Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1989, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1989, Side 18
26 FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 1989. Iþróttir Frétta- stúfar Miðarseldir á 500 kall Þaö vakti mikla at- hygli á leik Vals og KR í gærkvöldi að miðar á leikinn kost- uöu 500 krónur. Miðar hafa verið seldir á 450 krónur í sum- ar og mörgum brá i brún á Hlíð- arenda í gærkvöldi. Það er nokkuð mikið aö borga 500 krónur inn á leik þó aö það sé stórleikur í hikamum. Þegar gíaldkeri Vals var spurður að þessu svaraði hann að þetta væri gert til að vailarstarfs- menn þyrftu ekki að gefa til baka. Þaö væri auðveldast að fólk borgaði bara 500 kall! Mo Johnston fær morðhótanir Mo Johnston, sem var eins og kunnugt er keyptur til Ran- gers á dögunum, hef- ur fengiö öryggisveröi til að gæta sín og fjölskyldu sinnar í Glasgow. Johnston hefúr feng- ið morðhótanir eftir að hann gekk til liðs við félagið. John- ston, sem áður lék raeð erki- fjendunum Celtic, er nefnilega kaþólskur og hingað til hafa einungis mótmælendur fengið að spila með Rangers. Celtic er hins vegar lið kaþólskra og og því má segja að truin skiptist raeð þessum tveimur liðum. Lögreglan telur að hótaniraar komi bæði frá aðdáendum Ran- gers og Celtic. Víst er að marg- ir stuðningsmenn Rangers eru langt frá því að vera ánægðir með að fa kaþólskan leikmann í raðir félagsins. Graeme Sou- ness, framkvæmdastjóri Ran- gers, segir það vera fáránlegt að trúmál skuli skipta sköpum í knattspyraunni og segjst hafa keypt Johnston einfaldlega af þvi að hann sé góður knatt- spyrnumaöur. Souness hefur brotið ýmsar gamlar venjur hjá Rangers þann tíma sem hann hefur verið við stjómvölinn. Hann keypti blökkumanninn Mark Walters til liðsins og er það fyrsti negrinn sem leikur fyrir félagið. Þá hefur Souness einnig verið iðinn við aö kaupa enska leikmenn og eru þeir í miklum meirihluta hjá félag- inu. Árangurinri hefur hins vegar ekki látiö á sér standa því Rangers hefur unnið tvo meistaratitla þau þrjú ár sem Souness hefúr stjórnað lið- inu. Mjólkurbikarinn: KR heldur út í Eyjar Annarrar deildar liö Eyja- manna, sem vann frækinn sigur á ÍA í fjóröungsúrslitum mjólkur- bikarsins, mætir KR í Vest- mannaeyjum í undanúrslitum. KR bar einmitt sigurorð áf bikar- hafanum í gær, Val. Leikurinn fer fram 9. ágúst. Keflavík, sem vann Þrótt naumlega í fjórðungsúrslitum, fær íslandsmeistara Fram á Suö- umesin, einnig 9. ágúst. Fram bar sigurorð af Vföi í úrslitum 8 hða, gerði sigurraarkið á elleftu stundu. -JÖG Guðmundur Torfason sést hér felidur af andstæðingi sinum, landsliðsmanni Austurríkis. Guðmundur, sem lék með Rapid Vín í vetur sem lánsmaður frá Club Genk, mun spila með St. Mirren í Skotlandi næsta vetur. Guðmundur Torfason hefur gert þriggja ára samning við St. Mirren: Ánægður með Guðmund - segir Tony Fitzpatrick, framkvæmdastjóri St. Mirren Guömundur Torfason, landsliðsmaður í knattspyrnu og fyrrum leikmaður með Rapid Vín i Austurríki og Beveren, Winterslag og Club Genk í Belgíu, hefur gert þriggja ára samning við skoska úrvalsdeildarliðið St. Mirren frá Glasgow. „Ég er mjög ánægður með Guðmund Torfason enda er hann landsliðsmaður. Hann hefur staðið sig vel á æfing- um og ég tel að hann sé rétti maðurinn fyrir St. Mirren- liðið,“ sagði Tony Fitzpatrick, framkvæmdastjóri St. Mirren, i samtali við DV i gær. Fitzpatrick kvaðst vera bjartsýnn á gengi liðsins á vetri komanda enda hefði hann styrkt liðið fyrir tímabilið, sem hefst í ágúst, með nokkrum kaupum. Að sögn framkvæmdastjórans mun Guðmundur nú taka þátt í öllum undirbúningi liðsins fram að keppnis- tímabilinu og fer hann með St. Mirren til eyjunnar Man- ar á sunnudag. Þar dvelúr liðið viö æfrngar í eina viku og tekur þátt í