Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1989, Side 8
8
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 1989.
Utlönd
Samstaða, hin óháðu verkalýðssamtök í Póllandi:
Hyggjast setja á
stofn skuggaráðuneyti
Svo viröist sem ráðamenn Sam-
stöðu, hinna óháðu verkalýössam-
taka í Póllandi, hafi tekið þá ákvörð-
un að þeir geti ekki myndað ríkis-
stjórn. Hyggjast þeir nú setja á lag-
gimar skuggaráðuneyti.
Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu,
hitti Jaruzelski, forseta Póllands, að
máli í gær og fór fram á að samtökin
fengju að mynda stjórn í kjölfar stór-
sigurs þeirra í kosningunum sem
fram fóru nýlega. En að loknum
fundinum kvaðst hann ekki viss um
að forsetinn væri reiðubúinn til að
láta stjórnarmyndun í hendur Sam-
stöðu en vildi þess í stað koma á þjóð-
arstjóm kommúnista og Samstöðu
undir forsæti kommúnista.
í viðtali við fréttamenn að loknum
fundinum sagði Walesa að samtökin
hygðust setja á stofn skuggaráðu-
neyti komi til stjórnarmyndunar
kommúnista til að undirbúa framtíð-
ina. Þykja ummæh hans gefa til
kynna að Jaruzelski hyggist tilnefna
mann úr röðum kommúnista til að
taka við embætti forsætisráðherra
ef hann ákveður að láta Mieczyslaw
Rakowski, núverandi forsætisráö-
herra, víkja. Telja fréttaskýrendur
að Wladyslaw Baka, sérfræðingur
flokksins í efnahagsmálum, og Irene-
uzs Sekula aðstoðarforsætisráðherra
séu líklegastir til að taka við embætt-
inu.
Walesa kvaðst mundu ræða við
samstarfsmenn. sína í dag. Hann
sagðist þó ekki banna Samstöðu-
mönnum að taka þátt í stjórn með
kommúnistum.
Fyrsta verk næstu ríkisstjórnar er
að reyna að koma efnahagnum á rétt-
an kjöl en við mikinn efnahagsvanda
er nú að etja í Póllandi. Stjórnmála-
ráð kommúnistaflokksins sagði í gær
að það vildi fá samþykkt fumvarp
sem gerir ráð fyrir verðhækkunum
á matvörum en það myndi bíöa þar
til frekari umfjöllun hefur farið fram
um það.
Reuter
Flugvél grand-
að í Angóla
Opinber fréttastofa Angóla
skýrði frá því í gær að skæruliðar
UNITA-hreyfingarinnar hefðu
skotið niður flugvél og drepið 42
menn, en skæruliöar báru á móti
því og sökuðu stjórnvöld um að
reyna að skaða friöarviöræður.
Fréttastofan hafði það eftir heim-
ildum úr hemum að flugskeyti
hefði hæft Antonov-26 flugvélina á
sunnudag þegar hún var í innan-
landsflugj yfir austurhluta Angóla
sem skæruliðar hafa að hluta á
valdi sínu. Norberto Castro, tals-
maður UNITA i Lissabon, vísaði
staðhæfingum stjómvalda á bug og
sagði að skæruliðar hefðu ekki átt
neinn þátt í athæfinu. Castro sak-
aði félaga í stjómarflokknum um
að spilla fyrir tilraunum til að enda
fjórtán ára borgarastyrjöld í
landinu.
Portúgalska fréttastofan Lusa
skýrði einnig frá því að árásin á
flugvélina stefhi friðarumleitunun-
um í hættu, og hafði það eftir heim-
ildum innan hersins í Angóla.
Flugvélin, sem var á leiö frá Lu-
ena til Cazombo, reyndi að nauð-
lenda um 40 kílómetra frá Cazombo
en þá kviknaði í henni Angólska
fréttastofan sagði að tveir farþegar
og fjórir úr áhöfhinni heíðu lifað
slysið af. Farþegar voru flestir
óbreyttir borgarar og opinberir
embættismenn.
Viðræöur um hvemig best sé að
hafa efiirlit með vopnahléinu, sem
nú er í landinu, eiga að hefjast í
Zaire næstkomandi mánudag.
Reuter
Leðursófasett
hornsófar
og borð í
miklu úrvali.
> NUTIÐ
HUSGOGN
Faxafeni 14, s. 680755.
