Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1989, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1989, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1989. 7 Háttverðá erleiidum __U-J_m___ lOTKUOU Nú era að rætast þeir spádómar, sem menn vora aö gæla við í vor, að með haustinu mundi fiskverð hækka, ekki sist vegna þess að enskir fiskímenn fengust ekki tii að draga úr veiðunum og geyraa tU haustsins hluta af kvótanum. Að undanfomu hefur verð stund- um fariö upp úr öllum skörðum, ef svo má segja. Bv. Páll ÁR seldi afla sinn í Huli 21. sept. 1989, alls 72 tonn, fyrir 8,1 millj. kr., meðalverð 112,61 kr. kg. Þorskurinn seldist á 141,19 kr. kg, ýsa 119,47 kr. kg, koli 77,74 kr. kg og blandaður flatfiskur 111,85 kr. kg. Bv. Otto Wathne seldi afla sinn i Grimsby 22.9. 1989, alls 55 lestir, fyrir6,8mi]J3. kr.,meðalverö 125,40. Þorskur seldist á 130,31 kr. kg, ýsa á 142,59 kr. kg, grálúða á 108,73 kr. kg, koli 117,43 kr. kg, karfi 58,71 kr. kg, ufsi 80,61 kr. kg og blandaður flatfiskur 137,79 kr. kg. Bv. StakfeU ÞH seldi afla sinn í Hull 26.9. 1989, alls 93 lestir, fyrir 12,5 millj. kr. Þorskur seldist á 135 kr. kg, ýsa 143,04 kr. kg, ufsi 70,75 kr. kg, karfi 69,29 kr. kg, koli 113,85 kr. kg og blandaöur flatfiskur 149,53 kr. kg. Mánudaginn 25. september voru seldar úr gámum alls 135 lestir og var meðalverð á þorski 135 kr. kg. Nokkur kg seldust fyrir mjög hátt verð eða 200 kr. kg, ýsan seldist á 161,60 en af henni voru aðeins 19 tonn. > Þýskaland Bv. Vigri seldi afla sinn í Bremer- haven 18.-19. sept. 1989, alls 260 lestir. Af heildaraflanum voru 208 tonn af karfa og 39 tonn af ufsa, 6 tonn þorskur og 5 tonn af blöndúö- um flatfiski. Þorskur seldist á 112,43 kr. kg, ufsi 62,30 kr. kg, karfi 75.26 kr. kg og blandaður flatflskur 75,02 kr. kg. Meöalverð 74,17 kr. kg. Heildarsala 19,391 millj. kr. Bv. Bíjörgúifur EA seldi í Bremer- haven 20.9.1989 alis 182 lestir fyrir 10,244 millj. kr. Þorskur seldist á 95.26 kr. kg og karfi 64,21 kr. kg. Bv. Ólafur bekkur seldi afla sinn í Bremerhaven 21.-22. sept. 1989, alls 163,8 tonn, fyrir 11,1 raillj. kr., meðalverö 67,80. Þorskur seldist á 95,41 kr. kg, karfi 70,38 kr. kg, ufsi 69,67 kr. kg og grálúða 90,66 kr. kg. Bv. Viðey seldi í Bremerhaven alls 283 tonn fyrir 18,8 miHj. kr., meðalverö 66,55 kr. kg. Þorskur fór á 117,80 kr. kg, ýsa á 80,85 kr. kg, blandaöur flatfiskur 82,45 kr. kg og annað á lægra veröi. Bv. Glófaxi seldi í Bremerhaven 26.9. 1989 alls 59 lestir fyrir 4,380 miUj. kr., meðalverð 73,45 kr. kg. Þorskur seldist á 102,64 kr. kg, ýsa 86,36 kr. kg, ufsi 69,79 kr. kg, karfi 83,75 kr. kg og blandaður flatfiskur 66,61 kr. kg. Bv. Hjalteyri EA seldi í Bremer- haven alls 112,3 tonn fyri 5,7 miflj. kr. 50 lestir reyndust ósöluhæfar en verð á þvf sem seldist var að meðaltali 93 kr. kg. Ingólfur Stefánsson Þama sýnist mér að mismunur á þvi að allur aflinn seldist og væri i fyrsta flokks lagi gæti verið á milli 4 og 5 miOj. kr. Þetta er óskilj- anlegt að koma með svo mikinn hluta aflans ónýtan að landi. Samvinna Sovétríkjanna og Vestur-Þýskalands