Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1989, Side 31
FIMMTUDÁGUR 31. ÁGÚST 1989.
Satt og logið
„,Héðan úr hlaði rógur reiö,
ranglætið og illgimin."
Þessi vísuorð Páls Ólafssonar og
framhald þeirra komu mér í hug
þegar ég las í DV þann 26. júlí,
grein, ef grein skyldi kalla, „les-
anda“, sem ber yfirskriftina:
„Endalaus deila“, eftir ónafn-
greindan höfund, því satt að segja
rann mér í skap við þær rakalausu
fullyrðingar og gífuryrði sem þar
eru sett fram á fruntalegan hátt.
Tilefnið virðist vera meinlítil en
réttmæt athugasemd við skrif
fréttaritara DV á Selfossi, Regínu
Thorarensen, um málefni Ámes-
hreppsbúa og kirkjubyggingarmál
þeirra sem hún virðist vera búin
að fá á heilann. - Sú athugasemd
birtist í DV 28. júní sl. undirrituð:
„Burtfluttur Ámeshreppsbúi". -
Undir þá ábendingu og athugasemd
gat hver sanngjam - maður tekið
enda hafa margir orðið til þess,
innan sveitar og utan, sem nokkuð
þekkja til málavaxta. Bent var á
að slík skrif gætu vart haft annan
tilgang en að blása að tilefnislausu
að glæðum þess sundurlyndis sem
von væri til að gætu annars kulnað.
Orð dæma sig sjálf
Þessari hógværa athugasemd
svaraöi Regína með sínum hætti
og vandaði þeim manni ekki kveðj-
umar sem hafði gerst svo djarfur
að gera athugasemd við þessi skrif
hennar. Hún sparaði ekki illyrðin
og ásakanir í garð þessa manns og
bar honum á brýn lygar, án þess
nefna nokkurt dæmi máli sínu til
sönnunar svo þar hefði fáum þótt
þörf á að bæta við.
Þessum ósköpum hefur „burt-
fluttur Ámeshreppsbúi" ekki svar-
að, enda varla þess vert. Slík orð
dæma sig sjálf. Menn áttu því von
á að meira yrði ekki úr þessu.
Máhð væri útrætt á þeim vett-
vangi. En svo bregður við að ein-
hverjum hefur fundist sem Regína
hafi ekki nóg að gert og þar þurfi
að bæta um betur. - Einhver sem
ekki vill, eða „þorir ekki“ að láta
nafns síns getið, ryðst fram á rit-
völlinn með þá ritsmíð, sem getið
er í upphafi þessara orða, með því-
líku ofibrsi og illyrðum að einstakt
er.
Tekur hann sér fyrir hendur að
fullyrða að allt sé satt sem Regína
segir og einnig hver sá maður sé,
sem vogaöi sér aö gera áðurnefnda
athugasemd við fréttaklausu Reg-
ínu án þess þó að nefna nafn hans.
Fullyrðir að hann sé heimamaður
í Ámeshreppi, hafi aldrei þaðan
farið og velur honum hin verstu
svívirðingar- og ærameiðandi um-
mæli. En hann varast að nefna
nafn hans, þó nærri sé vegið. Tekst
honum svo vel upp að orð Regínu
falla í skuggann.
í jafnfámennu byggðarlagi og
Ámeshreppur er geta flestir farið
nærri um aö hveijum er sveigt með
slíkum ummælum svo auðvelt er
að benda á viðkomandi mann og
ósóma hans og um leið að varast
hann.
Þessi „lesandi" /leggur ónafn-
greindum manni, sem hann veit í
raun og vera ekkert hver er, last-
yrði fyrir að hafa ekki birt orð sín
undir nafni og segir þaö bera vott
um aumt sálarástand hans. Hann
gætir þess ekki að með nafnleynd
sinni er hann aö gefa sjálfum sér
einkunn og lýsa eigin sálarástandi.
