Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1989, Blaðsíða 10
26
^MÐVIKUDAÖÚlí 3Í. MAÍ 1989.
Garðar og gróður__________________dv
Hellulögn eiga allir að ráða við
Aö leggja hellur eða hlaða veggi er
ekkert sérstaklega flókið verk og
ekki þarf að nota mörg verkfæri til
þess. Hins vegar krefst lögnin ná-
kvæmni. Skrúðgarðyrkjumeistarar
og ýmsir aðrir aðilar sjá um að leggja
hellur við híbýli. Lóðareigendur eiga
samt að geta séð um verkið sjálfir
ef þeir hafa ekki efni á aðkeyptri
vinnu - sérstaklega ef þeir fá leiðsögn
fagmanna.
Framboð af hellum og ýmiss konar
skrautsteinum hefur aukist mjög á
síðustu árum. Steinumun má raða
saman á ýmsan hátt. Hins vegar
benda landslagsarkitektar oftast á að
efnisval eigi ekki að vera of fjöl-
breytt. Einfaldleikinn svíkur sjaldn-
ast.
Hæðarmismun í görðum má einnig
leysa með ýmiss konar hleðslustein-
um og líka er hægt að fá tilbúna
tröppusteina. Þar sem mikið mæðir
á, t.d. við innkeyrslu, er heppilegt að
nota annaðhvort þykkar hellur eða
smáar. Svokallaðir I-steinar passa
t.d. vel í þeim tilfellum. Um þessi
Litill garður við hús þar sem ekki
er áhugi fyrir grasflöt. Eigendur
þessa reits eru hæstánægðir með
varanlegan frágang sem ekki krefst
viðhalds - aðalatriðið finnst þeim
að geta dvalið úti þegar svo ber
undir.
atriði er mikilvægt að spyxja á sölu-
stöðum.
Gardsláttuvélin
mm stLsa ma bi
Rafeindakveikja tryggir örugga gangsetningu
Hún slær út fyrir kanta og upp að vegg.
Fyrirferðarlítil, létt og meðfærileg.
3.5 HP sjálfsmurð tvígengisvél.
Auðveldar hæðarstillingar.
Þú slærð betur með
hlMiA í\}
SÍMIí 681500 - ÁRMÚLA 11
GRÓÐURSKÁLINN-
S9
Gróðurhúsaskálinn hentar vel við
húsvegg. Byggt upp af ál-profílum 3 mm
gróðurhúsagleri eða 4 mm tvöföldu yl-
plasti.
Stærð: 9,8 ferm. 383x254 cm.
HAGSTÆTT VERÐ
SINDRA/tlkSTALHF
Pósthólf 880, Borgartúni 31, 105 Reykjavík, sími: 627222
Möguleikar á að gera aðkomu
snyrtilega eru mjög margir. Hellur
og ýmsir steinar henta vel þar sem
skuggsælt er og gróður á erfitt upp-
dráttar.
Þannig er
undirvinna fram-
kvæmd
Áður en hellur eru lagðar er sklpt
um jarðveg. Mold og leir er fjarlægt
sem nemur 40-50 cm á dýpt jarðvegs
(dýpra í rakri mýrarmold). I staðinn
er sett grúslag. Ofan á grúsina er svo
sett 5-7 cm lag af fínum sandi. Sé
sandlagið dýpra er hætta á að hell-
urnar skríði til. Hins vegar má frost-
frír jarðvegur gjaman vera á dálítið
breiðara svæði en hellurnar sjálfar
verða á. Sand og grús er hægt að
útvega sér t.d. hjá vörubílastöðvum.
Þegar efsta lagið hefur verið jafnað
er það bleytt. Að því loknu á að
þjappa vel, helst með vélþjöppu. Því
næst eru línur strengdar í áætlaöri
yfirborðshæð hellnanna. Að lokum
er endanleg sandhæð miðuð við
helluþykktina. Séu hellurnar 7 cm á
þykkt á sandlag að vera jafnlangt frá
línunni. Þegar hér er komið sögu er
undirvinnu að mestu lokið.
Ekki þarf
mörg verkfæri
Línur og hælar, réttskeið, hallamái
og 2-3 hol járnrör (3 m löng henta
vel) er allt og sumt sem þarf af verk-
fæmm. Reyndar getur gúmmíhamar
einnig komið að góðu gagni.
Þegar línurnar hafa verið strengd-
ar og sandur er nokkum veginn
kominn í rétta hæð kemur að því að
járnrörin eru lögð í sandinn. Sé verið
að leggja á breiðum fleti er gott að
nota þrjú rör. Á eins til tveggja metra
breiðum gangstíg er nóg að nota að-
eins tvö rör. Miilibilið er stillt í sam-
ræmi viö lengd réttskeiðarinnar og
rörin á aö grafa niður í rétta sand-
hæð. Sandurinn er svo jafnaður ná-
kvæmlega með réttskeiðinni sem er
dregin eftir rörunum. Haliinn er
mældur með því að leggja hallamálið
ofan á réttskeiðina. Rörin era svo
færð jafnóðum og sandi sáldrað í för-
in eftir þau.
