Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1989, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1989, Qupperneq 13
Lesendur 't- FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ -1-989: Grátkórinn úr fríi: Stjórnandi boðar æfingar Jóhann skrifar: Eftir nokkurt hlé á kröfum hinna hefðbundnu þrýstihópa í sjávarút- vegi og öðrum útflutningsiðnaði um tafarlausa gengisfellingu og „bætt rekstrarskilyrði" af hálfu hins opin- bera eru nú aftur farnar að ‘birtast auglýsingar í frétta- og viðtalsformi og eru eins konar dulbúnar áminn- ingar um að brátt muni grát- og geng- isfellingárkórinn aftur koma fram á sjónarsviðið. Stjórnqndur kóranna eru með öðr- um orðum farnir að boða æfmgar. Þannig mátti lesa frétt í blaði fyrir stuttu um afkomu atvinnuveganna þar sem talað var um „hreina brigð hjá ríkisstjórninni“. Var þetta haft eftir hinum nýja yfirstjórnanda G.G. kórsins og formanni Vinnuveitenda- sambandsins. Sagði hann að gengið hefði verið til síðustu kjarasamninga vegna lof- orða stjórnvalda um að útflutnings- framleiðslan skyldi hafa viðunandi stöðu. - „Við höfum minnisblöð frá þeim fundum," sagði kórstjórinn, Bannað verði að skiija mann- lausa bíla eftir í gangi Kristbjörg hringdi: Mig langaði til að skora á þá sem einhverju ráða að fá því framgengt að ólöglegt verði að skilja bíla eftir í gangi. Fyrir skömmu var ég stödd fyrir framan Flugstöð Leifs Eiríkssonar og þar voru fjórar eða fimm rútur sem allar voru skildar eftir í gangi í langan tima. Bílastæðin voru mettuð af óþverralofti og maður gat ekki andað því stybban var slík. Það var ekki verandi fyrir utan. Það gengur ekki lengur að fólki líð- ist að skilja bílana svona eftir í gangi. Stjórnvöld verða að beita sér fyrir því að þetta verði bannað. Hótel ísland: Dýrt inn og léleg skemmti- atriði Reiður skemmtanagestur hringdi: Fyrir stuttu fórum við átta saman og ætluðum að eiga góða stund á Hótel íslandi. Keyptum við okkur mat og biðum spennt eftir skemmti- atriðunum. En í stuttu máli vorum við öll hundóánægð með það sem upp á var boðið og hversu dýrt er inn. í fyrsta lagi eiga svona karnival- sýningar ekki heima hér á landi held- ur aðeins í hitabeltislöndum. Og í öðru lagi voru stelpurnar yfirmáta klunnalegar og alls ekki í takt. Að mínum dómi var sýningin mis- heppnuð. Ég hef víða ferðast en aldr- ei séð annað eins. Ég hefði getað hleg- iö mig máttlausan. Einnig erum við mjög óánægð með matinn. Á diskinum var aðeiris smá- biti sem maður varð að borga offjár fyrir. Mtaverktffedf Allar tjónaviðgerðir Vagnhöfða 9, sími 36000 orðrétt. „Ekkert annað en það sem er yfir núlli getur talist viðunandi,“ var einnig haft eftir honum. Síðan voru týnd fram orð eins og „raungengi", „punktmat" og „árs- framleiðsla" (sbr. bílaframleiðsla) og gengisleiðrétting. Allt kunn stikkorð úr lögum grát- og gengisfellingar- kórsins sem hann hefur sungið í skemmtiþáttum sjónvarpsfrétta á undanfornum árum. Það verður því ekki mikið um ný lög hjá þessum landsþekkta kór á söngprógramm- inu síðsumars og komandi haust- dögum. Helsta tilhlökkunarefnið er kannski þaö að nú er komið fram nýtt stef, „Brigð hjá stjórninni", sem verður þó væntanlega sungið undir nýju lagi sem stjómandinn virðist vera að boða æfingar á þessa dagana. Nýlega var viðtal við tvo aðila úr loðdýraræktinni og virtust þeir mjög sammála öðrum söngmönnum grát- kóranna um að gengið yrði að fella nú þegar og það myndarlega, svo að nýta mætti byggingar þær sem refur og minnkur hefur haft til umráða í sveitum landsins. - Við eigum því von á gráti úr fleiri en einni átt. /fllMMIIIUH SUMARTILBOÐ ÁPÍANÓUM greiöast á allt að 2 árum HLJÓÐFÆRAVERSLUN PÁLMARS ÁRNA HF HLJÓÐFÆRASALA - STILLINGAR - VIÐGERÐIR ÁRMÚLI38,108 REYKJAVÍK, SlMI 91-32845 SÍMNEFNI: PALMUSIC - FAX: 91-82260 Það er fatt sem kemur í veg fyrir að Renault 19 verði mikils metinn á íslandi. Hann keppir við þá vinsælustu í sínum flokki. Samkeppnin á markaðnum Hönnun og þróun Renault 19 miðaö- ist strax í upphafi við samkeppni frá Evrópskum og Japönskum bílum. Kröfur bílkaupenda aukast jafnt og þétt, þess vegna er þörfin fyrir Renault 19 til staðar. Tæknilegur tímamótabíll Renault 19 GTS, er með nýja 80 hestafla „Energy" vél, með 2ja hólfa blöndungi. Vélin er 1390 cc, rira strokka og smíðuð til að standast ströngustu kröfur um mengunarvarnir í Evrópu og Bandaríkjunum. Spar- neytnin er ótrúleg, bensíneyðslan er milli 5 og 6 lítrar á hundað kílómetr- um. Hámarkshraði er 173 km/klst. Fjöðrunin er sérstaklega styrkt til að gefa bílnum góða aksturseiginleika, jafnt í innanbæjarakstri sem á malar- vegum. Gírkassinn er 5 gíra og er gírskipting- in eins og best gerist í dýrari bílum. GTrkassi og drif hafa sérstakt smur- olíukerfi sem aldrei þarf að bæta á eða skipta um olíu. Renault 19 GTS kostar frá 799.399.- Óbreytt kynningarverð Þrátt fýrir gengisbreytingu að undan- förnu, verður Renault 19 enn um sinn á óbreyttu kynningarverði. Einfalt mál að semja Þú semur um þau kjör sem henta þér best. Við tökum notaða bíla í góðu ástandi sem greiðslu upp í nýj- an Renault 19. Greiðslukjörin eru til allt að 2ri mán- aða. Engin áhætta Þú tekur enga áhættu þegar þú kaupir Renault 19. Bílinn kaupir þú með 30 daga skilarétti, sem þú getur notað til að kynnast bílnum nánar. ekki ánægð(ur) með kaupin getur þú einfaldlega skilað bílnum innan 30 daga frá kaupdegi. Nánari upplýsingar um skilaréttinn á Renault 19 færðu hjá sölumönnum. Bílaumboðið hf Krpkhálsi 1, Reykjavík, sfmi 6^86633 Renault 19 er með 6 ara ryðvarnarábyrgð ULT19 L

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.