Kjallariim
Guðmundur P.
Valgeirsson
bóndi
Sama er að segja um önnur illyrði
þessa manns í garð þess sem hann
hyggur vera höfund umræddrar
athugasemdar, að þau lýsa aðeins
honum sjálfum svo þetta skrif hans
er aðeins sjálfslýsing. Er ekki hægt
að segja annað en hann sé vel aö
henni kominn og hafi tekist vel
upp.
Lítill greiði
Ekki ætla ég mér þá dul að geta
mér til um hver sé höfundur þessa
níðskrifs. En hver svo sem hann
er þá má hann vita að lítinn greiða
hefur hann gert þeim mönnum,
sem hann greinilega telur sam-
herja sína að umræddu máli, með
því að klína á þá með nafnleynd
sinni grun og ábyrgð um að vera
höfundar þess óþverra sem hann
ber á borð fyrir almenna lesendur.
- Því verður ekki hjá því komist,
þeirra vegna, að krefiast þess að
hann birti nafn sitt til að firra þá
ábyrgð á illmælgi hans, og þeim
sem hann beitir illmælum sínum
gefist kostur á að sækja hann til
ábyrgðar fyrir þau, ef þeim býður
svo við horfa. Það sem hann segir
um „örfáa karla norður í Ámes-
hreppi, sem ekki geti til þess hugs-
að að umrædd deila hði undir lok“
hittir hann sjálfan sig fyrir eins og
önnur orð hans. Með framhleypni
sinni leggur hann dijúgan skerf til
að svo fari ekki.
í nær tvö ár hefur ekki orð fallið
af hendi þeirra manna sem hann
ásakar fyrir að vilja halda um-
ræddri deilu við. En á sama tíma
hefur veriö haldið uppi ritræpu um
máhð af þeim sem ætla má að sé
kjörinn eða sjálfskipaður blaðafull-
trúi þess hóps, sem vakti ágreining-
inn um Ámeskirkju, sjálfum sér
og öðram til mikils ama og vand-
ræða. - Nú hefur því höi bæst nýr
blaðafulltrúi. Væntanlega fagna
þeir nýjum (?) hðsauka.
Þessum blaðafulltrúum er
munntamt að fiasa um annarra
lygi, eins og þeir séu sérstakir boð-
berar sannleikans. En einhvem
veginn hvarflar það að mönnum
að annaðhvort hafi þeir lært 8. boð-
orðiö illa í byijun, eða þeir hafi síö-
ar komist að þeirri niðurstöðu að
það hafi takmarkað gildi í sam-
skiptum manna. Það er auðvelt að
hrópa að mönnum að þeir fari með
ósannindi og séu lygarar. En shkar
ásakanir missa marks þegar engin
tilraun er gerð af hendi þeirra til
að rökstyðja þær. Þá faha þær sem
dómur um þá menn sjálfa sem bera
þær fram.
í eigin rass gripið
Þessi „lesandi“ telur sig vera að
skírskota til þeirrar ritdeilu, sem
fram fór í sambandi við uppbygg-
ingu Ámeskirkju fyrir nær tveim
árum, annars vegar af hálfu Dag-
blaösins þar sem byggt var á upp-
lýsingum huldumanna, sem htið
- vilja láta nafns síns getið, með und-
irleik fréttaflutnings Regínu um
kjötsög og fleira í líkum dúr. En
hins vegar Gunnsteins Gíslasonar,
formanns sóknarnefndar, Eyjólfs
Valgeirssonar, sem báðir skrifuðu
athyghsverðar greinar um máhð,
og undirritaðs.
