Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1989, Qupperneq 6
22
MIÐVIKUDAGUK .31. MAÍ 1989.
Garðar og gróður
Borgar sig ekki að
hafa blómin of þétt
Nú er rétti tíminn til að gróður-
setja sumarblóm og fjölærar plöntur.
Oftast er miðað við að óhætt sé að
gróðursetja þessar plöntur um mán-
aðamótin maí/júní því þá er nokkuð
víst að frost kemur ekki aftur. En
hvaða plöntur eiga best við hveiju
sinni? Þeirri spumingu verður sjálf-
sagt best svarað af faglæröu fólki hjá
gróðrastöðvunum - þar sem plönt-
umar em keyptar. Svo rækt verði
sem best verður aö taka tillit til skjóls
og birtu. Einnig er verður að huga
að ástandi jarðvegs.
4-5 plöntur á
hvem lengdarmetra
Ingibjörg Sigmundsdóttir sem rek-
ur samnefnda garðyrkjustöð í
Hveragerði segir að við innkaup á
sumarblómum megi gjaman miða
við að setja 4-5 plöntur á hvern
lengdarmetra. „Það borgar sig ekki
að hafa blómin of þétt. Best er að
leyfa þeim að breiða úr sér,“ segir
hún. Sumarblóm á líka að velja með
tilliti til hve mikið mæðir á þeim.
Hávaxnar plöntur eiga t.d. ekki að
vera í miklum vindi og blómin eru
líka misharðger.
- Hvað er það helsta sem á að taka
tillit til þegar fjölærar plöntur em
keyptar?
„Þær á að velja eftir því hvemig
beðin era. Þar sem steinhæðir eru
er best að gróðursetja lágvaxnar
plöntur. Að öðra leyti á að miða við
hve mikill skuggi og birta eru á
hverjum stað. Stundum kemur fólk
- tími sumarblómanna er kominn
gei
%
með riss af beðum í garðinum sínum
- við ráðleggjum oft út frá slíku.“
- Hve djúpt á að gróðursetja sumar-
blóm og fjölærar plöntur?
„Þessar plöntur era yfirleitt rækt-
aðar í pottum og það er ágætt að
miða við að efri brúnin á hnausnum
fari um 1 sentímetra niður í beðið -
rétt niður fyrir yfirborð. í flestum
tilfellum má miða við þessa reglu.
Einnig er ágætt að skoða ástand jarð-
vegsins og setja kalk og áburð í nýja
mold. Annars er mjög mismunandi í
hvernig ástandi jarðvegurinn er í
görðum.
-ÓTT
Ingibjörg Sigmundsdóttir, Hveragerði, segir að margir teikni upp beðin í garðinum og útfrá því sé hægtáð ráðleggja um plöntuval.
S
Rétti tíminn er núna:
Áður en farið er í sumarblómaleiðangur
- nokkrar staðreyndir um algengustu tegundir
Um þessar mundir er heppilegasti
tíminn til að gróðursetja sumarblóm.
Hjá gróðrarstöðvum era yfirleitt til
um 40-50 tegundir. Fjöldi afbrigða
gerir úrvahð enn meira. DV fékk
Jóhann Diego Amórsson skrúögarö-
yrkjumeistara til að taka saman al-
gengustu tegundir sumarblóma og
lýsa eiginleikum þeirra. Áður en
haldið er í innkaupaferð er gott að
hafa þessi atriði í huga.
- Langalgengasta tegund sumar-
blóma er stjúpa (viola vittrockiana).
Hún verður 15-20 cm á hæð og ht-
brigði era nær ótakmörkuö. Stjúpur
era ýmist með einn hreinan ht, tví-
eða þrhitar. Þessi tegund er afar
harðger og má því snemma byija á
að gróðursetja hana. Hún er með
okkar bestu sumarblómum.
- Fjóla (viola comuta) er náskyld
stjúpu en hefur smærri blóm. Hún
verður um 15 cm há. Fjóla er jafn-
harðger og stjúpa og hefur einnig
mörg htbrigði.
