að táka tækifærið ef það gefst. Ég fer kannski ekki í betra hð en And- erlecht en ég færi í mun sterkari og um leið mun virtari deUdarkeppni. Ég myndi kjósa erfiðari leiðina, það er ekkert að vera hræddur við. Ef þessi möguleiki býðst hika ég ekki við að taka honum.“ Ansi hræddur um að ég verði að yfirgefa Anderiecht - Verður þú ekki að skipta nú í vor? Er ekki um seinan að skipta að ári? Nú ert þú að verða 28 ára gamaU og hefur trúlega aldrei verið betri. „Ég er ansi hræddur um að ég verði að yfirgefa Anderlecht áður en ég verð þrítugur. Á næsta ári er ég orð- inn 29 ára gamaU og sú tala hljómar ekki eins vel og 28. Annars Utur þetta Ula út hjá mér, staða Anderlecht er slæm, við erum dottnir út úr Evrópu- keppninni, eigum htla sem enga möguleika á að vinna deUdina og það síðasta sem viö höfum er bikarinn. Viö verðum hreinlega að vinna hann,“ segir Arnór og snýr sér aftur að málefnum félagaskiptanna: „Ég gæti trúlega farið fram á sölu og farið til einhvers hðs í Evrópu, tíl dæmis í Frakklandi. Þar eru ef til viU meiri peningar en það samræm- ist samt ekki mínum metnaði að fara í eitthvert hð bara þeirra vegna. Ég fer ekki að skipta bara til að skipta. Ég fer helst í hð sem er á toppnum eða við toppinn í sínu þjóðlandi. Ég sé vel núna hvað ég missti mikið úr með að vera meiddur í tvö heU leik- ár. Á þeim tíma var Anderlceht með mun betra lið en það er í dag. Þá voru möguleikamir meiri.“ Fékk sér nýjan umboðsmann - Nú fékkst þú þér nýjan umboðs- mann fyrir ári. Hvers vegna? „Það eru margir umboðsmenn á ferðinni og maður veit ekki hversu hægt er að treysta þeim. í mínu til- felh komst ég að því eftir á að And- erlecht stjómar mörgum af þeim umboðsmönnum sem em starfandi hér í Belgíu. Og ef þeir era að vinna fyrir leikmann frá Anderlecht, en félagið viU halda í leikmanninn, veit maður aldrei hvað gerist að tjalda- baki. Félagið getur gert sér lítið fyrir og greitt umboðsmanninum fé fyrir að gera einfaldlega ekki neitt. Hafði ég gran um að slíkt hefði gerst í mínu tilfelh þannig að ég valdi mér mann * sem kemm- úr öðra landi þannig að hlutleysið á vera tryggt í öUu falU,“ sagöi Arnór í viðtalinu viö DV. Hvort þessum nýja umboðsmanni Amórs tekst að koma honum að hjá nýju félagi er ómögulegt að segja tíl um en hann á mikið starf fyrir hönd- um þrátt fyrir að Amór búi yfir ótrú- legum hæfileikum sem knattspymu- * maöur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.