Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1989, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1989.
Garðar og gróður
Við hvað á að miða þegar plöntur eru valdar, hvar á að setja þær og hvernig á að meðhöndla garðinn? Pétur
N. Ólason hjá gróðrarstöðinni Mörk hefur áratuga reynslu af plöntuvali fyrir islenskar aðstæður. Hann varar
við þvi að plöntur séu valdar eingöngu vegna fegurðar þeirra og vaxtarhraða - plöntur á að velja með tilliti
til aðstæðna i hverjum garði fyrir sig. Á myndinni er Pétur í garðskálanum sinum og sýnir hvernig hann
tínir vínber. DV-mynd Hanna
„Tré hafa lengi veriö dálítið
vandamál. Tijárækt á sér ekki
langa sögu hér á landi og þar af
leiðandi höfum við ekki svo mörg
stór og gömul tré. Elstu trén eru
einungis 70-80 ára gömul - silfur-
reynir, álmur og hlynur og ein-
staka víðitré. Þessi tré eru fá og það
sýnir að lítið var plantað á árum
áður. Fólk hafði ekki mikla trú á
að þessar plöntur myndu vaxa að
ráði. Það sést best á því að stór tré
eru oft alveg upp við hús.
En mönnum hættir til að gróður-
setja of mikið af hávöxnum trjám.
Of mörg grenitré, of margar aspir
og of mikið af reynitijám. Trén
geta orðið til vandræða. Ástæðan
er sú að þau hafa ekki verið grisj-
uð.
Það verður að hugsa 30-40 ár
fram í tímann þegar veriö er að
gróðursetja tré sem verða stór eins
og aspir, reynir, greni, lerki, hlyn-
ur, álmur og silfurreynir. Ekki þó
þannig að það eigi að planta þeim
með sama millibili og þau þurfa
eftir allan þennan tíma heldur að
planta þeim þannig að hægt sé að
grisja þau - taka annað hvert tré
eða 2/3 af því sem fyrir var. Þá fáum
við samfelldan gróður sem skýlir
og kemur að fullum notum. í þann-
ig tilfellum verður líka að nota sög-
ina og gera það á réttum tíma. Ekki
10-20 árum of seint heldur þegar
gróðurinn fer að ná saman.“
- Hvenær á að grisja aspir - þessa
vinsælu og hraövöxnu tegund?
„Yfirleitt þegar garðarnir eru
orðnir tíu ára. Þá þarf aö huga að
grisjun. i görðum, sem ekki hafa
náð þeim aldri, er vel hægt að færa
til tré. Eftir tíu ár fara líkur á því
að flutningur tijáa heppnist með
góðum árangri minnkandi. Annars
er ég hættur að flytja tré í mínum
garði - ég felh þau bara núna því
að garðurinn er orðinn 19 ára gam-
all.“
Vorinbesttil
að gróðursetja
- Hvenær á að gróðursetja?
„Helst á að gróðursetja á vorin
þegar plöntumar eru ennþá í hvild
- þ.e.a.s. berróta plöntur. Plöntur
með hnaus og þær sem eru í pottum
getur maður í raun og veru gróður-
sett hvenær sem er ef þær eru tekn-
ar upp á réttum tíma. Því fyrr sem
gróðursett er því fyrr kemur vöxt-
urinn fram. Árangur og rótfesta
verður betri fyrir veturinn.
Annars er hægt að planta allt
sumarið. Spumingin er bara í
hvaða ástandi plöntumar eru. Ef
þær em fuhlaufgaðar og enginn
vöxtur í þeim er hægt að gróður-
setja svo vel sé. Séu þær hins vegar
þannig að þær hafi veriö teknar
upp í byrjun maímánaðar og
standa svo einhvers staðar geymd-
ar þangað til í júh þá hefur rótfesta
farið fram. Þá verður sjokkið of
mikið þegar plantan er tekin upp
aftur. Plöntur, sem við tökum upp
hér snemma sumars, meðhöndlum
við þannig að við færum þær sí-
fellt til. Þanpig næst rótfestan ekki
og við heftum vöxtinn.
Reyndar höfum við hjónin oft
plantað út á miðju sumri í skóg sem
við ræktum fyrir austan fjall. Þar
höfum viö t.a.m. ekki tíma til að
planta fyrr en á miðju sumri - eftir
miðjan júh og fram í ágúst. Við
erum í rauninni að þessu aht sum-
arið. Þama er meira að segja ekki
aðstaða th að vökva. Þannig má
segja að árangur náist líka með því
að þverbrjóta allar ræktunarregl-
ur.“
Aðalatriði aö plönt-
ur séu í réttu ástandi
- Er ekki raunin sú að garðeigend-
ur gróðursetja jafnóðum og lóðin
verður thbúin?
„Algeng tilhneiging hjá fólki er
að gróðursetja þegar hlýtt er í veðri
og sumarið er komið. í nýjum görð-
um er unnið yfir sumartímann og
eigendur vhja planta niöur eftir því
sem áfongum lýkur. Þetta er vissu-
lega hægt. Fyrir 20 árum var tijá-
plöntusölunni yfirleitt lokið í lok
maí en í dag stendur garðvinna
yfir aht sumarið.
