Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1989, Blaðsíða 18
18
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 1989.
Keflvíkingar í meistara-
ham á Hlíðarenda
- möluðu Valsmenn, 97-77, og leika til úrslita gegn KR
íþróttir
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Frétta-
stúfar
Dreglð I bikarnum
Dregið hefur verið til L umferðar
í bikarkeppni KSÍ en hún verður
leikin um mánaöamótin
maí/júní. Þar mætast eftirtalin
félög:
Ægir-Njarðvik
Haöiir - Afturelding
Grótta-ÍBV
Grindavík - Hveragerði
Víöir-Snæfell
Þróttur, R. - Haukar
Emir-Augnablik
ÍK-ÍR
Víkveiji - Ármann
Skallagrímur- Breiðablik
Völsungur-Magni
KS-Dalvík
Hvöt-TindastóU,
Leiftur-Reynir, Á.
Höttur-Valur, Rf.
Leiknir, P. - Sindri
Huginn-Einheiji
Þróttur, N.-Austri
Reynir úr Sandgerði, Árvakur,
Vikingur Ó., Selfoss, Stjaman og
Stokkseyri sitja hjá í 1. umferð
en dregið verður til 2. umferðar
að henni lokinni.
í bikarkeppni kvenna mætast
þessi liö í 1. umferð:
Dalvík - Þór, A.
FH-Vaiur
Skallagrímur - Breiðablik
ÍA, Selfoss, KA, KR og Stjaman
sitja hjá og fara beint í 8-liða úr-
slit
Garðartll Leifturs
Garðar Jónsson, markaskorar-
inn kunni frá Borgamesi, mun
leika með Leiftri á Ólafsfirði í 2.
deildinni í knattspymu í sumar.
Garðar lék með Skallagrími
þegar liðið var í 2. deild fyrir
nokkrum árum en hefur síðan
yerið leikmaöur og þjálfari hjá
Hvöt á Blönduósi og Dalvíkingum
með góðum árangri. Með þessum
liðum skoraöi hann 34 mörk í 33
leikjum í 3. og 4. deild, ogætti því
að reynast Ólafsfirðingum góöur
styrkur.
Aðalfundur FH
Aöalfundi Fimleikafélags Hafn-
arfjarðar, sem halda átti þann 16.
mars, hefur verið frestað til
mánudagsins 3. aprtl og hefst
hann kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu
í Hafnarfirði.
Þrenna frá Aldridge
John Aldridge skoraði þrjú mörk
í gærkvöldi þegar Liverpool mal-
aði Luton, 5-0, i 1. deild ensku
knattspyraunnar. Peter Beards-
ley og Steve McMahon bættu
tveimur mörkum viö og Liver-
pool er nú tíu stigum á eftir Aree-
nal og á tvo leiki til góöa. í 2.
deild urðu úrslit þessi:
Hull-Leeds............1-2
Ipswich - Bournemouth..3-1
Oldham - Portsmouth....5-3
Sunderland - Manch. City.J2-4
Pelrovlc skoraði 62
Júgóslavneski körfúknattleiks-
snillingurinn Drazen Petrovic
skoraöi hvorki fleiri né færri en
62 stig fyrir lið sitt, Real Madrid,
í úrslitaleik Evrópukeppni bikar-
hafa í gærkvöldi. Real sigraöi þá
Saidero Caserta frá Italiu,
117-113, eftLr framlengingu og
tryggði sér sigur í keppninni öðru
sinni. Annar stórkostlegur leik-
maður var lika í sviðsfjósinu því
að Brasilíumaöurinn Oscar
Schmidt var 1 aðalhlutverki hjá
ítölunum og skoraði 44 stig áður
en hann hvarf af velli í framleng-
ingunni með 5 villur.
