Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1989, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 1989.
Fréttir
Fólksflótti vegna efnahagsástandsins:
„Dæmið gengur bara
ekki upp hér heima“
/
„Eftir að hafa reiknað allt dæmið
fram og til baka sáum við að það
gengur bara ekki upp hér heima,“
sagði Þórður Sigurðsson verslun-
armaður en hann er að flytja til
Svíþjóðar með fjölskyldu sinni og
hafa þau ákveðið að setjast þar að.
Reyndar er kona Þórðar þegar far-
in til Svíþjóðar með tvö börn þeirra
sem eru eins og tveggja ára. Þórður
fer sjáifur út í september:
Þórður sagði að það lægi ljóst
fyrir að laun hans dygöu ekki hér
á landi til að framfleyta fjölskyld-
unni. Úti í Svíþjóð ættu hins vegar
endar að nást saman en hann hefur
fengið vinnu hjá Volvo í Gauta-
borg.,
Þórður og fjölskylda hafa búið í
eigin húsnæði hér á landi þannig
að húsaleiga hefur ekki verið að
sliga þau. Þórður sagði aö þau
hefðu keypt gamalt hús og gert það
upp. Það hefði veriö dýrt þó að
mest hefði veriö notast við eigin
vinnu. Lán, sem stofnaö hefði verið
til vegna hússins, yrðu þau að
segir Þórður Sigurðsson sem er að flytja til Svíþjóðar
WBm
Kona og börn Þórðar eru þegar farin tii Svíþjóðar en hann situr einn eftir í tómri íbúðinni
DV-mynd S
halda áfram að greiða niður erlend-
is frá. Taldi Þórður að ódýrara yrði
að leigja erlendis heldur en að
standa undir fjármagnskostnaði
vegna húsakaupa hér.
- En hvað kemur til með að
breytast mest við að flytja út?
„Það er tvímælalaust matar-
kostnaðurinn. Á því er stór munur
hér og erlendis. Kona mín verslaði
hér heima í dæmigeröa innkaupa-
körfu og keypti síðan alveg sömu
vörutegundir þegar hún kom út.
Hér kostaði karfan 4000 krónur en
úti í Svíþjóð 1800 krónur.“
Þórður sagðist ekki treysta sér til
að spá um hve lengi fjölskyldan
yrði erlendis. Það væri algerlega
óráöið. Þá sagðist hann hafa orðið
var við áhuga margra á þessum
flutningum og væri greinilegt að
fólk væri í auknum mæh að velta
slíku fyrir sér. Hefðu sumir beðið
um að fá að fylgjast með hvemig
þeim reiddi af úti í Svíþjóð.
-SMJ
Innlend lántaka og 800
milljóna niðurskurður
- innhelmtu bensíngjalds og launaskatts flýtt
Ríkissfj.ómin hefur ákveðið að milljarða halla, sem nú er fyrirsjá- niður við niðurskuröinn.
flýta innheimtu á launaskatti og anlegur á rikissjóöi, hefur ríkis- Á sérstökum ríkisstjómarfundi í
bensíngjaldi þannig að þessir skatt- sfjómin ákveðiö að auka innlenda gær á Þingvöllum var rætt um fjár-
ar verði innheimtir mánaöarlega. lánsfjármögnun ríkissjóðs um 3.000 lagagerð fyrir árið 1990. Sam-
Með þeim hætti mun rfldssjóöur fá milljónir. Hlutur ríkissjóðs á inn- kvæmt heimildum DV var þar rætt
launaskatt fyrir tveggja mánaða lendum lánsflármarkaði mun því um stórfelldan niðurskurð á rflds-
tímabil og bensingjald fyrir einn aukast um 8.300 milljónir á þessu útgjöldum á næsta ári. Fagráö-
mánuö inn á þessu ári umfram ári. herramir tóku flestir undir nauð-
áætlun fjárlaga. Þetta er eina Þá hefur ríkisstjómin ákveðið að syn á niöurskurði í sínum mála-
skattaaögerð ríkisstjómarinnar að steöia að niðurskurði á ríkisút- flokkum. Einnig var rætt um
sinni. gjöldum um 800 milljónir. Ekki er skattahækkanir.
Til þess að fjármagna þann 4,2 enn fullákveöiö hvar veröur borið -gse
Einn efnilegasti stóðhestur landsins ailur:
Fannst dauður að
morgni í haganum
tryggður þannig að tjónið er tilfinn-
anlegt fyrir sambandið. Hefur hest-
urinn verið metinn á um þrjár millj-
ónir króna en Haraldur tók fram að
ekki hefði verið til umræðu að selja
hann.
Ólafur Guðjónsson, sem fyrstur
kom að hestinum, sagði að ekkert
benti til þess að neitt óeðlilegt hefði
komið til. Hesturinn hefði einfald-
lega legið dauður í haganum og ekk-
ert traðk í kring.
Ljóri var átta vetra gamall, undan
Blesa frá Hólum og Söru frá
Kirkjubæ. Hann var sýndur á Lands-
mótinu á Hellu árið 1986, fimm vetra
gamalla og hlaut í aðaleinkunn 8.23.
Fyrir byggingu fékk hann 8.26, sem
var mesta byggingareinkunn stóð-
hests á mótinu, en 8.20 fyrir hæfi-
leika.
