Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1989, Side 38
50
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1989.
Fólk í fréttum
Gissur Páll Gissurarson
Gissur Páll Gissurarspn, tólf ára
Kópavogsbúi, leikur Óliver í sam-
nefndu leikriti sem frumsýnt verður
í Þjóðleikhúsinu í kvöld.
Gissur Páll er fæddur 16. febrúar
1977. Foreldrar hans eru Gissur Sig-
urðsson, fréttamaður á ríkisútvarp-
inu, fæddur 7. desember 1947, og
Þórlaug Ragnarsdóttir, fædd 20. des-
ember 1953. Þau skildu.
Maður Þórlaugar er Þorvarður
Gunnarsson og eru hálíbræður
Gissurar Páls, sammæðra, Gunnar,
fæddur 24. október 1982, og Ragnar,
fæddur 2. nóvember 1984, Þorvarð-
arsynir.
Hálfsystkin Gissurar Páls, sam-
feðra, eru Guðbjörg Gissurardóttir,
ungfrú Reykjavík 1988, Jón Grétar
og Hrafnhildur. Kona Gissurar Sig-
urðssonar er Auður Aðalsteinsdótt-
ir.
Þórlaug, móðir Gissurar Páls, er
dóttir Ragnars Aðalsteinssonar,
kaupmanns í Reykjavík, og Unnar
Ólafsdóttur húsmóður. Þau skildu.
Kona Ragnars er nú Guðrún Guð-
mundsdóttir en maöur Unnar er
Jóhann Jakobsson.
Alsystur Þórlaugar eru Gyða
Ragnarsdóttir, húsmóðir í Reykjvík,
gift Sigurði Jóhannssyni bifvéla-
virkja og Kristín Ragnarsdóttir,
snyrtifræðingur í Reykjavík. Hálf-
systir Þórlaugar, samfeðra, er Krist-
ín Ragnarsdóttir.
Ragnar, faðir Þórlaugar, er sonur
Aðalsteins Guðmundssonar tré-
smiðs og Gyðu Guðmundsdóttur,
sem ættuð var af Snæfellsnesi en
er nú látin. Aðalsteinn var ættaður
úr Stakkadal í Aðalvík og var bóndi
þar áður en hann flutti til Reykj-
víkur 1933.
Unnur, móðir Þórlaugar, er dóttir
Ólafs Dagfinnssonar verkamanns
og Þórlaugar Valdemarsdóttur Þau
eru nú bæði látin. Systur Ólafs Dagf-
innssonar voru Agatha og Sesselja
Guðrún Dagfinnsdætur, fyrri og síð-
ari kona Kristjáns Jóhanns Kristj-
ánssonar, forstjóra Kassagerðar
Reykjavíkur.
Kristján í Kassagerðinni var hálf-
bróðir, sammæðra, Sigurðar Páls-
sonar vígslubiskup, fóður Gissurar,
föður Gissurar Páls og koma íöður-
og móðurætt hansþar saman.
Önnur systkini Olafs Dagfmns-
sonar voru Elías, faðir Alfreðs El-
íassonar, forstjóra Loftleiða, og Stef-
án, faðir Dagfinns flugstjóra og Sigr-
únar, konu Hannesar Hafstein hjá
Slysavamafélaginu en börn þeirra
eru Stefán Jón Hafstein, dagskrár-
gerðarmaður hjá rás 2, og Þórunn
Hafstein, deildarstjóri í mennta-
málaráðuneytinu.
Gissur Sigurðsson, faðir Gissurar
Páls, er sonur Sigurðar Pálssonar
vígslubiskups og Stefaniu Gissurar-
dóttur sem nú em látin.