Bremerhaven hefur aukiö hlut- deild sína í lönduðum afla í Vest- ur-Þýskalandi í 68,2% á fyrri hluta þessa árs, þrátt fyrir að löndunum hafa fækkað. Á fyrri hluta árs 1988 var landaö- ur afli alls 23.912 tonn en var aðeins 22.913 tonn fyrri hluta þessa árs, eða um 1000 tonnum minni Hlutur erlendra skipa jókst úr 14.667 tonn- um í 15.828 tonn, þar af er hlutur íslendinga 65% í afla af skipum og úr gámum (úr gámum 3.364 tonn). Afli þýskra skipa minnkar árlega og var afli þeirra 7.086 tonn fyrri hluta ársins, sem er 31% af lönduö- um afla í ár, en var 40% á síöasta ári (9400 tonn), 1988. í Cuxhaven var landaö af heima- skipum alls 5.936 tonnum en 3,361 tonni árið 1988. Landanir f öllum þýskum höfhum jukust fýrri hluta þessa árs um ll % og var 98.091 tonn á móti 80.415 árið 1988. Sérstaka athygli vekur hin mikla aukning á neyslu frystra afurða. Áriö 1988 var innflutningur 13.188 tonn fyrri hluta ársins en var í ár á sama tíma 31.416 tonn. í Bremer- haven jókst innflutningur á frosn* um flskl úr 5.506 tonnum í 17.973 lestir. Svo virðist sem stórbygging- in, sem verið er að reisa í Bremer- haven, hafl haft mikil áhrif á land- anir og vinnslu flsks í „Tufhullz- sentrum". í Cuxhaven er aukning á sama tíma úr 7.668 tonnum í 13.479 tonn. Um mitt næsta ár verö- ur hin mikla fiskmiðstöð fullbúin og verður hún stærsta birgðastöð fyrir frosnar afurðir í Evrópu. SLH hefur aðsetur þama og EMF sam- steypan einnig. EMF samsteypan hefur gert sam- komulag um samvinnu í flskrétta- framleiðslu viö Rússa og ætiar hún sér stóran hlut á sambandi við þá. Stytt og endursagt. Úr Fiskaren 15. sept. 1989. Sjálfstæðismenn: Vilja endurreisa sjúkrasamlögin í drögum aö ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins um heilbrigðis- mál er gert ráð fyrir að sjúkrasam- lagakerfið verði endurvakið. Fólk greiddi þá í sjúkrasamlög og fengi með því rétt á heilbrigðisþjónustu. Það fengi síðan reikninga með raun- virði þjónustunar í hendurnar en fengi hluta af reikningunum endur- greidda í sjúkrasamlaginu. í drögunum er gert ráð fyrir að greiðslur einstaklinga til almanna- trygginga verði að hluta til lágt grunngjald en að hluta til tekjutengt gjald sem gæti komið í stað núgild- andi tekjuskatts. Hlutur sjúklinga í greiðslu fyrir heilbrigðisþjónustu yrði síöan ákveðinn eftir aðstæðum viðkomandi. Þannig fengju aldraðir, öryrkjar og böm hærri hluta kostn- aðarins endurgreiddan, en þó alltaf þannig að sjúklingamir geti áttað sig á heildarkostnaðinum. -gse _______________________________________________Fréttir Kapphlaup um sameiginlegt framboð 1 Reykjavik: Birting er að troða sér fram - segir Siguijón Pétursson borgarfulltrúi „Fulltrúar þessara flokka hafa ver- ið í góðu samstarfi og þar hefur þetta nýja félag hvergi komið nálægt. Þetta ber frekar keim af því að þeir séu að troða sér inn í mál sem þeir halda að sé gott og er í hinu besta lagi,“ sagði Sigurjón Pétursson, borgarfull- trúi Alþýðubandalagsins, en nú virð- ist vera hafið mikið kapphlaup á milli Birtingar og Alþýðubandalags- félags Reykjavíkur um frumkvæðið í sameiningarmálum