Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1989, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1989, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 1989. Fréttir Þarf 1,5 milljarða strax og hálfan milljarð á ári - enginn hefur lengur yfirsýn yfir allar björgunaraðgerðimar Skýrsla Byggðastofnunar um loðdýrarækt: „Fjöldi aðgeröa er slíkur að jafnvel þeir aðilar sem gerst þekkja til hafa ekki lengur heildarmynd af öllu þvi sem í gangi er eða gert hefur verið af hálfu hins opinbera," segir meðal annars í skýrslu Byggðastofnunar um loðdýraræktina. Sapikvæmt mati Byggðastofnunar á stöðu loðdýraræktarinnar þyrfti að afskrifa helminginn af skuldum greinarinnar strax ef hún ætti að lifa. Það eru um 1.350 til 1.500 millj- ónir króna. Þessu til viðbótar má ráða af skýrslu Byggðastofnunar að styrkja þyrfti greinina um ná- lægt 270 milljónir á ári á næstu árum og er þá ekki tekið tillit til launakostnaðar og fjármagns- kostnaðar. Sé miðað við lágmarks- laun og -vexti verður ekki komist hjá þvi að styrkja greina með um 520 á ári. Það er rúmlega heildar- tekjur greinarinnar. Samkvæmt þessu þyrfti að veija 1.950 milljónum strax til að bjarga 2.400 milljón króna fjárfestingu í greinni og síðan um 450 milljónum árlega á næstu árum. Staða loðdýraræktarinnar er í raun það slæm að Byggðastofnun þykir ekki lengur réttlætanlegt að halda henni á floti í nafni byggða- stefnu. í skýrslu stofnunarinnar segir: „Ef takast á að snúa af þeirri braut (það er fólksfækkun í dreif- býlinu) verður að vera hægt að reka þar atvinnustarfsemi sem staðið getur á eigin fótum án þess að ríkið þurfi að koma til aftur og aftur og gefa stórlega með starf- seminni." Kolsvört skýrsla Byggðastofnunar Skýrsla Byggðastofnunar er kol- svört. Þar kemur fram að enginn grundvöllur er fyrir rekstri loð- dýraræktar. Helstu rökin fyrir að koma greininm hér á fót reyndust rökleysa. Greinin er svo skuldsett að engin von er til þess að hún geti borgað skuldir sínar eða greitt af þeim vexti. Þær aðgerðir sem stjórnvöld hafa beitt sér fyrir til bjargar hafa ekki gagnað þrátt fyr- ir að þær séu orðnar svo víðfeðmar að enginn hefur lengur yfirsýn yfir þær. Þessu til viðbótar þá er hlutur loðdýraræktar í landbúnaðarfram- leiöslunni sáralítill. Greinin skiptir enn minna máh í útflutningsfram- leiðslunni. Þó að loðdýraræktin yrði lögð niður er ekki hægt að tala um tapaðar atvinnutekjur þar sem reksturinn hefur ekki skilað krónu uppi tekjur þeirra sem hafa af henni atvinnu. Ef bændur hafa tek- ið sér laun hefur það verið gert með því að taka lán eða auka van- skil af eldri lánum. Vonir til þess að greinin geti rétt úr kútnum á næstu árum eru ekki miklar. Til þess að verð á erlendum mörkuðum þarf að draga stórlega úr framleiðslu. Ef það verður gert má síðan aftur búast við aukinni framleiðslu og verðfalh og svo koh af kolli. Samkeppnisstaða íslend- inga á þessum sveiflukennda markaði er slæm. Hér er allt dýr- ara; fóður, búr og hús. íslendingar verði því að sætta sig við verri af- komu en aðrir á markaði þar sem miskunnarlaus samkeppni ríkir. Enginn hefur lengur yrirsýn yfir styrkina Af skýrslu Byggðastofnunar má lesa harða gagnrýni á aðgerðh- stjórnvalda á undanförnum árum. „Erfiðleikar hafa verið mjög mikl- ir í loðdýrarækt undanfarin ár og hefur hver aðgerðin af opinberri hálfu rekið aðra til þess að freista þess að þessi atvinnugrein fái stað- ist um lengri eða skemmri framtíð. Fjöldi aðgerða er slíkur að jafnvel þeir aðhar sem gerst þekkja th hafa ekki lengur hehdarmynd af öhu því sem í gangi er eða gert hefur verið af hálfu hins opinbera. Erfiðlega hefur gengið að framkvæma sumar aðgerðir sem ákveðnar hafa verið; meðal annars vegna þess að þær hafa krafist framkvæmda af hálfu ýmissa aðha sem ekki lúta beinni opinberri stjóm. Þá hefur vandi greinarinnar verið svo mikih að ekki hefur tekist að hrinda einni aðgerð-f gagnið th fihls áður en sú næsta tekur við.