Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1989, Síða 32
60
.6861 8HAM .ðí HUOAŒJHIVfflM
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 1989.
Andlát
Haukur Óskarsson rakarameistari
lést i hjartadeiid Landspítalans 13.
þessa mánaðar.
Bárður Magnússon frá Steinum,
Norðurgarði 13, Hvolsvelli, andaðist
í Landspítalanum aðfaranótt 13.
mars.
Áslaug Guðjónsdóttir, Hrafnistu,
Hafnarfirði, áður Háaleitisbraut 44,
lést mánudaginn 13. mars.
Þorgrímur Maríusson, Höfðabrekku
16, Húsavík, andaðist í sjúkrahúsi
Húsavíkur 12. mars.
Jarðarfarir
Jónas K. Jósteinsson, Mávahlíð 8,
verður jarðsunginn frá Bústaða-
kirkju fimmtudaginn 16. mars kl. 15.
Sigurrós Inga Hannea Gunnarsdótt-
ir, Sólheimum 40, verður jarðsungin
fimmtudaginn 16. mars kl. 13.30 frá
Langholtskirkju.
Árný Marta Jónsdóttir, Njálsgötu 75,
verður jarðsungin frá Haligríms-
kirkju fimmtudaginn 16. mars kl.
13.30.
Lilja Sigurðardóttir frá Pétursborg,
Eyjahrauni 7, Vestmannaeyjum, lést
á heimili sínu sunnudaginn 12. mars.
Útfor hennar fer fram frá Landa-
kirkju laugardaginn 18. mars kl. 11.
Jón Guðmundsson frá Nesi lést 7.
mars. Hann fæddist þann 7. október
1909 að Borgum í Nesjahreppi í Aust-
ur-Skaftafellssýslu. Foreldrar hans
voru Guðmundur Jónsson og seinni
kona hans, Ingibjörg Jónsdóttir. Jón
vann lengst af á Skattstofu Reykja-
víkur sem gjaldkeri og fulltrúi. Eftir-
lifandi eiginkona hans er Sesselja
Jóna Magnúsdóttir. Þau eignuðust
saman einn son. Útfór Jóns verður
gerð frá Seljakirkju í dag kl. 13.30.
Tilkyimingar
Árshátíð Alliance Francaise
verður haldin laugardaginn 18. mars í
Risinu, Hverfisgötu 105 (3 hæð). Að þessu
sinni hefur félagið fengið trióið „Trio
Marc Perrone" (harmónika, söngur og
stepp) til að koma og skemmta. En tríóið
hefur skemmt um allan heim. Árshátíðin
er öllum opin. Mögulegt er að koma á
hátíðina að borðhaldi loknu. Miðasala á
Franska bókasafninu, Vesturgötu 2 (inn-
angengt frá Tryggvagötu), sími 23870,
opið frá kl. 15-19. Ath. Síðasti dagur pant-
ana er 17. mars.
Mælsku- og rökræðu-
keppni - lokakeppni
Þriðja ráð ITC á íslandi stendur árlega
fyrir mælsku- og rökræðukeppni miili
deilda innan ráðsins. M & R keppni þriðja
ráðs ITC er útsláttarkeppni og keppa nú
til úrslita ITC Stjama í Rangárþingi og
ITC Fífa í Kópavogi. ITC Fifa mælir með
þeirri tilllögu að Vestmannaeyjar verði
gerðar að sjáifstæðu ríki, en ITC Stjama
mælir gegn tillögunni. Keppnin verður
haldin í kvöld, 15. mars, kl. 20.15 að
Hamraborg 5, Kópavogi, 3. hæð. (Sama
húsi og bókabúðin Veda). Kafiiveitingar
verða í hléi og em allir velkomnir.
Neskirkja
Föstuguðþjónusta verður í kvöld kl. 20.
Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson.
Fríkirkjan í Reykjavík
Föstuguðsþjónusta í kvöld kl. 20.30. Or-
gelleikari Pavel Smid.
Cecil Haraldsson.
Samband listanema á íslandi
SALI, samband listanema á íslandi, verð-
ur endurvakið með listakvöldi á Hótel
Borg í kvöld, 15. mars. Húsið verður opn-
að kl. 20 en dagskrá hefst kl. 20.30. Miða-
verð 250 kr. Að þessu sinni standa nem-
endur úr fjórum listaskólum á höfuð-
borgarsvæðinu að þessu: Tónlistarskól-
inn í Reykjavik, Leiklistarskóli íslands,
Myndlista- og handíðaskóli íslands og
Söngskólinn í Reykjavik. Á efnisskránni
verða bæði atriði frá hverjum skóla, eins
konar kynning á starfi þeirra, en jafn-
framt atriði þar sem allar listgreinar
tvinnast saman. Boðið verður upp á
ljóðalestur, tónhst, myndlistarsýningu,
leikþátt, dans og söng. Þar verður einnig
frumsamið atriði, eins konar tangoleik-
þáttur, sem saminn var í samvinnu hsta-
nemenda úr öhum skólunum og þar fá
ahar hstgreinar að njóta sín.
