Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1989, Side 28
36
FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1989.
Andlát
Bjargey Guðjónsdóttir, Langholts-
vegi 71, lést að kvöldi 27. september.
Friðrik Karlsson, framkvæmdastjóri
Domus Medica, lést aðfaranótt 28.
september.
Sigfus Bjarnason sjómaður, fyrrv.
skrifstofustjóri Sjómannafélags
Reykjavíkur, Sjafnargötu 10, Reykja-
vík, andaðist í Landspítalanum að-
faranótt fimmtudagsins 28. septemb
er.
Stefán Magnússon, Skipholti 9,
Reykjavík, lést í gjörgæsludeild
Borgarspítalans miðvikudaginn 27.
september.
Sigurður Sigurbjörnsson, Hvassaleiti
16, lést í Vífilsstaðaspítala miðviku-
daginn 27. september.
' Margrét Magnúsdóttir, dvalarheim-
ilinu Hlið, Akureyri, andaðist 27.
september.
Jarðarfarir
Útför Ragnheiðar Bogadóttur Thor-
arensen fer fram laugardaginn 30.
september kl. 13.30 frá Selfosskirkju.
Benedikt Stefánsson frá Merki, Jök-
uldal, sem andaðist 16. september,
verður jarðsunginn frá Egilsstaða-
kirkju laugardaginn 30. september
kl. 14.
Hallbjörn Jónas Heiðmundsson,
Holtsgötu 8, Sandgerði, verður jarð-
sunginn frá Hvalsneskirkju laugar-
daginn 30. september kl. 14.
Guðni A. Hermansen verður jarð-
sunginn frá Landakirkju laugardag-
inn 30. september kl. 14.
Sigríður Hauksdóttir, Lágholti 15,
Mosfellsbæ, er lést á Reykjalundi 23.
september, verður jarðsungin frá
Lágafellskirkju laugardaginn 30.
september kl. 14.
Kristín B. Nóadóttir, Bjamarstíg 9,
verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju mánudaginn 2. október kl.
13.30.
Sigurjón Guðjónsson, Hólagötu 10,
• Vestmannaeyjum, verður jarðsung-
inn frá Landakirkju laugardaghm 30.
september kl. 11.
Guðmunda Haraldsdóttir, Sandhól-
um í Bitrufirði, lést þann 19. sept-
ember. Hún var fædd í Reykjavík 31.
ágúst 1928, dóttir hjónanna Ólafíu
Samúelsdóttur og Haralds Guðjóns-
sonar. Hún gifdst eftirlifandi eigin-
manni sínum, Kjartani Ólafssyni frá
Þórustöðum í Bitrufirði, og stofnuðu
þau nýbýlið Sandhóla 1952 og bjó hún
þar til dauðadags. Þau eignuðust
fjögur böm, en misstu einn son af
slysförum 1978. Útför Guðmundu
verður gerð frá Fossvogskapellu í
dag kl. 13.30.
Sesselja Sigurðardóttir lést 19. sept-
ember. Hún fæddist 30. júní 1916 á
Krossi í Lundarreykjadal og vom
foreldrar hennar Sigurður Jónsson
og Halldóra Jóelsdóttir. Eftirlifandi
eiginmaður hennar er Jóhann Valdi-
marsspn. Þau hjónin eignuðust fjóra
syni. Útför Sesselju verður gerð frá
Bústaðakirkju í dag kl. 13.30.
Hildigunnur Ásgeirsdóttir, Ólafs-
firði, lést 20. september. Hún fæddist
í Ólafsfirði 23. apríl 1927, dóttir hjón-
anna Gmmlaugar Gunnlaugsdóttur
' og Ásgeirs Frímannssonar. Eftirlif-
! andi eiginmaður hennar er Ingólfur
Baldvinsson. Þau hjónin eignuðust
5 fimmböm.ÚtförHfidiguimarverður
j gerð frá Ólafsfjaröarkirkju í dag kl.
I 14.
\ Margrét Simonardóttir lést 15. sept-
’ ember. Hún fæddist 9. nóvember 1896
á Miklabæ í Óslandshlíð í Skaga-
■ firði. Foreldrar hennar vom hjónin
Anna Bjömsdóttir og Símon Bjöms-
son. Eftirlifandi eiginmaður Margr-
' étar er Baldur Steingrímsson. Þau
hjónin eignuðust tvo syni. Útför
Margrétar verður gerð ffá Fossvogs-
kirkju í dag kl. 15.