Ahar þær greinar vora skrifaðar
og birtar undir fuhum nöfnum og
því hægt um vik að hnekkja um-
sögn þeirra ef ástæða heföi þótt th,
en það var ekki gert. - Þó það komi
ekki „lesanda“ við skal það upp-
lýst, að beðið var um rúm fyrir
þessar greinar í DV, en neitað um
birtingu þeirra. Þær voru því birtar
i Tímanum. Aðrir komu þar ekki
við sögu, nema hvað Ehert Schram,
annar ritstjóri DV, skrifaði vin-
samlega grein um máhð í blaö sitt.
Það er því ekki að víðum hring
manna veist með illyröum þessa
„lesanda", og hægt að vita við
hveija er átt.
Að gefnu því thefni skal það hér
meö upplýst, aö þeirri ritdeilu lauk
með því að sá blaðamaður DV, sem
mest hafði haft sig í frammi um
þessi skrif af hálfu blaðsins,
hringdi th undirritaðs, þakkaði
skrif hans um máhð og baðst afsök-
unar á hlutdeild sinni að þeim
skrifum sem byggð hefðu verið á
ófuhnægjandi og vafasömum upp-
lýsingum um máhð. - Það sama
gerði hann gagnvart Gunnsteini,
formanni sóknamefndar. Þar með
lauk þeim blaðadeilum.
En því miður hugkvæmdist okk-
ur Gunnsteini ekki, á stundinni,
að krefiast þess að sú afsökunar-
beiðni yrði birt í viðkomandi blaði,
svo sem eðhlegast var. Því hggur
ekki fyrir skjalfest sönnun þess
hvem enda sú ritdeila fékk.
Postular sannleikans geta því nú,
eða efdr tvö ár, rokið upp og sagt
það lygi sem ég hefi hér um það
sagt. - En það er hér sem annars
staðar hjá „lesanda" að þar er í
eigin rass gripið þegar hann nú rís
upp th að hefia dehur um svo löngu
hðna atburði. Þögnin hefði hæft
þar best.
Guðmundur P. Valgeirsson
„í jafnfámennu byggðarlagi og Arnes-
hreppur er geta flestir farið nærri um
að hverjum er sveigt með slíkum um-
mælum..
gp smAausu-sinsa
&*»>-?T022
SÍMINN ER
39
Kvikmyndahús
Bíóborgin
frumsýnir
toppmynd ársins
TVEIR ATOPPNUM 2
Allt er á fullu í toppmyndinni Lethal Weapon
2 sem er ein albesta spennumynd sem kom-
ið hefur. Aðalhlutverk: Mel Gibson, Danny
Glover, Joe Peschi, Joss Ackland. Leik-
stjóri: Richard Donnar.
Sýnd kl. 4.30, 6.45, 9 og 11.15.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Óskarsverðlaunamyndin
SVEIFLAN SIGRAR
Frumsýnum hina frábæru óskarsverðlauna-
mynd „BIRD" sem gerð er af Clint East-
wood. Stórkostleg úrvalsmynd.
Aðalhl., Forest Whitaker, Diane Venora,
Michael Zelniker, Keith David.
Leikstj., Clint Eastwood.
Sýnd kl. 4.30, 7.20 og 10.10.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
ALLTAF VINIR
Sýnd kl. 4.30, 6.45, 9 og 11.15.
Bíóhöllin
frumsýnir
toppmynd ársins
TVEIR A TOPPNUM 2
Allt er á fullu i toppmyndinni Lethal Weapon
2 sem er ein albesta spennumynd sem kom-
ið hefur. Aðalhlutverk: Mel Gibson, Danny
Glover, Joe Peschi, Joss Ackland. Leik-
stjóri: Richard Donner.
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
James Bond-myndin
LEYFIÐ AFTURKALLAÐ
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
MEÐ ALLTl LAGI
Sýnd kl. 5, 7, 9og11.
LÖGREGLUSKÓLINN 6
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
GUÐIRNIR HUÓTA AÐ
VERA GEGGJAÐIR 2
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Háskólabíó
VITNI VERJANDANS
Hörku sakamálamynd framleidd af Martin
Ransohoff, þeim hinum sama og gerði
Skörðótta hnifsblaðið. Spenna frá upphafi
til enda. Leikstjóri: Mikael Crichton. Aðal-
hlutverk: Burt Reynolds, Teresa Russel, Ned
Beatty og Kay Lenz.
