Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1989, Blaðsíða 28
52
MÍÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 1989.
Andlát
Hermina Sigurðardóttir frá Neskaup-
stað andaöist á Hrafnistu 23. júlí sl.
Jarðarfarir.
Guðrún Hansdóttirandaðist 14. júlí.
Hún fæddist að Þórkötlustöðum í Grinda-
vík 20. ágúst 1903. Móðir hennar var
Kristín Vilhjálmsdóttir, vinnukona í
Grindavík, en um föður sinn fékk hún
aldrei neitt að vita. Guðrún missti móður
sína aðeins 10 ára gömul. Nítján ára göm-
ul réð hún sig í vist á Raufarhöfn. Þar
kynntist hún Friðriki Guðmundssyni
verkamanni og stofnuðu þau heimih
saman. Friðrik fæddist 24. sept. 1887 og
lést 13. ágúst 1957. Þau eignuðust 12 börn.
Síðustu árin bjó hún í Hafnarfirði í íbúð-
um fyrir aldraða að Sólvangi.
Fundir
^Bandarískur sérfræðingur
ræðir um nýjar leiðir til lausn-
ar fjárlagahallanum.
Stjómunarfélag íslands í samvinnu við
Fjárlaga- og Hagsýslustofnun býður til
hádegisverðarfundar fimmtudaginn 27.
júlí nk. með bandarískum stjómsýslu-
træðingi, dr. Walter Goldstein, þar sem
rætt verður um nýjar leiðir til að leysa
fjárlagahaUa Bandarikjanna og litið til
svipaðs vanda hér heima fyrir. Dr. Gold-
stein er lýst sem framúrskarandi fyrir-
lesara. Hann hefur lengst af veriö próf-
essor við Rockefeller College of Public
Pohcy hjá Fylkisháskólanum í New York
j> (Albany) eða aUar götur síðan 1968. Há-
degisverðarfundurinn verður haldinn í
Kristalsal Hótel Loftleiða fimmtudaginn
27. júh nk. og hefst kl. 12.15 og stendur
til 14.00. Aðgangur er ókeypis fyrir utan
hádegisverð og opinn öllum áhugamönn-
um. Þátttaka tilkynnist timanlega á skrif-
stofu Stjómunarfélags íslands í síma
621066.
Tillcyimiiigar
Heyrnar- og talmeina-
stöð íslands.
Móttaka verður á vegum Heymar- og
talmeinastöðvar íslands í Heilsugæslu-
stöð ísafjarðar dagana 11. og 12. ág. og í
HeUsugæslustöð Bolungarvíkur 13. ág.
nk. Þar fer fram greining heyrnar- og
talmeina og úthlutun heymartækja.
Sömu daga, að lokinni móttöku Heymar-
og talmeinastöðvarinnar, verður almenn
lækningamóttaka sérfræðings í háls-,
nef- og eymalækningum. Tekið er á móti
viðtalsbeiðnum á viðkomandi heilsu-
gæslustöð.
Frá Skotveiðifélagi íslands.
Vegna þráláts orðróms um skipulagðar
gæsaveiðar nú þegar fugUnn er í sárum,
með litla unga og utan veiðitíma, vUÍ
stjórn Skotvís minna landsmenn á þá
staðreynd að slíkt athæfi er stranglega
bannað. Jafnframt er skorað á fólk að
láta viðkomandi yftrvöld vita ef slíkt at-
hæfi sannast.
Tónleikar
Tónleikar í Hlégarði.
Fimmtudaginn 27. júU kl. 21.00 heldur
Ólafur Ámi Bjamason tenór söng-
skemmtun í Hlégarði, Mosfellsbæ. Við
hljóðfærið verður Ólafur Vignir Alberts-
son. Þetta em fyrstu sjálfstæðu tónleikar
Ólafs Áma. Ólafur nam söng hjá Guð-
rúnu Tómasdóttur og Sigurði Demetz
Franzsyni en stundar nú framhaldsnám
við tónUstarskólann í Bloomington í Indi-
ana. Á efnisskránni em íslensk sönglög,
m.a. eftir Sigvalda Kaldalóns, Sigurð
Þórðarson, ítalskar antik-aríur, m.a. eftir
Wagner, Donizetti og Puccini. Aðgöngu-
miðar fást við innganginn. Tónleikamir
verða endurteknir í HúsavUturkirkju
miðvikudaginn 2. ágúst 1989 kl. 20.30.
Tónleikar í Akureyrarkirkju
Robyn Koh sembaUeikari heldur tónleika
í Akureyrarkirkju fimmtudagskvöldið
27. júU nk. kl. 20.30. Þar leikur hún verk
eftir Byrd, Frescobaldi, Rameau, Scarl-
atti og Bach. Þessi verk fluttu Robyn Koh
á tónleikum í Skálholti nú nýverið. Að-
göngumiðar seldir við innganginn.