Systkini Gissurar Sigurðssonar
eru Páll, járnsmiður á Seltjarnar-
nesi, kvæntur Láru Höllu Jóhann-
esdóttur garðyrkjufræðingi; Ólafur,
fréttamaður hjá Sjónvarpinu,
kvæntur Albínu Thordarson arki-
tekt; Ingibjörg, býr í Bandaríkjun-
um, gift R.L. Cordes sölumanni; Ing-
veldur, þroskaþjálfi á Selfossi, gift
Halldóri Helgasyni bókbindara; og
Agatha Sesselja, ljósmóðir á
Blönduósi, gift Jóni Baldri Jónssyni
verslunarmanni.
Sigurður vígslubiskup er sonur
Páls Sigurðssonar, bónda í Hauka-
tungu í Hnappadal, bróður Pálínu,
langömmu Björns Arnórssonar
hagfræðings. Móðir Páls í Hauka-
tungu var Valgerður, systir Páls,
langafa Péturs Sigurgeirssonar
biskups.
Stefanía, móðir Gissurar Sigurös-
sonar, var dóttir Gissurar Gunnars-
sonar, bónda í Byggðarhorni í Flóa,
og Ingibjargar Sigurðardóttur, konu
hans, systur Sigurðar, afa Eggerts
Haukdal alþingismanns.
Annar bróðir Ingibjargar var Þor-
steinn, afi Markúsar Á. Einarssonar
veðurfræðings. Systir Þorsteins er
Ingibjörg Þorsteinsdóttir, móðir
séra Jóns Dalbú Hróbjartssonar.
Amma Ingibjargar Sigurðardóttur
var systir Fihppusar, langafa Ingi-
gerðar, móður Guðrúnar Helgadótt-
ur, forseta Alþingis.
Móðir Ingibjargar var Margrét
Þorsteindóttir, systir Páls, langafa
Markúsar Arnar Antonssonar, og
Þórðar, fóður prestanna Döllu og
Gissur Páll Gissurarson.
Yrsu Þórðardætra.
Margrét Þorsteinsdóttir var dóttir
Þorsteins Stefánssonar, sonar Guð-
ríðar Guðmundsdóttur, dóttur Guð-
mundar Þorsteinssonar á Kóps-
vatni, en frá honum er Kópsvatns-
ættin komin.
Af Kópsvatnsættinni eru m.a.
skákmennirnir Friðrik Ólafsson,
Jóhann Hjartarson, Þröstur Áma-
son, Helgi Ólafsson, Héðinn Stein-
grímsson og Þröstur Þórhallsson og
einnig söngvararnir Guðrún Á.
Símonar, Þuríður Pálsdóttir og Ein-
ar Benediktsson í Sykurmolunum.
Afmæli
Til hamingju með
afmælið 23. september Bjamastöðum, Hvítársíðu. Guðmunda Þórarinsdóttir, Meistaravöllum 29, Reykjavík.
95 ára
Þórdís Símonardóttlr, Suðurkoti, Vatnsleysustrandar- hreppi. Sigurrós Magnúsdóttir, Laufbrekku27, Kópavogi.
85 ára 50 ára
Teitný Guðmundsdóttir, Fehsbraut 2, Hölöahreppi. Sigriður D. Ólafsdóttir, Klébergi 5, Þorlákshöfn. Guðný Jóhannsdóttir, Suðurbraut 2, Hofsósi.
75ára Hólmfríður Sigurðardóttir, Hafnarstræti 45, Akureyri. Guðrún O. Jónsdóttir, Hagamel 8, Reykjavík,
Laufey Sigurðardóttir, Tungustíg 3B, Eskifirði. ísabella Baldursdóttir, Akurgerði 10, Akranesi.
40ára
70ára Skúli Már Sigurðsson, Álftamýri 58, Reykjavík. MatthUdur Kristjánsdóttir, Hraunbæ 144, Reykiavík. Guðjón Þorvaldsson, Marbakkabraut 32, Kópavogi. Páh E. Kristjánsson, Austurbraut 5, Höfn í Homafirði. Sigurður Arnbjörnsson, Reyðarkvísl 2, Reykjavík.
Þórður Páisson, Þorsteinsgötu 13, Borgamesi. Valgerður Stefánsdóttir, Efstaleiti 14, Reykjavík.
