Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1989, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1989, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 1989. 9 Utlönd Nær tvö hundruð taldir hafa lifað af flugslysið Brak úr þotunni sem fórst í nauðlendingu við flugvöllinn í Sioux. Simamynd Reuter Birgir Þórisson, DV, New York: DC-10 þota með tvö hundruð níutíu og þijá'innanborðs fórst í nauðlend- ingu á flugvellinum í Sioux í Iowa í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Síðustu fréttir herma að hundrað sjötíu og átta manns hafi lifað af slysið. Sum- um þeirra er ekki hugað líf. Ekki er enn vitað hvað olh slysinu. Tahð er að sprenging hafi orðið í miðhreyfh vélarinnar hálftíma eftir brottför frá Denver á leið tíl Chicago. Flugstjóri skýrði flugumferðarstjórn frá því að sprengingin hefði eyðhagt vökvaþrýstikerfi vélarinnar. Það neyddi flugmennina th að reiða sig á handafl og þá tvo hreyfla sem eftir voru th að hafa stjóm á henni. Þeir reyndu nauðlendingu á næsta flugvelh en véhn skah th jarðar áður en hún náði inn á flugbrautina. Ann- ar vængurinn' rakst niður og vélin endastakkst jafnframt því sem feiknamikh sprenging varð í henni. Flugvélin brotnaði í sundur og stöðv- aðist loks á akri á hvolfi. Brak dreifö- ist um stórt svæði. Með miklum óhkindum má telja að sumt fólkið, sem af komst, skyldi ganga htt meitt á brott frá flakinu. Einn þeirra sem komust lífs af greindi frá því að hann hefði við nauðlendinguna misst ungbarn sitt , úr fangi sér og án þess að fá nokkuð að gert horft á er bamið rann frá honum eftir gangi vélarinnar. Eftir að hafa komist úr braki vélarinnar fann hann bamið í fangi annars far- þega sem einnig komst lífs af. Samkvæmt frásögn annarra far- þega sáu þeir hvemig eldtungur læstu sig í stjómklefa vélarinnar og svo hefði virst sem nef hennar hefði horfið í einu vetfangi. Með hrylhngi greindu sumir frá því að einhveijir samferðamenn þeirra hefðu misst úthmina. Flugmennimir slösuðust en hfðu báðir þegar síðast fréttist. Farþegarnir sýndu stihingu ahan tímann, að sögn þeirra sem af kom- ust. Háiftími leið frá sprengingunni í hreyflinum þar th vélin brotlenti og biðu læknar og' hjúkmnarfólk flugvelhnum í Sioux. Flugvélin, sem um ræðir, var fimmtán ára gömul og átti hún sext- án þúsund flugtök og lendingar að baki. Hreyfillinn, sem sprakk, hafði ítrekað verið th vandræða undan- fama mánuði, að sögn AP-fréttastof- unnar. Eigandi vélarinnar, United Airlines flugfélagið, segir samt að vélin hafi verið í góðu ástandi. Nokkur alvarleg flugslys hentu DC-10 þotumar á áttunda áratugn- um. Ahar bandarískar vélar af þess- ari gerð voru kyrrsettar árið 1979 eftir að vél fórst í flugtaki við Chicago. Það slys kom illa við Flug- leiðir sem þá höfðu nýverið keypt eina slíka. En síðan þá hafa DC-10 þoturnar verið happasælh en flestar aðrar flugvélategundir. Tahð er að hryðjuverkasamtök Baska á Spáni, ETA, hafi staðið að baki morðinu á tveimur spænskum hershöfðingjum í Madrid í gær. Mennirnir vom skotnir th bana þar sem þeir óku um í bifreið á götum Madrid í gær. Bifreiðarstjóri þeirra slasaöist alvarlega.. Ixigregluyfirvöld tejja að ETA eigi aðhd að tilræðinu. Sex hundr- uð hafa látist í tuttugu og eins árs baráttu samtakanna fyrir sjálf- stæði Baska. Moröin virðast gera að engu von- ir manna um viöræður ETA og fulltrúa stjórnvalda. Yfirvöld hafa sagt að viðræður geti fyrst hafist þegar árásum samtakanna linni Tveir spænskir hershöfðingjar