Sýnd kl. 7, 9 og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
liaugarásbíó
A-salur
frumsýnir
K-9
I þessari gáskafullu spennu/gamanmynd
leikur James Belushi fikniefnalögguna
Thomas sem ekki lætur sér allt fyrir brjósti
brenna en vinnufélagi hans er lögreglu-
hundurinn Jerry Lee sem hefur sínar eigin
skoðanir.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuð innan 12 ára.
ATH. Nýir stólar í A-sal.
B-salur:
GEGGJAÐIR GRANNAR
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
C-salur:
FLETCH LIFIR
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Regnboginn
KVIKMYNDAHÁTlÐ
i tilefni af komu leikstjórans Jean-Jacques
Annaud þar sem sýndar vefða helstu mynd-
ir hans:
BJÖRNINN
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.15.
KONUR A BARMI TAUGAAFALLS
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.15. -
MÓÐIR FYRIR RÉTTI
Sýnd kl. 5, 9 og 11.15.
SVIKAHRAPPAR
Sýnd kl. 5, 9 og 11.15.
BEINT A SKA
Sýnd kl. 7.
Bönnuð innan 14 ára.
WARLOCK
Sýnd kl. 5. 9 og 11.15.
LEITIN AÐ ELDINUM
Sýnd kl. 7.
GESTABOÐ BABETTU
Sýnd kl. 7.
Stjömubíó
MAGNÚS
Ný gamanmynd eftir Þráin Bertelsson
um lögfræðinginn Magnús og fjölskyldu
hans.
Óvenjuleg mynd um venjulegt fólk.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
ÆVINTÝRI MUNCHHAUSENS
Sýnd kl. 4.45, 6.55, 9.05 og 11.20.
ÞURRKUBLÚÐIN VERÐA
AÐ VERA ÚSKEMMD
og þau þarf aö hreinsa reglulega.
Slitin þurrkublöð margfalda áhættu
i umferðinni.
^JUMFERÐAFt
FACOFACO
FACDFACO
FACO FACQ
LISTINN Á HVERJUM
MÁNUDEGI
Veður
Minnkandi norðan- og norðvestan-
átt, víöa stinningskaldi um norðan-
vert landið í fyrstu. Norðanlands og
vestan verður súld eða rigning en
að mestu þurrt annars staðar. Hiti
3-14 stig.
Akureyrí rigning 7
Egilsstaöir skýjaö 10
Hjaröames skýjað 7
Galtarviti rigning 4
Keflavíkurflugvöllur skúr 7
Kirkjubæjarklausturléttskýjab 8
Raufarhöfn rign/súld 8
Reykjavík léttskýjað 6
Sauöárkrókur alskýjað 5
Vestmannaeyjar súld 6
Útlönd kl. 6 í morgun:
Bergen rigning 10
Helsinki léttskýjað 8
Kaupmannahöfn léttskýjað 15
Osló alskýjað 14
Stokkhólmur skýjað 13
Þórshöfn rigning 10
Algarve þokumóða 19
Amsterdam þokumóða 15
Barcelona rigning 18
Berlín heiðskírt 11
Chicago heiðskírt 19
Feneyjar heiðskírt 13
Frankfurt þokumóða 10
Glasgow skúr 10
Hamborg skýjað 13
London skýjað 12
LosAngeles heiðskírt 18
Lúxemborg skýjað 14
Madrid skýjað 15
Malaga skýjað 22
Mallorca hálfskýjað 22
Montreal léttskýjað 14
