Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1989, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1989, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 1989. Fréttir dv Bretlandsmarkaöur: Þorskur fer lækkandi - eiimig lágt verð á laxinum Þorskverð á Bretlandsmarkaði hefur lækkað að undanförnu. Heldur hefur lækkað verð síöustu dagana frá því sem best var í byrjun mánaðarins og búast menn við að þorskverðið verði um 90 kr. kg. Tvö skip, sem lönduðu í gær, þ.e. mið- vikudaginn 19. júlí, fengu um 90 kr. fyrir kg. B.v. Súlan seldi í Huli 12. júlí 1989 alls 94 lestir fyrir 9,8 millj. kr. Meðal- verð 104,80 kr. kg. Þorskur seldist á 109,12 kr. kg. Ýsa á 118,39 kr. kg. Koli 157 kr. kg. Blandaður flatfiskur 81,76 kr. kg. B.v. Kristín seldi afla sinn í Hull 13. júlí alls 74,6 lestir fyrir 7,411 millj. kr. Meðalverð 99,29 kr. kg. Þorskur seldist á 97,31 kr. kg. Ýsa 119,11 kr. kg. Koli 130,% kr. kg. Blandaður flat- fiskur 90,29 kr. kg. B.v. Hjalteyri seldi afla sinn í Huil 17.7. alls 129 lestir fyrir 11,4 millj. kr. Meðalverð 89,09 kr. kg. Þorskur 91,18 kr. kg. Ýsa 94,54 kr. kg. Koli 128,89 kr. kg. Ufsi 35,26 kr. kg. Karfi 47,18 kr. kg. B.v. Guöfinna Steinsdóttir seldi afla sinn í Grimsby alls 73 lestir fyrir 6,8 millj. kr. Meðalverð 93,25 kr. kg. Þorskur 92,33 kr. kg. Ýsa 108,13 kr. kg. B.v. Páll seldi afla sinn í Hull 18.7. alls 108 lestir fyrir 10,4 millj. kr. Meðalverð 95,72 kr. kg. Þorskurinn seldist á 94,52 kr. kg. Ýsa á 114,39 kr. kg. Koli 127,52 kr. kg. Blandaður flat- fiskur 94,10 kr. kg. Fiskur seldur úr gámum frá 10.7. til 17.7. 1%9 alls 1182 lestir fyrir 127,700 millj. kr. Meðalverð 109,28 kr. kg. Þýskaland: B.v. Otto Wathne seldi afla sinn í Bremerhaven 17.7. 1989 alls 171 lest fyrir 11,7 millj. kr. Þorskur seldist á 75,% kr. kg. Ufsi á 79,45 kr. kg. Karfi seldist á 75,34 kr. kg. Blandaður flat- fiskur á 50,61 kr. kg. London: Billingsgate. Síld frá Noregi fékk góðar viötökur á markaðnum þegar 150 kassar bárust þangað fyrir nokkru. Öll síldin seldist á skömm- um tíma þrátt fyrir að hún væri ekki eins góð og hægt væri að hafa hana. Þaö var ekki aðeins síldin sem seld- ist vel heldur afiur fiskur nema lax- Fiskmarkadir Ingólfur Stefánsson inn sem ekki var í háu Verði. Þorsk- flök seldust á 22 £ stone eða um 322 kr. kg. Ýsa seldist á 21 £ stone eða um 307 kr. kg. Mest af þeim laxi sem var á markaðnum var norskur. Lax, sem var 2-3 kg, seldist á 1,40 £ lb. eða um 310 kr. kg. 50 tonn af laxi voru á markaðnum þennan dag en auk þess komu flutningabílar með lax sem fór beint til reykhúsanna, það voru um 19 lestir sem þangað fóru. Einstaka flokkar af laxi voru á lægra verði en um var getið hér að framan. Lítið var um skoskan lax. Þó sást hann á markaðnum og var á sama veröi. New York: Miklar verðsveiflur voru á Fulton markaði. 3. júli skrifar Tore Roalds- en, blm. Fiskaren í New York, og segir meðal annars: „Eins og vænta mátti er eftirspum eftir laxi lítil, að- alorsökin er sú hve mikið af fiski er á markaðnum og frídagar. Markað- urinn hefur jafnvel verið opnaður of snemma eftir frídagana því 4. júlí er þjóðhátíðardagur og menn hafa annaö að gera þann dag en að kaupa fisk almennt. Ef miðað er viö fjölda kaupmanna, sem á markaðnum voru, er verðið ekki sem verst. Lax- inn var' mjög misjafn að gæðum og vantaði ís í suma kassana og er það mjög slæmt, ekki síst í