Aldraðirog atvinnulíf
Föstudaginn 17. mars gengst Öldrunar-
ráð íslands fyrir ráðstefnu um aldraða
og atvinnulíf. Fjahað verður um áhrif
starfsloka á hehsufar, félagsleg réttindi
við starfslok, kynnt verða sjónarmið
hagsmunasamtaka aldraðra, verkalýðs-
hreyfingar og atvinnurekenda auk þess
sem hugmyndin um sveigjanleg starfslok
verður kynnt. Framsögumenn verða Þór
Hahdórsson yfirlæknir, Anna Jónsdóttir
félagsráðgjafi, Bergsteinn Sigurðsson,
formaður Félags eldri borgara í Reykja-
vík og nágrenni, Guðni Ágústsson al-
þingismaöur, Guðríður Ehasdóttir, fyrr-
verandi varaforseti ASÍ, og Björgvin
Jónsson forstjóri. Fundarstjóri verður
Pétur Sigurðsson, varaformaður Öldr-
unarráðs íslands, og mun hann jafnframt
stýra pahborðsumræðum. Ráðstefnu-
staðrn- er Borgartún 6. Ráðstefnan, sem
hefst kl. 13 og lýkur kl. 17, er öhum opin.
Kvenfélag Fríkirkjunnar
í Reykjavík
heldur kökubasar og flóamarkað laugar-
daginn 18. mars kl. 14 á Laufásvegi 13.
Móttaka á kökum og munum verður á
sama stað fóstudaginn 17. mars eftir kl.
17 og frá kl. 10 á laugardagsmorgun.
Aukasýning á London
City Ballet
Vegna mikihar eftirspumar eftir miðum
á sýningar London City Ballet í Þjóðleik-
húsinu hefur verið ákveðin aukasýning
laugardaginn 1. aprh kl. 14.30. Uppselt er
á tvær sýningar flokksins, fostudags-
kvöldið 31. mars og laugardagskvöldið 1.
aprh.
Ferðalög
Páskaferðir
Ferðafélagsins
1. Snæfehsnes - Snæfehsjökuh. Fjögurra
daga ferð frá 23.-26. mars. Brottfór kl.
8.00 á skírdag. Gist í svefnpokaplássi að
Görðum í Staðarsveit. Gengið á Snæfells-
jökul og farin skoðunarferð meðfram
ströndinni.
2. Þórsmörk - Langidalur. Tvær feröir
eru th Þórsmerkur. Sú fyrri er kl. 8.00 á
skírdag en sú seinni laugardaginn fyrir
páska kl. 8.00. Komið er th baka úr báðum
ferðum á annan í páskum. Gist er í Skag-
fjörðsskála í Langadal.
3. Skíðagönguferð th Landmannalauga.
Hópm-inn mun ganga á skíðum frá Sig-
öldu til Landmannalauga og eftir þriggja
daga dvöl er gengið aftur th baka að Sig-
öldu en þar bíður rúta hópsins. Ferðafé-
lagið sér um aö flytja farangur th og frá
Landmannalaugum. í Landmannalaug-
um eru skipulagðar skíðagönguferðir um
nágrennið.
Nánari upplýsingar um páskaferðimar
em veittar á skrifstofu FI, Öldugötu 3.
Tapað fundið
Grábröndótt læða
fannst í Garðabæ. Læðan, sem er með
hvitt undir höku, er kettlingafuh. Eigandi
vinsamlegast hafi samband í síma 76206
sem fyrst.
Fundir
Digranespréstakall
KirHjufélagsfúndUr verður í safnaðar-
heimilinu við Bjamhólastíg fimmtudag-
inn 16. mars kl. 20.30. Flutt verða erindi,
sýndar myndir og kafíiveitingar.
Réttirfrá Miðausturlöndum
Pítur, falaffel og fleira góðgæti verður á
boðstólum á léttum matarfundi sem
Vinafélagið ísland/ísrael heldur ftmmtu-
dagskvöldið 16. mars kl. 20 í hhðarsal
Hahgrímskirkju. Á fundinum ræðir Ahsa
Kjartansson um ísraelska matargerð í
tengslum við gyðinglega siði og venjur
og síðan verða veitingar seldar á vægu
veröi. Gosdrykkir verða einnig á boðstól-
um. Fundurinn er öhum opinn.