Aðalatriðið í þessu sambandi, þeg-
ar verið er að mæla út fyrir sléttu
yfirborði, er að miða við línurnar
sem hafa verið strengdar. Línur á
líka að strengja við húsveggi því að
þeir eru sjaldnast alveg beinir. Ef um
slíkt er að ræða er best að halda sig
bara við línuna - hún svíkur ekki.
Myndist svo smábil á milli veggs og
hellnanna er sementsblönduðum
Lögn á að byrja þar sem þægilegast er að athafna sig og án þess að miða
skurð á hellum við einstaka staði. Ef fiöturinn hallar er honum skipt niður
í beina reiti og línur strengdar þvert á flötinn til að skipta niður.
Snjóbræðslukerfi er aðeins
einn liður í hellulögn
- sama undirvinnan
Viðbótarkostnaður vegna varma-
lagnar, þegar verið er að leggja hell-
ur, steypa eða malbika, er ekki mik-
ill. Efniskostnaður fyrir hvern fer-
metra af hitalögn nemur um 300
krónum. Til samanburðar má geta
þess aö fermetraverð á algengum
hellutegundum er um 1.100-1.200
krónur. Snjóbræðslukerfi á að tii-
kynna til viðkomandi hitaveitu
Meginkostir hitalagna em tveir:
Annars vegar að afrennslisvatn úr
hitalögn húsa dugar oftast fyrir snjó-
bræðslukerfin, það verður enginn
aukahitakostnaður - hins vegar að
sé á annað borð verið að leggja hellur
eða steypa þá fellur hitalögnin vel
inn í slíkar framkvæmdir. Við hellu-
lögn þarf hvort sem er að skipta um
jarðveg og slétta grúslag sem sandur
kemur ofan á. Hitalögnin á að koma
beint á slétta grúsina og sandurinn
kemur síðan ofan á eins og vera ber.
Þess vegna er varmalögnin aðeins
hluti og tiltölulega fljótlegur liöur í
hellulögn. Af því leiöir að algengt er
og reyndar nauðsynlegt að hellu-
lagningar- og hitalagningaraðilar
haíi með sér samstarf.
Framkvæmd
orðin auðveldari
Rörin em lögð á slétt grúsyfirborð-
ið, 12-13 cm frá áætlaðri yfirborðs-
hæð hellnanna. Mörgum reynist er-
fitt aö hemja rörin, sérstaklega í
beygjum. En við því er það ráð að
veita heitu vatni í gegnum þau (í
pakkningunni) til að gera þau þjálli.
Til að létta verkið enn frekar er svo
hægt að nota ný festingarefni sem
em komin á markaðinn. Þau eru fest
við undirlagið með 7 tommu nöglum.
Festinguna er hægt aö stilla eftir
þörfum.
Á milli hitaröranna eiga að vera
25 cm - framrás og bakrás heita-
vatnsins eiga að liggja hlið við hlið
til að tryggja jafnan hita. Þetta skýr-
ist þannig að byijað er á framrás
(rörinu sem kemur út úr húsi) og það
lagt í jafnmörg U og þarf, með 75 cm
millibili. Síðan er sama leið farin til
baka (bakrás). Þegar því er lokið em
allar leiðslurnar með um það bil 25
cm millibiii.
Tilkynningarskylda
og upplýsingar
um orkumöguleika
„Frá okkar bæjardyrum séð á að
tilkynna allar breytingar sem verða
á hitalögnum híbýla," sagöi Hreinn
Frímannsson, yfirverkfræöingur hjá
Hitaveitu Reykjavíkur, í samtali við
DV. Svo mun einnig vera í öömm
byggðarlögum þar sem hitaveita er.
„Minn boðskapur er hins vegar sá
að það eigi að reyna eins og kostur
er að láta afrennslisvatnið duga.
Ástæðan er sú að ef eittvað fer úr-
skeiðis í hitakerfi hússins, t.d. of
mikið rennsli í ofnum, þá er hætt við
að það uppgötvist ekki þegar um er
að ræða aukauppblöndun á vatni
vegna snjóbræðslukerfis. Það hefur
gerst að menn hafi komið til okkar
með óeðlilega háa orkureikninga. En
það er mikið atriði að öll aukatæki
vegna þessa séu góð og það verður
að fá fagmann til þess að tengja
þau,“ sagði Hreinn.
Samkvæmt heimildum DV mun
verð á vinnu og efni pípulagninga-
manns vegna tenginga á snjó-
bræðslukerfi vera á bilinu 10-20 þús-
und krónur. Söluaðilar, pípulagn-
ingamenn og aðilar frá hitaveitum
gefa húseigendum upplýsingar um
tilhögun við útreikninga á orkuþörf
og möguleikum vegna snjóbræðslu-
kerfa.
-ÓTT
Efniskostnaður viö hvern fermetra af varmalögn er um 300 krónur. Verð
efnis með vinnu fagmanna er á bilinu 450-600 krónur. Til samanburðar er
verð á algengum hellutegundum um 1.150 krónur.