Aðalatriðið er að plönturnar séu
í réttu ástandi þegar þær eru gróð-
ursettar - sumar tegundir eru bet-
ur th þess fallnar en aörar aö vera
plantað út síðsumars. Það fer eftir
tegundum, þær sem eru með hnaus
standa betur að vígi. Viðja er ágæt-
lega fahin th gróðursetningar síð-
sumars, einnig víðitegundir og
pottaplöntur. En hættan er alltaf á
að þær þorni upp yfir vetrartím-
ann. Þetta verður að hafa í huga.
Sé hins vegar komið langt fram á
sumar getur verið betra að bíða th
næsta árs þvi að plöntur veröa að
fá góða rótfestu fyrir veturinn."
Hvað erég
eiginlega að kaupa?
- Hvert er ásigkomulag plantna
þegar þær eru keyptar - sumar eru
berróta, aðrar í pottum eða með
poka utan um?
„Áður fyrr voru allar plöntur
annaðhvort berróta eða með
hnaus. í dag er sölumátinn hins
vegar breythegur. Stundum er
þetta selt með eins konar búðarfyr-
irkomulagi og þá í umbúðum - við-
skiptavinurinn nær þá að taka
„vörurnar" sjálfur. Fólk hefur ekki
mjög aðgenghegar upplýsingar um
þau atriði sem það þaif að vita enda
erfitt aö sjá þau. T.d. er ekki hægt
að sjá hvort planta hefur verið sett
í pott fyrir viku eða lengri tíma.
En garðeigendur eiga að Vera
ófeimnir við að spyija ahra sþum-
inga um hvað þeir fá og hvernig á
að meðhöndla gróðurinn - aht um
ásigkomulag, vökvim, staðsetn-
ingu o.s.frv.“
Vökvun er sálrænt
atriði fyrir suma
en ekki gróðurinn
- Hvernig á að haga gróðursetn-
ingu og vökvun? Er það rétt að
kalt „slönguvatn“ hafi slæm áhrif
á gróður?
„Sumir fara rangt að með því að
þjappa gróðurmold of mikið við
gróðursetningu.. Það á nefiúlega
ekki að stappa moldina niður þó
það eigi að stíga lauslega á hana -
ekki stappa loftið úr jarðveginum.
Jarðvegsbygginguna á að varð-
veita.
Hvað snertir vökvun þá á ekki
að vökva loftiö og hitann úr jarð-
veginum með því að setja of mikiö
vatn. Of mikið af köldu vatni er til
óþurftar - betra er að hafa volgt
vatn.“
- Hvemig er volgt Gvendar-
brunnavatn útbúið fyrir gróður-
inn?
„Vökvun tengist mikið sálarlífi
fólks, svo að ég gerist nú háfleyg-
ur. Margir elska að vökva og þaö
hefur róandi áhrif á stressað fólk
að standa úti með slönguna og
gutla á gróðurinn. En það er ekki
þar með sagt að plönturnar hafi
gott af því að róa fólkið þar sem
það stendur með ískalda bununa.
Gvendarbrunnavatnið er 4ra
gráða heitt og sem dæmi má nefna
að vöxtur hættir oft við 6 gráður.
Þess vegna kælir vatnið gróðurinn
ef of oft og mikið er vökvað. Gott
ráð við þessu er að verða sér úti
um stórt ílát, t.d. tunnu, fylla hana
af vatni og láta standa. Þá verður
hitastig vatnsins á bhinu 10-20
gráður. Það gefur augaleið að slíkt
er miklu betra fyrir gróðurinn.
Með þessu móti sleppir maður
slöngunni og notar garðkönnu í
staðinn.
-ÓTT
Góður losunarútbúnaður við
dreifingu á túnþökum. Leigjum út
lipra mokstursvél til garðyrkjustarfa.
Góð greiðslukjör.
túnþökusala Gylfa Jónssonar, sími 656692
AI.IT TIL
FÚAVARNA
RR BYGGINGAVÖRUR HF
SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331.
Stærðir: Sólreitir/blómakassar:
3,15x3,76 m, kr. 52.300. 122x93 cm, kr. 8.120.
2,55x3,79 m, kr. 59.100.
2,55x3,17 m, kr. 89.480.
Húsunum fylgir 3 mm gróðurhúsagler sem er innifal-
ið í verðinu.
Ýmsir fylgihlutir fyrirliggjandi: hillur, sjálfvirkir
gluggaopnarar, borð, rafmagnshitablásarar (termo-
statstýrðir) o.fl. o.fl.
Sólreitirnir eru af nýrri gerð, með plastgleri (óbrjót-
andi) og innbyggðum sjálfvirkum opnunar- og lok-
unarbúnaði sem gengur fyrir sólarorkunni. Stærð
122x92x38 cm.
Eden-garðhúsin eru nú fyrirliggjandi en við höfum
yfir 20 ára reynslu í þjónustu við ræktunarfólk. Eng-
in gróðurhús hafa náð sömu útbreiðslu hérlendis.
Þau lengja ræktunartímann og tryggja árangur.
Sem fyrr bjóðum við hagstætt verð ásamt frábærri
hönnun Eden-álgróðurhúsa. Sterkbyggð og traust
hús.
Kynnisbækur sendar ókeypis
Klif hf.
Sími 23300
Grandagarði 13
Reykjavík