60 ára
Guðmundur Jónsson,
Sigurður Einarsson
Sigurður Einarsson trésmiður,
Silungakvísl 8, Reykjavík, er fertug-
urídag.
Sigurður fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp í foreldrahúsum, auk
þess sem hann var í sveit á sumrin
í Mýrdalnum. Hann hóf nám í Iðn-
skólanum í Reykjavík 1965, lauk
sveinsprófi í húsgagnasmíöi 1970 og
sveinsprófi í húsasmíði 1972, en
prófi frá Meistaraskólanum lauk
hannl981.
Sigurður hefur starfað viö tré-
smiðar í Reykjavík síðan hann lauk
iðnnáminu. Hann sat til skamms
tíma í trúnaðarráði Trésmiðafélags
Reykjavíkur. Sigurður hefur verið
mikill áhugamaður um siglingar, en
hann er einn af stofnendum Sigl-
ingaklúbbsins Brokeyjar í Reykja-
vík og sat þar í stjóm í sjö ár, þar
af formaður í tvö ár. Þá starfar hann
með ferðafélaginu Útivist og á sæti
þar í svonefndum kjarna.
Siguröur á þijú böm meö fyrrv.
konu sinni, Hildi Skarphéðinsdótt-
ur, fóstm í Reykjavík. Þau eru Ei-
rún, f. 1971, menntaskólanemi í
Reykjavík; Vaka, f. 1974, nemi, og
Tinna, f. 1979. Auk þess á Siguröur
dóttur frá því fyrir hjónaband, Ásu,
f. 1969, starfsmann hjá Pósti og síma,
í sambýh með Bjama Sigurðssyni
sölumanni, en sonur þeirra er Atli
Þór, f. 1989.
Sigurður á fimm systkini. Þau era
Jón Reynir, f. 1940, múrarameistari
og b. að Steinsmýri í Meðallandi;
Jóhann Þór, f. 1947, veggfóðrara-
meistari í Kópavogi; Sigríður, f.
1951, húsmóðir í Reykjavík; Brand-
ur, f. 1953, stýrimaður í Reykjavík,
og Einar, f. 1955, bílstjóri í Reykja-
vík.
Foreldrar Sigurðar: Einar Jóns-
son frá Reyni í Mýrdal, f. 29.7.1913,
fyrrv. aðalgjaldkeri SÍS í Reykjavík,
og kona hans, Sigrún Þórðardóttir
húsmóðir, f. 24.8.1916, d. 21.1.1982.
Foreldrar Einars voru Jón Ólafs-
son, skólastjóri og sýsluskrifari í
Vík í Mýrdal, og kona hans, Sigríður
Einarsdóttir.
Jón var sonur Ólafs Ólafssonar,
b. að Lækjarbakka í Mýrdal, og
konu hans, Ingibjargar Jónsdóttur
frá Suöur-Götum í Mýrdal, Guð-
mundssonar.
Sigríður var dóttir Einars, b. í
Reyni, Brandssonar, í Reynishjá-
leigu, Einarssonar. Móðir Einars
var Kristín Einarsdóttir, b. og
hreppstjóra í Þórisholti, Jóhanns-
sonar, íoður Gísla, langafa Jóns
Þórs Þórhahssonar, forstjóra
SKÝRR. BróðirKristínar var Jón,
faðir Eldeyjar-Hjalta, afa Hjalta
Geirs Kristjánssonar, forstjóra
Kristján Siggeirsson hf. Annar
bróðir Kristínar var Gunnlaugur
Fossberg, afi Einars Thorlacius for-
stjóra.
