Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1989, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1989, Blaðsíða 27
MIÐV-IMJÐATÍÖTRIÍB': MMB/Í988L 55 JOV Ólyginn sagði . . . | Sylvester Stallone sagöi nýlega í blaðaviðtali að líf hans væri ekki ólíkt lífi Elvis Presley. Þrátt fyrir mikil auðæfi er hann svo óhamingjusamur að það heldur fyrir honum vöku. „Áður vaknaði ég syngjandi glað- ur en síðustu árin hafa verið gleð- isnauð,“ sagði Sly. Nú er hann á sama aldri og Elvis var þegar hann lést og hann hefur líka ver- ið í tygjum við fyrrum vinkonu EMs. Endasleppt hjónaband hans og Birgitte Nielsen veldur þonum þungum áhyggjum. „Ég er álltaf að reyna að sanna mig á einn eða annan hátt,“ sagði Sly og bætti við, „sérstaklega eftir að það varð opinbert hve marga elskhuga Birgitte átti meðan við vorum gift.“ Andy Grifflth sem leikur hinn vinsæla Matlock í sjónvarpinu, er ekki eins ljúfur í einkalífinu. Hann þykir með afbrigðum skapstirður og erfiður samstarfsmaður. Haft er eftir samstarfsmönnum að engin leið sé að vita um viðbrögð hans fyrir- fram - ýmist er hann í ágætu skapi eða arfafúll. Andy er í sín- um eigin hugarheimi og á í erf- iðleikum með að læra textann sinn. Þrátt fyrir alla skapbresti nýtur hann þess aö vera vinsæll hjá áhorfendum og því heldur hann hlutverkinu. Kene Holliday sem leikur aðstoðarmann Matlocks, er ekki hótinu betri í samstarfi. Hann á við alvarlegt áfengisvandamál að stríða og bitnar það illa á vinnu hans við þættina. Nýlega klessti hann bíl sinn er hann ók dauðadrukkinn um götur Los Angelesborgar. Honum tókst aö skríða út úr bíln- um og brjóta nokkrar rúður í stóru verslunarhúsnæði. Fram- leiðendur þáttana eru í öngum sínum yfir þessum tveim hetjum, sem eiga að vera fyrirmynd laga og réttlætis. Sviðsljós Hveragerði: Úr bílskúr í verslun á aðeins 5 mánuðum Sigriður Guimarsdóttir, DV, Hveragerðú „Þetta hefur sprungið út. Auk verslunarinnar erum við með verk- stæði á staðnum og tökum tæki til viðgerðar," sögðu þau hjónin Heiðdís Steinsdóttir og Vilhjálmur Magnús- son tæknifræðingur. Þetta er eins og gerist í ævintýrunum. í séptember sl. stofnuðu þau fyrirtæki í bílskúrn- um sínum heima að Kambahrauni 17 í Hverageröi en 1. febrúar fluttu þau úr bílskúmum og opnuðu versl- un að Breiðumörk 2 hér í Hveragerði. í fyrstu voru þau með þjónustu og viðgerðir á sjónvarpstækjum í bíl- skúmum, myndbandstækjum og loftnetum og það kom strax í ljós að þörf var fyrir slíka þjónustu hér. Fyrirtækið stækkaði ört, bílskúrinn nægði ekki og því var verslunin stpfnuð. í versluninni era sjónvarpstæki til sölu, tölvur, hljómborð og einnig skrifstofu- og verslunartæki, ritvél- ar, reiknivélar, búðarkassar og fleira. í framtíðinni verða þar hljóm- plötur, geisladiskar og verslunin er opin á venjulegum verslunartímum. Heiðdís Steinsdóttir og Vilhjálmur Magnússon í verslun sinni i Hveragerði. DV-mynd Sigríður Guðmundur Loftsson við jeppa sinn, Ford Bronco 79 - átta sil., V 8, 160 hestðfi. Snjall í ófærðinni Sigridur Gunnaisdóttir, DV, Hveragerði: Jeppinn hans Guðmuridar Lofts- sonar frá Vestmannaeyjum hefur vakið mikla athygli hér á götum Hveragerðis í ófæröinni. Hann kemst sinna ferða án fyrirhafnar, enda voldugur og sterkur, Guð- mundur vann aö breytingum á jeppanum í eitt ár í aukavinnu, reyndar með hléum, og vann þær nllar sjálfur. Af breytingunum má nefria upp- hækkað hús frá grind mn 10 sentí- metra og upphækkun á flöðrum um þrjár tommur. Læst drif að firaman og aftan. Lækkaö drifhlut- fall. Dekkin eru voldug, 44x15 tommur. Þá er hann með 6 tommu spil, SSB Gufunesstöð, talstöð, lór- an og áttavita og Guðmundur ætti því ekki að villast á fjöllum. Heiðruð í Bolungarvík Vilborg Davíösdóttir, DV, ísafirði: Slysavarnadeildin Hjálp í Bolung- arvík heiðraði fyrir stuttu þá Gísla Hjaltason og Hálfdán Einarsson fyrir mikil og óeigingjöm störf í þágu sveitarinnar. Þeim vom afhent sér- stök heiðursskjöl og einnig var Hálf- dáni og eiginkonu hans, Petrínu Jónsdóttur, afhentur viðurkenning- arskjöldur frá slysavarnadeildinni Erni í þakklætisskyni fyrir 200 þús- und króna gjöf til sveitarinnar. Með þessu vildu hjónin efla slysa- varnir í Bolungarvík og um leið heiöra. minningu foreldra sinna en öld er liðin frá fæðingu þeirra í ár. Feður þeirra drukknuðu báðir þegar þau voru ung að ámm. „Þetta er höföingleg gjöf sem kem- ur í góðar þarfir og mun ekki gleym- ast. Við höfum ráðstafað peningun- um til kaupa á útkallstækjum, stjórnstöð og 6 flotgöllum fyrir Erni,“ sagði Magnús Hansson, ritari slysa- varnardeildarinnar, í samtah viö DV. Gísli Hjaltason. Hálfdán Einarsson þakkar Magnúsi Hanssyni fyrir heiðursskjalið. DV-myndir BB, ísafirði Kvöldvakan í (immtugsafmælinu. DV-mynd Sigrún Egilsstaðir: Baðstofuvaka í afmælinu Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egflsstöðum: Allsérstæður afmæhsfagnaður var haldinn í Hótel Valaskjálf laugardag- inn 4. mars. Orri Hrafnkelsson, smið- ur og lengst af framkvæmdastjóri Trésmiðju Fljótsdalshéraðs, hélt þá upp á fimmtugsafmæh sitt með þvi að bjóða til kvöldvöku að gömlum sið. Sett var upp baðstofa þar sem heimilsfólk sat við tóvinnu og börn léku að leggjum og völum. Síðan bar gest að garði og í samræðum við heimamenn rifjaði hann upp eitt og annað frá hðnum dögum. Inni á milli var lesið úr guhbókmenntum okkar. Gestir nutu í ríkum mæh þess sem fram fór og var þetta hin ánægjuleg- asta kvöldstund.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.