Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1989, Page 19
MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST 1989.
Unnið að grasvellinum á Ólafsfirði. DV-mynd Kormákur
Grasvöllur á Ólafsfirði
Kormákur Bragason, DV, Ólafefirði:
Undanfarið hefur verið unnið af
krafti við byggingu grasvallar á Ól-
afsfirði en eins og margir vita hefur
knattspymulið Leifturs á Ólafsfirði
einungis yfir malarvelh að ráða.
Vonir standa til að hægt verði að
leggja hitalagnir og þekja völlinn nú
í haust en Leiftursmenn hafa sjálflr
tekið það verk að sér. Stórvirkar
vinnuvélar hafa síðustu daga flutt
og jafnað efni undir völhnn og er það
nú langt komið.
Þá var nýlega tekin fyrsta skóflu-
stunga að nýju íþróttahúsi í firðinum
og nú von um að langþráður draum-
ur Ólafsfirðinga um fuhbúið hús með
löglegum velh verði að veruleika.
Það var heiðursborgari Ólafsfirð-
inga, Ásgrímur Hartmann, fyrrver-
andi bæjarstjóri, sem tók fyrstu
skóflustunguna.
Áætlað er að fyrstu fjórum bygg-
ingaráfóngum af sex verði lokið á
næstu 4 ámm. Reiknað er með að
fullbúið kosti húsið um 100 mihjónir.
Það er stór biti fyrir ekki stærra
bæjarfélag og því gert ráð fyrir að
hægt verði að taka hluta þess í notk-
un á fyrri byggingarstigum. Arki-
tektar hússins eru Páh Tómasson og
Gísli Kristinsson.
Fjarvinnustofa í Vik í Mýrdal:
Færir hluta af þjónustu
ríkisstofnana út á land
Starfsmenn fjarvinnustofunnar, Páll Pétursson og Guðmundur P.Guðgeirs-
son til hægri.
Páll Pétursson, DV, Vík í Mýrdal:
Um síðustu áramót var fyrsta fjar-
vinnustofan hér á landi stofnuð í Vík
í Mýrdal og er hún með sama sniði
og fjarvinnustofur annars staðar á
Norðurlöndunum. Tveir menn vinna
við fyrirtækið aö staðaldri og horfur
á fjölgun þeirra á næstu mánuðum.
Upphaf fyrirtækisins má rekja th
þess að Jón Erlendsson hjá Upplýs-
ingaþjónustu Háskólans, sem er í
sambandi við Telecottage Internati-
onal, alþjóðasamtök fjarvinnustofa,
benti Reyni Ragnarssyni, formanni
atvinnumálanefndar í Vík, á þennan
möguleika og hann kom aðstandend-
um fyrirtækisins á sporið.
Helstu verkefni nú eru bókhalds-
þjónusta, innheimtuþjónusta og
ýmis önnur þjónusta við fyrirtæki
og ýmsa aðila í Vík og nágrenni.
Einnig unnið við bæklingagerð, aug-
lýsingagerð, áætlanagerð og fram-
talsaðstoð. Framtíðarverkefni verða
einnig á sviði tölvukennslu og gerð
gagnasafna á tölvur.
„Það hefur verið lögð geysimikh
vinna í það að afla verkefna utan
svæðisins og nú fyrst er sú vinna að
bera árangur. Við höfum notið að-
stoðar reyndra aðha í þessum efnum
og vh ég þá helst nefna Jón Erlends-
son og Guðna Ágústsson alþingis-
mann,“ sagði Guðmundur Pétur
Guðgeirsson, annar eigandi fjar-
vinnustofunnar í Vík.
„Fyrst var leitað til ríksstofnana
og opinherra fyrirtækja, og þá helst
leitað að verkefnum í gagnavinnslu
sem ekki væri nauðsynlegt að vinna
á Reykjavíkursvæðinu. Það sem við
höfum í huga er að færa hluta af
þjónustu ríksstofnana út á land og
nýta tölvutæknina th að byggja upp
nýja vinnustaði.
Þessi fjamnnsluhugmynd er ný
hér á landi og það sýnir sig að verk-
efnin liggja ekki beint á lausu. Þess
vegna megum við ekki faha í sömu
gryfju og svo oft áður þegar eitthvað
nýtt kemur fram á sjónarsviðið og
hrúga niður mörgum slíkum fyrir-
tækjum. Ahir þekkja dæmin um loð-
dýraræktina og prjónastofurnar.
Það væri skynsamlegast að sefja
ekki á stofn fleiri en eitt slíkt fyrir-
tæki í hverjum landshluta fyrst um
sinn og sjá hvernig gengur með öflun
verkefna hjá opinberum aðhum, fyr-
irtækjum í sínum landsfjórðungi og
þeim sem eru með mikla gagna-
vinnslu á sínum herðum.
Mikhvægt er einnig að vel takist
til með þessa nýju tækni í byrjun og
þess vegna er nauðsynlegt að hafa
samstarf við heimafólk, sveitarfélög,
landshlutasamtök og aðra þá sem
stuðla að eflingú atvinnulífs og fjölg-
un starfa á landsbyggðinni." sagði
Guðmundur Pétur.
