Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1989, Side 2
18
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1989.
BIACK
Vönduðu AKRÝL
nuddpottarnir frá Kaliforníu
Margir litir og margar stærðir.
Hjá okkur er innifalið i verðinu allt sem til
þarf til notkunar.
Fagleg róögjöf við val og niðursetningu.
AKRÝL er varanlegt efni sem ekki rispast
nó upplitast.
Einn af fáum nuddpottum er staðist hafa
hitaveituvatnið og islenska veðráttu, án
skemmda.
Auk þess á lager margs konar útbúnaöur
fyrir allar gerðir heimasundlauga og sund-
staði.
• Komdu við á Grensásvegí 8 og skoðaðu
sýningarpotta á staönum.
• Fyrirtæki okkar er einn stœrsti aðili í sölu
og tengingum á sundlaugum og pottum á
íslandi.
Sýningarpottar á staðnum í fullum gangi
Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 8-18, laugardaga frá 10-12.
Verið velkomin.
K. Auðunsson hf.,
Grensásvegi 8, Reykjavík.
Sími 86088.
A. Óskarsson hf.
Þverholti, Mosfellssveit.
Sími 66600.
Garðar og gróður
vélin lengst til vinstri gengur fyrir bensíni og er fjórgeng-
isvél og kostar um 25 þúsund kr. Næst er rafmagns-
sláttuvél - slikar vélar kosta þar 9-13 þúsund krónur.
Stærsta vélin er með tvigengisvél og hentar því vel fyr-
ir grasflatir með halla. Hún kostar 31.700 og pokinn fylg-
ir með. í versluninni kosta orfin frá 3 þúsund kr.
Sláttuvélar eru til ýmist með drifi eða án þess. Þessar
tegundir fást í Húsasmiðjunni. Fremst á þessari mynd
er bensínvél með drifi. Hún hefur 3,5 ha. vél og sláttu-
breiddin er 55 cm. Verðið er 28.435 krónur. í miðjunni
er einnig bensinvél en án drifs. Sláttubreiddin er 50 cm
og verðið 16.310 krónur. Lengst t.h. er svo mosatætari
(jarðvegstætari). Hann ætti að henta fyrir þá sem hafa
gefist upp á að fjarlægja mosa með ýmsum misheppn-
uðum aðferðum. Verðið er 7.600 krónur.
Sláttuvél og klippur vinna saman. Þessi bensínvél hefur
fjórgengismótor og kostar 14.900 krónur hjá Sölufélagi
garðyrkjumanna. Klippurnar, sem bæði er hægt að
nota með og án skafts, kosta 3.938 krónur. Stillihnappar
eru bæði á klippum og skafti. DV-myndir Hanna
Lengst t.h. er sláttuvél með gamla laginu sem þarf að
nota handafl við að ýta á undan sér. Verðið er 7.900
krónur. Hinar tvær sláttuvélarnar ganga fyrir rafmagni.
Sú sem er fyrir miðju er á hjólum, með safnara, hefur
30 cm sláttubreidd og kostar 15.900 krónur. Vélin lengst
t.v. er án hjóla og kostar 14.900 kr. Hún hefur einnig
30 cm sláttubreidd. Orfið er 350 vatta og hentar fyrir
alla snyrtingu á grasi. Verðið er 6.500 kr. Vörurnar fást
hjá G.Á. Péturssyni í Faxafeni 6. Þar fást einnig tvígeng-
isvélar (vinna vel i halla) með 47 cm sláttubreidd. Þær
kosta 32.900 kr. Auk þess er boðið upp á talsvert úrval
af bensinsláttuvélum.
Talsverður
gæðamunur á
sláttuvélum
- kostir og gallar bensín- og rafmagnssláttuvéla
DV kannaöi nýlega verð og gæði
sláttuvéla á markaðinum. Verðmun-
ur getur verið töluvert mikill. Við
fyrstu sýn virðast vel útlítandi bens-
ínvélar skipa sér í tvo verðflokka,
annars vegar á bilinu 14-17 þúsund
krónur en hins vegar á bilinu um það
bil 25-32 þúsund krónur. Verðið get-
ur þó baeði verið þama á milli og
talsvert hærra. Munurinn á þessum
flokkum felst aðallega í uppbyggingu
vélanna. Þær sem eru dýrari endast
betur án þess að þurfi að gera við
þær.
Uppbygging mótoranna er þó oftast'
mjög svipuð í þessum verðflokkum -
orkan er svipuö, um 3,5 hestöfl, en
gæðamunurinn felst t.d. í því að
hjólabúnaður er vandaðri á þeim
dýrari - gjaman nælonblandað
gúmmí í hjólum og góöur hæðar-
stillibúnaður. Á þeim ódýrari em
stundum plasthjól sem geta farið að
gefa sig heldur fyrr en ella - á ódýr-
ari tegundunum þarf að skrúfa hjólin
af og á ef hæðarstilling fylgir þeim.
Einnig er mikill munur á málm-
uppbyggingu (boddíi) vélanna. Á
þeim dýrari er slíkt t.d. úr þrykktu,
völsuðu stáli eða steyptu, ryðfríu
magnesíumáli og eru því vélamar
léttari. Auk þess er munur á hand-
föngum - oftast er einfalt prófíljám
á ódýrari tegundunum en krómaö
járn, sem hægt er aö leggja saman í
geymslu, á dýrari tegundunum.
Tvígengisvél
og rafmagnstæki
Sláttuvélar er líka hægt að fá með
tvígengis- og fíórgengisvélum. Mun-
urinn er sá að fíórgengisvélar ganga
eingöngu fýrir bensíni og drepa því
gjarnan á sér í halla. Slíkt getur eyði-
lagt mótorinn strax. Tvígengisvélar
hafa hins vegar olíublandaö bensín
sem gerir það að verkum að vélin
smyr sig betur með olíunni. Þær vél-
ar er mjög heppilegt aö nota þar sem
grasflötum hallar.
Rafmagnssláttuvélar eru aflminni
en bensínsláttuvélar. Algengt er að
þær séu um 1,5 hestafla og um 1.100
vatta. Sláttubreiddin er líka minni
en á bensínvélum, oftast um 30 cm.
Vandamál við rafmagnsvélar er að
snúran vill flækjast fyrir. Hins vegar
eru þær hljóðlátari en hensínvélar
og auöveldara er að ræsa þær - bara
stinga í samband. Rafmagnssláttu-
vélar henta best fyrir litla, staka
bletti þar sem ekki er mikið gras.
Algengt verð á rafmagnssláttuvélum
erábilinu9-16þúsundkr. -ÓTT
Fáanlegt í 15 litum
Fæst í málningar- og byggingavöruverslunum
um land allt.