Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1989, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1989, Blaðsíða 14
. MIÐVIKUDAGUR flö, MfölS 0988. Frjálst.óháÖ dagblaö Otgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11. SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 900 kr. Verð í lausasölu virka daga 85 kr. - Helgarblað 100 kr. Þolum samdráttinn Nauðsynlegt er, að almenningur í landinu sætti sig í ár við samdrátt í athafnalífi. Við sjáum þegar mörg merki þessa samdráttar. Pöntunum í sólarlandaferðir fækkar. Miklu minna en áður er keypt af nýjum bílum. Fólk sparar meira en áður við sig í matarinnkaupum. Þetta sama sjáum við af hinum stóru stærðum efnahags- lífsins. Kaupmáttur launa minnkaði strax í fyrra um 2-3 prósent frá fyrra ári, þegar borin eru saman meðal- töl. Kaupmáttur er nú ekki minna en 6-7 prósent undir meðaltalinu í fyrra. Á meðan hækka vörur nú stöðugt. Sjálfsagt er að mótmæla þeirri ábyrgð, sem ríkið ber á þessu. En við verðum að vera skynsöm. Ekki nægir að kenna bara stjórnvöldum um. Vissulega búum við und- ir slæmri ríkisstjórn. En við höfum ekki í mörg ár bfað í samræmi við efni. Nú er komið að skuldadögum. Hvort sem okkur líkar betur eða verr, komumst við ekki hjá slíkum skuldadögum. Lítum á, að þrátt fyrir kaup- máttarrýrnunina má búast við 10 milljarða halla á við- skiptum okkar við útlönd. Fiskvinnsla berst nokkuð í bökkum. Fólk ræðir nú kaupkröfur. En sé ætlunin að jafna metin milb minni kaupmáttar og fyrri kaupmátt- ar, mun það ekki takast nú. Það er vegna minni fram- leiðslu. Hækkun launa verður því að miðast við, að samt verði kaupmáttur mun minni en í fyrra. Annað gengur ekki upp. Það mundi bara kaba á meiri verðbólgu og meiri gengisfebingar. Þetta eru grundvabatriði, nú þegar rætt er um hækk- un kaups. En auðvitað megum við í leiðmni ekki gleyma sök stjómmálamannanna, landsfeðranna. Við lentum í þeirri ógæfu, að góðæri síðustu ára var sólundað. í stað þess að nota góðæri tb að byggja upp hag fyrirtækja og efnahag þjóðarbúsins, var þessu öbu eytt. Þetta hefur haldið áfram. Landsfeðurnir tala um habalaus fjárlög en enda með gífurlegan haba á ríkisfjármálum. Albr vita, að stór hluti ríkisútgjalda fer í hluti, sem ekki gagn- ast þjóðarbúinu. Þetta heldur áfram. Ekkert er eðlbegra en, að almenningur beri sig iba undan þessu. Ríkið só- ar, en almenningur er látinn mæta slíku með mikibi kjaraskerðingu. Núverandi ríkisstjórn nýtur naumast þingmeirihluta en lafir þó. Þetta höfum við kosið yfir okkur. Því er hið eina, sem þjóðin getur gert af viti, að þola kjaraskerðinguna, ef vera mætti, að hún kæmi málum okkar í skipulegt horf. Því verður í samningum nú að miða við, að mikb minnkun kaupmáttar verði frá fyrra ári og einkum miðað við fyrri góðæri. Skerðing lífskjaranna nú kemur einkum fram í minnkun kaupa á því, sem fólk getur helzt án verið, sem eðhlegt er. Skerðingin kemur enn lítið fram í minnkun matarkaupa. En nú í janúar voru fluttir 386 fólksbbar cb landsins samanborið við 1380 í janúar fyrir ári. Bba- innflytjendur spá, að í ár verði fluttir inn 7-8 þúsund bbar, sem eru um fjórum þúsundum minna en eðihleg endumýjun útheimtir. Pantanir í sólarlandaferðir hafa líklega mrnnkað um þriðjung frá í fyrra. Á þessum dæmum má sjá, hver eru fyrstu viðbörgð fólks við sam- drættinum. Fyrirtæki mæta samdrætti með fækkun starfsfólks, en einkum með minnkun yfirvinnu. At- vinnuleysi er meira nú en verið hefur um langt skeið. Kaupmáttur tímakaups hefur minnkað mikið. En fyrir marga skiptir meiru, að minnkun yfirvinnu kann að þýða 20-30 prósent skerðingu tekna. En á þessu eru ekki töfralausnir. Haukur Helgason Innan EFTA velta menn því mjög fyrir sér hvað framtíðin muni bera í skauti sér. Hugmyndin um innri markað Evrópubandalagsins færist æ nær raunveruleikanum. Árið 1992 nálg- ast óðfluga. Sífellt skýtur upp í umræðunni líkunum á því að fleiri EFTA-ríki muni sækja um aðild að EB. Ef til vill lýsir það nokkuð efasemdum um að EFTA takist að aðlaga sig nýjimi aðstæðum, takist að leysa þau vandamál sem EFTA-ríkin standa frammi fyrir þegar innri markaöurinn kemur í fram- kvæmd. Sumir telja liklegt að nú þegar á árinu 1989 muni Austurríki sækja um aðild að EB. Að vísu hefur framkvæmdanefnd EB ítrekað lýst því yfir að hún muni ekki ræða frekari aöild annarra þjóða að bandalaginu fyrr en innri markaö- urinn hefur náö framkvæmd. En umræðan heldur áfram. Sterkar raddir eru í Noregi og Sví- þjóð um að leita