JC Árbær
mun halda kynningarfund i félagsheimih
sínu að Hraunbæ 102 b (við hhðina á
Skaha), í kvöld, 15. mars kl. 20.30. Þá mun
félagið halda sinn 7. félagsfund, fimmtu-
daginn 16. mars kl. 20.30 á sama stað.
Boðið verður upp á kaffiveitingar á báð-
um fundunum sem eru öhum opnir.
Fyrirlestrar
Asu Wright fyrirlestur
Ása Noyman dr. phh., dósent í þjóðfræði
við Uppsalaháskóla, flytur fyrirlestur á
vegum Minningarsjóðs Ásu Guðmunds-
dóttur Wright miðvikudaginn 15. mars.
Fyrirlesturinn fjallar um útgáfu evr-
ópsku þjóðfræðikortanna, þar sem sýnd
er útbreiðsla þjóðsiða og þjóðhátta í Evr-
ópu. Fyrirlesturinn verður haldinn á
sænsku í stofu 101 í Odda, hugyísinda-
húsi Háskólans, og hefst kl. 17.15. Öhum
er heimih aðgangur.
Þraukað á Þingeyri:
Verkstjórinn ræður!
Ekki veit ég hvemig ég á að byrja
á þessu, en það má reyna.
Hingað kom verkstjóri á haust-
mánuöum 1987. Litlar sögur fara
af því hvaðan hann kom, en ekki
skipti ég mér af honum, enda má
mann reyna.
Þann 27. janúar 1988 tóku þeir
upp á því að láta alla vera með
hámet undir húfunum og skipti þá
engu máh hvort manneskjan var
rpjög stuttkhppt eða ekki. Ein
verkakonan þóttist hafa gleymt
hámeti sínu heima. Síðan fór hún
o'g bað um net og klagaði mig um
leið fyrir að vera bara með eitt
höfuðfat, það sem verkstjóri hafði
sjálfur sagt að ég mætti vera með.
Þetta endaði með því að ég var
köhuð upp á skrifstofu og settir
tveir kostir: Að setja hámet undir
höfuðfatið, sem verkstjóri í sal
hafði tahð nægilegt, þar sem hár
mitt er mjög stutt, eða þá að ég
gæti farið heim. Eg valdi seinni
kostinn en kom th baka eftir fjóra
tima og var ekkert um þetta rætt
meira í þetta skiptiö. Þessi verk-
stjóri labbar sjálfur um sahnn
húfulaus og slopplaus, en á þó að
vera okkar fyrirmynd.
í 20 ár
Þaö eina sem virðist skipta máh
er að sýna vald sitt. Aht gengur nú
sinn vanagang þangað th þann 22/3.
Þá skipaði hann mér í starf sem ég
get ekki unnið vegna shtgigtar í
öxlum (sama verk en önnur vinnu-
aðstaða). Þegar ég sagði honum að
þetta gæti ég ekki var ég rekin,
jafnvel þó að ég segði honum uppi
í kompu að það lægi fyrir læknis-
vottorð um þetta hjá honum og
Kjallarinn
Guðlaug Vagnsdóttir
verkakona, Þingeyri
sagði hann mér þá að vera ekki
með þetta kjaftæði og lygi! Ég fór
heim, en áttaði mig strax á að ég
gæti þó ahtaf flakað, svo ég hringdi
th hans, en hann neitaði mér um
það. Það var þetta verk á þessum
stað eða ekkert! Svo ég var pínd í
verkið og var þar stutta stund, þá
var ég köhuð fram í handflökun!
En í hana mátti ég ekki fara fyrr
en ég hafði hlýtt og farið í verk sem
ohi mér verkjum í öxlum. I flökun
var ég svo samfleytt í sex vikur.
Hér er um handflökun að ræða og
vann ég frá kl. 4 á morgnana til 5
eða 6 á kvöldin og er ég ekki að
kvarta yfir vinnunni. Ég hef gert
þetta á vorin í grálúðu. Eg vil taka
það fram að ég hef ekki verið frá
vinnu vegna axlanna, mér hefur
verið lofað að vera í þanrng aðstöðu
að þetta hái mér ekki. Ég er búin
að vinna þama hjá Hraðfrystihúsi
Dýrfirðinga í 20 ár. Um þessar
mundir var ég einnig í daglegum
þrifum eftir vinnu á kaffistofu, sal-
ernum, stiga, göngum og fleira.