svo miklum hita og var þar um þetta leyti. Verð- munur var mikill og meiri en venju- lega. Sala á norskum laxi hefur auk- ist um 58% frá því um sama leyti á síðasta ári en verömætið um 28,8%. íslenski laxinn, sem var á markaðn- um þennan dag, var gamall og leit illa út, eins var um skoskan lax en lax frá Chile var mjög góður. Sjúkdómar minnka framboð á laxi. Helge Gloppen, blm. Fiskaren, segir að miklir sjúkdómar í eldislaxi valdi minnkandi framboði á laxi og kannski veröi það til þess að framboð og eftirspum komist í jafnvægi. Blaðamaðurinn segir að sala á laxi fyrrihluta þessa árs hafi aukist um 56% en verðmætaaukning hafi verið 28,8%. í Nordlend varð fyrst vart við sjúkdóminn og kallast hann ILA sem er blóösjúkdómur. Fiskaren hefur fengið laxa úr sjó sem eru haldnir sjúkdómnum og telja menn að það geti aukið á vandann ef mikið er um hann í laxi utan eldisstöðva. Ekki er gott að segja til um hvað mikill skaði getur orðiö af þessu sjúkdómsfári en menn lýsa sjúk- dómnum þannig að skaði gæti orðið svipaður og varð af svonefndri hidra- veiki 1987. Veikin hefur stungið sér niður í mjög mörgum eldisstöðvum frá því í vetur. Þýskur bankastjóri: Ætlar að ferðast um ísland í þyriu Eflir viku munu koma hingaö til lands þýskur bankastjóri, Ilse Stoll að naöú, og þyrluflugmaö- ur, og ætla þau að ferðast um landiö í þyrlu. Hefur Siguröur Grímsson kvikmyndagerðar- maöur veriö fenginn til aö kvik- mynda ferðalagið. Á sunnudaginn munu Stoll og flugmaðurinn fljúga frá Frank- furt til Hialtlands, en þaðan munu þau taka Norrænu til ís- lands á miðvikudaginn. Koma þau til Seyöisfjaröar á flmmtu- deginum. Sigurður fer til Frank- furt núna á fóstudaginn og fylgist hann með allri ferðinni. Áætlað er að ferðalagið um ís- land taki hálfan mánuð. Sagði Siguröur að hann væri búinn að skipuleggja það að nokkru leyti, en annars færi það bara eftir veðri og vindum hvert farið yrði hveiju sinni. Kostnaður við gerð myndarinn- ar er aö hluta til borgaöur af Stoll og þyrluflugmanninum, sem rek- ur eigið þyrlufyrirtæki í Þýska- landi. Myndin mun verða tekin og gerð með sýningar í sjónvarpi íhuga. -GHK Neysluvatn úr Siguxjóm }. Sgurössan, DV, ísafirði: Bæjarstjórinn á ísafirði, Har- aldur L. Haraldsson, hefur sent Vegagerö ríkisins bréf þar sem hann óskar eftir að athugaöir verði möguleikar á nýtingu vatns til neyslu sem kæmi úr fyrir- huguöum jarðgöngum. í bréfinu segir m.a: „Sem kunn- ugt er hafa ísfirðingar hingað til notast við yfirborðsvatn og S und- irbúningi hefur verið aö hefja hreinsun á vatni Það væri því mjög ákjósanlegur kostur fyrir ísafjarðarkaupstað ef möguleiki væri að fá vatn ur jarðgöngun- um.“ í dag mælir Dagfari______________ Borgin í skemmtibransann Davíð er búinn aö kaupa Broad- way, eða Breiövang eins og mál- hreinsunarmenn segja. Borgar- stjórinn hrissti fram úr erminni hundrað og átján milljónir og bingó: kaupin voru klár. Ekki svo að skilja að seljandinn hafi átt um annað að velja. Manni skilst að Óh Laufdal hafi mátt þakka fyrir að borgin vildi kaupa enda er sagt að þessi landsþekkti skemmtana- kóngur sé orðinn að víðfrægum skuldakóngi. Ekki skyldi maður hlakka yfir þeim ófórum en eitt- hvað er það undarlegt samt aö maður eins og ÓU geti verið í vand- ræðum með peninga. Hann er bú- inn að selja sjússa ofan í íslendinga um margra ára bil, fyrst í Holly- wood, síöan í Breiðvangi