Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1989, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1989, Page 6
6 MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 1989. Fréttir i>v Sorpuröun í Álfsnesi: Oánægja blossar upp í Mosfellsbæ yiljum borgarafund um málið, segir Ævar Sigdórsson „Þaö er alveg ljóst aö íbúar Mos- fellsbæjar hafa ýmislegt að athuga viö væntanlega sorpurðun í Álfsnesi. Viö viljum að bæjarstjóm Mosfells- bæjar svari því hverra hagsmunir séu í húfi í þessu máli,“ sagöi Ævar Sigdórsson, íbúi í Mosfellsbæ, í sam- tali við DV. Ævar býr viö Leirutang- ann sem er fjölmennasta íbúagatan í Mosfellsbæ. Ef af uröun verður í Álfsnesi er uröunarstaðurinn í beinni sjónlínu frá stórri byggö í bænum. Ævar sagði aö málið væri greinilega pólitískt en íbúarnir vildu vita hvað þeir fengju í staðinn fyrir þessa röskun. „Bæjarstjórnin hefur ekki tekiö þetta mál til athugunar og því viljum við almennan borgarafund um mál- iö. Miðað við áætlanir, sem gerðar eru, mun þessi urðunarstaður skaga tíu metra í loft upp. Þaö verður graf- ið 2-4 metra niður og í gryfjuna lögð fimm lög af sorpböggum sem hver um sig er einn rúmmetri. Síðan kem- ur metra þykkt lag af mold og aðrir fimm baggar og síðan einn metri af mold. Héðan frá séð mun þetta urð- unarfjall ná upp í miöjar hlíðar Akrafjalls. Þetta hefur ekkert með fasteigna- verð að gera enda enginn íbúi í sölu- hugleiðingum. Hins vegar finnst okkur skjóta skökku við að urðunar- staðurinn verður beint á móti fram- tíðarbyggingarsvæði bæjarins þar sem áætlað er að rísi fjölmenn byggö. Hvernig bæjarfulltrúarnir ætla að selja lóðir á góðum útsýnisstað, sem eyðilagður verður með sorpurðun, er okkur hulið. Það liggja engir út- reikningar fyrir um það hve rotnun á samanpressuðu sorpi tekur langan tíma.“ Ævar sagði einnig að mikil hætta skapaöist við aukna umferð í gegn- um bæinn. „Umferðin er nú þegar stórhættu- leg og alveg ljóst að umferð stórra bíla á eftir að aukast. Eins'og vega- kerfið er núna leyfir það ekki þennan flutning. Að öllu þessu samanlögðu finnst okkur fuli ástæða til þess að bæjarstjómin svari íbúunum um þetta mál.“ -JJ Atvinna eykst á Norð- urlandi vestra ÞórhaHur Ásmundsson, DV, Nordurl. vestra; Atvinnuleysisdagar voru 1050 færri í júlí en júní á Norðurlandi vestra. Samkvæmt upplýsingum vinnumálaskrifstofu félagsmála- ráðuneytisins var langbesta útkom- an hér í kjördæminu og það nánast eini landshlutinn sem um verulegan bata er að ræða. Það er greinilega sveifla í sjávarút- veginum sem veldur þessu því mun meira hráefni barst til vinnslustöðva í júlí en júní. Hins vegar mældist meira atvinnuleysi á landinu öllu en um árabil í júlímánuði og t.d. voru atvinnuleysisdagar 1122 fleiri á Noröurlandi vestra nú en fyrir ári. Taflan yfir breytingar á atvinnu- leysisdögum frá júní til júlí á einstök- um stöðum hér í kjördæminu lítur svona út: júlí júní Sauðárkrókur 450 1000 Sigluíjörður 700 600 Blönduós 240 350 Skagaströnd 100 200 Hvammstangi 290 360 Hólmavík 50 225 Hofsós 42 280 Drangsnes 0 35 Ók á kyrr- stædan vörubíl Aöfaranótt laugardagsins keyrði fólksbifreið aftan á kyrr- stæðan vörubíl á BíldudaL Öku- maður og farþegi voru fluttir á sjúkrahúsiö á Patreksfirði með minnl háttar meiösli. Aö sögn lögreglunnar á Pat- reksfiröi var hér um ógætilegan akstur aö ræða og er ökumaður grunaöur um að hafa verið ölvað- ur. Fólksbíllinn er talinn nánast ónýtur en vörubíllinn minna skemmdur. -ÓTT Hópferðabíll á rangrí akrein Um áttaleytið á laugardags- morgun voru þrír fluttir á sjúkra- hús eftir að fólksbíll og hópferöa- bifreið rákust saman á Reykja- nesbraut. FólksbQlinn er ónýtur eftir áreksturinn. Slysiö átti sér stað við Straum- svík. Tildrög slyssins voru þau að hópferðabifreiðin var á rangri akrein er fólksbíllinn kom á móti henni -ÓTT Menn eru ekki háir i loftinu þegar þeir fara að vinna sér inn peninga. Þessi strákur heitir Kristján Guðmundsson og er 10 ára. Hann hefur verið safna sér fyrir nýju hjóli og fengið að grípa i ýmis störf hjá afa sínum undanfarið. Kristján er þarna að stinga vænni ýsu í flökunarvélina og ekki annað að sjá en hann kunni réttu tökin á þessu og beri sig mannalega, strákurinn. DV-mynd S Ólafsfjörður: Rafstöð endurreist í upphaf legri mynd Kormákur