THkyimingar
Tímaritið Gangleri
komið út
Tímaritið Gangleri, síðara hefti 63. ár-
gangs, er komið út. Það flytur greinar
um andleg og heimspekileg mál og alls
eru 16 greinar í þessu hefti auk smáefn-
is. Helstu titlar eru: Hönnun í þágu móð-
ur jarðar, Eldganga og fleiri píslir, Mú-
hamed og íslam, Trú og mystík, Heildar-
uppbygging mannsins, Rödd þagnarinn-
ar, Að snúa til upphafsins og Undarlegir
atburðir úr eigin lífi. Efnið er eftir inn-
lenda og erlenda höfunda. Gangleri er
ávallt 96 bls. og kemur út tvisvar á ári.
Áskriftargjald er kr. 830. Simi 39573, eftir
kl. 17.
Tissa Weerasingha talar
í Bústaðakirkju
Tissa Weerasingha ffá Sri Lanka talar á
samkommn í Bústaðakirkju, 2.-7. októb-
er kl. 20.30 hvert kvöld. Hann mun m.a.
fjalla um austræn trúarbrögð og áhrif
þeirra á Vesturlöndum; kraft guös og
lækningamátt. Þá verður fyrirbænaþjón-
usta, beðið fyrir sjúkum og líðandi. Fjöldi
söngfólks úr hinum ýmsu kristnu söfii-
uðum borgarinnar tekur þátt í samkom-
unum. Allir eru hjartanlega velkomnir
meðan húsrúm leyfir. Tissa Weerasingha
þjónar Calvary kirkjunni í Columbo,
sóknarböm hans koma jafnt úr röðum
singala og tamila. Auk þess er hann eft-
irsóttur predikari og ferðast víða um
heim í þeim erindum. Starfshópurinn
„Öll sem eitt" hefúr undirbúið heimsókn
Tissa en að hópnum stendur fólk úr
kristnum kirkjum á höfuðborgarsvæð-
inu.
AÐ
VERÐA
FULLORÐINN
Að verða fullorðinn
Námsgagnastofnun vekur athygh á
námsefninu Að verða fullorðinn sem
ætlað er nemendum sem af ýmsum
ástæðum geta ekki notað almennt náms-
efni, t.d. vegna takmarkaðs málskilnings,
lestrarerfiðleika og fl. Nemendabók ber
uppi námsefnið en henni fylgja hljóðbók
(nemendabók) og kennarabók með glær-
um. Nemendabókin er skrifuð á einföldu
og skýru máU og í henni er fjölbreytt
myndefni til stuðnings textanum. Hún
skiptist í níu meginkafla. Höfundar eru
sérkennaramir Fjölnir Ásbjömsson og
Sylvía Guðmundsdóttir sem ásamt Auði
Hrólfsdóttur sérkennara tók einnig sam-
an kennarabókina. Búi Kristjánsson
teiknaði myndimar. Bókin er 78 bls. í
brotinu A4.
Fundir
Kvenfélag Háteigssóknar
heldur sinn iyrsta fúnd þriðjudaginn 3.
október kl. 20.30 í Sjómannaskólanum.
Miyako Þórðarson, prestur heyrnarleys-
ingja, kemur og segir frá ferð til Japans.
Rætt verður um vetrarstarfið og kaffi
drukkið. AUar konur í sókninni vel-
komnar.
Kvennadeild Breiðfirðingafé-
lagsins
Fyrsti fundur kvennadeildarinnar á
þessu starfsári verður haldinn mánudag-
inn 2. október kl. 20.30 í safhaðarheimili
Bústaðakirkju.
