Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1989, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1989, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 1989. Frjálst.óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SlMI (1 )27022 - FAX: (1 )27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 900 kr. Verð í lausasölu virka daga 85 kr. - Helgarblað 100 kr. Velta vandanum Minnstu munaði, að verkfall flugfreyja stöðvaði ílug- ið. Loks náðist samkomulag samkvæmt tillögu sátta- semjara. Flugfreyjur fá 20 prósent launahækkun fram til 31. marz á næsta ári. Þær fá einar sokkabuxur á mánuði frá Flugleiðum, en höfðu óskað eftir tvennum. Rétt er að líta nánar á þennan samning. í fyrsta lagi fá flugfreyjur mun meiri kauphækkun en aðrir hafa samið um. Launþegar almennt sömdu síðstliðinn vetur um kauphækkun, sem ekki fer mikið fram úr tíu prósentum. Þetta er í samræmi við stöðu efnahagsmála. Fyrrnefnd kauphækkun reyndist jafnvel öllu meiri en þjóðfélagið gat risið undir. Meðal annars þess vegna hefur gengi krónunnar verið að falla. Þótt hin almenna kauphækkun væri ekki mikil, reyndist hún ýta undir verðbólgu. Síðan hafa komið aðir hópar, sem hafa komizt lengra. Bandalag háskólamanna fékk mun meiri kjarabætur en launþegar almennt. Ríkisvaldið lofaði þar upp í ermina sína. Erfitt verður að standa við loforð um launahækkanir á næsta ári handa félögum í BHMR. Nú, síðan koma enn hópar, sem komast enn lengra. Dæmi um það eru flugfreyjur. Það verður að harma, að þetta geti gerzt. Vissulega búa landsmenn viö erfið kjör. En ekki er heppilegt, að ákveðnir hópar brjóti rammann, rétt einu sinni. Þjóðfélagið verður að búa við ákveðna launastefnu. Flugfreyjur sóttu eftir sinni hækkun meðal annars vegna þess að flugmenn höfðu fengið miklar hækkanir vegna fækkunar í áhöfn. Og Flugleiðir létu undan við flugfreyjur. Jafnhættuleg og stöðvun flugs hefði orðið, svo mjög eru þessir samn- ingar háskalegir. Síðast stóð deilan um sokkabuxur. Vissulega var þá farið að deila um sparðatíning, jafn- mikið og við lá. Þjóðfélagið stendur verr, eftir að svona hópar hafa ruðzt fram og fengið kauphækkanir umfram aðra. Ennfremur vitum við, að í næstu samningum munu launþegar almennt sækjast eftir að brúa það bil, sem orðið er. Þeir munu ekki sætta sig við, að aðrir hópar hafi komizt miklu lengra. Því er í gangi þróun, sem stefnir til vaxandi launahækkana. Og vlð vitum, hvað það þýðir. Það þýðir einungis meiri verðbólgu, sem aftur þýðir meiri gengislækkun. Því stefnir allt í þessa átt. Vissulega væri gott, ef aðrar stéttir gætu fengið svip- aða kauphækkun og flugfreyjur. En. því er bara ekki að heilsa. Samningurinn við flugfreyjur er afleitur vegna þess fordæmis, sem hann gefur. Aðrir munu sækja á eftir. En spyrja má: Hvers vegna eru Flugleiðir svo fúsar til að veitakauphækkanir umfram rammann? í fyrsta lagi sýnir síðasti samningur okkur, hversu bölv- að það er, þegar starfsmenn ákveðins fyrirtækis eru í mörgum hópum. En í öðru lagi virðist svo, sem Flugleiðir telji sig aldr- ei þurfa að borga' kauphækkanirnar til flugmanna og flugfreyja. Flugleiðir hafa síðustu ár fengið mikla ríkisstyrki. Sennilega gerir félagið ekki ráð fyrir hagnaði eftir miklar flárfestingar nú. Því veröur þrautalendingin, að félagið leiti enn einu sinni til ríkisins um stuðning. Sem sé, að skattborgarar borgi brúsann. Því telur félagið sig geta samið um miklar