- Skrautnál (alyssum maritimum)
er frekar ný tegund á íslandi og hef-
ur ásamt fylltum nellikum náð vin-
sældum hér. Skrautnál er fínleg jurt
- oftast notuð sem kantblóm. Hún
verður 10 cm há, hefur ýmist hvít,
bleik eða blá blóm og er mjög harð-
ger.
- Brúðarauga (lobelia erinus) er
10 cm há og er notuð sem kantblóm.
Þessi tegund blómgast með bláum
blómum um mitt sumar. Hún er
gjaman notuð sem hengiblóm og
hentar mjög vel í svalakassa.
- Ljónsmunnur (antirrhinum maj-
us) er til í mörgum afbrigðum og ht-
Svona líta algengustu sumarblómin út í dag. Nokkur eiga eftir aö blómstra. Hér á síöunni er sagt trá því hve stór
þau verða, hvernig þau lita út í fullum skrúða og eiginleikum er lýst.
í fremri röðinni eru, f.v.: salvia, fjóla, brúðarauga, apablóm, morgunfrú (svipar til túnfífils), bláhnoða og silfurkamb-
ur (blómstrar ekki).
í aftari röðinni standa: tóbakshorn, gulleit stjúpa, Ijónsmunnur (fær hvít eða rauðleit, varalaga blóm), rauðleit
stjúpa, dalía, hádegisblóm (fær falleg rauðgul blóm) og kornblóm sem á eftir að blómstra mörgum bláum blómum.
DV-mynd GVA
um. Eins og nafnið bendir th minnir
blómið á ljónskjaft. Þetta blóm verð-
ur 20-40 cm hátt. Ljónsmunnur þarf
hlýjan og sólríkan vaxtarstað.
- Fagurfífill (behs pereunis) er
harðger tegrmd. Hann springur út
meö hvítum eða rauðbleikum blóm-
um og nær 15-20 cm hæð.
- Morgunfrú (calendula officina-
lis) hefur gul eða rauðgul, fyllt blóm.
Hún blómgast um mitt sumar og
stendur oft í blóma fram á vetur -
er því haröger.
- Kornblóm (centaurea cyanus)
hefur grá og loöin blöð en blómstrar
skærbláum blómum. Kornblóm er
harðger tegund og verður 15-20 cm
hátt.
- Silfurkambur (cineraria mari-
tima) nær 30 cm hæð. Hann þykir
sérstakur fyrir hin marggreindu silf-
ur- eða hvítloðnu blöð. Þessi harð-
gera planta er oftast notuð í kanta.
- Ilmskúfur/levkoj (matthiola in-
cana) er til í blönduöum litum og er
hentugur til afskurðar. Eins og nafn-
ið gefur til kynna gefur hann þægi-
legan ilm frá sér í garðinum. Plantan
verður 30-40 cm há og hefur einföld
fyht blóm.
- Hádegisbóm (mosembryanthem-
um crimifolium) þykir sérstakt fyrir
„neonskær" litbrigði. Þessi tegund
blómstrar aðeins í sól en lokar bló-
munum þess á milli. Hádegisblóm er
harðgert og verður 10 cm hátt.
- Apablóm (mimulus cupreus)
verður 25 cm hátt. Það blómstrar í
rauðum eða gulum litum og er harð-
gert.
- Tóbakshorn (petunia hybrida)
verður 30 cm hátt. Þessi tegund er til
í mörgum afbrigðum og litum. Tó-
bakshorn krefst mikils skjóls og yls
frá sól.
- Sumardalía (dahlia variabilis) er
myndarlegt blóm sem nær 30-40 cm
hæð. Þessi tegund er þekkt fyrir stór
bióm.
- Salvía (salvia splendeus) nær um
30 cm hæð og hefur hárauðan
blómskúf. Þessi tegund þarf gott
skjól og hlýju.
- Bláhnoða (ageratum houstonian-
um - „blue angel") verður 15-20 cm
há með fylltum bláum blómum. Hún
er frekar viðkvæm og þarf skjól og
hlýju.
-ÓTT