Þann 19/4 rak hann mig úr öhum
þrifum og bar því við að ég væri
óþrifin allt í einu! Ég skal taka fram
að nú var ég orðin reið yfir öhum
þessum brottrekstrum og valdi
þann kostinn að hitta hann ekki til
þess að eiga ekki á hættu að segja
eitthvað sem ég sæi svo eftir síðar
og hann gæti svo notað á móti
mér. Þá fæ ég samt bréf, þann 9/5.
Aðvörunarbréf án skýringa og á ég
það. Síðan fæ ég annað bréf þann
27/6, sem ég læt fylgja hér með. Ég
held að það tah sínu máh!
Trúnaðarmaður er búin að spyija
Halldór (þaö heitir verkstjórinn)
hvort hann hafi rekið mig fyrir það
sem ég hef talið hér upp, en hann
segir nei við því. Aftur á móti segir
hann mig vita af hveiju ég var rek-
in! Ekki veit ég hveiju ég vildi fórna
til þess að vita hvað það er sem ég
hef af mér gert.
Nú eru þessir forkólfar verka-
lýðsstéttarinnar svo góðir þegar
þeir eru að halda ræður að það
virðist sem hver einasti verkamað-
ur sé svo fastur fyrir bijóstinu á
þeim að þeir séu að kafna, en leiti
fólk til þessara manna þvo þeir
hendur sínar og segja verkstjóra
ráða hvern þeir hafi í vinnu!
Mér þykir miður að hafa leitað
til stéttarfélags míns, Verkalýðs-
félagsins Brynju, því þó að flest það
fólk hafi ahst upp við sömu kjör
og ég, er það svo að það vill sem
minnst vita um sína stéttarfélaga
ef þeir eru í eríiðleikum, enda flest-
ir í þeirri stjórn ekki í vinnu við
frystihúsið.
Þrautalendingin Pétur
Þá leitaði ég til stjórnarformanns
kaupfélagsins, Hallgríms Sveins-
sonar. Hann er ráðinn til að sitja
jörðina Hrafnseyri við Arnarfjörð
og er svo skólastjóri grunnskólans
hér svo hann er á margföldum
launum. Eg hefði allt eins getað
talað við einhvern fiskinn því eng-
an stuðning fékk ég þar. Þá var
þrautalendingin Pétur Sigurðsson,
formaður Alþýðusambands Vest-
fjarða. Hann er nú búinn að velta
sér í þessu í sjö mánuði og ekkert
hefur gerst! Hann segir mig alltaf
hafa rétt fyrir mér þegar ég tala
við hann. En samt er þetta eins og
að beija hausnum við stein.
Mér flnnst það hart að aðkomu-
menn, eins og verkstjórinn og for-
stjórinn, komi hér og reki, í svo
litlu sjávarplássi, fólk sem hefur
átt heima hér í íjörutíu ár úr einu
vinnunni sem th er á staðnum! Ég
er eins og utangarðsmaður hér! Ég
verð að horfa upp á útlendinga,
sem fá 40% af kaupi sínu í erlend-
um gjaldeyri, labba sig hér í nóga
vinnu á hverjum degi. Hvað á mað-
ur að láta kúga sig lengi án þess
að fá önnur svör en það að verk-
stjóri ráði því hvern hann tekur í
vinnu? Fólk er hér með hunda-
svipu yfir sér og þorir lítið að gera
sem von er. Því hér er ekkert nema
valdbeiting og harka síðan þessir
menn hófu störf! Svo tala þeir um
minnkandi afköst! Þeir eru að bola
afkastamesta fólkinu út úr húsinu.
Ég veit að ég er þungorð í garð
þessara manna og hka vinnufélaga
minna sem láta þetta viðgangast
út af hræðslu um eigin stöðu, það
hafa fáir staðið með mér í þessu
eða stutt mig nema þessi kona, bréf
hennar frá því í sumar fylgir.
Óskar hún eftir að fá það birt en
henni var bannað að setja það í fjöl-
miðla í sumar því þetta átti allt að
vera komið í lag á stundinni!
Mér finnst að það sé lágmarks-
krafa að fá að vita hvað maður
hefur gert af sér. Svo er manni
hent út á klakann eftir tuttugu ára
starf. Þeir segjast ekkert hafa á
móti vinnu minni, að ég sé dugleg,
en verkstjórinn ræður og þarf ekki
einu sinni að skýra út neinar
ástæður. Hann bara ræður og búið!
Með fyrirfram þökk.
Guðlaug Vagnsdóttir
„Hvaö á maður að láta kúga sig lengi
án þess að fá önnur svör en það að
verkstjóri ráði því hvern hann tekur 1
vinnu?“