og nú ahra síðast á Hótel íslandi. Ef ein- hver bisness getur borið sig á ís- landi er hann fólginn í því að heUa brennivíni ofan í landann enda hefur verið fuUt á þessum stöðum í heilan mannsaldur og færri kom- ist að en vildu. Borgarstjóm er sem sagt orðin eigandi að Breiðvangi, helsta sam- komuhúsi Reykvíkinga og annarra landsmanna og raunar útlendinga líka því hingað hafa veriö fluttir Svíar í heilum skipsfórmum um helgar til að detta í það á Breið- vangi og komast á séns. Staðurinn hefur verið heimsfrægur fyrir kvennafans og margur maðurinn hefur krækt sér í föngulegt fljóðið í margmenninu á Breiðvangi og búið í farsælu hjónabandi upp frá því. Nú er því baíli lokið og útlend- ingar verða að fara annað ef þeir ætla að detta í það. Þess er getið aö borgarstjóm æfli að setja þarna upp félagsmiðstöð fyrir unglingana í Breiðholtinu, áfengislausa í þokkabót. Nú er auð- vitað spuming hvort einhveijir áfengislausir unglingar fyrfir- finnast í Breiðholtinu en lengi skal manninn reyna og aldrei að vita nema einn og einn krakki slysist inn á félagsmiðstöðina sem borgin hefur keypt fyrir hundrað og átján mfiljónir. Þeir geta eiginlega ekki veriö þekktir fyrir annað eftir þetta örlæti borgarinnar fyrir þeirra hönd. Það kostar sitt að halda ungl- ingunum edrú. Meðan borgin er þannig að bjarga Ólafi frá skuldunum og börnunum frá brennivíninu getur ríkisstjóm- in ekki komið sér saman um að bjarga bændunum undan loðdýr- unum. Loðdýrabændur segjast ennþá vera í hengingarólinni vegna þess aö þeir skuldi svo mik- ið. Loðdýrabændur skilja nefnilega ekki þau nýju efnahagsvísindi hér á landi að það sé meira um vert að bjarga skemmtanabransanum undan gjaldþrotum heldur en ómerkilegum atvinnugreinum. Það er í skemmtibransanum sem ís- lendingar þrífast og það verður aö halda lífinu í athafnamönnum sem kunna að reisa hótel og skemmti- staði þar sem almenningur getur dottið í það eftir að hafa fengiö út- borgað hjá fyrirtækjum sem eru á opinberri framfærslu. Þess vegna er það hárrétt ákvörð- un hjá Davíð og borgarstjórninni að hlaupa undir bagga meö Óla Laufdal og kaupa eitt stykki skemmtistað fyrir hundraö og átj- án milljónir. Við gerum ekki annaö betra við peningana ef við ætlum að halda uppi einhveijum standard hér á landi. Skítt veri með loö- dýrabú og fiskeldi, skítt veri með útgerð og fiskvinnslu, skítt veri með þá þúsund Reykvíkinga sem eru farnir á hausinn á þessu ári vegna þess að þeir höíðu ekki vit á því að reka skemmtistað til að selja þegar harðnaði á dalnum. Það sem okkur vantar eru félags- miðstöðvar til að safna saman unglingunum sem ekki eru byijað- ir að drekka og við þurfum at- hafnamenn sem kenna unglingun- um að drekka. Og þegar æskan er búin að drekka nóg og eyða allri hýrunni á diskótekum borgarinnar er auðvitað ekki lengur hægt að halda börunum opnum. Þá kemur borgin með fullar hendur íjár og dregur skuldakóngana í land. Menn verða að vera á réttri hillu í lífinu og menn verða að skilja að borgin lætur málefnin ráða og eyð- ir ekki peningum sínum í neina vitleysu. Hún bjargar ekki hveijum sem er. Borgarstjómin í Reykjavík veit hverja hún á að skera niður úr hengingarólinni. Það er meira en ríkisstjórnin veit. Loðdýra- bændur eiga að snúa sér að skemmtibransanum. Þar koma þeir ekki að tómum kofunum. Dagfari TDan H

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.