stuttu knattspymumóti. Fitzpatrick kvaðst ekki geta látið neitt uppi um kaup- Tony Fitzpatrick, framkvæmdastjóri St. Mirren. verð enn sem komið væri og um launaliði samningsins vildi hann ekki tjá sig. Hann sagði hins vegar að St. Mirren hefði aldrei greitt hærri upphæð en 250 þúsund pund fyrir leikmann. Var það Roddy Manley sem keyptur var frá Falkirk. Samkvæmt heimildum DV verður kaupverð Guðmund- ar nærri þeirri upphæð, ef ekki hærra, þar sem St. Mirr- en kaupir ekki landsliðsmenn á hverjum degi. St. Mirren vann ekki til verðlauna á síðasta tímabili en vorið 1987 varð liðið bikarmeistari í Skotlandi. Liðið féll veturinn eftir úr Evrópukeppni í 2. umferð. Mætti þá Mechelen frá Belgíu, gerði jafntefli á útivelli en fékk skell heima. Félagið, sem var stofnað árið 1877, hefur aðstöðu í Pais- ley í útjaðri Glasgow. Völlur liðsins, Ástarstræti eða Love Street, er lítill en fallegur og tekur ríflega 25 þús-. und manns. -JÖG/JKS Gordon McQueen mun þjálfa lið St. Mirren - mikill hugur í herbúðum félagsins Tony Fitzpatrick, framkvæmda- stjóri, skoska félagsins St. Mirren, hefur aðeins verið við stjómvölinn hjá félaginu í fjórtán mánuði. Eig- endur og stuðningsmenn félagsins er mjög ánægðir með störf hans fram að þessu. Fitzpatrick var leikmaður St. Mirren áður en hann gerðist framkvæmdastjóri. Forráðamenn St. Mirren ætla sér góða hluti á keppnistímabilinu en skoska úrvalsdeildin hefst í byrjun ágúst. Að undanfórnu hafa þrír þekktir leikmenn liösins verið seldir, markmaðurinn Campbell, varnar- maðurinn og fyrirliðinn Cooper og sóknarmaðurinn Chalmers. Guð- mundi Torfasyni er ætlað að leysa Chalmers af hólmi en hann var seld- ur til Celtic. í stað þessara leikmanna hafa tveip verið keyptir, auk Guð- mundar kemur ungur og efnilegur varnarleikmaður, Roddy Malney, frá 1. deildar liöinu Falkirk. St. Mirren greiddi fyrir hann 25 milljónir króna. Fleiri nýir leikmenn verða keyptir á næstunni ef kostur er til að styrkja liðið enn frekar fyrir komandi keppnistímabil. Á síðasta keppnis- tímabili seldi St. Mirren einn sinn besta leikmann, Ian Ferguson, til Rangers fyrir um 90 milljónir króna og verður þeim peningum varið í kaup á leikmönnum. St. Mirren hef- ur ennfremur ráðið til sín nýjan þjálfara. Sá er enginn annar en Gor- don McQueen sem gerði garöinn frægan hér á árum áður með Manc- hester United. McQueen var á síðasta keppnistímabili framkvæmdastjóri Airdrie sem leikur í 1. deild. St. Mirr- en bindur miklar vonir við störf hans hjá félaginu. Staðið í skugga risanna St. Mirren hefur staðið í skugganum af risunum, Celtic og Rangers, en aðeins er um hálftíma akstur frá höfuðstöðvum St. Mirren til aðal- stöðva Celtic og Rangers. Heimavöll- ur St. Mirren hefur hins vegar reynst liðinu sterkur og þar hafa unnist mikilvægir sigrar. Stjórn félagsins hefur á prjónunum að byggja nýjan leikvang á næstu árum og hafa þegar veriö gerðar teikningar að nýjum velli sem rúma á um 25 þúsund áhorfendur í sæti. Þetta mannvirki mun kosta félagið um 2 milljarða króna. -JKS Sigurður Chelsea Sigurður Jónsson mun ræöa viö forráðamenn enska Lund- únafélagsins Chelsea í dag. Fund- urinn mun fara fram í SheíTield, þar sem Siguröur býr enn um sinn. Upphaflega áttu viöræðurn- ar að fara fram í gær en þeim var frestað um einn dag. Sigurður sagöi í samtali við DV í gærkvöldí að enn væri allt opið en málin myndu sennilega skýr- ast fljótlega. Eins og fram hefur komið eru Arsenal, Nottingham Forest og Celtic öll búin að eiga viöræður við Sigurö og nú bætist Chelsea í hópinn. Chelsea vann sig upp í 1. deild á síðasta keppn- istímabili og liðið ætlar sér stóra hluti i deildinni. Það verður fróð- legt að fylgjast með gangi mála hjá Sigurði á næstu dögum. -RR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.