Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1989, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1989, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 1989. 15 Stöðnun við húsvegg „Margvíslegur iðnaður átti að spretta upp af starfsemi álversins.. segir m.a. i greininni. Erlendar fjárfestingar eru ekki eingöngu af hinu góða. Samt ber mönnum saman um að fátæk þjóð- félög hafi aukið hagvöxt sinn hrað- ar, þau sem tóku inn erlent fiár- magn, en hin sem vísuðu því á bug. Reynslan af stóriðju í fátækum, vanþróuöum þjóðfélögum hefur viða orðið sú að þróunin hefur stöðvast við húsvegg stóriðjufyrir- tæKja, t.d. á íslandi. Við sjáum að visu uppbyggingu í Hafnaríirði og seytlunaráhrif í öllu samfélaginu en enga iðnþróun. (ísal framleiddi eitt árið um 86 þúsund tonn af súráli en innan- lands voru aðeins notuð 300 tonn, mest af þvi í steikarpönnufram- leiðslu á Eyrarbakka og óskandi að meira hefði verið gert af slíku. Enginn árangur Ein helsta röksemdin fyrir ál- samningunum á sínum tíma var sú að margvíslegur iðnaður mundi spretta upp af starfsemi álversins og þær röksemdir gerðu uppsetn- ingu álversins fýsilega en ekki stórt raforkuver eða flölgun stoða undir einhæft atvinnulíf íslendinga ef það þýddi bara eitt stykki álver og síðan lítið meira. í áisamningnum er gert ráð fyrir að nokkurt fjármagn komi frá framleiðslunni til athugana á iðn- aðartækifærum en það ákvæði mun ekki hafa verið notað og eng- inn árangur hefur orðið af ýmsum athugunum sem fram hafa farið hingað til, m.a. á framleiðslu fyrir bílaiðnaðinn og virðist sem enginn kunni skýringar á því hve lítiö hef- ur gerst í þessum málum. Nú hefur iðnaðarráðherra ákveö- ið að fela Iðntæknistofnun að at- huga möguleika á nýjan leik. Per- KjaUarinn Ásmundur Einarsson útgáfustjóri sónulega efast ég ekki um áhuga Iðntæknistofnunar en full ástæða er til að efast um póhtíska viijann. Það er ekkert nýtt að stjómmála- menn veki máls á nýjum vaxtar- möguleikum þegar illa árar eða þegar stöðnun er í gangi en umræð- an um líftækniiðnaðinn er dæmi um það. Yfirtök skrifræðis Útflutningsstefna er meginfor- senda þess að fátæk þjóðfélög rífi sig upp til bjargálna og síðan vel- megunar. Við höfum löngum fylgt útflutningsstefnu í sjávarútvegi. Ullariðnaöurinn byggði á útflutn- ingsstefhu og ýmsir þættir mat- vælaiðnaöar. Stefiia uppbyggingar í verslim og þjónustu hefur alis ekki verið röng en það er væntan- lega ljóst öllum sem út í máhð hugsa að við ramman reip er að draga í útflutningi á þekkingu. Á því sviði verðum við ahtaf þiggj- endur. Hins vegar hefur sú áhersla, sem lögð hefur verið á þjónustustarí- semina í flestum löndum, verið tví- eggjað sverð í viðleitni til að fjölga atvinnutækifærum. Annars vegar þurfum við á þjónustu að halda en hins vegar er sú tilhneiging að stofna skrifstofur utan um vanda- mál til að losna við málin úr um- ræðunni. Borgaralega sinnað fólk er ekki síður en sósíahstar veikt fyrir skrifræðislegum lausnum. Þar af leiðir að skrifræði hefur aukist til muna á síðustu áratugum í löndum eins og íslandi. Samdráttur og hnignun í stað áhðnaðar stefnum við ixm í fiskeldi sem að vísu kom of seint til sögunnar, miðað við okkar þarf- ir. Við lögðum út í stórvirkjanir í stað smærri eininga. Við byggðum upp margvislega þjónustu en erum að reyna að losa okkur við hana eða draga úr tilkostnaðinum. Við fylltum fyrirtækin af starfs- fólki sem engin þörf var fyrir, að vísu skemmra á veg komnir í þeim efnum en margar aðrar þjóðir. í Bandaríkjunum eru stóríyrirtækin að segja upp starfsmönnum svo