eftir aðild að EB. Jafnvel telja sumir Sviss íhuga að- ild. Jaques Delors, forseti framkvæmdastjórnar EB. - Hann veltir fyrir sér formi frekara samstarfs EFTA og EB. Framtíð EFTA Fari svo að þessi lönd tengist EB nánum böndum eöa beinlínis verði aðilar hðast EFTA í sundur. Þá eru nánast aðeins ísland og Finnland eftir. Að vísu velta sumir fyrir sér opnuninni til austurs. Raddir heyrast frá Ungverjalandi um aðild að EFTA og hvað um Pólland og Tékkóslóvakíu ef per- estrojkan heldur áfram? Samstarf EFTA og EB Meginstarf EFTA hefur að und- anfomu verið samningar við EB. Þar er mikið starf framundan og ekki síst hefur ræða Jaques Delors, forseta framkvæmdastjórnar EB, hleypt nýju blóði í starfið. Mér virðist ljóst að EFTA veröur sameiginlegur vettvangur aöildar- ríkjanna til að takast á við sam- skiptin við EB. Tvíhhða samningar einstakra þjóða við EB verða líklega fremur undantekningar ef svo fer fram sem horfir. Allir samningar verða einfaldari ef EFTA sér um samningagerðina fyrir aðildarríkin en reyndar kahar það á ýmsar breytingar innan EFTA eins og Delor hefur vakið máls á. EFTA-ríkin stefna að eins náinni samvinnu við EB, þ.e.a.s. þátttöku í innri markaðnum, og mögulegt er án samvinnu á sviöi sljómmála og öryggismála. ísland hefur reyndar haft fyrirvara varðandi fulla framkvæmd á „frelsunum fjórum“, þ.e. óhindrað streymi vöm, þjónustu, vinnuafls og fjár- magns. Á árinu 1988 vom haldnir hvorki meira né minna en þrír toppfundir EFTA og EB, í Bmssel í febrúar, í Tampere í júní og í Genf í nóvemb- er. Margvíslegur árangur hefur náðst, t.d. að því er varðar að fjar- lægja tæknfiegar hindranir og varöandi uppranareglur. Líklegt er því að samstarfið muni aukast enn á árinu 1989 og frekari árang- urs sé að vænta. Leiötogafundur EFTA-ríkjanna verður haldinn í Osló um miðjan mars nk. og þar veröur væntanlega fjallað um samskiptin við EB og ekki síst hið umrædda útspil Delors í hinni frægu ræðu hans. KjaUarinn Guðmundur G. Þórarinsson, alþingismaður fyrir Framsóknarflokkinn Form samskiptanna Samstarf EB og EFTA hefur auk- ist í kjölfar Luxemborgaryfirlýs- ingarinnar 1984 um einstaka og af- markaða þætti. í ræðu sinni velti Delor fyrir sér formi frekara samstarfs. Hannes Hafstein, ráðuneytis- stjóri í utanríkisráðuneytinu, hef- ur í minnisblaði um rseðu Delors orðað hugmyndir hans um tvær leiðir á eftirfarandi hátt: 1) Halda sig við núverandi sam- skiptahætti, sem séu að mestu tvíhhða í eðh sínu (þ.e. EB og hvert EFTA-ríki um sig) og stefna þar að fríverslunarsvæði sem nái tfi EB og EFTA. 2) Leita eftir nýrri og skipulagðari (formfastari) samstarfsleið meö sameiginlegum stofnunum til töku ákvarðana og tfi stjómunar í þeim tilgangi að gera starfið virkara og tfi að leggja áherslu á hinn póhtíska þátt í samstarfi okkar á sviði efnahagsmála, fé- lagsmála, fjármála og menning- armála. Delor varpaði fram þeirri hug- mynd að EFTA breytti stofnskrá sinni og hefur þá væntanlega í huga að ákvaröanataka innan EFTA verði á einhverjum sviðum „yfirþjóðleg“, svipað og er í EB. Þá yrði ákvörðun sameiginlegrar samkundu eða þings EFTA-ríkj- anna æðri ákvörðunum hinna ýmsu þjóðþinga. Hingað til hafa EFTA-ríkin tahð þaö aðal stofnskrárinnar aö hvert ríki tekur sjálfstæða ákvörðun um einstök atriði og líklega mundi mörgum íslendingum þykja þröngt fyrir sínum dymm ef sameiginleg samkunda EFTA-ríkjanna gæti tekið ákvörðun í sumum málum þeirra, jafnvel í andstöðu við ís- lendinga sjálfa. Aht þarfnast þetta mfitillar gætni og varúðar. Á leiðtogafundinum í Osló um miðjan mars þurfa menn að ræða afstöðuna tfi þessara atriða. Em EFTA-ríkin tfibúin að hhta sameiginlegri viðskiptastefnu? Em EFTA-ríkin tfibúin að hhta lögsögu Evrópudómstólsins á sviði viðskiptamála? Em EFTA-ríkin tfibúin að setja sameiginlegar reglur um fijálst flæði vöm? Þannig mætti lengi telja. Ljóst er að afstaða EFTA-ríkj- anna er mjög mismunandi. Sum em tfibúin að ganga ipjög langt í átt tfi sameiginlegrar ákvarðanatöku en önnur, eins og t.d. ísland, hafa fjölmarga fyrir- vara. En umræðan er í gangi. Þróunin á sér staö. Heimurinn er í smíðum. íslendingar þurfa í vaxandi mapii að láta þessi mál tfi sín taka. Víð- tæk umræða í landinu þarf áö auka almenna þekkingu á málefninu þannig að ákvarðanataka verði sem skynsamlegust þegar tfi kem- ur. „Mér virðist ljóst að EFTA verður sam- eiginlegur vettvangur aðildarríkjanna til að takast á við samskiptin við EB.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.