Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1989, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1989, Blaðsíða 36
r F R ÉTTASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst,óháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 1989. Veðrið á morgun: Léttskýjað fyrir norðan Á morgun verður austlæg átt á landinu, víða gola. Um sunnan- vert landið verður skýjað að mestu en þurrt. Norðanlands verður víðast léttskýjað. Frost verður 0-6 stig. Kjötmiðstöðin: Kröfur í þrotabúið eru um 400 mílljónir „Það er ekki fjarri lagi að áætla að heildarkröfur í þrotabú Kjötmiö- stöðvarinnar hf. nemi um 400 millj- ónum króna. Samkvæmt lista eru heildarkröfur nú um 430 milljónir. Hrafn Backman hefur sett fram rúm- lega 100 milljóna króna kröfu vegna ábyrgðar. Krafa hans getur hins veg- ar þegar verið komin fram í almennu kröfunum og kröfumar kannski ekki hærri en rúmlega 300 miiljónir. Það skýrist á skiptafundinum í dag,“ sagði Hlöðver Kjartansson lögfræð- ingur, bústjóri í þrotabúi Kjötmið- stöðvarinnar hf., við DV. Forgangskröfur, þar á meðal laun, nema um 35 milljónum. Af aimenn- um kröfum eru um 60 milljónir vegna skuldar við Garðakaup sem seldi Kjötmiðstöðina 1987. Alls eru kröfur upp á um 65 milljónir vegna söluskatts, Gjaldheimtan er með 'kröfu upp á um 60 milljónir og krafa vegna skilaskyldu staðgreiðslu er um 30 milljónir. Þá eru kröfur frá heildsölum og fleirum er útveguðu vörur til verslana Kíötmiöstöðvar- innar í Garðabæ og við Laugalæk. Loks eru kröfur utan veðraða sem nema yfir 10 milljónum. Krafa Hrafns Backman byggist á ábyrgðum og veðsetningu persónu- legra eigna en henni fylgdu engin gögn. Er frestur til að skila gögnum til þarnæsta skiptafundar. Hlöðver segir alla hluthafa hafa skrifað upp á mikið persónulega. Hefur Halldór Kristinsson sett fram kröfu vegna þess en ekki Ármann Reynisson eða Pétur Bjömsson. „Þetta em hærri fjárhæðir í gjald- þroti en ég hef séð lengi. Það er ekki víst hvað hefur valdið tapinu. Bók- hald hefur ekki verið í lagi og skatt- framtah var ekki skilað í fyrra. Það er því margt sem spilar inn í en það skýrist á skiptafundinum.“ -hlh Líftiyggingar ih ALÞJÓÐA LÍ FTRYGGINGARFEIAGIÐ HF. LÁGMÚIJ 5 - REYKJAVÍK Simi A8K>44 Tveir fjórtán ára piltar slösuðust eftir að þeir óku vélsleða fram af steyptum kanti við Grensásdeild Borgarspital- ans klukkan rúmlega þrjú í gær. Kanturinn, sem piltarnir óku fram af, er viö kjallara Grensásdeildar. Þeir hent- ust nokkra metra og skullu á vegg. Drengirnir, sem eru of ungir til að aka vélsleða, slösuðust ekki alvarlega. Á myndinni sést hvar vélsleðinn lenti. Alls urðu 24 umferðaróhöpp í Reykjavík í gær og þar af varð slys í fimm tilfellum. LOKI Var einhver að segja að Greenpeace ætti ekki full- trúa í sjónvarpinu í gær? Kjarasamningar ASÍ og VSÍ: if*ra Vvl C1 leiti - samlð tU skamms tíma um 6 til 7 prósent kauphækkun Samkvæmt heimildum DV er tal- en í haust Þeir eiga þegar eftir aö Þeir bjartsýnustu úr hópi samn- ið lfklegt að nýir kiarasamningar fá 4 prósent kauphækkun í tvennu ingsaðila, sem DV hefur rætt við, milli Aiþýðusambandsins og lagi samkværat samningum. telja að samkomulag geti náðst um Vinnuveitendasambandsins verði Viunuveitendur tefja ekki ósann- næstu helgi. Þeír segja að hægt sé undirritaðir mjög fljótlega, jafhvel gjarntaðalmenntverkafólkfáilíka að ná. samkomulagi um öll fyrr- um næstu helgt Það var ljóst strax þessa hækkun en Alþýðusamband- nefnd atriöi á skömmum tíma. Þeir á fyrsta opinbera viðræðufundi ið vill fá 2 til 3 prósent ofan á hana benda á að ef tækifærið verður þessara aðila í vikunni að viðræð- ef samið verður til skamms tíma. ekki gripið geti svo farið að