Tónleikar
Blásarakvintett Reykja-
víkur meðtónleika
Þriðjudaginn 3. október nk. kl. 20.30 held-
ur Blásarakvintett Reykjavikur tónleika
í Norræna húsinu. Á efiiisskránni er
kvintett op. 43 eftir Carl Nielsen, Sex
Bagatellur og Tíu þættir fyrir blásarak-
vintett eftir György Ligeti og Sextett í
F-dúr op. 36 eftir Hermann D. Koppel
fyrir píanó og blásarakvintett en þar
kemur David Knowles til liðs við Blásar-
akvintettinn. Þetta er niunda starfsár
Blásarakvintettsins. Að loknum þessum
tónleikum halda þeir félagar í tónleikaför
til Danmerkur. Frá upphafi hefur Blásar-
akvintett Reykjavikur verið skipaður
sömu mönnum en þeir eru Bemharður
Wilkinson flautuleikari, Daði Kolbeins-
son óbóleikari, Einar Jóhannesson klari-
nettuleikari, Joseph Ognibene homleik-
ari og Hafsteinn Guðmundsson fagott-
leikari.
Bubbi Mortens með
tónleika í Firðinum
Bubbi Mortens heldur tónleika í veitinga-
húsinu Firðinum í kvöld. Nú fer hver að
verða síðastur til að hlusta á og sjá Bubba
þar sem hann er að fara utan.
Nýjungar í safnaðarstarfinu
á Seltjarnarnesi
Vetrarstarf hinnar nývígðu kirkju á Sel-
tjamamesi hefst þann 1. október. Aukin
fjölbreytni verður í starfinu og ýmsar
breytingar fiá fyrra vetri. Fyrst ber að
nefna að messutíma verður breytt á þann
veg aö bamaguðsþjónustur og almennar
messur verða á sama tíma í kirkjunni.
Öll fiölskyldan safiiast saman í kirkju-
skipinu í upphafi messu en þegar predik-
un hefst fara bömin niður á neðri hæð
og fá sunnudagspóstinn og fræðslu við
sitt hæfi, auk þess sem þar verður léttur
söngur. Þann 29. október, 5., 12. og 19.
nóvember munu verða fyrirlestrar eftir
messu í safnaðarheimili kirkjunnar á
neðri hæð. Fyrirlestrana flytur dr. Sigur-
bjöm Einarsson biskup. Umræður munu
verða eftir hvem fyrirlestur. Önnur nýj-
ung sem bryddað verður upp á í vetur
er opið hús fyrir foreldra ungra bama.
Verður það síðdegis á fimmtudögum kl.
14-17. Ungt fólk með hlutverk hefur síðan
í ágústmánuði verið með samkomur í
kirkjunni og mun svo verða áfram í vetur
annað hvert fimmtudagskvöld. Þar er
lögð áhersla á léttan söng, vitnisburði og
fyrirbænir. Auk þessara nýjunga hófust
fermingarstörfin nú í september, æsku-
lýðsfélagið mun starfa áfram á mánu-
dagskvöldum og opið hús verður fyrir
10-12 ára böm á þriðjudögum kl. 17.30-19.
Með svo fjölbreyttu safnaðarstarfi vonast
kirkjan á Seltjamamesi til þess að fólk á
öllum aldri geti leitað til kirkju sinnar á
helgum dögum jafnt sem rúmhelgum.
Þannig á kirkjan að vera vettvangur fólks
sem finnur sig heima í kirkjunni og sæk-
ir uppbyggingu sína í messu sunnudags-
ins.
Fréttir
Landbúnaðarstefna Sjálfstæðisflokksins fyrir landsfund:
Lagst gegn inn-
flutningi búvara
í drögum að stefnuyfirlýsingu
Sjálfstæðisflokksins í landbúnaðar-
málum, sem lögð verður fyrir lands-
fund flokksins í næstu viku, er ekki
opnað fyrir innflutning á landbúnað-
arafurðum fyrr en innlendir fram-
leiðendur sitja við sama borð og er-
lendir framleiðendur landbúnaðar-
afurða. Þeir Pálmi Jónsson alþingis-
maður óg Friðrik Sophusson, vara-
formaður flokksins, sem sæti áttu í
nefndinni er samdi drögin, eru sam-
mála um þetta.
í stefnuyfirlýsingunni er höfuð-
áhersla lögð á að ná niður vöruverði
landbúnaðarafurða og jafnvægi í
framleiðslunni. Tíundað er með
hvaða hætti þetta skuli gert.
Síðan segir að möguleiki til inn-
flutnings á landbúnaðarafurðum
opnist þegar innlendir framleiðend-
ur sitji við sama borð og framleiðend-
ur í öðrum löndum.