Rummenigge skoraði
Karl-Heinz Rummenigge, sá gam-
alkunni vestur-þýski knatt-
spyrnumaður, skoraöi mark í
gærkvöldi þegar félag hans, Ser-
vette frá Sviss, sigraöi enska 1.
deildar liöið Millwall, 3-1,1 vin-
áttuleik í London í gærkvöldi
Ef Keflvíkingar halda áfram í úrslita-
leikjunum gegn KR eins og þeir léku
gegn Valsmönnum á Hlíðarenda í
gærkvöldi má fastlega búast við því
að íslandsmeistaratitillinn í körfu-
knattleik verði þeirra í fyrsta skipti
í næstu viku. Þeir sigruðu Val öðru
sinni, nú 97-77, og sýndu sannkallaða
meistaratakta um leið og þeir
tryggðu sér sigur í imdanúrslitaein-
víginu við Hlíðarendaliðið.
Þeir kaffærðu Valsmenn í byrjun
með hröðum og glæsilegum leik,
Guðjón Skúlason hafði skorað 7 stig
eftir aðeins 50 sekúndur og þeir voru
komnir 14 stigum yfir á 8. mínútu,
27-13. Eftir það héldu þeir leiknum í
sínum höndum, staðan í hálfleik var
reyndar aðeins 47-39 en síðan stimgu
þeir af á ný í upphafi síðari hálf-
leiks. Þá gerði Guðjón 8 stig á fyrstu
tveimur mínútunum og staðan var
orðin 66-43 eftir aðeins fimm mínút-
ur. Úrslitin voru þar með ráðin og
það var sama hverjir komu inn á hjá
Keflvíkingum, lið þeirra virtist aldrei
veikjast og fór létt með að halda í
horfinu og vel það. Mest munaði 25
stigum á liöunum áður en Valur
„Við metum mikils starf þitt hér á
landi, þú hefur sýnt það og sannað
að þú ert einn mikilhæfasti þjálfari
sem veröldin á á sviði handknattleiks
og í framhaldi af því hefur fram-
kvæmdastjóm íþróttasambands ís-
lands ákveðið að sæma þig æðsta
heiðursmerki íþróttahreyfingarinn-
ar fyrir störf þín að málefnum íþrótta
hér á íslandi.“
Þetta sagði Sveinn Bjömsson, for-
seti ÍSÍ, er hann sæmdi Bogdan Kow-
alczyk, fyrrum landsliösþjálfara ís-
lendinga í handknattleik, æðstu
heiðursorðu íslenskrar íþróttahreyf-
ingar.
Athöfnin fór fram 1 húsakynnum
íþróttasambandsins í Laugardal og
var margt gesta. Mátti þar meðal
annars líta landsliðsmenn íslands,
Svavar Gestsson menntamálaráð-
herra, Jón Hjaltalín Magnússon, for-
skoraði síðustu fimm stig leiksins
þegar Suðuraesjamenn voru of ákaf-
ir við að ná 100 stigunum.
„Nú er komin upp sú barátta og
liðsheild sem okkur hefur vantað síð-
ustu árin. Kjarkurinn er líka fyrir
hendi, í fyrra og hittifyrra misstum
við niður leiki efdr að hafa byrjað
vel en nú höldum við hraðanum all-
an tímann. Breiddin er líka meiri en
nokkru sinni fyrr og ég held að ég
geti sagt að enginn úr Valsliðinu
kæmist í tíu menna lið okkar í dag!
Ég er mjög bjartsýnn á leikina við
KR og óttast ekki hina nýju pressu-
vöm þeirra ef dómaramir dæma
eðlilega á þá en leyfa þeim ekki að
leika ruddalega eins og þegar við töp-
uðum fyrir þeim í síðasta leik deilda-
keppninnar. Við Axel Nikulásson
erum búnir að bíða eftir meistara-
titlinum í tíu ár - nú ætlum við okk-
ur hann og ekkert annað," sagði Jón
Kr. Gíslason, þjálfari og leikstjórn-
andi Keflvíkinga, í samtali við DV
eftir leikinn í gærkvöldi.
