Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1989, Síða 11
MlÐyjfiUpA9UMl. t¥Al. }9§9.
27
Garðar og gróður
Hellulögn krefst jarövegsskipta (40-50 cm) og jafnrar undirvinnu sem meðal-
handlagið fólk á að ráða við. Lina er strengd, rör sett í sandinn og hæðin
miðuð við helluþykktina. Réttskeið og hallamál segja til um að allt sé
beint. Fleiri verkfæri þarf ekki til nema þá helst gúmmíhamar og tréklump.
sandi stráð í geilamar. Með því móti
verður árangurinn bestur og minni
hætta á að illgresi vaxi meðfram
vegg.
Snöggt og ákveðið
Nú er komið að sjálfri hellulögn-
inni. Þegar menn halda á fyrstu hell-
unni verða sumir smeykir um að allt
verði ójafnt. En aðalatriðið er að vera
ákveðinn og hafa trú á þvi sem mað-
ur er að gera - miða við línuna og
halda svo áfram í samræmi við ofan-
greindar reglur.
Það sem mestu máli skiptir er að
leggja hellumar ákveðið niður án
þess aö sandyfirborðið raskist. Gerist
það hins vegár er bara að reyna aftur
og jafna sandinn eftir sig. Kosturinn
við hellulagnir umfram steypuvinnu
t.d. er nefnilega sá að alltaf er hægt
að taka þær upp aftur og jafna undir
þeim. Sama gildir um hitalögn þar
sem eitthvað fer úrskeiðis - þá þarf
ekkert að brjóta upp.
Gott ráð við lagnir á stórum hell-
um, sem erfitt er að handleika, er að
leggja enda hellunnar til hálfs á efri
Ný tegund af festingum fyrir varma-
rör er komin á markaðinn. Nú er
ekki lengur vandamál að hemja rör-
in, sérstaklega í beygjum. Borðinn
er festur i grúslagið eftir þörfum
með nagla. DV-mynd BG
- BYGGINGA- -
ÞJÓNUSTA
OG VIÐGERÐIR
Húsa-, múrara-, pípulagninga-,
og málarameistarar
★ Viðgerðir
★ Nýsmíði
★ Breytingar
★ Úttektir á viðgerðarþörf
★ Kostnaóaráætlanir
★ Tækniþjónusta
Alftarnes
BYGGINGARFÉLAG
löggildir iðnmeistarar
Bíldshöföa 18, 112 Reykjavík
Sími 67 45 80
kant næstu hellu á undan og leggja
svo ákveðið niður. Ef hellurnar fær-
ast til eftir að í sandinn er komið
kemur gúmmíhamarinn eða
trékubbur að góðum notum. Þegar
verkinu er lokið getur verið að ein-
staka hellur standi hærra en aðrar.
Þær má reyna að stappa niður með
fótunum eða tréklump. Beri það ekki
árangur verður að taka heliuna upp
og taka örhtinn sand í burtu. Að síð-
ustu er svo sandi oft sópað lauslega
yfir allan flötinn. _ótt
'Gluggar og Gardhús hf.
Smiðsbúð 8, 210 Garðabæ, stmi 44300.
Fyrsta sending af NOVA-garðhúsgögn-
um seldist upp á svipstundu enda býður
enginn vandaðri garðhúsgögn á eins
góðu verði.
Nú er ný sending
komin.
NOVELLA STÓLLINN
ER KOMINN AFTUR
AÐEINS
NOVA
1989
BEST UNDIR SOLINNI
KR. STK.
Til viðskiptavina sem lagt hafa inn
pantanir:
Þeir sem hafa tök á að sækja
pantanir sínar ættu vinsamlegast
að gera það hið fyrsta.
blómouol
Gróóurhúsinu v/Sigtún, sími 689070