Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1989, Qupperneq 27
MÁNUÐAGUR.28. ÁGIÍST, 1989.
39
Merming
Rannsóknir við
elstu deild Háskólans
Það er furðu útbreiddur misskiln-
ingur að lítiö sé um rannsóknir við
Háskóla íslands. Ritin Rannsóknir
við Háskóla íslands og ritskrár
Árbókar Háskóla íslands sýna hins
vegar að innan veggja Háskólans
eru stundaðar mjög fjölbreytilegar
og umfangsmiklar rannsóknir og
að niðurstöður þessara rannsókn
eru kynntar af kennurum skólans
í fyrirlestrum og á ráðstefnum víðs
vpgar um heim. Á það jafnt við um
raunvísinda- og hugvísindamenn
Háskólans.
Aukin rannsóknarstarfsemi
við Háskólann
Ekki er vafi á því að rannsóknar-
starf innan Háskólans hefur aukist
verulega á undanfórnum árum. Þá
hafa orðið til nýjar rannsókna-
stofnanir innan ijölmargra deilda
Háskólans og hafa þær átt sinn
þátt í að auka hlut rannsóknanna
í starfi skólans, þó svo að þær njóti
yfirleitt óverulegra ijárveitinga frá
ríkisvaldinu. En sumar þeirra
njóta hins vegar nokkurs fjárhags-
legs stuðnings frá velunnurum úti
í þjóðfélaginu. Það á við um þá
stofnun sem varð til við elstu deild
Háskólans en guðfræðideildin er
talin elsta deild Háskólans vegna
þess að Prestaskólinn var elstur
þeirra þriggja embættisskóla sem
sameinuðust í einn skóla við stofn-
un Háskóla íslands árið 1911.
Guðfræðistofnun var komið á fót
með reglugerð 25. júní 1975 en fékk
fyrst fjárveitingu til starfa árið
1986. En þegar árið 1982 hafði stjóm
Elli- og hjúkrunarheimilisins
Grundar, undir forystu Gísla Sig-
urbjörnssonar forstjóra, fært stofn-
uninni minningargjöf að upphæð
100 þúsund krónur á 60 ára starfs-
afmæli heimilisins. Sömu aðilar
hafa síðan styrkt sjóðinn með
rausnarlegum gjöfum og ér nú svo
komið að hann er nokkurs megn-
ugur.
Hlutverk Guðfræði-
stofnunar og rannsóknir
Hlutverk Guðfræðistofnunar er
skilgreint þannig í reglugerð: 1. að
vera visindaleg rannsóknarstofn-
un í guðfræði, 2. að vera vísindaleg
kennslustofnun í guðfræði fyrir
kandídata og stúdenta er vinna að
fræðilegum verkefnum sem sinnt
er í stofnuninni, eftir nánari
ákvörðun stjómar stofnunarinnar,
3. að vera með sama hætti, eftir því
sem aðstæður leyfa, vísindaleg
rannsóknarþjónustu- og kennslu-
stofnun í greinum sem skyldar em
guðfræði eða stunda ber í guð-
fræðideild.
Meðal rannsókna, sem nú eru
stundaðar á vegum Guðfræðistofn-
unar, má nefna könnun á trúarlífi
og trúarlegum viöhorfum íslend-
inga, könnun á biblíulestri og við-
horfum íslendinga til Biblíunnar,
vinnu að orðstöðulykli yfir Nýja
Gísli Sigurbjörnsson á Grund hef-
ur stutt vel við bakið á rannsóknum
í guðfræði við Háskóla íslands.
Bókmenntir
Gunnlaugur A. Jónsson
testamentið byggðum á merkinga-
sviðum. Þá beinast augu manna
mjög að þúsund ára afmæli kristni-
tökunnar og hvernig best verði
haldið upp á það. í þvi sambandi
er helst talað um nýja biblíuþýð-
ingu og ítarlegt yfirlit um íslenska
kirkjusögu. Að báðum þessum
verkefnum er nú unnið af starfs-
mönnum stofnunarinnar. For-
stöðumaður Guðfræðistofnunar-
innar er prófessor Jón Svein-
bjömsson.
Studia Theologica Islandica
Eftir að Guðfræðistofnun var
komið á fót var það um árabil á
óskahsta hennar að hefja útgáfu
ritraðar þar sem birtar yrðu rit-
gerðir og greinar eftir kennara guð-
fræðideildar og aðra aðila um guð-
fræðileg efni. Þessi draumur rætt-
ist á síðastliðnu ári er út komu tvö
fyrstu hefti Studia Theologica Is-
landica.
í því hefti ritraðarinnar (2. hefti),
sem athyghnni er einkum beint að
hér, er að fmna fyrirlestra þá sem
fluttir vom á námsstefnu í sálma-
fræði sem Guðfræðistofnun stóð
fyrir í samvinnu við Norræna hús-
ið haustið 1987.
Við setningu þessarar ráðstefnu
sagði prófessor Björn Björnsson,
forseti guðfræðideildar, að í vissum
skhningi væm sálmarnir krónan á
þeim volduga meiði sem guðfræðin
er. Guðfræðin byrji á lofsöng og
hún eigi sér engan tilgang æðri en
að syngja Drottni lof. I ljósi þessara
orða deildarforsetans var það í
hæsta máta eðlilegt að sálmafræðin
væru tekin til umfjöllunar á fyrstu
ráðstefnunni sem Guðfræðistofn-
un stóð fyrir.
