Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1989, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1989, Blaðsíða 24
32 FÖSTUÐAGUR 29. SEPTEMBER 1989; VW Golf ’84, fallegur, rauður bíll, svartur/grár að innan, ekinn 75 þús., 2 dekkjagangar, sumar og vetur. Verð 340 þús., góð greiðslukjör. Uppl. í síma 91-17678 milli kl. 16 og 20. Volvo 245 turbo '83 til sölu, einn með öllu, vel með farinn, ath. skipti á ódýr- ari. Uppl. í síma 685355. Mazda 929 ’80, sjálfskipt, keyrð 150 þús. km. Verð 90 þús., skuldabréf. Uppl. í síma 43272. íþróttasalir til leigu v/Gullinbrú. Eigum fáeina tíma lausa á lægra verði um helgar og í hádeginu. Nýtt leigutímab. Við bjóðum tíma fyrir knattspyrnu, handknattleik, blak, badminton, körfubolta, skallatennis o.fl. Gufubað og tækjasaiur fylgja. Einnig hægt að fara í borðtennis og billjard (12 feta nýtt borð) fyrir og eftir æfingat. eða tefla og spila. Upplagður klúbbur fyr- ir starfsfélaga eða kunningjahóp að hittast 1-2 skipti í viku. Uppl. e. hád. í s. 672270. MATREIÐSLA Ábyggileg eldri kona óskast til aö elda kvöldmat 4 daga i viku fyrir 5 karlmenn. Einhver enskukunnátta æskileg. Nánari uppl. gefur Anna í síma 29100. SENDIBILAEIGENDUR Tilboð óskast í akstur fyrir prentsmiðju. Vinnutími aö jafnaði 8 tímar á dag, ca 100 km akstur. Tilboð sendist DV, merkt „Sendibílar 200", fyrir 5. október. Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11 ÐSSTOFAN M, Skólavörðustíg3 Sími26641 September-tilboð. Viltu verða brún(n)? Frábærir bekkir, góðar perur. 1. 34 spegla perur. 2. 2 andlitsljós. 3. Andlitsblástur. 4. Tónlist í öllum bekkjum. 5. Góðar sturtur. 6. Góð þjónusta. Verð: 10 tímar' á kr. 2.300, 20 tímar á kr. 3.950. Við erúm ódýrir, ekki satt? Pantið tíma í síma 26641. Vatnasleöa- og skíðaleiga Svínavatni, Grímsnesi. Sími 98-64436. Magnús. Þjónusta Tökum að okkur alla almenna gröfu- vinnu, allan sólarhringinn. Uppl. í sima 75576 og hs. 985-31030. Líkamsrækt GERÐUBERG: Mánud. EnskaI Enska II Saumar kl. 18.40-20.05 kl. 20.10-21.40 kl. 18.40-21.40 Þriðjud. Enskalll kl. 18.40-20.05, fullt EnskalV kl. 20.10-21.40 Miðvikud. Enskall Enska III kl. 18.40-20.05 kl. 20.10-21.40 Fimmtud. Þýska I Þýska II kl. 19.25-20.50 kl. 20.00-22.20 Spænska II kl. 18.40-20.05 Spænskal kl. 20.10-21.40 ARBÆJARSKOLI: Mánud. Miðvikud. Enska II EnskaI Þýska IV Þýska III Þýska II kl. 18.00-19.20 kl. 19.25-20.50 kl. 18.00-19.20 kl. 19.20-20.50 kl. 21.00-22.50 LAUGALÆKJARSKOLI: Mánud. Sænskal kl. 19.20-20.50 Sænska II kl. 21.00-22.20 Þriðjud. Sænska III kl. 19.25-20.50 Sænska IV kl. 21.00-22.20 Vélritun kl. 20.10-22.20 Miðvikud. Enskal kl. 19.25-20.50 Enskall kl. 21.00-22.20 Bókfærsla kl. 19.30-21.40 Verð: 24 st. flokkar kr. 3.800, 33 st. flokkar kr. 5.700, 48 st. flokkar kr. 7.600, kennslugögn ekki innifalin. INNRITUN á skrifstofu Námsflokka Reykjavíkur, Frí- kirkjuvegi 1, kl. 13-21. Sími 12992 og 14106. Kennsla hefst 2. okt. nk. íþróttagrindur, tvær stærðir, sendum í póstkröfu um land allt. Húsgagna- vinnustofa Guðmundar Ó. Eggerts- sonar, Heiðargerði 76, sími 91-35653. IUMFERÐAR Práð Sími: 694155 Við biðjum um hálfan dag úr lífi þínu Enn eru fatlaðir komnir á kreik. Enn snúa fatlaðir sér til þjóðarinn- ar. En í þetta skiptið erum við ekki að biðja um peninga almennings. Núna er verið að biðja um stuðn- ing þjóðarinnar. Stuðning almenn- ings, stuðning þinn - lesandi - og fjölskyldu þinnar til að koma með okkur í þrýstiaögerðir hinn 13. okt- óber. Þessar aðgerðir beinast að einum afmörkuðum þætti í málum fatl- aðra. Það er verið að reyna að knýja stjómvöld til þess að fúil- nægja algerum frumþörfum mikið fatlaðs fólks. Til að gera áætlun um að mikið fatlað fólk, sem býr við alls ófullnæjgandi aðstæður, geti fengið húsaskjól og umönnun. Kjállariim Hrafn Sæmundsson atvinnumálafulltrúi „Þetta er verkefni sem öll þjóðin verður að leysa með Qármagni úr sameiginleg- um sjóði.