Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1989, Side 3
FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1989.
3
w Jón Baldvin Hannibalsson játar á sig mistök:
Eg er dauðlegur
maður og breyskur
Jón Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráöherra sagði í gær að veiting-
ar hans á víni á sérkjörum og fyrri
kostnaður fjármálaráðuneytisins til
fertugsafmælis Ingólfs Margeirsson-
ar, ristjóra Alþýðublaðsins, lýstu
dómgreindarskorti og baðst velvirð-
ingar á þessum gjörningi sínum.
Hann sagðist hafa íhugað afsögn
vegna þessa máls.
„Ég hef íhugað afsögn en komist
að þeirri niðurstöðu engu að síður
þegar ég skoða samhengi þessa máls
að til þess séu ekki rök. Og hvers
vegna ekki? í fyrsta lagi vegna þess
að ég er þeirrar skoðunar að hér
hafi ekki verið um að ræða brot á
neinum reglum. í annan stað tel ég
það mér ekki til minnkunar ef ég,
eftir vandlega skoðun á þessu máh,
hreinlega játa að mér hafi orðið á
mistök. Hvað svo sem aðrir kunna
að halda um þær hugmyndir sem ég
geri um sjálfan mig þá er ég ekki
háleitari en svo en ég er dauðlegur
maður og breyskur og mér verða á
mistök. Og þetta voru mistök," sagði
Jón Baldvin.
Hann greiddi Áfengisversluninni
þær 106 vínflöskur sem hann lét taka
út á sínum tíma fyrir reikning fjár-
málaráðuneytisins. Andvirði þeirra
var 74.300 krónur.
Jón sagðist hafa spurt samráð-
herra sína í ríkisstjórn að því í morg-
un hvort þeir sjálfir hefðu haldið ein-
stakhngum úti í bæ veislur. Ólafur
Ragnar Grímsson íjármálaráðherra
hefði viðurkennt að hafa haldið
veislu fyrir Lúðvík Jósepsson, fyrr-
um ráðherra Alþýðubandalagsins,
eins og reyndar hefur komið fram í
DV. Jón sagði að þetta sýndi að veit-
ing hans á víni í veislu Ingólfs væri
ekki einsdæmi.
- En er það sambærilegt að halda
Lúðvík veislu í Ráðherrabústaðnum
og að veita vín í veislu Ingólfs þar
sem allir gestir stóðu í þeirri trú að
Ingólfur einn væri gestgjafi?
„Það sem er sambærilegt er aðalat-
riðið. Það er það að ráðherra bauð
pólitískum samstarfsmanni til
veislu. Svo getum sagt: Var eðhlega
að þessu staðið að því er varðar mitt
tilfehi. Veislan fór fram í félags-
heimili Sjálfstæðisflokksins á Sel-
tjarnarnesi, ritstjórinn sjálfur und-
irbjó þessa veislu að öðru leyti og bar
kostnað af henni. Ef ég er spurður
hvort eðhlega hafi verið að þessu
staðið segi ég; nei, það var ekki eðli-
lega að þessu staðið. Ég viðurkenni
að þetta er aðfinnsluvert en mér
finnst þetta ekki vera aðalatriðið,"
sagði Jón Baldvin.
Fréttir
Risna Jóns Baldvins;
4,2 millj-
ónir á
einu ári
Á rétt tæpu ári hefur Jón Bald-
vin Hannibalsson utanríkisráð-
herra fenglö risnu að andviröi
um 4.251.391 krónur. Þessi risna
hefur verið veitt af ýmsu tilefni í
um 102 tílfehum. Af þessari upp-
hæð eru um 215 þúsund krónur
í tengslum við fundi þingflokks,
flokksráðs eða ráðherra Alþýöu-
flokksins.
Þetta kemur fram í hsta yfir
risnu Jóns Baldvin á tímabihnu
29. september í fyrra og fram að
19. september í ár sem hann lagöi
fram opinberlega í gær.
Á hstanum eru stórar veislur,
hanastélsboð, famennir kvöld-
veröir og veitingar á vinnufund-
um. Jón Baldvin var gestgjafi í
þessum veislum öhum, utan hvaö
Bryndís Schram, eiginkona hans,
gegndi því hlutverki sex sinnum
og Stefán Friöfinnsson, aðstoðar-
maður Jóns, tvívegis.
Sex af þessum tílfehum voru
kvöldverðir á heimili Jóns Bald-
vins og Bryndísar. Algengast var
að veitingar væru veittar í veislu-
sölum ríkisins í Borgartúni en
sextán sinnum var um málsverði
á veitingahúsum að ræða; oftast
á Hótel Holti.
Samanlagður risnukostnaöur
utanríkisráöherra, -ráöuneytis
og varnarmálskrifstofu var á
þessu tfmabih rétt tæpar 9 millj-
ónir eða 8.909.122 krónur.
-gse
-gse
Risnufé ráðherra:
Jón Baldvin spyr hvað hafi tíðkast
Jón Baldvin Hannibalsson utan- boða fyrir þingflokka. Hvort stofii- samstarfsmanna eða hvort ráö- neytisins eða annaö samkomuhald
ríkisráðherra hefur óskað svara anir stjómmálaflokka, flokksþing, herrar hafi látið ráöuneyti sín bera þeirra. Jón spyr einnig hvort að-
Ríkisendurskoöunar og yfirskoð- einstakirkjördæmahópareöagest- kostnaö af eigin afmælum. Hann finnsluvert þyki að ráðherra efiii
unarmanna ríkisreiknings við eU- ir á ráöstefhum flokkanna hafi no- spyr hvort ráðuneyti hafi haldiö til boös í heimahúsum eða veiti
efu tölusettum spurningum um tið veitinga fyrir þetta fé. Þá spyr afinælisveislurfyrirháttsettaemb- morgunverö,kvöldverðeðasnarlá
meðferð ráðherra á risnufé slnu. Jón hvort ráöherrar hafi notað ættismenn eða efiit til boöa vegna vinnufundum með samstarfs-
Jón vfll vita hvort þetta fé hafi ver- risnufé sitt vegna afmæla eða sér- tímamóta á ferh þeirra. Þá spyr Jón mönnum.
iö notað vegna vinnufunda eða stakra tímamóta á ferh póhtískra um árshátíöir starfsmanna ráðu- -gse
FM 102
Brostu út í lífið ... STILLTU Á FM 102,2. Þú sérð ekki eftir því!