þúsundum skiptir á millstigum skrifræðisins í fyrirtækjunum. Spyija má hvers vegna þetta fólk var ráðið tfl vinnu í upphafi. Á sama tíma erum við hægt og bít- andi að drepa niður margvíslegan samrekstur og auka á atvinnuleysi með rangri skattlagningu. Að mínu mati fóru hagsmunir hnignandi starfsemi á Vesturlönd- um að stjórna póhtíkinni um það leyti sem stöðnunarverðbólgan komst í algleyming. Hérlendis hugðust menn verða höndum fljót- ari og ofljárfesting varð meginein- kenni. Því búum við nú við hægari hagvöxt en aðrar þjóðir og raunar samdrátt á mörgum sviðum. Ásmundur Einarsson „Það er ekkert nýtt að stjórnmálamenn veki máls á nýjum vaxtarmöguleikum þegar illa árar.“ Umhverfið okkar Nú þegar sólin er farin að senda geisla sína yfir freðna jörð finnur maður voriíminn í loftinu. Hreint og tært loftið er sem kærkomin vít- amínsprauta eftir langt skammdegi. Senn vaknar náttúran af værum vetrarsvefni og laufin græn og fín- gerð verða allsráðandi á greinum tjánna. Það er stórkostlegt að fá að njóta hreinnar og óspflltrar íslenskrar náttúru. Eða hvaö - er hún það ekki annars? Það rifjast upp fyrir mér göngu- ferð um Klambratúnið síðasthðið sumar. Kyrrt var og glaða sólskin. En loftið var ekki sérlega hreint. Frá Miklubrautinni lagði brælu frá bílaumferðinni sem ekkert lát virt- ist vera á. Blýlaust bensin Fyrir stuttu birtust sölutölur yfir bensín sem sýndu að mun færri kaupa blýlaust bensín, en 98 oktan bensín á bfla sína. Blýlaust bensín kom hér á markað fyrir hálfgerða slysni og htið hefur verið hvatt til notkunar þess. Hér á landi er fátítt að bílar finn- ist með hreinsunarbúnaði á út- blæstri. Hann virðist vera tahnn algjör óþarfi og gjarnan tekinn úr þeim bílum sem koma hingað tfl lands. Hann er talinn til þess eins að minnka orku og auka eldsneyt- isþörf. Tahð er að 95% af blýmengun í andrúmsloftinu séu frá bensíni en eins og kunnugt er getur blýmeng- un valdið alvarlegu heflsutjóni. Hreinsunarbúnaður bifreiða (kata- lysator) hreinsar mikinn hluta út- blástursloftsins en að sjálfsögðu er skflyrði að notað sé blýlaust bens- ín. Flestir vita að ekki má láta bíl ganga inni í bílskúr en kolsýran, sem bíllinn gefur frá sér, getur Kjalkriim María E. Ingvadóttir varaformaður Neytendasamtakanna valdið miklum óþægindum og jafn- vel dauða. Hreinsunarbúnaður breytir kolsýru í koldíoxíð. Jafn- framt breytir hann hættulegum lofttegundum eins og köfnunarefn- isoxíðum í köfnunarefni og súr- efni. Köfnunarefnisoxíð hefur ert- andi áhrif á slímhúð og eykur hættu á öndunarfærasjúkdómum, einnig á súru regni og aukinni tær- ingu. Því miður næst ekki að hreinsa nema hluta þeirra loftteg- unda sem finnast í útblæstri bif- reiða. Það er hins vegar spuming hvort ekki sé brýnt að setja reglur um lágmarks hreinsibúnað bifreiða. Það er hka spuming hvort ekki sé brýnt að hvetja þá bifreiðaeigendur sem geta notað blýlaust bensín á bifreiðar sínar að gera það. Vitað er að bílar nýta bensín misvel. Framleiðendur keppast við aö finna upp þá vél sem best nýtir bensínið og dælir þar af leiðandi minna af eitruðum lofttegundum út í andrúmsloftið. Fróðlegt væri ef bílainnflytjendur gætu gefið upplýsingar um hvar hver tegund stendur að þessu leyti. Þaö hlýtur líka að vera hvatning tfl framieið- enda ef fleiri þjóðir tækju sér Bandaríkjamenn tfl fyrirmyndar og hertu reglur um útblástur bif- reiöa. Vonandi kemur ekki tfl þess hér á landi aö beina þurfi umferð frá miðborginni vegna hættulegrar mengunar. Umhverfisvernd - endurvinnsla Það er áhyggjuefni hve íslensk stjómvöld ætla seint að taka við