Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1989, Qupperneq 4
4
MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 1989.
Fréttir
Húsnæöismiölun stúdenta:
AIH að eitt þús-
und stúdentar í
húsnæðisleit
„Frá byrjun júní og þar til í dag
hafa um 80 húsaleigusamningar ver-
ið gerðir fyrir okkar tilstilli. Það eru
um helmingi fleiri samningar en
höfðu verið gerðir á sama tíma i
fyrra. Þó gengið hafi betur en í fyrra
má þó leiða getum að því aö allt að
eitt þúsund stúdentar séu nú að svip-
ast um eftir leiguhúsnæði á höfuð-
borgarsvæðinu," sagði Jónas Fr.
Jónsson, formaöur Stúdentaráðs
Háskólans, í samtali við DV.
Hver leigusamningur getur verið
gerður af pari eða fleiri sem hafa
ákveöið að leigja saman þannig að
þeir sem hafa náð sér í leiguhúsnæði
•eru eitthvað fleiri en fjöldi samninga
segir til um. Jónas sagði aö lauslega
áætlað væru nú um 150 manns á
skrá hjá húsnæðismiðluninni. Hvort
ástandið væri betra eða verra en í
fyrra gat Jónas ekki sagt um en á
húsnæðismiðluninni væri meira að
gera en þá.
Meira framboð er á leiguhúsnæði
nú en í fyrra. Kynning á starfsemi
húsnæðismiðlunar stúdenta virðist
einnig hafa haft það í for meö sér að
fleiri húseigendur leita til miðlunar-
innar en áður.
Húsnæðismiðlunin hefur yfir sér-
stöku leitarforriti að ráða þannig að
húsnæði, sem kemur á skrá, er parað
saman við mögulega leigutaka eftir
þáttum eins og stærð húsnæðis,
leigu, staðsetningu, greiðslugetu
leigutaka og ýmsum þörfum hans.
Miðlunin kemur þannig fljótt á sam-
bandi milli húseigenda og leigutaka
en kemur hvergi nálægt samninga-
gerðinni sjálf. Þessi þjónusta er báð-
um aðilum algerlega að kostnaðar-
lausu.
Þess má geta að húsnæðismiðlunin
býður leigutökum að kaupa ábyrgð-
artryggingu í samvinnu við trygg-
ingafélag. Ef skemmdir verða á leigu-
húsnæðinu, sem aðrar tryggingar
leigutaka bæta ekki, fæst aút að 400
þúsunda króna tjón bætt. Leigutaki
ákveður sjálfur hvort hann kaupir
slíka tryggingu eða ekki.
Jónas gat ekki fullyrt um verð á
leiguhúsnæði. Heimildir blaðsins
telja hins vegar að verð leiguhús-
næðis virðist ekki hafa fylgt al-
mennri verðlagsþróun í landinu og
sé því eitthvað lægra en í fyrra.
-hlh
Goðafoss:
Flutti nautakjöt
til Brasilíu
Goðafoss, skip Eimskipafélags- lestað á írlandi og var síðan siglt í ljós kom að stjómvöld stóðu að
ins, sigldi nýverið til Rio de Janeiro til Brasilíu með viðkomu á Spáni baki þessum innflutningi.