-SMJ
Einn efnilegasti stóðhestur lands-
ins, Ljóri frá Kirkjubæ, fannst dauð-
ur í haganum á þriðjudagskvöld. Var
hesturinn í stóðhestagirðingu við
Hjálmholt í Hraungerðishreppi í Fló-
anum og voru 28 hryssur í haganum
hjá honum.
„Við vitum ekkert um þaö hvemig
þetta bar til. Hesturinn hefur verið
krufinn en ekkert komið fram sém
gefur dauða hans til kynna. Ætli
hann hafi ekki bara orðið bráð-
kvaddur - alla vega bendir ekkert til
að um slys sé að ræða,“ sagði Harald-
ur Sveinsson, formaður Hrossarækt-
arsambands Suöurlands, en sam-
bandið var eigandi hestsins.
Ljóri var átta vetra og hafði sam-
bandið keypt hestinn sem folald í
Kirkjubæ og var hann oröin umset-
inn og eftirsóttur til kynbóta. Hestur-
inn var nýkominn úr Skagafiröi þar
Ljóri frá Kirkjubæ er nú allur, aðeins
átta vetra. DV-mynd EJ
sem hann var í leigu og hafði aðeins
verið í um sólarhring meö hryssun-
um í haganum þegar hann fannst.
Að sögn Haralds var Ljóri ekki
Þorskur í staö ýsu:
Rannsóknarlögreglumál
- segir lögfræðingur Verðlagsstofnunar
„Þessi aðili fær aö öllum líkindum
aðvörun frá okkur þar sem um vill
andi upplýsingar og óréttmæta við-
skiptahætti er að ræða. En þetta er
í raun meira en villandi upplýsingar
og þykir mér því ekki ólíklegt aö mál
þetta fari til rannsóknarlögreglu,"
sagði Gísh ísleifsson, lögfræðingur
hjá Verðlagsstofnun, er hann var
inntur eftir hvernig tekið væri á
málum þar sem upp kæmist um
vörusvik.
í DV í gær var greint frá því að
fyrirtækið Humall hf. hefði selt nið-
urskoma þorskblokk sem ýsu í raspi.
Rannsóknir úr fjórum pakkningum
leiddu í ljós að ekki var um ýsu að
ræða í neinni þeirra. Þrjár innihéldu
þorsk og sú fjórða einhveija aðra
fisktegund. -gh
ÁTVR:
Sopinn hækkar
Verð á áfengi og tóbaki var hækk-
að í gær. Sterku vínin hækkuðu
mest eða um 8-11%. Léttvínin hækk-
uðu um 5-7% og bjór hækkaði um
5%.
Samkvæmt þessu hækka 6 dósir
af Tuborg úr 670 í 700 krónur. Val-
policella rauðvín hækkar úr 1350
krónum í 1410. Camus koníak hækk-
ar úr 1970 krónum í 2170. White
Horse viskí hækkar úr 1940 krónum
í 2100. íslenskt brenniín hækkar úr
1300 í 1400 krónur og Smirnoff vodka
hækkar úr 1630 í 1780.
Pakkinn af Winston hækkar úr 170
í 188, Half and Half reyktóbak hækk-
ar úr 240 í 266 og London Docks vindl-
ar hækka úr 260 krónum í 290.
Þessar hækkanir stafa af þeim
gengisbreytingum sem orðið hafa að
undanfómu.
-JSS
Amarflug:
Nýr aðstoðarframkvæmdastjóri
Magnús Bjarnason hefur verið
ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri
Arnarflugs. Hann mun taka til starfa
hjá félaginu á næstu dögum.
Magnús, sem er 26 ára að aldri,
lauk stúdentsprófi frá Flensborgar-
skóla í Hafnarfirði árið 1983 og B. Sc.
prófi í Business Administration frá
Nova University í Bandaríkjunum
árið 1987.
Samhhða námi starfaði Magnús
hjá hagdeild Landsbanka íslands og
samfellt að námi loknu þar til í sept-
ember 1988. Undanfama mánuði hef-
ur hann starfaö að ýmsum verkefn-
um fyrir Olíuverslun íslands hf. og
Portó heildverslun hf.
Magnús er kvæntur Önnu Sveins-
dóttur og eiga þau tvö börn.
-JSS
Sverrir selur hlut sinn í Ögurvík
Indriði Pálsson, forstjóri Skelj-
ungs, hefur undirritað kaupsamning
við Sverri Hermannsson, banka-
stjóra Landsbankans, um kaup
Skeljungs á hlutabréfum Sverris í
útgerðarfélaginu Ögurvík hf. Sverrir
á 3% hlutabréfa í fyrirtækinu. Kaup-
samningurinn er undirritaður með
fyrirvara um samþykki stjórnar fyr-
irtækisins.
Kaupverð hlutabréfanna hefur
ekki verið gefiö upp.
Fyrir nokkru var mikið rætt í fjöl-
miðlum um eignaraðild Sverris í
Ögurvík þar sem bankastjórum rík-
isbankanna er ekki heimilt sam-
kvæmt lögum að eiga hlutabréf í fyr-
irtækjum. Lyktir málsins urðu þær
að stjóm Landsbankans ákvað að
gefa Sverri frest til að koma bréfun-
um í verð.
-J.Mar