Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1989, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1989, Side 12
12 f MIÐVIKUDApUR 26. UÚLÍ ,1989. Spumingin Viltu Borgaraflokkinn í rík- isstjórn? Sigríður Sigurðardóttir: Nei, ég held ekki. Það sem er í stjórn nú er allt eins. Hilmar Sverrisson: Ég hef enga skoð- un á því máli. Sigríður Þórisdóttir: Nei, er ekki nóg að hafa þá sem eru? Hólmar Ólafsson: Nei, ég held ekki. Það er nógu slæmt fyrir. Ingibjörg ívarsdóttir: Nei, þeir eru að berjast sjálfir sem eru í stjóm. Björg Þorsteinsdóttir: Ég vil hvor- ugt, hvorki ríkisstjómina né Borg- araflokkinn. Lesendur Borgin kaupi Borgina markaði í stað þess að einblína á Alþingi. Er virkilega enginn sem vill kaupa Hótel Borg og halda þar áfram hótelrekstri? Ég hef það eftir manni sem þekkir vel til í hótel- og veitinga- rekstri að Hótel Borg sé eina hótelið í Reykjavík (jafnvel á landinu öllu) sem sé byggt og hannað eins og raun- verulegt hótel. Þar hafl hver lófastór blettur verið nýttur í samræmi við kröfur hótels og veitingareksturs. - Þaö hafl ekkert breyst með nýjum tímum. Ég held að ásókn Alþingis í Hótel Borg sé fyrst og fremst komin frá þingmönnum landsbyggðarinnar en ekki þingmönnum Reykvíkinga. Þingmenn Reykjavíkur ættu nú að athuga sinn gang betur og beita sér fyrir því að Hótel Borg verði ekki hluti af Alþingi. Best væri ef hótelið yrði starfrækt sem hótel í miðborg- inni. Ef herbergin eru eitthvað orðin á eftir kröfum tímans, t.d. að ekki séu öll herbergi með baði, ætti að vera auðvelt að bæta úr því með nútíma tækni og einhveijum aukakostnaði. - Ef ekki er hægt að reka hótel á besta stað í miðborginni eins og í öðrum borgum sannast hka að þetta er ekkert venjulegt þjóðfélag. Best væri aö Reykjavíkurborg keypti hótelið og ræki það sjálf eða leigði til áframhaldandi reksturs. - Þetta mál getur orðið „heitt“ í kosn- ingum, bæði til borgarstjómar og Alþingis, þegar þar að kemur. Ég held að borgarfulitrúum og þing- mönnum Reykjavíkur sé hollt að fara að hafast eitthvað að í málinu. Reykvíkingur skrifar: Ég hef tekið eftir því að enn er komið upp á yfirborðið þetta áhyggjuefni margra Reykvíkinga að Alþingi muni takast að klófesta Hótel Borg fyrir starfsemi sína. Það er áreiðanlega farið að ergja marga hversu aðgangshart Alþingi er og einnig alþingismenn í að gína yfir sem flestum hlutum og starfsemi í þjóðlífinu. Er skemmst að minnast eindæma smásálarskapar er veitingastað hér í Reykjavík var gefið nafnið „Á Al- þingi“ og talið að slíkt væri óvirðing við löggjafarsamkunduna! - Eins er með húseignir í kringum Alþingis- húsið að þær eru ekki óhultar fyrir ásælni Alþingis. Og nú hefur Hótel Borg oröið fyrir barðinu á þessari ásælni. Það má vel vera aö eigendur Hótel Borgar vilji selja þessa eign en því leita þeir ekki eftir tilboðum á opnum „Best væri aö hótelið starfaöi áfram sem hótel i miðborginni," segir m.a. í bréfinu. - Frá Hótel Borg. Ríkið verði lagt niður í áföngum: Frábærar hugleið- ingar hjá lækni Einar Árnason hringdi: Ég hlustaði í gær (20.7.) á þáttinn Reykjavík síðdegis. Þar var til viðtals læknir einn, Ingólfur, að mig minnir. Þetta var geðlæknir og máttu menn hringja inn með spurningar og fyrir- spumir. Þetta var hinn fróðlegasti þáttur á margan hátt og menn tjáðu sig um hin margvíslegustu afbrigði á sínu ástandi. Það var þó læknirinn sem mest kom á óvart með málflutningi sínum, að mínu mati. Hann var mjög opinn og heilbrigður í skoðunum um streitu og lýsti hugmyndum sínum um streituvalda fólks hér á landi. Þar Húsmóðir skrifar: Ég tók eftir því nýlega þar sem ég versla hvað mest að komin er á markaðinn ný pakkning með kinda- kjöti. Þetta er kallað „þurrkryddað Borgames grillkjöt“ og frá Kjötiðn- aðarstöð KB í Borgamesi. Mér