Keflvíkingar léku hver öðrum bet-
ur. Engu máli skipti þó Guöjón og
Jón Kr. væru utan vaflar megnið af
mann handknattleikssambandsins,
ásamt stjómarmönnum og Gísla
Halldórsson, formann íslensku
ólympíunefndarinnar.
Margir tóku til máls við þessa at-
höfn. Meðal annars þakkaði mennta-
málaráðherra Bogdan fyrir skerf
hans tfl íslenskra íþróttamála og
þann árangur sem áunnist hefur í
handknattleiknum.
Þá þakkaði Bogdan sjálfur í stuttu
ávarpi fyrir þann heiður sem honum
væri auösýndur. Hann lagði um leið
þunga á aö hann tæki við heiðursorð-
unni fyrir hönd alls íslenska lands-
liðsins. Kvað hann það sárt að geta
ekki útdeilt heiðursmerkinu meðal
þeirra leikmanna sem hefðu gert
garðinn frægan með íslenska liðinu
undir hans stjóm.
-JÖG
síðari hálfleiknum og Axel fengi
fimm viflur þegar talsvert var efdr
af leiknum. Það var sama hver kom
inn á, allir léku vel og framlag Fals
Harðarsonar seint í leiknum var
mikilvægt. Hjá Val náði enginn sér
á strik, mest mæddi á Tómasi Holton
en hann mátti ekki við margnum.
Stig Vals: Matthías Matthíasson 18,
Tómas Holton 17, Hreinn Þorkelsson
10, Ari Gunnarsson 8, Amar Guð-
mundsson 8, Bárður Eyþórsson 7,
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það er of snemmt að fara að fagna
sigri strax en óneitanlega lítur þetta
vel út hjá okkur,“ segir Haukur Val-
týsson, fyrirliði meistaraflokksliðs
KA í blaki, en liðið er nú aðeins hárs-
breidd frá því að tryggja sér íslands-
meistaratitilinn.
Sigurganga KA í vetur hefur verið
löng og glæsileg. í 16 leikjum hefur
liöið ekki tapað þótt vissulega hafi
oft skolliö hurð nærri hælum. Liðið
er þannig komið í undanúrslit bikar-
keppni Blaksambands íslands.
KA hefur tvö tækifæri
KA hefur tvö tækifæri til að tryggja
sér titilinn, þarf að vinna sigur í öðr-
um af þeim tveimur leikjum sem liö-
ið á eftir að leika í úrslitakeppninni.
Andstæðingar KA í fyrri leiknum
verða Stúdentar og fer leikurinn
fram á Akureyri skömmu eftir
páska.
Fram vann Val í 1. defld kvenna á
Hlíðarenda í gærkvöldi með 20 mörk-
um gegn 19 og er þar með komið með
þriggja stiga forskot á skæðasta
keppinaut sinn, FH.
Valsstúlkur tóku þær Guðríði og
Ingunni strax úr umferð og við þaö
riðlaðist sóknarleikur Fram. Leikur-
inn var ekki mjög vel spilaður en
barátta Valsstúlknanna var mikil í
þessum leik og þurftu Framstúlkur
að hafa mikið fyrir sigrinum. Fram
hafði yfir í hálfleik, 12-8. Valsstúlkur
vora mun ákveðnari í síðari hálfleik
og söxuðu jafnt og þétt á forskot
Fram. Þegar 2 mínútur vom til leiks-
loka náði Kristín Amþórsdóttir að
Ragnar Þór Jónsson 5 og Bjöm Zoega
4.
Stig Keflavíkur: Guðjón Skúlason
25, Falur Harðarson 14, Axel Niku-
lásson 12, Sigurður Ingimundarson
10, Jón Kr. Gíslason 9, Magnús Guð-
finnsson 8, Nökkvi Már Jónsson 8,
Albert Óskarsson 5, Einar Einarsson
4, Egfll Viðarsson 2.
Jón Otti Ólafsson og Leifur Garð-
arsson dæmdu leikinn mjög vel.