„Allt tal um innflutning á land-
búnaðarafurðum er út af borðinu þar
til jafnvægi hefur náðst og íslenskir
framleiðendur sitja við sama borð og
erlendir," sagði Friðrik Sophusson.
Pálmi Jónsson tók undir það
Þá voru þeir sammála um að nýjum
búvörusamningi væri ekki hafnaö í
stefnuyfirlýsingunni. í henni sé ýjað
að nýjum samningi eða framleng-
ingu þess sem nú er í gUdi. Hins veg-
ar sé ekki tekið undir það að gera
búvörusamning til aldamóta eins og
bændasamtökin hafa lagt til.
-S.dór
Athugasemd:
Svampurinn heldur velli
í grein um rúmdýnur í aukablaði
DV síðasthðinn miðvikudag var
ranglega fuilyrt að svampefni væri
á undanhaldi sem hráefni í rúm-
dýnur. Hið rétta er að svampur
heldur sínum hlut á markaðnum
og vel það. Fyrirtækið Selsvör sf.
hefur framleitt íslenskan svamp
frá árinu 1950; fyrst latex-svamp
og síðan plastsvamp frá árinu 1968.
í fyrmefndri grein er einnig sagt
að latex-svampur hafi nú komið í
stað plastsvampsins vegna ýmissa
kosta sem hann hafi umfram plast-
svampinn. Hið rétta er að latex-
svampurinn vék fyrir plastsvampi
á sjötta áratugnum vegna gífur-
legra veröhækkana á hráefnum og
tilkomu polyethersvamps. Polyet-
hersvampurinn var ódýrari, flöl-
breyttari að eiginleikum, endingar-
betri og flölhæfari en latexsvamp-
urinn. Fjölbreytileiki svamps hefur
oft orðið til þess að neytendur hafa
verið blekktir og á þann hátt að
svampur, sem ekki er ætlaður til
nota sem dýnusvampur, hefur ver-
ið seldur sem slíkur. Erfitt er fyrir
leikmann að dæma um eðliseigin-
leika svampsins sem honum er
boðinn.
Eins og öllum er kunnugt eru
hollustumál ofarlega á baugi í þjóð-
félaginu og er það vel. Hins vegar
verður fólk að gæta þess að alhæfa
ekki, þannig að það sé sjáifgefið að
allt sem upprunnið er í náttúrunni
sé hollara en sambærilegur hlutur
úr gerviefm. Þetta er nefnt hér til
þess aö leiðrétta þann útbreidda
misskilning að rúmdýnur úr latex-
svampi séu heilsudýnur en dýnur
úr polyetersvampi séu bara venju-
legar rúmdýnur. Staðreyndin er
nefnilega sú að flestir virtustu
heilsurúmsframleiðendur velja
einmitt polyetersvampinn vegna
eiginleika hans. Hér má nefna fyr-
irtæki eins og Lattoflex í Sviss og
Regumatic í Belgíu.
Einnig má benda á rannsóknir
sem gerðar hafa verið af hlutlaus-
um aðila sem staðfesta yfirburði
polyetersvampsins hvað varðar
endingu, hollustu og fjöðrunareig-
inleika.
Af framansögðu má sjá að ekki
er alit sem sýnist þegar velja á góða
rúmdýnu og þar á sá kvöhna sem
á völina. Á íslenskum markaði má
velja úr ýmsum gerðum af dýnum;
svampdýnur, springdýnur, vatns-
dýnur og fleira. Smekkur og verð
ræður oft vah á rúmi en það er
ekki smekksatriði hvað sé best.
í ahri þeirri umræðu sem hefur
átt sér stað um heilsurúm og
hehsudýnur hefur ýmislegt verið
staðhæft um töframátt shkra
rúma. Fólk er mismunandi að
stærð og gerð og hefur margvísleg-
ar sérþarfir. Heilsudýna fyrir einn
getur verið skaðræðisgripur fyrir
annan. Þess vegna eru neytendur
hvattir til að kynna sér þá valkosti
sem í boði eru og án fordóma.
TU eru góðar og slæmar dýnur
af öllum gerðum, vandið því vahð
og leitið svara. Erlendar tískunýj-
ungar eru ekki endilega framfarir.
Sveinn Snæland
Selsvör hf.
Fjölmiðlar