fannst þetta áhugavert og tók upp einn pakka og fór að athuga sneiðamar. Þá kom í ljós að þar em sömu mis- tökin á ferðinni og ávallt fyrr varð- andi niðursneitt kindakjöt. Sneið- amar era alltof þunnar fyrir þá mat- reiðslu sem ég vil gjarnan nota, , þ.e.a.s. að setja þær á grilliö. - Svona þunnar sneiðar eru alls ekki vel til þess fallnar að glóðarsteikja. Þær verða aldrei matarmiklar og raunar þurrar og ósjálegar, jafnvel uppbrett- ar, þegar búið er að steikja þær. - Jafnvel þótt snöggsteiktar séu. Það er alveg með eindæmum hve seint þeim ætlar að lærast í kjöt- iðnaðinum að koma kindakjöti í við- fór hann á kostum og munu margir landsmenn honum sammála. Hann hélt því t.d. fram að fólk væri óöruggt hér, þaö vissi aldrei hvað byði þess, verðhækkanir, skattahækkanir og aðrar aðgerðir væra alltaf á döfmni og þetta væri alltaf í sviðsljósinu svo fólk væri í raun alltaf að velta þessum málum fyrir sér. Allt er þetta streituvald- andi. Læknirinn taldi ekki ólíklegt að fólk liti á landsfeðuma sem eins kon- ar ógnvalda. Þá má hka á sama hátt líta á ríkisstjórnina sem eins konar ógnarstjórn. Ég held að hér sé ekki unanlegt form fyrir þá sem ætla að glóðarsteikja þaö. Sannleikurinn er sá að talsverður hluti kindaskrokks- ins er vel til þeirrar matreiðslu fall- inn, ekki síst lærissneiðar og jafnvel hlutar af framparti líka. Þeir sem farið langt á svig við raunveruleik- ann. - Hann lýsti skoðunum sínum á landflótta fólks héðan og aöstöðu bænda til opinberra afskipta og taldi þá vera oröna ríkisstarfsmenn í raun og veru. í lokin lagði þessi óvenju áheyrilegi læknir til að ríkiö yrði lagt niður í þeirri mynd sem það nú er. Hann benti á að ríkinu bæri ekki að sjá um mikið meira en hina allra brýnustu þætti. Nefndi hann hugmyndir sínar þar um. - Sennilega hefur ekki verið komist nær sannleikanum - eða bet- ur að orði - í opinberri umræðu hér á landi í seinni tíð. senda svona þunnt skorið kjöt á markaðinn og kynna það sérstaklega til glóðarsteikingar eru aö gera herfi- leg mistök. Ég hélt aö aöstandendur kindakjötsmarkaðarins mættu síst við því. Umferðí Kinnahverfinu Hafnfirðingur skrifar: Það vekur furðu manna hve margir aka götuna Bárakinn á þetta 70 til 80 km hraða án þess aö nokkuö sé gert til aö hindra það. - Þó er einhver nefnd á veg- um Hafnarfjarðarbæjar sem á að vera aö vinna í þessum málum. AUt sem hún hefur aðhafst er aö halda nokkra fundi, auk þess sem hin sama nefnd hafði eftir lögreglunni aö hraðinn væri I al- göru lágmarki í Kinnunum. Allir vita hins vegar að slíkt stenst ekki. Best væri fyrir nefnd þessa að kynna sér umferðannálin í hverf- inu og láta síöan til skarar skriöa. Að lokum: í Kinnahverfmu, í grennd við Stekkjarkinn, er búið að aka niður umferðarskilti sem nauðsynlegt er að fá lagfært. Ellilaun, þing- menn og þjóðarhagur Jóhann Þórólfsson skrifar: Ég fór niður í bæ um daginn til að ná í ellilaunin mín í bankann. Þau era nú ekki nema um 33 þús. krónur. Mér varð hugsaö til þess hvort þingmenn og ráðherr- ar vildu sætta sig viö aö lifa á þessu smáræði! Það virðist allt vera á sömu bókina lært hjá þessum mönnum. Þeir eru duglegastir við að skipa nefndir á nefndir ofan og halda erlendum fyrirmönnum veislur sem kostaðar era af almannafé. Ég vona bara að við kjósendur verðum ekki svo vitlausir að kjósa þessa menn á þing aftur því þeir hafa ekki gert þjóðinni svo mikiö gagn. Ég vil bæta því við að mér finnst þessi ríkisstjórn ætti að segja af sér hið fyrsta. - Kjósendur um land allt, vinsaamlega styðjiö við bakið á Kvennalistanum næst þegar þið veljið fidltrúa á Alþingi. Þurrkryddað grillkjöt: Alltof þunnar sneiðar Húsmóðirin telur sneiðar í þurrkryddaða kjötinu of þunnar til glóðarsteiking- ar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.