í Brasiliu. Þaö væri varla í frásögur Að sögn skipverja á Goðafossi Tilgangurinn með innflutningi
færandi nema af því að farmurinn hristu menn höfuöið 1 Rió þegar nautakjötsins var aö halda í við
var sérstakur. Goðafoss sigldi þangaö kom og neituðu að trúa verðhækkanir á nautakjöti frá
nefnilega fullhlaðinn nautakjöti til þeim þegar þeir sögðu hver farm- bændum í Brasilíu. Spurðu sumir
einsafmestunautakjötsframleiðsl- urinn væri. Þarlendir urðu þó aö sig hvenær búast raætti viö álíka
ulöndum heims. Var nautakjötið kyngja þessum furðufréttum þegar framtakihérálandi. -hlh
Það er eins gott að borga í stöðumælinn þegar maöur a erindi í miðbæinn
þessa dagana. Nú svífa þær um gangstéttarnar á rúlluskautum, þessar
léttu og lipru stúlkur sem vinna við stöðuvörslu í borginni. Þær fara hratt
yfir og fáir sökudólgar, ef nokkrir, sleppa við sektarmiða. Þessar voru í
Hafnarstrætinu á föstudaginn og virtust hafa meira en nóg að gera við
skriftirnar. Og svo var svifið... DV-mynd Hanna
„Hef heyrt þeir gangi
hreint til verks“
- áldósir hverfa á Ólafsfiröi
Koimákur Bragason, DV, Ólafefirði;
„Ég er búinn að safna þrisvar en
tvisvar sinnum hafa pokamir horfið.
Ég hef öskukarlana grunaða enda
hef ég heyrt að þeir gangi sérlega
hreint til verks og taki allt sem líkist
rush,“ sagði Tómas Waagfjörð, ung-
urpiltur hér á Ólafsfirði. Hann hefur
tapað nokkrum þúsundum áldósa
sem hann hefur safnaö og geymt við
heimili sitt.
„Ég tapaði þúsund dósum fyrst,
sennilega tveggja vikna söfnun, og
síðan talsvert fleiri dósum. Héðan í
frá er víst aö ég geng tryggilega frá
dósunum, hef reyndar fengið inni
fyrir þær í skúr svo vonandi hverfa
þær ekki framar.
Við erum nokkrir strákar sem er-
um í þessari söfnun og hefur gengið
ágætlega að fá dósir en að minnsta
kosti tveir okkar hafa orðið fyrir
dósahvarfi. Vonandi verður þetta
öðrum til viðvörunar,“ sagði Tómas.
Slasaðist illa í andliti
Um helgina vildi það óhapp til á vökvatjakk er hann sprakk. Dreng-
Stórólfsvallabúinu, skammt fyrir urinn slasaðist iha í andhti og var
austan Hvolsvöll, að sjö ára gamall hann strax fluttur á slysadeild Borg-
drengur varð fyrir málmstykki úr arspítalans. -ÓTT
A 128 km hraða með
tjaldvagn aftan í
Lögreglan á Blönduósi stöðvaði 20
ökumenn á fóstudag og laugardag
fyrir of hraðan akstur í Húnavatns-
sýslu.
„Fólk keyrir aht of hratt héma. Sá
sem ók hraðast á fóstudaginn var á
145 km hraða og sá sem ók næsthrað-
ast af þeim sem stöðvaðir vom ók á
128 km hraða. Sá ökumaður var með
tjaldvagn aftan í bílnum," sagði Sig-
urður Sigurðsson, varðstjóri hjá lög-
reglunni á Blönduósi, í samtali við
DV í gær.
-ÓTT
í dag mælir Dagfajci____________________
Kjarabót frá Búlgaríu
Kraftaverka- og hugsjónamaður-
inn Kristinn Finnbogason auglýsir
sérstakar tannlækninga- og heilsu-
ferðir til Búlgaríu við hagstæöan
prís. Er það vel þegar menn vilja
leggja sitt af mörkum th að hna
þrautir meðbræðra sinna með óeig-
ingjörnum hætti. Enda hefur þessu
framtaki verið vel fagnað ef ís-
lenskir tannlæknar em undan-
skhdir. Þeir hafa allt á hornum sér
út í kollega sína í Búlgaríu. Ásaka
þá um að margnota sprautunálar
og megi því íslenskir tannpínu-
sjúklingar, sem þangaö leita, allt
eins búast við að snúa heim með
eyðnismit og það séu slæm býtti.
