Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1989, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 1989.
9
Utlönd
Papandreou stóð af sér vantraust
Sósíalistastjómin í Grikklandi stóö
snemma í morgun af sér vantrausts-
tillögu sem verið hefur til umræðu í
gríska þinginu síðan á laugardag.
Stjórnarliðið varð hins vegar fyrir
miklum áfóllum þegar virtir þing-
menn Sósíahstaflokksins snerust
gegn stjóminni og Papandreou for-
sætisráðherra.
Papandreou tókst að fá 155 þing-
menn af 300 til að standa með sér
gegn vantrauststillögunni en þrír
virtir þingmenn Sósíalistaflokksins
sátu þjá og vom samstundis reknir
úr flokknum.
Pápandreou, sem er sjötugur, sagði
að niðurstöður atkvæðagreiðslunnar
væra alger hreinsun af ásökunum
sem settar hafa verið fram gegn Sós-
íalistaflokki hans, Pasok. Hann sagði
að flokkurinn væri á góðri leið með
að vinna sigur í kosningunum sem
fara fram 18. júní næstkomandi og
tryggja sér þar með nýtt fjögurra ára
tímabil við stjómvölinn í Grikklandi.
Aðal stjómarandstöðuflokkurinn,
Nýi Lýðræðisflokkurinn, sem er
hægra megin við miðju, lagði fram
vantrauststillöguna eftir að skoðana-
kannanir gáfu til kynna að nýjar
ásakanir gegn stjóminni vegna
bankahneykslisins hefðu stórskaðað
vinsældir hennar.
Konstantin Mitsotakis, leiðtogi
NýjaLýðræðisflokksins, sagði: „Pap-
andreou kom illa skaðaður út úr
þessari atkvæðagreiöslu. Hann mun
bíða ósigur í kosningunum í júní.“
Papandreou hefur mátt sæta haröri
gagnrýni undanfama fimm mánuði
vegna opinbers framhjáhalds og efa-
semda um heilsu hans, en hann gekk
undir mikla hjartaskurðaðgerð í
september í fyrra, og einnig hafa
komið upp slæm hneykslismál í sam-
bandi við vopnaiðnaðinn og banka-
mál sem stjómin tengist mjög.
Sósíalistamir, sem sviku ht, voru:
George Manghakis, fyrram dóms-
málaráðherra, Antonis Tritsis, fyrr-
um menntamálaráðherra, og Roula
Kaklamanaki, fyrram aðstoðarvel-
ferðarráðherra.
Pasok hafði 156 sæti fyrir atkvæða-
greiðsluna en eftir að liðhlaupamir
voru famir gengu tveir óháðir þing-
menn til hðs við stjómina.
Tveir aðrir þingmenn Pasok, einn-
ig fyrrum ráðherrar, yfirgáfu flokk-
inn á síðasta ári til að mótmæla
vinnubrögðum stjórnarinnar í sam-
bandi við hneykshsmálin. Þeir'gengu
til liðs við hreyfingu vinstrimanna,
sem tengist kommúnistaflokki
landsins.
Mitsotakis hóf umræðuna um van-
traustið á laugardag meö því að til-
kynna að atkvæðagreiðslan væri til
þess að skilja sauðina frá höfrunum
innan Pasok.
Umræðumar undanfama þijá
daga þykja eitthvert mesta skítkast
sem um getur í grískum stjóm-
málum um árabil og þykir það benda
til að kosningabaráttan verði
hatrömm og sóðaleg eins og oft verð-
ur þegar hart er barist og mikið í
húfl.
Mitsotakis sakaöi Papandreou um
að láta almenning borga fyrir „ástar-
hreiður" sitt. Þetta var í fyrsta skipti
sem framhjáhald Papandreous með
hinni þijátíu og fjögurra ára gömlu
Dimitru Liani er notað gegn honum
í stjórnmálaumræðunni.
Papandreou svaraði með því að
saka Mitsotakis um að vera á mála
hjá Bandaríkjastjórn og í slagtogi
með CLA í samsæri um að steypa
stjóm sinni af stóh. Einnig sakaði
Papandreou Mitsotakis um að hafa
tekið þátt í að reyna að koma kon-
ungsfjölskyldunni til valda á nýjan
leik á sjöunda áratugnum.
Reuter
enn nieiri háttar
0STATILB0Ð
stendur tll 21. mars
nú eru það smurostarnir, 3 dósir í pakka
Rækju-, sveppa- eða 3 ostategundir í pakka
Áður kostuðu 3 dósir ca.J^Ftfkr., IIÚ 290 kr.*
yfir 20% lækkun.
Beikonostur
Áður kostuðu 3 dósir ca. 42<kr., nú 330 kr.*
yfír 20% lækkun.
* leiðbeinandi smásöiuverð.
Kráarferð
fyrir 10-40 manna hóp
Bjóðum afnot af vinalegri krá í miðborginni
öll kvöld. Framreiðum mat og drykk að ykk-
ar óskum, aðeins veitingaverð. Einnig fyrir
B fundi o.fl. o.fl.
Uppl. og pantanir í síma 10292 eftir kl. 14
alla daga.
Geymdu mig.
noiadai mm
k SÓUISKRá:
Til söiu traktorsgröfur:
CAT 428 ’87
CAT 426 ’87
MF-50 ’82
JCB-30 ’87
JCB-30 ’87
CASE 580F ’81-’82
CASE 580G ’83-’87
ALLAR UPPLÝSINGAR HJÁ SÖLUMANNI
HEKLAHF
Laugavegi 170-174 Slmi 695500
Caterpillar. Cat og CH eru skrásett vörumerkl.
0 CATERPILLAR
YFIR 40 ARA FORYSTA A ISLANDI
TJL^.ss
250
2 50
I
Beikori
ostur
produce of lceland
Produce of Iceland
V
Rætóu
ostur
Produce of Iceland
ostur
Produce
of Iceland