Bragason, DV, Ólafafirði; Á Kleifum í Ólafsfirði var nýlega vígð rafstöð sem afkomendur ábú- enda þar hafa endurreist á tveimur síðustu árum. Stöðin var upphaflega byggð af bændum á staðnum áriö 1933 og þjónaði þessari litlu byggð allt fram á áttunda áratuginn. Bygging stöðvarinnar árið 1933 þykir sýna vel þann stórhug og dugn- að sem einkenndi Kleifamenn og hvemig þeir af framsýni og harðfylgi bjuggu í haginn fyrir komandi kyn- slóðir. Stöðin er nú endurreist í minningu þessara manna nánast í sinni upphaflegu mynd og ekki síður af haröfy lgi og dugnaði en í hið fyrsta sinn. Margmenni var við vígsluna, enda mikill fjöldi manna kominn út af þeim Kleifabændum. Ingi Viðar Árnason lýsti sögu stöðvarinnar og ljóst er af þeirri tölu að á ýmsu hefur gengið í rekstri hennar og mildi að aldrei skuli hafa orðið slys við stöð- ina. Menn þurftu iðulega að leggja sig í mikinn háska í vondum veðrum við að hreinsa krap af ristum eða við aðrar lagfæringar. Stöðin hefur því slysalaust lýst upp vistarverur á Kleifunum og því mik- il gleði Kleifamönnum er Anton Finnsson tendraði ljós á lampa til merkis um að nú væri stöðin aftur tilbúin að lýsa upp og ylja bæi þeirra. Rafstöðin í Gunnólfsá er Kleifa- mönnum mjög til sóma og víst að hún mun í framtíðinni verða ferðamönn- um áhugavert skoðunarefni, enda fyrirhugað að í stöðinni verði ágrip af sögu hennar til sýnis en það er um margt spennandi lesning. Sandkom dv „Hleranir" íkjölfarum- neðunnarum farsímahleran- irerhérein létt.Kona nokkur á Akra- nesihafði bamaböminí heimsókná dögunum. Böminvoru eitthvaöað *v«w*#v* * ^ * viunv> ömrau os afa. Útv arpsvekjaraklukka á nátt- borði ömmu vakti fljótt athygli krakkanna sem fóru aö flkta. Leið dágóður tími með fíkti en allt í einu heyrðist rödd í útvarpsklukkunni, rödd sem átti lítið skylt við þessar á stöðvunum. Bömin fóru aö hlusta og amma fór að undra sig á hve hljótt var i svefnherberginu. Hún fer aö athuga hvað sé á seyði. Bömin voru þá komin á kaf í samtal leigubílstjóra við ástina sína þar sem hann var að þakka henni fyrir síöasta ástariúnd þeirra. Samtaliö var heitt og innilegt og var ömmunni ekki fariö að standa á sama þama innan um sakleysingj- ana. Skrúfaði sú gamla niður í klukk- unni sinni en hefur sjálfsagt hugsaö sér gott til glóðarinnar. Nú gat hún líka hlerað. Menn þurfa greinilep ekki að kaupa eitthvert rándýrt ís- enkram í Ameríku til að komast inn ífarsímasamtöl. Píanóharinn í KefiavQonun hafamissuin- veitingaleytið. í Vikurblaðinu erhafteMrfóg- etaaðkvartað hafi veriðyik staðnum þar j; semsarakom- uraarvirtust teygjastmeira á langinn en góðu hófu gegndi. Eig- endur bars þessa em að vonum óhressir með úrskurð dómara og í sama blaði er eftir þeim haft aö nægi- legt sé að k varta til lögreglunnar og veröi þá dæmt i málinu án frekari rannsóknar. Segja þeir að komið hafi fyrir „trekk í trekk að undanfórnu aö kvartanir hafi borist úr nágrenn- inu, alvegaðtilefhislausu". í sama tölublaði Víkurfrétta birti Stuðnings- mannafélag Píanóbarsins augiýsmgu þar sem allir stuðningsmenn staðar- ins vom h vattir til að mæta á barinn, ræða sviptinguna og drekka með „þeim" kaífi! Skyldufleirienná- grannamir hafa raætt? Hurðarlaust hel- Það varhéráö- urfyrráárun- um.Ih-esli nokkrum, er áttileiðum þjóögötuna, varðalltíeinu máLHann gengurþáað næstabæog biðurbóndann umaðhjálpa sér. Bóndinn vísar honum að frekar óhijálegum kamri undir húsvegg. Vantaði hurðina á kamarinn og ekki laust vtö að bónda væri skemmt. Eft- ir að prestur hatði lokið erindi sínu spuröi hann bóndann: „Er ekki óþægilegt að engin hurð skuh vera á þessu litla húsi?“ „Oo, ég veit ekki,“ segir bóndinn með púkasvip á fésinu, „þetta hefúr verið hurðarlaust heivíti í 30 ár og enn hefúr engu verið stolið." Réttu græjumar Þaðerýmislegt skemmtilegt semlesamáí smáaugtýsing- um.Þannig hljóöaöi aug- . lýsingíein- hverjulands- :; byggöarblaö- inuí\Tkunni semleið:Til _______ söluunglings- nim meö sambyggðu útvarpi, kass- ettutæki ogvekjaraklukkuásamt rúmfatageymslu. Það munar ekki um það. Þaö vantaði bara að nuddpottur og sjónvarp fylgdumeð lika. S vo var þaö ein þar sem einhver auglýsir eft- ir sólgleraugum sem „töpuðust fyrr ísumar". Umsjón: Haukur L. Hauksson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.