minnihluta- flokkanna fyrir sveitarstjómarkosn- ingar. Birtingarmenn hafa tekið frum- kvæði í viðræðum og þegar haldið fund með borgarmálaráði Alþýðu- flokksins og Framsóknarflokksins. Á þriðjudaginn í næstu viku er síðan ætlunin að ræða við Kvennalistann. Fundurinn við Alþýðuflokkinn mun hafa verið árangursríkur og eins og einn fundarmanna kallaði það þá „.. fór fundurinn fram úr björtustu vonum“. Alþýöubandalagsfélag Reykjavík- ur er þó ekki af baki dottið því að á miðvikudaginn eftir viku er ætlunin að halda opinn fund þar sem fulltrú- ar allra flokka hittast. En hvað gerist ef Birtingarmenn verða komnir með samkomulag áð- ur? „Ef Birtingarfólkið kemur með viðunandi samkomulag verður því að sjálfsögðu vel tekið,“ sagði Stef- anía Traustadóttir, formaöur Al- þýðubandalagsfélags Reykjavíkur. Sigurjón Pétursson var hins vegar heldur óhressari með aðgerðir Birt- ingarmanna, eins og að framan greinir, en Sigurjón taldi þær fremur tilgangslausar. „Ég fæ nú ekki séð hvað þeir eiga að geta gert en sam- starf minnihlutaflokkanna hefur verið gott á þessu kjörtímáhili." Sigurjón sagöi aö niðurstaða yröi aö fást í þessum framboösmálum innan skamms en fljótlega munu flokkarnir fara aö raða inn á fram- boðslista sína. -SMJ binbrot í Grundarfirði: milljónir var um viðskiptanótur vegna olíu- sölu. Ragnar Kristjánsson, umboðs- maður Olíufélagsins, telur góðar lík- ur á að honum takist að innheimta mest af skuldunum þrátt fyrir þjófn- aðinn. Sumar nóturnar voru til í tví- riti og eins hafa skuldarar gert upp við Ragnar þrátt fyrir að nóturnar séu á bak og burt. Um 150 þúsund krónur í peningum vora í skápnum, auk tékka og greiðslukortanóta. Það var aöfaranótt mánudagsins í síðustu viku sem brotist var inn. Auk þess að taka peningaskápinn var sígarettum, skiptimynt og fleiri verð- mætum stolið. Ragnar Kristjánsson sagði að að- koman hafi verið ljót morguninn eft- ir innbrotið. Hurðir og fleira var skemmt og búið aö róta í vamingi verslunarinnar. „Ég hef verið mjög passasamur og hef reynt að forðast að geyma verð- mæti í versluninni - en svona getur farið,“ sagði Ragnar Kristjánsson. Lögreglan á Snæfellsnesi vinnur að rannsókn málsins. -sme AUGLÝSING UMINNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKlRTBNA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00 1980-2. fl. 25.10.89-25.10.90 kr. 1.853,12 1981-2. fl. 15.10.89-15.10.90 kr. 1.151,68 1982-2. fl. 01.10.89-01.10.90 kr. 795,49 1987-2.fl.D2ár 10.10.89 kr. 180,54 *lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs ferfram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, september 1989 SEÐLAB ANKIÍSLANDS Verðmæti þýfisins Brotist var inn í bensínafgreiðsl- una í Grundarfirði og meðal annars var þungum peningaskáp stolið. í skápnum voru mikil verðmæti. Mest Bensínafgreiðslan í Grundarfirði, þar sem milljóna verðmætum var stolið. Húsið, sem sést til hægri á myndinni, er lögreglustöðin. Nálægðin viö lög- reglustööina virðist ekki hafa dregið kjark úr þeim sem brutust inn. DV-mynd S

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.