Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1989, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ •1089:
3
Fréttir
Akranes:
Bandarísk fyrirtæki
kaupa hlutafé í Arctic
Garðar Guðjónsson, DV, Akranesi:
Tvö bapdarísk fyrirtæki hafa gefiö
loforö um kaup á hlutafé í Fiskiöj-
unni Arctic hf. á Akranesi. Fyrirtæk-
in stunda vinnslu og dreifmgu á sjáv-
arafurðum í Bandaríkjunum en eiga
auk þess dreifingarfyrirtæki í Holl-
andi og Danmörku.
Aö sögn Jóns Þorsteinssonar, fiár-
málastjóra Arctic, munu fyrirtækin
tvö ekki eignast meirihluta hluta-
bréfa en hann vildi ekki upplýsa nán-
ar hve mikið fé þau leggja í Arctic.
Sennilegt er að þau muni eiga tvo
fulltrúa af sjö í stjóm fyrirtækisins.
Annaö fyrirtækjanna er staðsett í
Boston og leggur fyrst og fremst
stund á vinnslu og dreifingu hörpu-
disks. Hitt hefur aösetur í Houston í
Texas og fæst m.a. við innflutning á
laxi frá Noregi. Jón vildi ekki upp-
lýsa um nöfn fyrirtækjanna.
Auk þessara bandarísku fyrirtækja
hafa ýmsir aöilar innanlands ákveð-
ið aö leggja fram hlutafé í Arctic.
Þeirra á meöal er atvinnuþróunar-
sjóður Akraness, sem hefur sam-
þykkt að breyta 4 milljóna króna láni
frá í fyrra í 4,7 milljóna króna hluta-
fé.
„Hlutafjáraukningin er liður í fjár-
hagslegri endurskipulagningu og efl-
ingu fyrirtækisins," sagði Jón Þor-
steinsson við DV en Arctic hefur átt
við nokkra rekstrarörðugleika að
etja á undanfömum árum. Til þess
að koma fyrirtækinu á réttan kjöl á
ný hefur einnig verið samið um leng-
ingu lána.
Til marks um erfiðleika fyrirtækis-
ins má nefna að tvisvar hefur dregist
Samkeppni um skipu-
lag í Geldinganesi
Sú ákvörðun var tekin í Borgar-
ráði þann 22. mars sl. aö efna til
hugmyndasamkeppni um skipulag á
Geldinganesi, en aldrei fyrr hefur
verið efnt til samkeppni um svo stórt
svæði. Nesið er um 220 hektarar að
stærð og er gert ráð fyrir um það bil
6.000 íbúum á þessu svæði.
Þegar er búið að úthluta nær öllum
lóðum í Grafarvoginum og stefnt er
að því í haust að úthluta Borgárholti
I, sem er svæðið vestan við Gufunes-
kirkjugarö. Síðar er áætlað að byggt
verði á Borgarholti II, norður af
Gufunesi, og Borgarholti III, svæð-
inu milli Korpúlfsstaða og Blika-
staða. Ef hugmyndasamkeppnin
gengur vel, getur svo farið að hafist
verði handa við framkvæmdir í Geld-
inganesi áður en byrjað verður á
Borgarholti III. Gæti því verið komin
byggð í Geldinganesi eftir sjö ár.
Allir íslenskir ríkisborgar og út-
lendingar með fasta búsetu á íslandi
hafa heimild til þátttöku í keppn-
inni. Gögn varðandi keppnina eru
afhent hjá trúnaðarmanni dóm-
nefndar, Ólafi Jenssyni, fram-
kvæmdastjóra Byggingaþjónustunn-
ar að Hallveigarstíg 1, gegn 5000
króna skilatryggingu.
Fyrstu verðlaun verða ekki lægri
en tvær og hálf milljón króna, en auk
þess er dómnefnd heimilt að kaupa
tillögur fyrir allt að einni milljón.
Dómnefndina skipa: Ingibjörg Sólrún Gisladóttir, Finnur Birgisson, Vilhjálm-
ur Þ. Vilhjálmsson og Ingimundur Sveinsson. Ráðgjafi hennar er Þorvaldur
S. Þorvaldsson. Trúnaðarmaður er Ólafur Jensson og ritari Hjörleifur Kvar-
an. Á myndina vantar Guðiaug Gauta Jónsson sem sæti á í dómnefnd.
DV-mynd Brynjar Gauti
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borg-
arfulltrúi og formaður dómnefndar,
sagði að dómnefndin vonaði að þátt-
taka yrði góð og að fólki fyndist þetta
áhugavert viðfangsefni. Hann minnti
einnig á að þátttaka væri öllum
heimil og menn hefðu algjörlega
frjálsar hendur.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagn-
fræðingúr, sem einnig á sæti í nefnd-
inni, sagði að tilgangur samkeppnin-
ar væri að fá sem flestar og frjóastar
hugmyndir en ekki endilega nýtt
skipulag. Ekki væri tryggt að byggt
yrði eftir því skipulagi sem fengi 1.
verðlaun.
Skila skal tillögum til Ólafs Jens-
sonar eigi síðar en 13. desember 1989
kl. 18. Niðurstöður munu liggja fyrir
ímarsánæstaári. -GHK
í nokkra daga að greiða út laun og einnig orðið töluverður dráttur á
samkvæmt heimildum DV hefur greiðslu launatengdra gjalda.
JÚLÍTILBOÐ
GX 303 loftpúðavél
Kantskeri GL 120 - GL 220
TILBOÐ 1
GX 303 loftpúðavél
GL 120 kantskeri
A 6261 25m raftaug
kr. 13.821,-
kr. 3.964,-
kr. 1.123,-
18.908,-
TILBOÐSVERÐ KR. 15.882,-
TILBOÐ 2
BORGARTÚNI 31, SÍMI 627222
GX 303 loftpúðavél kr. 13.821,-
GL 220 kantskeri sjálfvirkur kr. 5.333,-
A 6261 25m raftaug kr. 1.123,-
20.276,-
TILBOÐSVERÐ KR. 16.829,-
Sölustaðir um land allt.
SINDRA AaSTALHF
>
í
i
- 8 MANNA
Eígum tíl afgreíðslu nú þeg-
ar Peugeot 505 GR dísíl og
GR bensín, 8 manna statíon,
árgerð 1989.
GR 505 dísil er útbúinn m.a. sjálfskipt-
ingu, vökvastýri, aflhemlum o.fl.
GR 505 bensin, sjálfskiptur, vökva- ^
stýri, aflhemlar, rafmagn í rúðum o.fl.
^ .1
JÖFUR - ÞEGAR ÞÚ
KAUPIR BÍL
LÉJ
LJ
JÖFUR HF
Nýbýlavegi 2 • Sími 42600
OPIÐ 9-18 VIRKA DAGA
OG 13-17 LAUGARDAGA