voru myrtir í Madrid á Spáni i gær. Simamynd Reuter Stokkar Thatoher upp í Breska blaðið The Sunday Times skýrði frá því nýlega að Margaret Thatcher forsætisráöherra hygðist stokka upp í stjórn sinnl Segja heim- ildarmenn blaðsins að tilkynnt verði um breytingar þann 24. þessa mánað- Meðal þeirra sem líklega fá reisupassann samkvæmt fréttum blaðsins er Nicholas Ridley umhverfismálaróðherra. Er tahð aö John Maiors úr fjármálaráðuneytinu taki við ráðuneyti umhverfismála. Þingmenn úr flokki forsætisráðherrans, sérstaklega þingmenn kjör- dæma utan þéttbýhs, þrýsta á um breytingar i umhverfismálaráðuneyt- inu, segir í fréttinni, og vfija tvo umhverfismálaráðherra. Myndi annar sjá eingöngu um „grænu“ málin og sú staða vera íghdi ráðherrastöðu. Stuöningsmenn sandinista i Nicaragua halda upp á tíu ára byitingaraf- mæliö. Simamynd Reuter Mikhl mannfiöldi safnaðist saman i Managua, höfuöborg Nicaragua, i gær en þá var þess minnst að tíu ár eru síðan einræðisherranum, Anast- asío Somoza, var steypt af stólL Ðaniel Ortega forseti steig í ræðupúlt og flutti ræðu sem margir segja að minni á kosningaræðu. Kosningar fara fram í Nicaragua á næsta árL Fuhtrúar 62 þjóða og 95 sijómmálaflokka, en enginn þjóðarleiðtogi, tóku þátt í hátíðahöldunum. Á þessari loftmynd má sjá hvar vélin kom fyrst niður (ofarlega til vinstri) og hvar sumir hlutar hennar lentu (til hægri). Símamynd Reuter Friðarhorfum ógnað í Líbanon Sprengjum rigndi yfir Beirút, höf- uðborg Líbanons, í gær og em þetta verstu bardagar í borginni síðan í maímánuði síðastliðnum þegar full- trúar Arababandalagsins reyndu að miðla málum í fjórtán ára borgara- styijöld í landinu. ÞHr létust og þijá- tíu og níu særðust í gær. Bardagarnir hmtust út þegar sýr- lenskir hermenn reyndu að koma í veg fyrir að skip bryti gegn hafn- banni í höfnum kristinna. Skipið komst að bryggju. Hermenn Sýrlendinga hafa reynt að halda til streitu hafnbanni í höfn- um kristinna til að koma í veg fyrir aö hermenn Aoun, hershöfðingja kristinna, fái vopnasendingar frá ír- ak. Um fjömtíu þúsimd sýrlenskir hermenn em í Líbanon. Þrátt fyrir hafnbannið hafa mörg skip náð að leggjast að bryggju. Fréttaskýrendur segja að bardagar síðustu daga í Berút ógni tilraunum fulltrúa Arababandalagins til að koma á friði. Reuter Olíubrák á ströndum Porftúgals Yfirvöld í Portúgal vinna nú að hreinsun baöstranda eftir aö oha rann úr olíuskipinu Marao. Tahð er aö allt að 20 tonn af hráoliu hafi flætt úr skipinu sem rakst á hafiiárgarð í Sines í suðurhluta Portúgals á föstu- dag. Gat kom á tvo tanka skipsins við áreksturinn. Finna raá olíubrák á um sjö kílómetra langri ræmu við strönd Portú- gals. Vegna vinda leitar ohan til lands. Krefjast lausnar mðtmælenda Friðargæslusveitir Sameinuðu þjóðanna halda aftur af tyrknesk-kýp- verskum lögreglumönnum sem rey ndu að handtaka nokkra mótmaalend- ur á hlutiausa svæðlnu sem skiptir Kýpur. Simamynd Reuter Fimm hundrað grísk-kýpverskar konur gengu i gær fylktu höi inn á hlutlausa svæðið sem skiptir Kýpur og hétu því að hreyla sig ekki þaðan fyrr en tyrknesk-kýpverks lögregluyfirvöld hefðu látiö lausa mótrtiælend- ur sera handteknir vora á miðvikudag. Lögregla sagði aftur á móti að mótmælendumir yrðu ekki látnir lausir fyrr en konurnar fæm til síns heima. Forseti Kýpur, George Vassiliou, raótmælti mótmælaaögerðunum og sagði þær hafa leitt til ástands sem ekki væri hægt að sætta sig við. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.