Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1989, Page 12
12
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 1989.
UTLÖND
Lokauppgjörið sagt nálgast
Lokauppgjörið milli Benazirs
Bhutto, sem nú hefur gegnt embætti
forsætisráðherra Pakistans í rúma
hundrað daga, og óvina hennar er
nú tahð nálgast.
Margir búast við því að Pakistanski
þjóðarflokkurinn, sem er flokkur
Bhuttos, reyni í þessari viku að
steypa af stóli forsætisráðherra
Punjabs, Nawaz Sharif. Hann var
einn helsti stuðningsmaöur Zia ul-
Haqs, fyrrum forseta Pakistans.
Þingið í Punjab hefur veriö kallað
saman á ný og leiðtogar Þjóðar-
flokksins búast við að vantrausts-
yfirlýsingin verði borin fram með
stuðningi andófsmanna í Múha-
meðska lýðræðisbandalaginu, flokki
Sharifs.
Lýðræðisbandalagið svaraði með
því að kalla saman þjóðþingið í Isl-
amabad og hótar að bera fram tillögu
um vantraustsyfirlýsingu gegn
Bhutto, fyrstu konunni sem gegnir
embætti forsætisráðherra í múha-
meðsku ríki.
Hrifnir af Bhutto
Hætta þykir á að baráttan um
Punjab, þar sem 55 prósent lands-
Fyrsta opinbera heimsókn Benazirs Bhutto sem forsætisráðherra Pakistans var til Kína í febrúar síðastliðnum.
Símamynd Reuter
Ertu að selja? -
Viltu kaupa? -
eða viltu skipta?
Bílamarkaður p »ifj
á laugardögum og
smáauglýsingar daglega.
Fjöldi bílasala, bílaumboða og einstaklinga auglýsa fíölbreytt úrual bila
aföllum gerðum og i öllum verðflokkum með góðum árangri.
Athugið að auglýsingar í DV-BÍLAR á laugardögum þurfa að berast í síð-
asta lagi fyrir kl. 17.00 á fimmtudögum.
Smáauglýsingadeildin erhins uegaropin alla daga frá kl. 9-22 nema
laugardaga kl. 9-14 ogsunnudaga frá kl. 18-22.
Smáauglýsing í HELGARBLAÐ verður
að berast fyrir kl. 17.00 á föstudögum.
Auglýsingadeild
Sími 27022
manna búa, eyðileggi annars góöa
ímynd Bhuttos. Stjómmálasérfræð-
ingar og sendimenn láta vel af henni
en eru ekki jafnhrifnir af samráö-
herrum hennar. Sagt er að ráðherr-
amir láti sig baráttuna um Punjab
meiru skipta en efnahagsvandamál-
in og sumir óttast jafnvel að lýöræð-
ið sé í hættu. Minnast menn þá óþol-
inmæði fóður Benazirs gagnvart
stjómarandstööuflokkunum á átt-
unda áratugnum.
Þegar Zia lést í ágúst síðastliðnum
í flugslysi, sem enn hafa ekki fundist
skýringar á, átti Sharif stóran þátt í
myndun bandalagsins gegn Þjóðar-
flokknum. í þingkosningunum í nóv-
ember hlaut Þjóðarflokkurinn flest
atkvæði og stjórnar með stuðningi
óháðra á þjóðþinginu. í héraðskosn-
ingunum, sem haldnar voru þremur
dögum síðar, náði lýðræðisbandalag-
ið meirihluta í Punjab og Sharif varð
æðsti ráöherrann þar.
Kom á óvart
Það hafa frekar verið ráðherrar úr
Þjóðarflokknum og flokksleiðtogar
frá Punjab sem hafa staðiö fyrir því
að Sharif verði látinn víkja heldur
en forsætisráðherrann sem hefur
komið kerfisköllunum á óvart þó
hún hafi ekki gert nein kraftaverk.
Og meira að segja herinn telur að
hægt sé að starfa með Bhutto eða við
hliö hennar.
Frá því að Bhutto tók við völdum
hafa pólítískir fangar verið látnir
lausir, fjölmiðlar hafa fengið meira
frelsi og bönnuð verkalýðssamtök
hafa fengið leyfi til að starfa á ný.
Utanríkisstefnan hefur verið óbreytt
frá því sem var þegar Zia var við
völd og Afganistanmálið hefur her-
inn aðallega verið látinn sjá um.
Bhutto virðist ekki hafa gert neitt
átak til þess að ráða bót á efnahags-
vandanum og hefur enn ekki útnefnt
fjármálaráðherra. Reuter
Teiknarinn Lurie hefur gefið í skyn að herinn ógni lýðræðinu í Pakistan.
Heryfirvöld eru nú sögð það ánægð með Benazir Bhutto að þau geti jafn-
vel hugsað sér að starfa með henni eða að minnsta kosti við hlið hennar.