Móðir Sigriðar var Sigríður Brynj-
ólfsdóttir frá Litlu-Heiði í Mýrdal,
Guðmundssonar, bróöur Jóns, afa
Erlends Einarssonar, fyrrv. for-
stjóra SÍS. Móðir Brynjólfs var Guö-
rún, systir Helgu, ömmu Þorsteins
Erhngssonar skálds. Guðrún var
dóttir Hallgríms, b. á Neðra-Velh
Brynjólfssonar, og konu hans, Guð-
rúnar Ögmundsdóttur, systur Sæ-
Sigurður Einarsson.
mundar, foður Tómasar Fjölnis-
manns. Guðrún var dóttir Ögmund-
ar, prests á Krossi, Högnasonar og
konu hans, Salvarar Sigurðardótt-
ur, systur Jóns, afa Jóns forseta.
Foreldrar Sigrúnar voru Þórður
Jóhannsson, sjómaöurí Reykjavík,
og seinni kona hans, Jóhanna Sig-
ríður Eiríksdóttir. Móðir Þórðar var
Guðbjörg, systir Eiríks, fóður Jó-
hönnu Sigríðar. Eiríkur og Guð-
björg voru böm Filippusar, b. á
Bjólu í Holtum, Þorsteinssonar, b. í
Kumla, Vigfússonar, lögréttumanns
á Leiðólfsstöðum, Nikulássonar, b.
á Suður-Reykjum í Mosfellssveit,
Jónssonar.
Móðir Fihppussar var Styrgerður
Jónsdóttir, b. í Brekkum í Holtum,
Filippussonar, prests í Kálfholti,
Gunnarssonar. Móðir Eiríks var
Sigríður Jónsdóttir.
Siguröur verður í Þórsmörk um
helgina.
Hólmfríður Sigurðardóttir
Hólmfríður Sigurðardóttir, síma-
vörður á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri, Hafnarstræti 45, Akur-
eyri, er fimmtug í dag.
Hólmfríður fæddist á Akureyri og
ólst upp á Fosshóh í Bárðardal. Hún
hefur starfað hjá Landssímanum,
bæði í Reykjavík og á Akureyri, auk
þess sem hún hefur starfað á
Sjúkrahúsinu á Húsavík og á
Kleppsspítalanum í Reykjavík.
Maður Hólmfríöar er Sigurður
Þórarinsson, gæslumaður á geð-
deild Fjóröungssjúkrahúss Akur-
eyrtu-, f. 16.1.1944, sonur Þórarins
Sigurðssonar og Laufeyjar Bjarna-
dóttur en þau era bæði látin. Sigurð-
ur er einnig píanóleikari en hann
lék um skeið með danshljómsveit-
inni Lúdó sextett og Stefán.
Böm Hólmfríðar og Sigurðar era
Svava Sigurðardóttir, f. 21.8.1971,
og Sif Sigurðardóttir, f. 29.6.1973.
Böm Hólmfríöar frá því fyrir hjóna-
band era Guðbjörg Birgisdóttir, f.
22.7.1958, og Sigurður Lúther Gests-
son, f. 17.1.1970.
Systkini Hólmfríðar, sammæðra,
eru Jóhannes P. Leósson, sem er
látinn; Benedikt Leósson, kvæntur
Ástu Alfreðsdóttur á Akureyri;
Hreiöar Leósson, kvæntur Jónínu
Aðalsteinsdóttur á Dalvík; Ólafur
Leósson, í sambýli með Elsu Ey-
þórsdóttur í Hvergerði; Sólrún
Leósdóttir, ekkja í Keflavík; Leó
Viðar Leósson, í sambýh með Ragn-
heiði Jónsdóttur í Hveragerði; Fríð-
ur Leósdóttir, gift Júlíusi Fossberg
á Akureyri, og Kristján Leósson á
Akranesi.
Foreldrar Hólmfríðar: Sigurður
Lúther Vigfússon, b. og veitinga-
maður á Fosshóli, f. 30.9.1901, d.
13.11.1959,ogGyða Jóhannesdóttir,
f. 14.8.1914.
Stjúpfaðir Hólmfríðar er Leó Guð-
mundsson, f. 24.11.1910.
Hólmfríður verður ekki heima á
afmæhsdaginn.
Hólmfriður Sigurðardóttir.