“ Af þessum kafla er ekki hægt að Fréttaljós Gunnar Smári Egilsson lesa annað en stjómvöld hafi tapað áttum í thraunum sínum th aö moka í þá hít sem loðdýraræktin hefur orðið. Aðgerðir stjórnvalda nú verða einnig hálfskrýtnar þegar htiö er th þess sem Byggðastofnun telur að þurfi th að halda greininni á floti. Stjórnvöld hafa ákveðið 38 mhljón króna framlag th niður- greiðslna á fóðri og að flýtt verði endurgreiðslu á söluskatti að óþekktri upphæð. Nauðsyn á 270 milljóna styrkveitingum á ári Byggðastofnun telur að nauðsyn- legt sé að afskrifa helminginn af skuldum loðdýraræktarinnar sem eru um 2,7 th 3 mihjarðar. Sam- kvæmt þessu em um 1.350 th 1.500 mhljónir af þeim fjármunum sem lánardrottnar greinarinnar hafa lagt th hennar glataðir hvort sem hún verður gjaldþrota eða ekki. Þrátt fyrir þessa niðurfehingu skulda telur Byggðastofnun nauð- synlegt að stjómvöld láti um 140 mhljónir renna th loðdýraræktar- innar svo hægt verði að ljúka fram- leiðsluárinu. Þessir fiármunir em viðbót við fyrri niðurgreiðslu á fóðri upp á um 55 mihjónir og 70 th 80 milljón króna styrk Fram- leiðnisjóðs th refabænda á þessu ári. Samanlagður styrkur ríkisins á þessu framleiösluári þarf því að vera um 270 mhljónir. Hehdartekj- ur greinarinnar eru ekki nema um 500 milljónir. Til viðbótar við styrk ríkisins veita bankarnir greininni um 160 mhljónir í afurðalán þrátt fyrir að hún hafi ekki getað staðið skh á afurðalánum fyrri ára. Heildarstyrkur hærri en tekjurnar Dæmið verður enn svartara þeg- ar í ljós kemur að í þessari áætlun Byggðastofnunar, er ekki gert ráð fyrir launakostnaði né vaxtakostn- aöi af þeim lánum sem ekki eru afskrifuð. Ef gert er ráð fyrir að greinin borgi 6 prósent raunvexti, sem em lægri en bestu vextir við- skiptabankanna, þá yrðu árs- greiðslur hennar um 90 milljónir. Ef gert er ráð fyrir aðeins einu árs- verki á hvert loðdýrabú og reiknað með 65 þúsund króna mánaðartekj- um, sem verða að teljast mjög lág laun, þá eru hehdarlaunagreiðslur greinarinnar á ári um 163 mhljónir. Þrátt fyrir 270 mhljón króna framlag frá ríkið vantar því enn 253 milljónir th að greinin standi imdir sér. í hehd vantar því 523 mihjónir svo dæmið gangi upp og er þó var- lega reiknað. 22 prósent neikvæðir vextir af fjárfestingunni Eins og áður sagði lítur ekki út fyrir að markaðsverð á skinnum muni hækka á næstu árum og ef svo yrði má búast við að það geti hrapað aftur. Samkvæmt greinar- gerð Byggðastofnunar virðist því mega búast við aö loðdýraræktin þurfi 1.350 til 1.500 eftirgjöf á skuld- um sínum strax og síðan 520 mihj- ón króna framlag á ári, hverju á næstu árum. En til hvers? Ein helstu rök forsvarsmanna loðdýrabænda eru að annars myndi fiárfesting upp á um 2.400 mihjónir tapast. Samkvæmt skýrslu Byggðastofnunar lítur hins vegar út fyrir að það þurfi að greiða um hálfan mihjarð með þessari fiárfestingu á næstu árum. Þeir fiármunir myndu sparast ef loð- dýrarækt yrði lögð niður. Þessi byrði jafnghdir því að fiár- festingin beri um 22 prósent nei- kvæða vexti í ár og á komandi árum. í skýrslu Byggðastofnunar er auk þess dregið í efa að þessi fiárfesting glatist. Ef rekstrargrundvöhur fyndist í framtíðinni væri hægt að hefia loðdýrarækt að nýju. Hvorki húsin né búrin fara neitt á meðan beðið er. 210 þúsunda mánaðar- styrkur á mann Onnur rök forsvarsmanna loð- dýrabænda eru að nokkur hundr- uð fiölskyldna eigi aíkomu sína undir loðdýraræktinni. Eins og áður sagði dregur Byggðastofnun í efa að hægt sé að tala um tapaðar atvinnutekjur í loðdýrarækt ef greinin yrði lögð niður þar sem hún hefur einfaldlega ekki skapað nein- ar atvinnutekjur. Ahar hennar tekjur hafa farið í að ala dýrin og þær standa ekki einu sinni undir þvi. Auk þess telur Byggöastofnun að á loðdýrabúum sé ekki nema eitt ársverk á bú eða 206 ársverk í allt. Ef halda á atvinnugreininni á floti með 520 mihjón króna styrk á ári jafnghdir það um 2,5 mihjónum á ársverk eða um 210 þúsund krón- um á mánuði. Þessu th viöbótar þá munu þessi ársverk kosta lánardrottna grein- arinnar um 1.350 th 1.500 mihjónir í tapaðar kröfur ef loðdýraræktinni verður haldið á íloti. Það jafnghdir um 7,3 mhljónum á ársverk. Ef bændumir hefðu fengið þessa flár- hæð með jöfnum afborgunum síð- an 1981 heíði hver um sig fengið 810 þúsund á ári. V só\vcva. BENID0RM HVÍTA STRÖNDIN < y VERSLAMR \m ÍII.ÍF —M •- 2. ágúst- 23. ágúst-13. september i I j Bjóðum eingöngu bestu gististaðina. Beint leiguflug, engin millilending -1 engin óvissa. Við staðfestum brottfarardag og gististað S-T-R-A-X. Hagstætt verð - fyrsta flokks ferð. \ FERÐASKRIFSTOFA REYKJAVIKUR Aðalstræti 16 • 101 Reykjavík • sími 91-621490 • 3 vikur. Verð frá kr. 37.500

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.