„Þar fáum við tækifæri á heima-
vefli sem við megum ekki láta okkur
úr greipum ganga. Við veröum að
klára þetta dæmi í þeim leik, það
væri afar slæmt að fara að tapa leik
á heimavefli í þessari keppni,“ segir
Haukur Valtýsson.
Áhugi hefur aukist verulega
Áhugi á blaki hefur verið að auk-
ast verulega á Akureyri og er ekki
ósennilegt að hinn góði árangm: KA
eigi þar stóran hlut aö máli. Áhorf-
endur á leikjum liðsins fyrir norðan
hafa verið aflt aö 400 og fái KA slíkan
stuðning, er flð ÍS kemur í heimsókn
eftir páskana, em góðar líkur á að
liðið tryggi sér titilinn eftirsótta.
Meistaraflokkslið í flokkaíþróttum
frá Akureyri hafa orðið þekkt fyrir
annað en að sanka að sér titlum og
ef KA nær að tryggja sér titilinn nú
verður það fyrsti meistaratitillinn
sem kemur til Akureyrar í langan
tíma
laga stöðuna í 18-19 og í næstu sókn
Fram, sem var mjög kæruleysisleg,
misstu Fram-stúlkur boltann og áttu
Vals-stúlkur tækifæri á að jafna en
það fór á sama veg og hjá Fram og
Fram tókst að bæta við einu marki
fyrir leikslok. Kolbrún Jóhannsdótt-
ir markvörður átti ágætan leik í ann-
ars slöku liði Fram en hjá Val vom
þær Kristín og Katrín skárstar.
Mörk Fram geröu Guðríður og
Ama, 5 hvor, Björg 4, Margrét 3,
Hafdís 2 og Ingunn 1.
Mörk Vals gerðu þær Guðrún og
Katrín, 6 hvor, Kristín 5 og Guðný
og Ásta eitt hvor.
-MHM
Friðjón Friðjónsson frá afreksmannasjóði ÍSÍ færði í gær Handknatt-
leikssambandi íslands veglegan peningastyrk úr sjóðnum. Nam upphæö-
in einni mifljón króna. Kemur öárhæðin sambandinu vel þar sem kostnað-
ur vegna þátttöku íslenska landsliðsins á b-heimsmeistaramótinu í
Frakklandi var mlkifl. Styrkur þessi var afhentur sambandinu meðal
annars til að kvetja íslenska handknattleiksmenn til frekari afreka.
JÖG
• Bogdan Kowalczyk tekur í hönd Sveins Björnssonar, forseta ÍSÍ. Heiðurs-
orða sambandsins blasir við á brjósti Pólverjans og i bakgrunni má líta
Svavar Gestsson menntamálaráöherra. DV-mynd Brynjar Gauti
Bogdan heiðraður
- sæmdur æðsta heiðursmerki ÍSÍ
-vs
- tekur bannið út næsta haust
Sigurður Ingimundarson, einn lykilmanna körfuknattleiksliðs Keflvík-
inga, var rekiim af leikvefli þegar 26 sekúndur vora eftir af leiknum við
Val í gærkvöldi. Hann sló Tómas Hoiton og var vísað til búningsher-
bergja fýrir vikið. Sigurður sleppur þó meö skrekkinn og getur leiltið
úrslitaleikina gegn KR. Aganefnd kemur saman á þriöjudögum og úr-
skurðir hennar taka gildi föstudaginn á eftir. Leikir Keflavíkur og KR
fara fram á laugardag og mánudag og sfðan á miðvikudag ef þriðja leik
þarf, þannig að Signrður getur leikið alla dagana. Hann mun hins vegar
væntanlega heíja næsta keppnistimabil í leikbanni.
-VS
Verðum að
klára dæmið
- segir Haukur Valtýsson, fyrirliði KA
Betri staða Fram
- eftir sigur á Val, 20-19
I
i
gn
un