Gítartónleikar
á Kjarvalsstöðum
Fimmtudaginn 27. júlí nk. kl. 18.00 munu
Símon H. Ivarsson og Hinrik D. Bjarna-
son halda gitartónleika að Kjarvalsstóð-
um, í austursal. Á efnisskránni er m.a.
verk frá endurreisnartímanum, verk eft-
ir Robinson og Dowland, einnig verk eft-
ir Vivaldi, Torroba og Sor, auk spænskra
og suðurameriskra þjóðlaga.
Tombola Harðardóttir tombólu til styrktar Rauða
Nýlega héldu stöllumar Þórdis Filips- krossi íslands og söfnuðu þær alls 1.315
dóttir, Elva Rakel Sævarsdóttir og Urður kr. Á myndina vantar Urði Harðardóttur.
Þökkum af alhug auðsýnda samúð, vináttu og ómælda
hjálp við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,föður
okkar og tengdaföður,
Björns M. L. Kristjónssonar
Borgarholti 8
Olafsvík.
Guð geymi ykkur öll.
Jóhanna Elísahet Pálsdóttir,
Páll Snæfeld Björnsson, Hrafnhildur Snæfeld Björnsdóttir,
Birgir Snæfeld Björnsson, Elínborg Lárusdóttir.
Menning
Þriðjudags-
tónleikar
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
þriðjudag 25. júli kl. 20.30
Hlif Sigurjónsdóttir og David Tutt léku
verk eftir Debussy, Bartók, Wienawski,
de Saraste og Kreisier.
Efnisskrár þriðjudagstónleik-
anna þar í Sigurjónssafni eru
gjaman blanda léttari og þyngri
viðfangsefna. Menn fá sinn
skammt af alvöru en eru leystir út
með léttari tónlist áður en þeir
halda aftur út í blessaða blíðuna.
Kannski er þetta ein ástæöan fyrir
góðri aðsókn en líkast til kemur
þar einnig til falleg umgjörðin. Svo
ættu menn að íhuga hvort ekki
væri ráð að skipa tónleikum oftar
í svo auðmunaðar raðir. Það kann
að stuðla að aðsókn.
Þau Hlíf Sigurjónsdóttir fiðlu-
leikari og David Tutt píanóleikari
kusu að hefja efnisskrá sína
umyrðalaust á fiðlusónötu Debuss-
ys. Mig grunar að kammertórdist
meistarans sé oftast höfð aftar í
blönduðum efnisskrám. Það er
þægilegt að heyra hana eftir t.d.
Schumann því að hún er samin
kringum þau för sem hefðin mark-
ar í hlustir okkar. Auk þess er hún
ekki mjög til þess fallin að kveða
sér hljóðs eða til að spila sig saman
í upphafi tónleika. Til þess er hún
of hál.
Það var eins og nokkurrar óvissu
gætti framan af í túlkuninni en
þegar leið á kom i ljós að í raun fer
Tónlist
Atli Ingólfsson
það Hlíf vel að leika Debussy. Hún
býr yfir þeirri mýkt sem til þarf og
skammtar víbratóið af smekkvísi.
Erfltt er að finna hvar áherslumar
‘ liggja í þessum skrýtnu formum og
vandi túlkandans er hér að skil-
greina þau, en ekki of sterkt því
að öll eru þau tengd. Mér þótti flytj-
endurnir hafa góðan skilning á
hljómnum og jafnvæginu sem svo
mikilvæg eru í Debussy en saknaði
ögn meiri formboga. Kannski má
hugsa hana meira sem venjulega
sónötu í g-moll þótt í raun sé fátt
svo venjulegt við hana,
í síðasta kaflanum í Debussy
voru þau Hlíf og David þó greini-
lega búin að spila sig saman. Þess
nutum við í hinni makalausu só-
nötu no. 2 eftir Bartók, þar sem
flytjendur þurfa að spila sundur og
saman á víxl. Samleikurinn var
eins og best verður á kosið og hefðu
þau kannski átt að gera meira í að
mana hvort annað áfram. Flutn-
ingurinn var mjög áheyrilegur.
Um léttarfhluta efnisskrárinnar
er minna að segja. Légend op. 17
eftir Wienawski var dável spiluð
þótt kannski vantaði innihaldið í
niðurlagið. Verk Saraste og Kreisl-
ers eru með kaffi- og Sachertertu-
keimi og voru eiginlega of vel spil-
uð því að maður fór næstum að
hlusta á þau með eyrunum en ekki
maganum eins og venjulega. Með-
ferð þeirra var góð og voru píanó
og fiðla algerlega sammála í hrynj-
andinni.
