Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1989, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1989, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 1989. Fréttir W'- wv m *!* *&**£::**!£* »m ■ s> jpr Þegar fjölskylda ætlar að kaupa íbúð byrjar hún á því að leita að henni á fast- eignamarkaði. Óþarfi er að senda inn umsókn til Húsnæðisstofnunar. Þegar seljandi hefur fengið skuldabréfið frá seljandanum í hendurnar fer hann með það í Húsnæðisstofnun sem lætur hann fá húsbréf fyrir sömu upphæð. Ef kaupandinn ætlar að kaupa aðra íbúð getur hann reitt húsbréfin fram sem greiðslu. Ef hann stefnir ekki að húsa- kaupum getur hann reynt að selja hús- bréfin annaðhvort hjá lífeyrissjóðnum sínum eða frjálsum verðbréfamarkaði. Þar munu húsbréfin sjálfsagt njóta svip- aðra kjara og ríkisskuldabréf enda með ríkisábyrgð. ■" . ; ... m Þegar íbúðin er fundin er gerður kaup- samningur. Meðalverð á blokkaríbúð í Reykjavík er í dag um 4,5 milljónir. Kaup- andi gefur þá út skuldabréf fyrir 65 pró- sent af kaupverðinu eða að andvirði 2.925.000 krónur. Þetta skuldabréf ber markaðsvexti. Hann fjármagnar síðan sjálfur 1.575.000 krónur af kaupverðinu. Ári eftir kaupin fara greiðsluseðlar frá Húsnæðisstofnun að streyma inn um lúguna hjá kaupanda íbúðarinnar. Þar sem markaðsvextir voru á skuldabréfinu sem hann gaf út og sem endaði hjá Húsnæðisstofnun er kaupandinn rukk- aður um mun hærri greiðslur en sam- kvæmt núgildandi kerfi. Að 40 árum liðnum hefur kaupandinn greitt um 145 prósent ofan á höfuðstól skuldabréfsins í vexti. Sá sem tekur lán í núgildandi kerfi greiðir hins vegar ekki nema um 70 prósent ofan á höfuðstólinn á 40 ára greiðslutíma. Þegar kemur að afborgun á láninu mun kaupandinn fá greiddar vaxtabætur frá skattinum. Þær verða mismunandi eftir tekjúm fjölskyldunnar og hreinni eign hennar. Þannig er miðað við að bætur til þeirra lægst launuðu og eignaminnstu munu í raun ná því að raunvextir af upphaflega skuldabréfinu verði 2 pró- sent eða minna þegar tillit hefur verið tekið til vaxtabótanna. Þeir tekjuhæstu og eignamestu munu hins vegar fá minna og jafnvel ekki neitt frá skattinum. Hvaða áhrif hefur húsbréfakerfið? Hærri lán, styttri biðraðir og mishá greiðslubyrði Ef frumvarp Jóhönnu Sigurðardótt- ur félagsmálaráöherra um húsbréfa- kerfið verður samþykkt á Alþingi munu húskaupendur geta fengið að láni mun stærri hluta af kaupverði íbúða en samkvæmt því kerfi sem nú er lánað eftir. Þar sem vextir verða ekki niðurgreiddir í húsbréfa- kerfinu verður greiðslubyrðin af húsnæðislánum mun hærri en í nú- gildandi kerfi. Vaxtabætur úr ríkis- sjóði munu síðan hafa þau áhrif að hinir lægst launuðu munu í raun greiða minna til baka af láninu en samkvæmt núgildandi kerfi en þeir sem hæst hafa launin munu greiða mun meira. Húsbréfakerfið á að eyða biðröðum Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir aö húsbréfakerfið muni í fyrstu verða notað til þess að minnka biðraðir hjá Húsnæðisstjóm. Þegar því er lokið á í raun engin biðröð að verða í kerfinu. Húskaupendur finna sér þá íbúð, ganga frá kaupsamningi og gefa út skuldabréf fyrir 65 prósent af andvirðinu. Seljandi skiptir siðan á þessu bréfi og húsbréfum í Hús- næðisstofnun. Hann getur síðan not- að þau sem greiðslu í nýja íbúð eða selt þau á almennum markaöi. Þetta fyrirkomulag gildir jafnt fyrir þá sem eru að kaupa í fyrsta skipti og þá sem eiga íbúð fyrir. í núgild- andi kerfi er þessum hópum mis- munað þannig að þeir sem kaupa í fyrsta skipti fá hærra lán en þeir sem eiga eign fyrir. Hærri lán í gegnum húsbréfakerfið Meðalverð á blokkaríbúð 1 Reykja- vík er í dag um 4,5 milljónir króna. Samkvæmt núgildandi kerfi fengi sá Fréttaljós Gunnar Smári Egilsson sem er að kaupa í fyrsta skipti 2.357.000 krónur lánaðar hjá Hús- næðisstofnun eða um 52 prósent af kaupverðinu. Sá sem á eign fyrir fær hins vegar 1.650.000 krónur eða um 37 prósent af kaupverðinu. Samkvæmt húsbréfakerfinu á kaupandinn hins vegar rétt á að gefa út skuldabréf til 40 ára að upphæð sem nemur 65 prósent af kaupverð- inu eða 2.925.000 krónum. Þannig fá þeir sem kaupa dýrari íbúðir en 3,6 milljónir meira lánað samkvæmt húsbréfakerfinu en þeir sem kaupa ódýrari íbúðir fá meira lánað út úr núgildandi kerfi. Mestar vaxtabætur til hinna lægst launuðu Þegar kemur að greiðslum af þess- um lánum er einnig munur á kerfun- um tveimur. Núgildandi kerfi ber 3,5 prósent vexti. Húsnæðisstofnun greiöir vextina niður og ver til þess mörg hundruð milljónum á ári hveiju. Greiðslubyrðin á þessum lánum er tiltölulega létt. Lántakend- ur greiða á 40 árum um 70 prósent ofan á höfuðstól lánsins í vexti. í húsbréfakerfinu eru vextir ekki niðurgreiddir. Lántakendur munu því þurfa að greiöa rúm 140 prósent í vexti ofan á höfuðstólinn á 40 árum sé miðað við 7 prósent vexti. Samkvæmt kerfinu er hins vegar gert ráð fyrir því að húskaupendur fái vaxtabætur frá skattinum. Til þess á að veija svipaðri upphæð og Húsnæðisstofnun ver nú tíl þess að niöurgreiða vexti á lánum sínum. í stað þess að allir sitji við sama borð, eins og í núgildandi kerfi, er gert ráð fyrir því að vaxtabæturnar verði mismunandi eftir tekjum og eignum húskaupenda. Þannig er reiknað með því að þeir sem hafa lægstu tekj- umar og em nær eignalausir fái greitt það mikið frá skattinum að það nægi tíl þess að raunverulegir vextir af húsbréfunum verði ekki nema um 2 prósent og jafnvel lægri. Þeir sem hafa hærri laun munu fá minna greitt frá skattinum og þeir sem hafa miklar tekjur og eiga miklar eignir munu ekki fá neitt. Núgildandi kerfi hyglir einkum þeim sem kaupa í fyrsta skiptí með því að láta þá fá hærra lán en aðra. Auk þess er ýmsum reglum beitt til að færa þá framar í biðröðinni eftir lánunum sem búa í slæmu húsnæði eða eiga mörg böm. Samkvæmt hús- bréfakerfmu njóta þeir hins vegar bestu kjara sem hafa lág laun og eiga litlareignir. -gse

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.