samn- urnar voru betur undirbúnar en Vinnuveitendur teija þá kröfu ekki ingar dragist von úr viti, jafnvel flestir áttu von á. Vitað er aö unnið ósanngjarna, Um þetta gæti þvf fram eftir sumri. hefur verið grimmt bak viö tjöldin verið stutt í samkomulag. „Þaö kæmi mér ekki á óvart þótt að því að ná samkomulagi til Þeir sem unnið hafa að samning- samið yrði um helgina,“ sagði einn skarams tíraa, bæði um félagsmáia- um við ríkisstjórnina bak við tjöld- af samningamönnum Alþýðusam- pakka ríkisstjómarinnar og milli in tala um þijú atriði sem hægt bandsins. „Þetta em ekki ósann- aöila vinnumarkaðarins. væri aö fá fram strax, miðað við gjamar kröfur sem að okkur Það sem verið er að tala um í skammtímasamninga. Þessi atriöi snúa,“ sagði einn af aðalmönnum nýjum kjarasamningum er 6 tíl 7 em hækkun barnabóta, hækkun Vinnuveitendasambandsins í sam- prósent kauphækkun og að samið skattleysismarka og að greiöslur tali við DV í morgun. verði til 1. september. Samningar atvinnuleysisbótaveröilengdarfrá S.dór . iðnaðarmanna renna ekki út fyrr því sem nú er. Bjórsmyglið: Annar maður handtekinn Rannsóknarlögreglan vinnur enn að rannsókn smygltilraunar á 1100 kössum af bjór. Bjórinn, sem fluttur var í gámi, kom meö Laxfossi til Reykjavíkur 17. janúar síöastliöinn. Um miðjan febrúar var einn af yfir- mönnum Eimskipafélagsins úr- skurðaður í gæsluvarðhald vegna rannsóknarinnar og hefur hann nú setið inni í einn mánuð. Gæsluvarð- haldsúrskurðurinn rennur út í dag. í morgun var ekki búið að taka ákvörðun um hvort krafist verður framlengingar á ný. Samkvæmt heimildum DV var annar starfsmaður Eimskipafélags- ins handtekinn í gær. Talið er að hann sé tengdur málinu. Þórir Odds- son vararannsóknarlögreglustjóri sagði í morgun að hann vildi hvorki játa þessu né neita. Hann sagði rann- sóknina vera á afar viðkvæmu stigi og því væri ekki hægt að segja til um hvemig henni miðaði né hvað hún hefði leitt í ljós. -sme Eimskip kært fyrir riftun samninga um innflutning íslensk dreifing sf., aðaleigandi Hafþór Guðmundsson, hefur kært Eimskip hf. til Verðlagsráðs fyrir að rifta samningi um flutning á frönsk- um páskaeggjum vegna þrýstings frá íslenskum sælgætisframleiðendum í gegnum Félag íslenskra iðnrekenda. „Við sendum Eimskip bréf í fyrra- dag þar sem við óskum eftir skýringu á þessu máli,“ segir Georg Ólafsson verðlagsstjóri. „Ef þetta mál er rétt, eins og það er lagt fram, er það mjög alvarlegt. Það verður að komast til botns í þessu máli.“ Þórður Sverrisson, framkvæmda- stjóri flutningasviðs Eimskips, sagði í morgun að það væri rangt að Eim- skip hefði samið við manninn um 100 þúsund krónur fyrir flutning á gámi en hækkað það síðan. „Ég get ekki gefið upp hvað við buðum honum, það er trúnaðarmál. En við buðum honum lægra gjald en 300 þúsund krónur." - Hefur félagið verið beitt þrýstingi frá Félagi íslenskra iðnrekenda í þessu máli? „Nei.“ Að sögn Þórðar hefur íslensk dreif- ing sf. lítið skipt við Eimskip á und- anfómum árum vegna innflutnings síns. Skipadeild Sambandsins tók aö sér flutninga á páskaeggjunum fyrir um 130 þúsund krónur gáminn. Og önn- ur skipafélög, sem hann leitaði til, buðu honum á svipuðum nótum, jafnvel lægra verð. -JGH Iðnaðar- og Verslunarbanki? Sameiginlegir hluthafar í Versun- arbanka og Iðnaðarbanka munu leggja fram tillögu á aðalfundum bankanna í lok vikunnar þess efnis aö bankaráðum þessara banka verði heimilt að hefja viöræður um sam- einingu þeirra. Þessi tillaga kemur fram til að beina sameiningarhug- leiðingum bankaráða bankanna saman. Verslunarbakinn hefur að undanfórnu átt viðræður viö Al- þýðubankann. -gse

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.