“ Ekkert athugavert? Nú kann einhver að spyija: Er ekki búið að safna í sjónvarpinu? Það er von að fólkið spyrji- En frnnst engum neitt athugavert við það að fatlaðir þurfi að ganga út á götuna með betlistaf til að nokkrir þeirra fái hugsanlega „við- unandi” aðstæður til að lifa eðli- legu lífi. Finnst engum neitt athugavert við það að stór hópur þingmanna skuli sitja í sjónvarpssal og safna peningum gegnum síma til þess að félagar mínir í Sjálfsbjörg brenni ekki inni í Sjálfsbjargarhúsinu? Þetta ágæta fólk hlýtur að hafa betri aðstöðu á sínum vinnustað til að vinna að þessum hlutum. Finnst engum neitt athugavert við það að fómarlömb umferðar- slysanna skuh þurfa að safna með- al þjóðarinnar til að nokkrir þeirra geti lifað eðlilegu lífi? Það vakna margar spumingar um stöðu velferðarþjóðfélagsins í sambandi við þetta. Það vakna spumingar um það hvort það sé raunverulega vilji þjóðarinnar að frumþarfir fatlaðra séu ekki á lista yfir þau verkefni sem símafólkið í sjónvarpinu sem- ur á sínum vinnustað niðri við Austurvöll. Það vakna spumingar um það hvort það sé vilji þjóðarinnar aö handboltahöliin upp á milljarð, viðgerð á gömlum húsum upp á tvo milljarða, jarðgöng undir Hvalfjörð fyrir milljarða og svo allt hitt hafi forgang, öll gæluverkefnin sem símafólkið og kollegar þess telja mikilvægast að gera áætlanir um í „kreppunni”. Neyöarástand Það er til að knýja á um svar við þessum spumingum sem heildar- samtök fatlaðra standa nú - fjórða árið í röð - fyrir stórum aðgerðum til að reyna að ná eyrum stjóm- valda, brjótast inn í fílabeinstum- inn. Það er þess vegna sem við biðjum þig - lesandi - og fjölskyldu þína að lána okkur hálfan dag, fóstudag- inn 13. október næstkomandi, til að koma upp á Hlemm og labba með okkur niður á Alþingi eina ferðina enn. Og hvað ætlum við að biðja um? Við setjum í brennidepil neyðar- ástand mikið fatlaðs fólks sem býr við algerlega óviðunandi aðstæður í húsnæðismálum. Við ætlum að krefjast þess að þessu neyðarástandi verði úfrýmt. Ekki í gegnum síma í sjónvarpinu heldur gegnum lagasetningu á hin- um vinnustaðunum við Austur- völhnn. Við tökum þetta eina mál fyrir núna. Á þeim neyðarbiðlistum, sem samtök fatlaðra hafa látiö vinna í svæðisstjómum í átta kjör- dæmum landsins, eru nú rúmlega hundrað fatlaðir einstaklingar sem ekki geta með nokkra móti full- nægt frumþörfum sínum um hús- næði og umönnun. (Og takið eftir því að þetta eru bara skilgreindir neyðarbiðlistar. Nokkur hundruð annarra fatlaðra einstaklinga eru á biðlistum eftir húsnæði hjá Ör- yrkjabandalagi íslands, sveitarfé- lögvmum og svæðisstjómunum.) Ekki högg á vatni Við viijum láta - hér og nú - gera áætlun um að þvo þennan smánar- blett af velferðarþjóðfélaginu. Því miður virðist þetta ekki vera sjáif- sagður hlutur. Þetta mál veröur ekki leyst nema í gegnum lagasetningu á Alþingi. Þó að allir alþingismenn legðust í símann eða gengju um götur með betlistaf þá sæi ekki högg á vatni. Þetta er verkefni sem öll þjóðin verður að leysa með fjármagni úr sameiginlegum sjóði. Og Alþingi er umboðsaðih þjóð- arinnar. Alþingi verður að setja þessar frumþarfir í forgangsröð. Við ætlum að minna Alþingi og stjómvöld á þetta á degi fatlaðra hinn 13. október. Við biðjum um hðsinni þitt - les- andi - og þinnar fjölskyldu. Við biðjum þig um hálfan dag í skammdeginu til að labba með okk- ur frá Hlemmi og niður á Austur- vöh. Kannski munar ykkur ekki mikið um þetta viðvik. Okkur munar hins vegar mjög mikið um það. Stuðningur almenn- ings getur skipt sköpum. Hrafn Sæmundsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.