Þá sé þessi fylling þeirra búlgörsku
ekki upp á marga fiska og skhst
manni að fólk megi þakka fyrir ef
aht verði ekki dottið upp úr holun-
um daginn eftir að komið er heim
til íslands. Þessum ásökunum mót-
mæhr Kristinn harðlega og segir
það fjarstæðu eina að tannlæknar
sínir í Búlgaríu margstingi með
sömu nálum og fylhngarefni séu
ekki lakari en notuð em á Vestur-
löndum. Auk þess hafi sjálfur Guð-
mundur Bjamason heilbrigðisráö-
herra skroppið th Búlgaríu og htið
á aðstæður auk forstjóra Ríkisspít-
ala og fleiri mektarmanna héðan.
Hafi þeir verið hinir ánægðustu
með allt sem þeim var sýnt.
Svo fóm fyrrum tannpínusjúkl-
ingar og tannleysingjar að hringja
í útvarpsstöðvarnar og greina frá
því hvaö það hefði verið gott að
leita th tannlæknanna hans Krist-
ins þarna í Búlgaríu. Sumir höfðu
látið holufylla, aðrir látið smíða
brýr þvers og kmss yfir stærðar
gil í tanngörðunum. Enn aðrir
höfðu fengið sér sett af nýjum post-
ulínstönnum komplett í efri og
neðri góm og væru nú sem tvítugir
í 'annað sinn. Verðskrá búlgörsku
tannlæknanna væri beinlínis
hlægilega lág og aö minnsta kosti
90% lægri en hjá íslenskum kolleg-
um þeirra. Auk þess væri fjöldi
annarra lækna á heilsuhæli Krist-
ins og var svo að skhja að þama
mætti fara í ahsherjar klössun fyr-
ir svipað verð og það kostaði að
láta rífa úr sér eina tanngrýlu í
Reykjavík.
Einn innhringjandi á útvarpsstöð
gat þess að það eina sem ekki hefði
verið nógu gott í sinni Búlgaríuferð
hefði verið maturinn. Hann hefði
mátt vera betri. En var vart búinn
að leggja á er kona hringdi og var
þykkjuþung fyrir hönd Kristins og
Búlgaríu. Hún hefði sjaldan eða
aldrei fengið betri mat en í sinni
ferö. Hins vegar væra matseðlar á
búlgörsku eða þýsku og þaö væri
svo með þessa blessaða íslendinga
að þeir kynnu svo takmarkað í
málum og pöntuðu svo bara út í
loftið. En fyrir þá sem gætu lesið
matseðlana væri ekki vandi að fá
kóngafæði. Það gefur augaleið að
varla færi Kristinn að senda fólk á
hótel sem framreiddi eitthvurt
skítafæði.
Ekki er annað að sjá og heyra en
Kristinn sé nú ekki lengur -kunn-
astur fyrir að vera bjargvættur
Framsóknar og Tímans í fjárhags-
legu tilliti heldur sé hann elskaður
og virtur af öhum tannpínuþolend-
um sem ekki vhja selja undan sér
íbúðina svo þeir geti keypt upp í
sig steh ef hið upprunalega er
brunnið upp í veröbólgu íslenskra
tannlækna. Nú borga menn bara
Kristni 65 þúsund kah eða svo og
fá í staðinn tveggja vikna ferð til
Búlgaríu með dvöl á lúxushehsu-
hóteli og meira að segja hálft fæði
innifaliö á búlgörsku og þýsku.
Stelliö uppi og niðri fæst fyrir 10
þúsund extra eða kannski bara
helminginn af því þar sem þarna
er hægt að selja dollara á svörtum
við margföldu gengi. Að láta bora
í einn jaxl og holufylla kostar svo
ekki meira en ein karameha í
sjoppu á íslandi. Hér hefur Krist-
inn Finnbogason gert stórátak í að
bæta kjör og afkomu landsmanna
og væri óskandi aö fleiri tækju
hann sér th fyrirmyndar í því að
leita nýrra leiða í þeim efnum. Til
dæmis ríkisstjómin.
Dagfari