launahækk- anir. Félagið semur um 20 prósent kauphækkun til flug- freyja. En í raun ætlar félagið að senda skattgreiðendum þann reikning. Haukur Helgason Frá fundi Birtingar, félags alþýðubandalagsfólks í Reykjavík. - „Hugmyndafræðileg kreppa félagshyggjuflokk- anna var til sýnis,“ segir greinarhöf. m.a. Hvaö ætlar ríkisstjómin aö gera þegar hún verður stór? Fuitdur í Birtingu Þaö var afar fróölegt aö hlusta á umræður á fundi sem Birting, ný- stofnað klofningsfélag formanns- arms Alþýðubandalagsins, hélt hinn 13. júlí að Hótel Borg. Hvað ætlar ríkisstjómin að gera þegar hún er orðin stór? var yfirskrift fundarins. Ég hélt satt að segja að ætlunin hefði verið að ræða um útvíkkaða stjóm núverandi stjóm- arflokka og Borgaraflokksins en fundarboðendur voru að hugsa um aldur en ekki stærð. Fulltrúar Birt- ingar, Alþýðuflokks og Kvenna- lista fluttu framsöguræður og fyrir svörum sátu fulltrúar stjómar- flokkanna. Það var athyglisvert að fulltrúa Kvennalistans var boðið að flytja framsöguræðu - rétt eins og hann bæri ábyrgð á ríkisstjóminni og viðgangi hennar - en hvorki Fram- sóknarflokksins né gamla Alþýðu- bandalagsins þótt fulltrúar þeirra sætu síöan fyrir svörum ásamt ut- anríkisráðherra. Hann var eini ráðherrann sem fékkst til að taka þátt í fundinum. Aðrir ráðherrar höfðu greinilega engan áhuga á því að vita hvað ríkisstjórnin ætti að gera þegar hún yrði stór. Uppgjöf og vonleysi Ræðumenn höfðu vægast sagt ekki mikla trú á ríkisstjóminni. Einn sagðist óttast stórfellt at- vinnuleysi næsta haust. Annar taldi hugmyndaþurrö og valdhroka einkenna rikisstjómina sem virtist sigla stefnulaust í strand. Sá þriðji lýsti vaxandi áhyggjum sínum enda væra tilraunir stjómarinnar fálmkenndar og framtíðarsýn eng- in. Dómur ræðumanna yfir verkum ríkisstjómarinnar voru harðir og lýstu í senn óánægju, uppgjöf og vonleysi. Það kom samt ekki á óvart að utanríkisráðherrann skyldi telja undirtóninn í ræðunum hlýjan og sýna velvilja í garð ríkis- stjómarinnar enda hefur hann lýst því yflr að ríkisstjómin vilji og eigi að vera óvinsæl. Athygli vakti þó þegar ráðherrann sagði að ekki yrði undan því vikist innan nokk- urra vikna eöa mánaða aö móta stefnu fyrir ríkisstjórnina. Nokkrir þátttakenda í umræðunum tóku í Scuna streng. Markaðslausnir Þegar ræðumenn reyndu að benda á lausnir og koma með tillög- ur um það hvað ríkisstjórnin ætti að gera þegar hún yrði stór tók ekki betra við. Sú hugmyndafræði- lega uppdráttarsýki, sem vinstri- menn eiga við að etja, kom þá ber- lega í ljós. Óskar Guðmundsson, ræðumað- ur Birtingar, rakti í nokkrum lið- um hugmyndir sem ríkisstjómin gæti gert að sínum. Þessar voru helstar: Stóriðja í eigu útlendinga sem fjármögnuðu einnig virkjana- framkvæmdir. Uppstokkun í land- búnaðarkerfinu og innflutningur á landbúnaðarvöram til að auka kaupmáttinn. Breyting á kjör- dæmaskipan. Sala og verslun með fiskveiðikvóta. Fijálsari peninga- KjaUarinn Friðrik Sophusson varaformaður Sjálfstæðis- flokksins og 1. þingmaður Reykvíkinga samskipti við útlönd og skipuleg opnun viðskiptalífsins. Einn fundarmanna hvíslaði í eyra mér aö líklega hefði Hannes Hólmsteinn lánað Óskari eina af fijálshyggjuræðum sínum enda byggðust tillögumar aðallega á markaðslausnum. Jón Baldvin lýsti yfir stuðningi við allar þessar hugmyndir og taldi þær að sínu skapi. Reyndar sagði hann síðar á fundinum að stundum fyndist hon- um sem hann væri sjálfur