sér og koma á virkri umhverfisvernd. Skemmst er að minnast klúðurs- ins varðandi ákvörðun á endur- greiðslu skflagjalds á bjórdósum. Þau vinnubrögð em vonandi ekki dæmigerð fyrir það sem stjómvöld gera varðandi umhverfismál. Þó læðist að manni sá grunur að htið sé um hefldaryfirsýn og stefnu- mörkun í þessum málaflokki. Von- andi stendur það tfl bóta. Mikið hefur verið rætt að undan- fómu um endurvinnslu og flokkun rasls. Slík flokkun hefur gefist vel þar sem hún hefur verið reynd er- lendis og ekki ástæða til að ætla annað en að við séum einnig fær um að flokka okkar msl. Huga þarf að mögulegum leiðum tfl endurvinnslu úrgangs. Hér á landi er starfandi verksmiðja sem framleiðir eggjabakka úr endur- unnum pappír. Landvemd selur endurunninn pappír, óbleiktan. í pappírsiðnaði myndast skaðlegt efni, díoxín, við það að gera pappírinn hvítan. Tahð er að leifar þess efnis finnist í ýms- um pappírsvörum, svo sem eld- húsrúhum og jafnvel pappírsblei- um. Það hlýtur að vera kappsmál fyr- ir kaupmenn að geta boðið við- skiptavinum sínum upp á pappírs- vörur sem unnar em úr óbleiktum pappír. Það er vissulega brýnt að fylgjast vel með því sem aðrar þjóðir em að gera íumhverfisvemdarmálum hvort sem það varðar bann við notkun úðabrúsa eða bann á alkal- ine rafhlöðum. Ef árangur á að nást í umhverfisvemdarmálum þurfum við neytendur að taka okk- ur á í umgengni við náttúruna. Við eigum okkar stóra þátt í að menga umhverfið og tflgangslaust er að sópa vandamálunum undir teppið. Eða ætlum við börnunum okkar að ghma viö þau vandamál sem við nennum ekki að takast á við? Viö getum sjálf hugað að því hvers kon- ar vörur við notum daglega við okkar heimihshald og í hve miklu magni. Má t.d. nefna óhóflega notk- un þvottaefna og plastumbúða. Það er okkar aö fylgja því eftir að skað- legir úðabrúsar hverfi úr hfllum verslana og að óbleiktar pappírs- vörur verði á boðstólum. Aukefni - eiturefni Um síöustu áramót gekk í gfldi reglugerð um aukefni í matvælum. Þó að aðlögunartíminn hafi verið langur þurfti samt að gefa fyrir- tækjunum frest fram á mitt þetta ár til að aðlaga sig reglunum. Það er óskandi að þegar þeim fresti lýk- ur geti neytendur gengið að vel merktum vörum þar sem ekkert fer á milli mála um innihaldið og „líf- tíma“ þess. Eitt af því sem okkur hefur „láöst“ að kanna og setja reglur um er sú meðhöndlun sem grænmeti og ávextir fá á vaxtartímanum. Erlendir ávextir og grænmeti eru úðuð eitri og íslenskt grænmeti er ekki laust við þaö heldur. Engar íslenskar reglur eru tfl um slíkt og innflutningur því eftirhts- laus hvað varðar upprnna þessara vara. M)ög brýnt er að ráða hér bót á. Hvað erum við að gera þegar við hvetjum bömin okkar tfl að fá sér heldur eph eða gulrót í stað sælgæt- is? Þeir neytendur sem mest borða af grænmeti og ávöxtum og drekka ávaxatasafa ýmiss konar eru börn. Þar með eru böm líka mestu neyt- endur þeirra eiturefna sem finnast í þessum vörum. Við erum öll neytendur. Það er okkar ahra hagur að vera vel vak- andi gagnvart þvi sem betur má fara og gagnvart því sem óæskflegt er í umhverfi okkar. Viö verðum að taka höndum saman um það aö sú fæða sem við berum á borð fyrir bömin okkar verði ekki eitri blandin og að það umhverfi, sem við skflum í hendur þeirra, verði ekki flla þefjandi mslahaugur. Vertu vakandi, vertu með! María E. Ingvadóttir „Hér á landi er fátítt aö bílar finnist meö hreinsunarbúnaöi á útblæstri. Hann viröist vera talinn algjör óþarfi og tekinn úr þeim bílum sem koma hingað til lands.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.