Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1989, Page 29
MÁNUDAGUR 13. MARS 1989.
29
Iþróttir
• Reynir úr Sandgeröi hefur tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni i körfuknattleik í fyrsta skipti. Liðið hefur náð
öruggri stöðu í 1. deild þó keppni sé ekki lokið. Lið Reynis er þannig skipað, aftari röð frá vinstri: Ellert
Magnússon, Björn Halldórsson, Helgi S. Sigurðsson, Kristinn Halldórsson, Sveinn H. Gíslason, Albert Svavars-
son og Jónas Jóhannesson þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Jón Guðbrandsson, Gunnar Þór Þormarsson,
Antony Stissy, Sigurþór Þórarinsson og Magnús Garðarsson. Á myndina vantar Jón Ben. Einarsson og Víði
Svein Jónsson.
DV-mynd Ægir Már
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á fasteigninni Krókatúni 5,1. hæð, þingl. eigandi Hjön/ar
Jóhannsson, talinn eigandi Gróa Haraldsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri
miðvikudaginn 15. mars 1989 kl. 11. Uppboðsbeiðendur eru Veðdeild
Landsbanka íslands, Lögmenn Hamraborg 12, Jón Þóroddsson hdl. og
Andri Árnason hdl.
Bæjarfógetinn á Akranesi
Til sölu
1984 Dodge Ramcharger
Royal SE
Bifreiðin er ríkulega búin aukahlutum, m.a. sjálf-
skipt, V8 318 CU IN vél, vökvastýri, veltistýri, cru-
ise-control, lúxus innrétting, rafmagnsrúður, raf-
magnslæsingar o.m.fl. Bifreiðin er ekin 73.000,
skipti möguleg. Verð kr. 950.000.
JÖFUR HF
Nýbýlavegi 2 • Sími 42600
Hængsmót fatlaðra íþróttamanna:
Stefán náði
bestum
árangri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
Um 80 keppendur tóku þátt í Hængsmótinu á Akur-
eyri. Það er mót fyrir fatlaða íþróttamenn, haldið af
Lionsklúbbnum Hæng á Akureyri, nú 7. árið í röð. Komu
þessir keppendur frá 7 íþróttafélögum víðs vegar á
landinu.
í keppni hreyfihamlaðra var keppt í boccia, borð-
tennis og lyftingum. Stefán Thorarensen, ÍFA, sigraði í
boccia og sveit ÍFR í sveitakeppninni. Elvar Thoraren-
sen, ÍFA, sigraði í borðtennis og Agnar Klemensson,
Viljanum, í lyftingum.
í flokki þroskaheftra var keppt í boccia. Þór Jóhanns-
son sigraði í einstaklingskeppninni en í sveitakeppninni
var Eik ffá Akureyri efst.
Stefán Thorarensen hlaut Hængsbikarinn að þessu
sinni en hann er veittur þeim einstaklingi sem nær best-
um árangri á mótinu hveiju sinni.
Þessi kappi er betur þekktur fyrir önnur afrek en i boccia.
Haukur Gunnarsson, ÍFR, einbeittur í boccia-keppninni.
Stefán Thorarensen, ÍFA, tekur hér við Hængsbikarnum
úr hendi Einars Sveins Ólafssonar, formanns mótsnefnd-
ar.
örn Ómarsson, ÍFR, varð í þriðja sæti í borðtennis.
JWIJIPI
roiyyioí
TILVALIN FERMINGARGJÖF
Hið fróbæra tungumálaspil,
Polyglot, er nú komið til Islands,
fyrst Norðurlanda. Polyglot er
andlega þroskandi og menntandi
leikur sem hefur verið hannaður til
þess að örva skilning og þekkingu á
erlendum tungumálum.
Hér er valið tækifæri til að efla tökin
á tungumálakunnáttu ykkar.