að tala þegar hann hlustaöi á Ólaf Ragnar, svo væru skoðanir þeirra líkar. Hvernig hægt er að koma þessu heim og saman er svo önnur saga. Kristín Ástgeirsdóttir lagði ekki mikið til framtíðaráforma ríkis- stjórnarinnar. Hún benti á aö ríkis- stjórnin ætti um tvennt að velja: Annaðhvort að fá nýja aðila til samstarfs viö sig eða segja af sér. Kristín taldi síðari kostinn væn- legri. Kom það nokkuð á óvart í ljósi þess að Kvennalistinn hefur nýlega samið við ríkisstjómina um aðgerðir á næsta ári og hefur efnt sinn hluta samningsins með stuðn- ingi viö eitt af stjómarfrumvörp- unum sl. vor. Guðmundur Árni Stefánsson taldi lítið fara fyrir félagshyggjunni hjá ríkisstjórninni. Hann spurði. • Hvar er þjóðareign á landi og hvar er atvinnulýðræðið? Bullandi ágreiningur í pallborðsumræðunum kom í ljós að ágreiningur var um flest mál milli fulltrúa stjómarflokk- anna. Þó virtust þeir sammála um aö eðlilegt hefði verið að skera lambakjötiö niður með nýjum hætti og setja á útsölu á kostnað ríkissjóös. Áf sérstöku tilefni tók utandkisráðherra þó fram að ríkis- sjóður væri ekki aflögufær enda vantaði litla 5 milljarða á að fjárlög t stæðust. Ennfremur fannst honum ástæða til að taka fram að núver- andi ríkisstjóm notaði ekki rýtinga í störfum sínum og gaf þannig í skyn að samstarfið væri svo gott að hnífurinn kæmist ekki á milli ráðherranna. Þeir sem hlustuðu á umræðumar urðu þess skjótt vísari að varla verður bræddur saman einn flokk- ur úr fundarmönnum sem þarna vora og þeim hugmyndum sem þeir viðraðu. Veldur það vissulega vonbrigðum þeim sem telja æski- legt að fækka flokkum, auka ábyrgö þeirra og skýra þannig lín- umar í íslenskum stjómmálum. Borgaraflokkurinn: „Deyj- andi lík“ Á fundinum var nokkuö rætt um afstöðuna til Borgaraflokksins. Höíðu fundarmenn ólíkar skoðanir á stjórnarþátttöku hans. Guð- mundur G. Þórarinsson taldi að fyrst ætti stjómin að móta sér stefnu og átta sig á því hvort hún ætlaði sér framtíðarhlutverk. Fyrr á fundinum hafði hann reyndar sagt aö hann styddi ekki stjómina nema gengið yrði rétt skráð en það hefur hann reyndar sagt oft áður. Jón Baldvin taldi rétt að reyna við Borgaraflokkinn því að stjórnin heföi ekki meirihluta í báðum deildum þingsins. Flokksbróðir hans, Guðmundur Árni Stefáns- son, sagðist hins vegar ekki vilja „deyjandi klofningsbrot úr Sjálf- stæðisflokknum" inn í stjómina og líkti Borgaraflokknum við „deyj- andi lík“ - hvernig sem það gengur upp. Stuðningsmenn stjórnarinnar vora þvi ekki einu sinni sammála um þetta atriði fremur en önn- ur. Þessi fundur í Birtingu var jafn- athyglisverður og hann var fá- mennur. Það sem hann skilur eftir er að fundarmenn höfðu enga trú á ríkisstjórninni. Óánægja og ágreiningur voru allsráðandi. Upp- gjöf og vonleysi svifu yfir vötnun- um. Hugmyndafræðileg kreppa fé- lagshyggjuflokkanna var til sýnis. Einu tilburðimir til að benda á nýtilegar hugmyndir komu frá Óskari Guðmundssyni en Margrét Frímannsdóttir tók að sér að vísa þeim flestum á bug jafnóð- um. ' Eftir stendur svo spumingin: Hvað ætlar ríkisstjómin að gera þegar hún verður stór - ef hún verður einhvern tíma stór? Eng- inn er nær um það að fundi lokn- um. Friðrik Sophusson. „Þessi fundur í Birtingu var jafnathygl- isverður og hann var fámennur. Það sem hann skilur eftir er að fundarmenn höfðu enga trú á ríkisstjórninni.“ 'jiujati't,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.