Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1989, Qupperneq 11
11
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 1989.
Útlönd
John Major, nýr utanríkisráðherra Bretlands:
Líklegur arftaki
Thatchers
Samskipti austurs og vesturs er
eitt af mikilvægari málefnum sem
bíða hinj nýútnefnda breska utan-
ríkisráðherra, John Major, að eigin
sögn. Útnefning Major í emhætti ut-
anríkisráöherra Bretlands á mánu-
dag kom flestum á óvart. Telja frétta-
skýrendur að með þessu hafi hann
komist í röð þeirra sem taldir eru
líklegir til að taka við af Margaret
Thatcher forsætisráöherra sem leið-
togi íhaldsflokksins þegar hún dreg-
ur sig í hlé.
Uppstokkanir Thatcher á mánudag
eru þær víðtækustu sem hún hefur
staðið fyrir á tíu ára valdatíma sín-
um. Inn í ríkisstjómina komu fjórir
nýliðar og níu skiptu um störf. Sú
breyting sem hvað mesta furðu vakti
var án efa útnefning Majors í stað
Sir Geoffrey Howe sem hefur haldið
um stjómartaumana í utanríkis-
ráðuneytinu í sex ár.
Howe, sem hlýtur embætti varafor-
sætisráðherra, var að sögn kunnugra
ekki of ánægður en tók við embætt-
inu eftir að forsætisráðherra hafði
fullvissað hann um að hann fengi
töluverð völd. Hann verður m.a. leið-
togi flokksins í neðri deild þingsins.
Útnefningin kom á óvart
Major starfaði m.a. sem verkamað-
ur og hankamaður áður en hann lét
til sín taka í stjórnmálum. Árið 1979
var hann kjörinn á þing og æ síðan
hefur stjarna hans risið.
Árið 1987 var hann gerður að að-
stoðarfjármálaráðherra og fólst starf
hans í að halda í við eyðslu ríkisins.
Mikill sparnaður var í gangi á þeim
tíma og var helsta verkefni hans að
skera niður útgjöld sér háttsettari
emhættismanna.
Áður en tilkynnt var um uppstokk-
unina í stjórninni var almennt talið
að Thatcher myndi láta reyna á
stjómunarhæfileika Majors og láta
honum eftir eigið ráðuneyti. En að
hann fengi eitt af þremur helstu
emhættum stjómarinnar koii} flest-
um á óvart.
Fátt eitt er vitað um einkalíf Maj-
ors þar sem hann hefur ætíð látið
lítið á sér bera. Nú þegar hann verð-
ur í sviðsljósinu verður án efa breyt-
ing á lífi hans. Nú á nýi utaníkisráð-
herrann eftir að sýna hvort hann
hefur kraftinn og persónuleikann til
að taka við af Thatcher þegar hún
lætur af störfum.
Útnefning John Major í embætti utanrikisráðherra Bretlands kom flestum
á óvart. Simamynd Reuter
Stórfelldar breytingar
Ljóst var að breytinga var þörf í
stjórn Thatchers í kjölfar minnkandi
vinsælda og ekki síst vegna fylgis-
tapsins sem flokkurinn varð fyrir
þegar kosið var til þings Evrópu-
bandalagsins fyrir skömmu.
Meðal breytinga forsætisráðherr-
ans var að Christopher Patten,
yngsta meðhmi ríkisstjórnar Thatc-
her, var fahð embætti umhverfis-
málaráðherra en forveri hans, Rid-
ley, hafi hlotið töluverða gagnrýni.
Tahð er að umhverfismál verði eitt
helstu mála næstu kosninga í Bret-
landi, árið 1992.
Kenneth Baker, fyrrum mennta-
málaráöherra, hlaut hið valdamikla
embætti formanns flokksins. Segja
heimildarmenn að með þessu hafi
Baker, ásamt Major, komist í
fremstu röð hugsanlegra arftaka
Thatchers. Reuter
Vilja söluskattinn burt
Helstu stjórnarandstöðuflokkamir í
Japan munu leggja fram frumvarp á
japanska þinginu í næsta mánuði þar
sem farið verður fram á að þriggja
prósenta söluskattur verði fehdur úr
gildi. Tahð er að söluskatturinn hafi
átt stóran þátt í tapi stjórnarflokks
Japans, Fijálslynda lýðræðisflokks-
ins, í kosningum til hluta sæta efri
deildar þingsins sem fram fóru síð-
asthðinn sunnudag.
Söluskatturinn var lagður á í apríl
og eru nær ahar nauðsynjavörur
skattskyldar. Ráðamenn í Fijáls-
lynda flokknum halda fast í þá
ákvörðun að söluskatturinn verði
ekki fehdur niður.
Talsmaður Sósíahstaflókks Jap-
ans, sem var yfirburða sigurvegari
kosninganna, sagði aö frumvapið
yrði lagt fram á sérstökum fundi efri
dehdar þingsins í ágúst. Kvaðst hann
telja liklegt að neðri dehd felldi frum-
varpið og færi það því fyrir sameigin-
lega nefnd beggja dehda. Skatturinn
verður án efa eitt helsta hitamáhð í
komandi kosningum th hinnar vald-
amiklu neðri deildar en líklegt er aö
þær fari fram í haust.
Leit stendur nú yfir að arftaka
Sosuke Uno forsætisráðherra en
hann tilkynnti afsögn sína í kjölfpr
kosninganna. Embættismenn segja
að arftaki hans verði kosinn í at-
kvæðagreiðslu allra þingmanna
flokksins en það hefur ekki gerst síð-
an árið 1982.
Reuter
Leit stendur nú yfir að arftaka Sosuke Uno forsætisráðherra, til vinstri,
Japans en hann hefur tilkynnt um afsögn sina. Simamynd Reuter
Gerðu gott frí
ennþá betra -
r taktu
SENUNGAR
'X' T'raði, öryggi og góð þjónusta erfor-
i I senda þess að geta boðið flutn-
A. A. ingaþjónustu sem stendur undir
nafni.
Daglegt flug milli Vestfjarða og Reykjavík-
ur og áætlunarflug innan fjórðungs.
Viðkomustaðir eru: Suðureyri, Flateyri, „
Þingeyri, Bíldudalur, Patreksfjörður og f
Isafjörður. |
Hraðsendingar okkar komast alla leið. jjj
Fljótt og örugglega.
NÝAFGRCIÐSLA
Á REYKJA VÍKUR'
FLUGVELU
SÍNH 62 42 00
ERMER
AFGREIÐSLA iSAFIRÐI SlMI 94-42 00
AFGREIÐSLA REYKJAVlK SlMI 91-62 42 00
£