New York léttskýjað 20
Nuuk slydda 1'
Orlando heiðskírt 26
París skýjaö 15
Vín alskýjað 14
Vaiencia þrumuveð- 23
ur
Gengið
Gengisskráning nr. 165 -31. ógúst 1989 kl. 9.15
Eining kl. 12.00 Kaup Sala Tollgengi
Dollar 61,140 61,300 58,280
Pund 96,112 96,364 96,570
Kan.dollar 51,957 52,093 49,244
Dönsk kr. 8,0368 8.0578 7,9890
Norsk kr. 8,5750 8.5975 8,4697
Sænsk kr. 9,2468 9,2710 9,0963
Fi. mark 13,8482 13,8845 13.8072
Fra.franki 9,2657 9,2900 9,1736
Belg.franki 1,4929 1,4968 1,4831
Sviss.franki 36,1979 36.2926 36,1202
Holl. gyllini 27,6902 27,7627 27,5302
Vþ. mark 31,2050 31,2867 31,0570
it. lira 0,04349 0,04361 0,04317
Aust.sch. 4,4335 4,4453 4,4123
Port. escudo 0,3739 0,3749 0,3718
Spá.peseti 0,4990 0.5003 0,4953
Jap.yen 0,42304 0,42415 0,4185
Irskt pund 83,294 83,512 82,842
SDR 76.2434 76,4429 74.6689
ECU 64,8451 65.0148 64,4431
Simsvari vegna gengisskráningar 623270.
Fiskmarkaðiniir
Faxamarkaður
30. égúst nldust alls 39,243 tonn.
Magni
Verð í krónum
tonnum Meðal Lægsta Hæsta
Þotskur 11.383 53.31 50,00 56,00
Þotskur, 1-2.n. 3,922 44,47 43,00 47,00
Þorskur, smár 0,164 11,83 11,00 15.00
Ýsa 3,952 74,05 35.00 94,00
Ýsá.und. 0,037 30,00 30,00 30.00
Karfi 6.474 29,77 29,00 30.00
Ufsi 11,079 30,52 15,00 31.50
Steinbitur 1,432 39,70 32,00 40.00
Langa 0,040 31.00 31.00 31,00
Blálanga 0,097 31,00 31,00 31.00
Lúða,stór 0,090 70,00 70,00 70,00
Lúta, smú 0,170 192,56 120,00 215.00
Skarkoli 0,396 37.00 33,00 43,00
Skötuselur 0,007 50,00 50,00 50.00
Fiskmarkaður Hafnarfjarðar
30. égúst soldust ills 145.099 tonn
Karfi 51,679 29,42 25,00 31,50
Ufsi 65,588 32.43 20.00 33,00
Ýsa 14,556 67,71 39.00 120.00
Þorskur 9,667 45,36 32,00 56,00
Langa 1,194 32,85 30,00 35,00
Lúöa 0,287 70,81 70,00 85,00
Koli 0.424 64,01 55.00 65.00
Húfur 0,284 10.00 10,00 10,00
Steinbitur 1,134 57,20 53,00 59,00
Gallur 0,012 220,00 220.00 220.00
Kinnar 0,019 76,00 76,00 76,00
Lúóuhausar 0,033 45,00 45,00 45,00
Á morgun voróur saldur bétafiskur.
Fiskmarkaður
311. ágúst saldust tlls 37,
Suðurnesja
,574 tonn.
Þoiskur 7,947 51,16 30,00 54,50
Ýsa 4,003 72,72 35,00 84,00
Karfi 1,597 33,32 30,00 35,00
Ufsi 19,737 32,26 21,00 33,00
Steinbitur 2,359 47,38 39,50 51,50
Unga 0,412 32,80 15,00 37,50
Lúða 0.655 121,21 30,00 210,00
Skarkoli 0.014 54,00 54,00 54,00
'Keila 0.765 12.89 6,00 14,00
Skata 0,003 40,00 40,00 40.00
Ui 0,032 230.00 230.00 230,00
Humar 0,051 855,51 400,00 999,00