ÞURRKUBLÖÐIN VERÐA
AÐ VERA ÓSKEMMD
og þau þarf aö hreinsa reglulega.
Slitin þurrkublöð margfalda áhættu
í umferðinni.
||UMFEROAR
Kashoggi
Bandarískur dómari samþykkti í
gær að láta milljónamæringinn Adn-
an Kashoggi lausan gegn tíu milljón
dala tryggingu en saksóknari lýsti
því strax yfir aö hann ætlaði að
áfrýja úrskurðinum þar sem vopna-
salinn væri best geymdur bak við lás
og slá. Saksóknarinn óttast að Kas-
hoggi muni flýja land.
Kashoggi, sem var framseldur frá
Sviss fyrir viku, er sakaður um að
hafa á ólöglegan hátt aðstoðað Ferd-
ínand Marcos, fyrrum forseta
Filippseyja, viö að fela eignarhald
hans á fjómm skýjakljúfum á Man-
hattan. Stjómvöld á Filippseyjum
segja að Marcos hafi keypt bygging-
amar með fé sem hann stal úr ríkis-
sjóði.
Dómarinn sagöi að Kashoggi, sem
fæddur er í Saudi-Arabíu, mætti ekki
yfirgefa New York svæðið og að hann
yrði að bera rafeindaarmband svo
hægt yrði að fylgjast með hveiju fót-
máh hans. Þá verður Kashoggi að
sýna sig yfirvöldum tvisvar í viku
og hringja á hverjum degi. Dómarinn
sagöi líka að Kashoggi yrði að leggja
fram helming tryggingarinnar í
Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu, sagði í gær að samtökin hygðust koma
á laggirnar skuggaráðuneyti. Símamynd Reuter
Fékk Bloch viðvörun?
Talsmenn utanríkisráðuneytis
Bandaríkjanna sögðu í gær að þeir
hefðu ekki rætt um njósnamál það
sem kom upp í sendiráði landsins í
Austurríki við fulltrúa Sovétstjóm-
ar. Neitun þeirra þykir benda til að
hugsanlega hefðu aðrir embættis-
memi varað Sovétmenn við því að
reyna að hjálpa Felix Bloch, hinum
meinta njósnara, að flýja frá Banda-
ríkjunum.
Bandaríska sjónvarpsstöðin ABC
skýrði frá því í fréttum að sovéskur
njósnari hefði varað Bloch við að
verið væri að rannsaka feril hans.
Sagði í fréttunum að njósnarinn
hefði haft samband við Bloch í vor
og sagt honum að komist hefði upp
um hann. Sagt var að símtöl Blochs
hefðu verið hleruð.
Bloch, sem var næstæðsti maður-
inn í sendiráði Bandaríkjanna í Vín,
er hæstsetti bandaríski embætt-
ismaðurinn sem grunaður er um
njósnir í þágu Sovétríkjanna. Engar
ákærur hafa enn verið lagðar fram
á hendur honum.
Newt Gingrich, þingmaður repú-
blikana, sagði mál þetta sýna veik-
leika innan FBI, alríkislögreglu
Bandaríkjan^ia. Hann sagði að þrýsta
þyrfti á þingið að verja meiri fjár-
munum til að koma í veg fyrir slík
njósnamál. Hann kvaðst þess einnig
fullviss að njósnir Sovétríkjanna á
Vesturlöndum hefðu aukist síðan
Gorbatsjov komst til valda þar í
landi.
Alríkislögreglan rannsakar nú
Bloch að sögn starsfsmanna utanrík-
isráðuneytisins. En þar sem ekki
hafa verið lagöar fram ákærur á
hendur honum þykir það benda til
að ekki séu til nægar sannanir gegn
honum til aö höfða mál á hendur
honum. Reuter
laus gegn tryggingu
reiðufé en fasteignaveð fyrir hinum
helmingnum. Auðæfi Kashoggi eru
sögö nema um 40 milljónum dala en
voru eitt sinn talin nema íjórum
milljörðum dala.
Lögfræðingur Kashoggis sagði eftir
úrskurð dómarans að skjólstæðing-
ur sinn myndi ekki flýja til Saudi-
Arabíu þar sem þar gæti hann ekki
tekið þátt í því samkvæmislífi sem
hann væri vanur.
Kashoggi var gert aö greiða 10 milljón dala tryggingarfé af dómara í New
York í gær. Hér sést hann með konu sinni og dóttur. Símamynd Reuter