Tilboð langt undir áætlun
Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki:
Byggingafélagið Hlynur var með
lægsta tilboð í byggingu sex íbúða í
parhúsum sem rísa eiga við Kvista-
hhð á Sauðárkróki. Tilboð Hlyns var
tæpum 20% undir áætlun og tólf
mihjónum lægra en hæsta thboðið
sem var það eina yfir kostnaðaráætl-
un af sex sem bárust.
Tilboðin í byggingu verkamanna-
bústaðanna voru opnuð fyrir rúmri
viku. Hlynur bauð 26,9 milljónir eða
81,9% af kostnaðaráætlun, Trésmiðj-
an Ýr tæpar 29, Trésmiðjan Borg 29
mhljónir, Friðrik Jónsson sf. 29,8 og
Knútur Aadnegard rúmar 32 milljón-
ir. Þetta eru allt saman aðhar á Sauð-
árkróki og eina tilboðið, sem barst
frá utanbæjaraðha og reyndar það
langhæsta, kom frá Selfossi, Hannesi
Leifssyni byggingameistara. Hljóð-
aði það upp á 38 mhljónir króna.
Kostnaðaráætlun var 32,4 mhljónir.
31
Fréttir
Sauöárkrókur:
Vandamál vegna
hesthúsa
Þórhailur Asmundsson, DV, Sauðárkróki:
Bæjarstjórn Sauðárkróks og bygg-
ingarnefnd standa nú frammi fyrir
því að ákveða hvar næsta fjölbýlis-
hús skuh rísa í bænum. Er þar um
tvo staði að ræða, í Víðimýri, syðst
í bænum, eða við Freyjugötuna í
gamla bænum. Næsta íbúðarblokk
verður byggð eftir kaupleigihbúða-
kerfinu en Sauðárkrókur hefur feng-
ið úthlutað 10 kaupleiguíbúðum.
Sú kvöð fylgir lóðinni við Freyju-
götuna, sem er fyrir átta íbúðir, að
áður en flutt yrði í húsið þyrfti að
kaupa upp öll hesthús á svæðinu.
Annars mundu hesthúsin gömlu svo
gott sem lenda undir stofugluggum
blokkarbúa.
Bæjarsjóður mun ekki sem stendur
hafa bolmagn th að ganga til samn-
inga við eigendur hesthúsa í hverf-
inu enda naumur tími th stfefnu. Því
má telja fuhvíst að framkvæmdir við
enn eitt 12 íbúða fjölbýlishúsið viö
Víðimýri hefjist innan skamms.
Jón Friðriksson var einn þeirra er
tóku th máls um þetta á bæjarstjórn- —-
arfundi í síðustu viku. Taldi hann
spurningu hvort ekki færi að verða
komið nóg af byggingu fjölbýhshúsa
í bænum í bili. Ibúðablokkir væru
orðnar margar á Sauðárkróki í ekki
stærri bæ. Reynslan sýndi aö fólk
leitaði æ meir í sérbýh, einbýli eða
raðhús. Erlendis staeðu víða hehu
blokkarlengjumar auðar.
ísafjöröur:
Fiskrúllur til
útflutnings
Vitborg Davídsdóttir, DV, ísafixöi:
Bjartmar hf. á ísafirði hóf fyrir
nokkru framleiöslu á fiskrúhum
tilbúnum th neytenda. Að sögn
Árna Sigurðssonar, framkvæmda-
stjóra framleiðslusviðs Bjartmars,
er nú unnið að því að afia mötu-
neytismarkaöa í Evrópu. Prufu-
sendingar hafa farið út og em við-
brögð alls staðar áhugaverð.
Fiskrúhumar era með rækju-
ostsfyhingu og eru forsteiktar
þannig að raatreiðsla þeirra tekur
aöeins um 4 mínútur í örbylgjuofni
og aðeins lengri tíma í bökuna-
rofni. Bjartmar keypti fyrirtæki í
Reykjavík, sem heitir Fiskgæði hf„
og flutti það vestur. Tæki þess era
notuð við framleiðsluna. Fiskrúll-
umar hafa verið seldar th mötu-
neyta innanlands og dreifingaraðil-
ar eur bæði í Reykjavík og á Akur-
eyri. Rúhurnar hafa lítið farið í
smásölu ennþá.
Bjartraar vinnur einnig hörpu-
disk á Frakklandsmarkað en
rækjuvinnsla hefur legið niðri und-
anfarnar þrjár vikur. Hráefniss-
kortur hefur valdið þessu hléi en
viimsla á að hefjast á ný eftir um
vikutíma. „Það er hörð samkeppni
um úthafsrækjuna og okkur hefur
ekki gengið eins og við höfðum
reiknað með að komast inn á þann
markað,“ sagði Árni.
TÖLVULEIKIR
Hjá Magna Sí5
----;----------
Nýir leikir í:
*Spectrum
*Commodore
*Amstrad
Úrval leikja í Nintendo leikjatölvuna
Sendum í póstkröfu