Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1989, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1989, Blaðsíða 29
jf$i Sfj/,1/' cii jjiiifo/NU/fiyjif'f* MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 1989. Hátískan næsta vetur: LífsstQl Giorgío Armani er geysilega vin- sœll hönnuAur um allan helm. Fðt hans þykja talleg, þægileg og ákaf- lega glæsileg. Pilsið er með svo- kölluðu túlípanasniði og er fremur stutt Jakkinn er síðari að framan og aðskorinn i mittið. Hér á Fróni er veturinn ekki enn liðinn en úti í heimi er komið vor og tískuhönnuðimir famir að huga að næsta vetri. Frægu og stóru nöfiain í tískuheiminum eru þessa dagana að kynnu hönnun sína fyr- ir haust og vetur 89-90. í háborgum tiskunnar, París, Mflanó og London, voru haldnar stórsýningar í síöustu viku. Það sem fyrst kemur fyrir sjónir al- mennings er fjöldaframleiðslan eða það sem kallast á ensku „ ready to wear“. Þrátt fyrir fjöldaframleiðsl- una er fatnaðurinn ekki ódýr - stimpill hönnuðarins kostar sitt. Þegar nær dregur hausti er hinn eini sanni módelfatnaður svo kynntur. Verö slíks módelfatnaðar er ótrúlegt enda ekki á færi nema auöugustu kvenna heims að klæð- ast slíkum fatnaði. Glæsiiegur, bleikur lamb- sklnnsjakki effir ítaiann Va- lentino. Stór kragi og viðar ermar einkenna þessa flík. Nú kveður viö nýjan tón í litum haustsins. Eins og vera ber um vetur ráða dökkir litir ríkjum og nú eru gráir litir áberandi. Sterkir og fjörlegir litir með svörtu eru einnig algengir. Sídd pilsanna er ekki heilög - allar síddir eru gjald- gengar næsta vetur. Italski hönnuðurinn Missoni sýndi þessa skrautlegu jakka i Milanó í fyrrl viku. Kjólamlr eru gráir en margs konar litatónar eru í jðkkunum og slæðunum. Sidd pilsanna hjá Missoni er um miðja kálfa. Myndir: Reuter Þægileg vetrarkápa þegar frostið bitur í kfnnamar. John Galliano sýndi þessa frumlegu hönnun » London um síðustu helgi. Armani sýndi einnig þennan stóra, efnismikla vetrarfrakka úr kasmír- ull. Sumlr segja að þessi jakkl sé nokkrum númerum of stór en hann á að vera svona. Tískan Pilsin í öllum síddum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.