Atli Ingólfsson
Kvikmyndir___________
í úthverfinu
Geggjaöir grannar (The Burbs)
Aðalhlutverk: Tom Hanks, Bruce Dern
Leikstjóri: Joe Dante
Handrit: Dana Olsen
Sýnd í Laugarásbiói
Ray Peterson (Tom Hanks) heyrir
hvin mikinn eina nóttina og röltir
út til að kanna málið. Hvinurinn
kemur frá nágrönnum hans en það
virðist sem eitthvað undarlegt sé
að gerast hjá þeim því kjallarinn
upplýsist og það kemur sterkur
vindur ef gengið er út á lóðina
þeirra. Aðrir nágrannar virðast
einnig hafa tekið eftir þessu, en
þeir eru samansafn undarlegra
persóna. Daginn eftir kemur Art
(Rick Ducommun) í heimsókn og
saman ætla þeir kanna máhð og
banka upp á hjá þessum skrýtna
nágranna. Húsið er að hruni komið
og þar sem þeir banka dettur síð-
asta talan á húsnúmerinu niður og
númerið breytist úr 669 í 666 (tala
djöfulsins). Við næsta bank ráðast
býflugur á þá, þannig að ekkert
verður úr heimsókninni. Þeir fylgj-
ast áfram með húsinu og þegar
nágranni þeirra hverfur á dular-
fullan hátt, þá telja þeir að þessi
undarlegi nágranni hafi verið vald-
ur að hvarfmu. Ray og Art fá gaml-
an hermann, sem býr einnig í
hverfmu, í lið með sér og saman
kanna þeir máhð. Konunum þeirra
líst ekkert á þetta brölt og draga
þá með sér yfir í húsið í heimsókn.
Þeim er hleypt inn í húsið og það
er virkilega draugalegt, en íbúarnir
virðast aðeins vera ögn ruglaðri en
gestirnir. Félagarnir eru ekki enn
sannfærðir um sakleysi nágrann-
anna og nota tækifærið þegar þeir
eru að heiman til að brjótast inn í
húsið. Afleiðingin verður alvar-
legri en þá óraði fyrir.
Tom Hanks (Splash, Big) hefur
leikið í misjöfnum myndum en
þessi er líklega ein sú lakasta. Það
er eins og hann sé timbraður alla
myndina og fær úr litlu að moða.
Það er grátlegt að sjá hversu hratt
niður á við ferill Bruce Dern
stefnir. Handritið býður leikurun-
um ekki upp á neitt, en það er helst
Rick Ducommun sem fær skástu
línurnar. Joe Dante (Gremlins,
Innerspace) nær engum tökum á
efninu og myndin verður hvorki
fugl né fiskur. Hún er hvorki gam-
anmynd, spennumynd né hroll-
verkja, þó hún reyni að blanda
þessu saman. Útkoman er rughngs-
legur hrærigrautur sem einstaka
sinnum er hægt að brosa að.
Stjörnugjöf: *
Hjalti Þór Kristjánsson
Tapað fimdið
Týndur páfagaukur.
Lítill páfagaukur týndist af Bárugranda
5 fyrir einni og hálfri viku síðan. Hann
er blár og hvítur. Hans er sárt saknað
af eiganda sínum. Þeir sem hafa ein-
hverjar upplýsingar hafi samband í síma
13465.
BMX hjól tapaðist.
BMX hjól hvarf frá Ásbúð 26, Garðabæ,
aðfaranótt laugardags. Hjólið er gulllitað,
brettalaust með hvítum plastgjörðum og
svörtum púðum. Finnandi vinsamlegast
hafi samband í síma 40469 eða 651788.
Köttur týndur.
3ja mánaða læða, svört og hvít bröndótt
fór aðJteiman sunnudaginn 23. júlí. Hún
er ómerkt. Finnandi vinsamlegast hafi
samhand í tíma ogooo u----1
Ferðalög
Útivistarferðir.
Kl. 8.00 Þórsmörk - Gnoðaland. Munið
miðvikudagsferðimar. Kynnið ykkur til-
boðsverð á sumardvöl í sumarleyfispara-
dis Útivistar í Básum.
Kl. 20.00 Selfór á Almenninga. Létt ganga
um fallegt kjarri vaxið hraunsvæði.
Skoðaðar seljarústir o. fl. Brottför frá
BSÍ, bensínsölu. Sjáumst!
Mynd, sem birtist með greininni
„Mitt borð“ í DV hinn 11. þ.m., sýnir
öryggisbúnað við Norræna húsið
sem Erik Sonderholm lét setja þar
upp árið 1979.
Þetta hefur breyst og sýnir meðf.
mynd núverandi ástand.
Að mínu mati er þetta hættulegt
og verður ósk um breytingar afhent
borgarráði Reykjavíkur.
25. júlí 1989,
Eirika A. Friðriksdóttir
Leiðrétting frá
Eiriku A. Friðriksdóttur