Af hálfu Guðfræðistofnunar
fluttu þeir dr. Bjarni Sigurðsson
prófessor og Hörður Áskelsson
lektor erindi á ráöstefnunni. Erindi
dr. Bjarna fjallaði um „Sálma Lút-
ers um páska og hvítasunnu" og
Hörður talaði um „Sálmalögin á
Grallaratímanum“. Aðrir ræðu-
menn vom sr. Sigurjón Guðjóns-
son (Davíðsharpa frumkristninn-
ar), Svein Elhngsen (Um endurnýj-
un sálmabókanna á Norðurlöndum
á undanfórnum árum), Þröstur Ei-
ríksson (Kóralbókatímabhið),
Kristján V. Ingólfsson (Sálmar og
sálmaþörf kirkjunnar), Knud
0degárd (Guðdómlega ljósið),
Trond H.F. Kvernmo („Da höres
de glödende tungers röst“).
Af einstökum erindum fannst
mér erindi Knuds 0degárd, for-
stjóra Norræna hússins, einna
fróðlegast, en hann fjallar um
helgikvæðin Geisla og Lilju. í
Geisla, sem ortur var af Einar
Skúlasyni presti á 12. öld „er píslar-
saga Krists raunverulega færð yfir
á Olaf konung, um leið og þar gæt-
ir áhrifa frá fornri norrænhi goða-
fræði“. Lilja er um 200 árum yngri
en Geisli „og í því birtist norræn
miðaldamenning í mestri reisn“. í
Lilju hefur Kristur sigurvegarinn
vikið sæti fyrir hinum hðandi
Kristi. Þá vekja athygli þau um-
mæh Tronds H.F. Kvernmo að ís-
lenska handbókin frá 1981 sé að
mörgu leyti besta handbók kirkna
Norðurlanda. í grein Sveins Eh-
ingsen kemur fram að sú vakning,
sem orðið hefur í sálmakveðskap á
Norðurlöndum að undanfórnu,
hefur ekki náð th Danmerkur
vegna þess að þar eru áhrif Grund-
tvigs svo sterk að ný sálmaskáld
hafa átt erfitt með að hasla sér vöh.
í 1. hefti ritraðarinnar var að
fmna greinar eftir alla fastráðna
kennara guðfræðidehdar um
fræðasvið þeirra. 2. heftið er svo,
eins og áður er lýst, helgað sálma-
kveðskap kirkjunnar og 3. heftið,
sem ráðgert er að komi út í haust,
mun hafa aö geyma eina mjög ítar-
lega ritgerð, þ.e. niðurstöður trúar-
lífskönnunar þeirra dr. Björns
Björnssonar prófessors og dr. Pét-
urs Péturssonar. Heftin þrjú eru
því nánast eins ólk hvert öðru og
verða má. Ekki finnst mér það þó
ókostur og held ég að ástæða væri
th að auka enn á fjölbreytnina með
því að birta ítarlega ritdóma um
íslensk guðfræðirit, svo og vönduð
eftirmæh um þá íslenska guðfræð-
inga sem staðið hafa í fylkingar-
brjósti, en hvort tveggja hefur verið
vanrækt af íslenskum guðfræðing-
um á undanfórnum árum. Emst
Backman á sérstakt hrós skihð fyr-
ir hönnun kápu en hana prýðir
mynd af Sæmundi á selnum.
Ritröó Guðfræóistofnunar.
Studia Theologica Islandica 2.
Um sálmafræði.
Ritstjóri: Jónas Gíslason prófessor.
Háskóli íslands 1988.
Gunnlaugur A. Jónsson
HEILSUVERNDARSTÖÐ REYKJAVÍKUR
Barónsstíg 47
HEILSUVERNDARSTÖÐ REYKJAVÍKUR
óskar eftir að ráða eftirtalið starfsfólk:
HJÚKRUNARFRÆÐINGA - um er að ræða hlutastörf. Semja má
um vinnutíma.
SKRIFSTOFUMANN/TÖLVURITARA i 50% starf.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 22400.
Umsóknum skal skila til skrifstofu Heilsuverndarstöðvar Reykjavik-
ur fyrir kl. 16.00 mánudaginn 28. ágúst nk.
HARNY
Hárgreiðslu- og rakarastofa
Nýbýlavegi 22 • Sími 46422 • 200 Kóp.
KMS sjampó
og næring
HÁRGREIÐSLU- 0G
RAKARAST0FAN
KLAPPARSTÍG 29, RVÍK
Ð13010 • 12725
Ford Econoline
ER SMÁAUGLÝSINGA
Laugardaga, 9.00 - 14.00
Sunnudaga, 18.00 - 22.00
iBeint flug í sólina
>rndu
me
a tíi
BEMIDORM
Tískufatnaöur haustsins
er þá kominn í verslanir.
Í þessari ferö verður hjúkrutnar-
fræðingur til aöstoöar yngri sem
eldri, eftir þörfum hvers og eins.
Góö fararstjórn — Góö þjónusta —
Hagstætt verð.
Pantaöu strax þvi nú scljum viö
síöustu sætin.
• Miðað við 2 fullorðna
ocj 2 t>örn (2—1.1. ára).
3 yikur í septembersól
Hitastigið í september er eins og best verður á kosió og gististaðirnir fyrsta
flokks, eins og ávallt hjá okkur. ____________________________________
Sumaraukinn — 4-. október
Verð frá kr. 4-1.700 (4 fullorðnir í íbúð)
Verð frá kr. 43.900 (2 fullorðnir í íbúð)
Ef óskað er, er möguleiki á stoppi í London á heimleið.
FERÐASKRIFSTOFA
REYKIAVÍKUR
Aðalstræti 16 • 101 Reykjavík • sími 91-621490