Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1989, Page 32
iHk E I
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 '
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Askrift - Dreifing: Sími 27022
Guðmundur Bjamason:
Get staðið
við allft í
„Við munum sjá til hvað gerist í
framhaldi af þessu og hver eru við-
brögð Ríkisendurskoðunar og skoð-
unarmannanna. Verði það niður-
staða að skoða nánar þessi risnumál
allra ráðuneytanna þá er sjálfsagt að
við tökum þátt í því. Það á að vera
hægt að taka saman þessa reikninga
og ég tel mig geta staðið við allt sem
í þeim er,“ sagði Guðmundur Bjama-
son heilbrigðisráðherra um það
hvort hann myndi leggja fram risnu-
reikninga síns ráðuneytis. En er
hann tilbúinn að hafa frumkvæði að
því?
„Ég hef ekki velt þvi fyrir mér en
mér finnst það þó koma til athugun-
ar. Ég hafði þó hugsað mér að sjá
hvemig framhaldið yrði á þessu.“
-SMJ
Svavar Gestsson:
Ræði þetta
í ríkis-
stjórninni
„Ég hef ekkert á móti því að leggja
fram sambærilegan lista en það tek-
ur nokkum tímá að tína þetta saman
og ég hef ekki gert neitt sérstakt í
því. Ég tel eðlilegt að ríkisstjórnin
taki á þessu máh á ríkisstjómarfundi
og ég mun ræða þessi mál þar,“ sagði
Svavar Gestsson þegar hann var
spurður hvort hann mundi leggja
fram lista yfir áfengisúttektir fyrir
ráðuneyti og ráðherra menntamála
á sambærilegan hátt og utanríkis-
ráðherra. -hlh
Geir H. Haarde:
Segi ekkert
Jón Baldvin utanríkisráðherra
spurði á blaðamannafundi, sem hann
hélt í gær vegna áfengiskaupa til
veisluhalda ritstjóra Alþýðublaðs-
ins, hvers vegna yfirskoðunarmenn
ríkisreikninga hefðu ekki gert at-
hugasemdir við áfengiskaup annarra
ráðherra til veisluhalda vina og
kunningja. DV spurði Geir H.
Haarde, alþingismann og einn
þriggja yfírskoöunarmanna rikis-
reikninga, þessarar spumingar?
„Ég vil ekkert segja á þessari
stundu. Við höfum ekki hist, yfir-
skoðunarmenn ríkisreikninga, til að
Træða bréf Jóns Baldvins og áður en
það verður ræði ég ekki rnáhð," sagði
Geir H. Haarde. S.dór
LOKI
Eftir yfirlýslngar Jóns Bald-
vins er spurt: Hver ráðherr-
anna er breyskastur?
„Eins og staöan var i samninga- vera í stöðugu sambandi við deilu- verkföll,“ sagöi Magnús Geirsson, sams konar samninga í gegnum
viöræðunum, þegar upp úr þeim aðilaogefeitthvaöbreyttistsagöist formaður Rafiðnaðarsambandsins, tíöina. Viö getum ekki samið um
slitnaöi í fyrrakvöld, er ekki tii bann samstundis boöa tii sátta- í morgun. það sem einstökura hópum þykir
neins að kalla saman samninga- . fundar. „Rafiönaðarmenn vora í hópi hagstætt aö miða sig víö hvetju
fund neraa annar hvor aöilinn sé „Við gefum ekkert eftir. Við bíð- margra félaga sera sömdu á síðustu sinni,“ sagði Indriði H. Þorláksson,
tilbúinn til að gefa eitthvað eftir. umþessaösamninpahefndrikisms stunduáðurenlöginvorusettl988. fyrirliöisaraninganefndarríkisins.
Það er hreinlega jára f járn 1 þess- taki tillit til þess sera gerst hefur á Þeir fengu þá 10 prósent hækkun Indriði tók undir með sáttasemí-
ari deilu,“ sagði Guölaugur Þor- launamarkaðnum síðustu 18 mán- eins og aðrir. Þeir eru nú að miða ara um að tilgangskrast væri aö
valdsson ríkissáttaserajari i morg- uði. Við erum ekki að fara fram á sig við rafiðnaöarmenn hjá ríkis- sitjaáfundumþarsemekkertgerö-
un, aöspurður um sáttafund í deilu annaö en leiðréttingu á því sem við verksraiðjunum. Það er út 1 hött ist.
rafiönaðarmanna og ríkisins. misstum af vegna lagasetningar vegna þess að þaö hefur verið upp -S.dór
Guðlaugur sagöist að sjálfsögðu sem bannaði kjarasamninga og og ofan hvort þeir hafi verið með
Kálfarnir eru allir undan sama tuddanum sem heitir Húfur. Enginn átti von
á að hann væri orðinn svona sprækur að setja í tvær kvígur svo gott sæði
- að þær kæmu báðar með tvo kálfa eins og raun bar vitni í vikunni. Pey-
jarnir á myndinni heita Einar og Haukur og komu þeir frá Selfossi til að líta
á fjórfættu bræðurna fjóra. DV-mynd Kristján
Halldór V. Sigurðsson:
Veislan fyrir
Lúðvík eðlileg
„Ég sé ekki að við hefðum átt að
gera einhverjar athugasemdir við
þessar veislur. Þær virðast vera inn-
an eðlilegra marka," sagði Halldór
V. Sigurðsson ríkisendurskoðandi
þegar hann var spurður um tilfelli
þau sem Jón Baldvin Hannibalsson
hefur nefnt um veislur samráðherra
sinna.
„Veislan, sem Ólafur heldur fyrir
Lúðvík, er í tilefni sérstakra tíma-
móta eða útfærslu landhelginnar,
þegar Lúðvík var sjávarútvegsráð-
herra. Menn verða að gera upp við
sig hvemig þeir vilja minnast slíkra
tímamóta og á hvern hátt. Það fer
eftir þeirra smekk hvernig þeir vilja
gera það. Annars vil ég sem minnst
um þetta ræða þar til við höfum náð
að skoða þessi mál nánar.“
- Það liggur ljóst fyrir að athuga-
semdir sem þær er Jón Baldvin fékk
núna hafa ekki komið áður.
„Ég minnist þess ekki að ráðherra
hafi haldiö manni svona afmæhs-
boð,“ sagði ríkisendurskoðandi.
-SMJ
Miðdalskot 1 Laugardal:
Tvíkelfingar
Kristján Emaissan, DV, Selfbssi:
Sá atburður gerðist í vikunni aö tvær
fyrstakálfs kvígur báru tveimur kálf-
um í Miðdalskoti í Laugardal. Báru
kvígimnar Vöntun og Skjalda sinn
daginn hvor. Þetta eru afar sjaldgæf
tiifeUi - sérstaklega með tilliti til þess
að allir kálfamir lifa.
Eiríkur Tómasson og Guðrún
Karlsdóttir, ábúendur Miðdalskots,
hafa notað íjárhúsið undir lausa-
göngu fyrir geldneyti þar sem alit fé
var skorið niður í Miðdal vegna riðu.
Þar voru kvígumar ásamt þessum
laungraða tudda og átti enginn von
á því að hann væri orðinn svona
sprækur - að eignast tvíkelfinga með
tveimur kvígum.
„Burðurimi gekk vel og voru kál-
famir vænir. Hildirnar komu ekki
og varð að fá dýralækni til að ná
þeim. Þetta hefur einu sinni gerst
áður en þá kom annar kálfurinn
dauður,“ sagði Eiríkur við DV.
Veðrið á morgun:
Súld
sunnan- og
vestanlands
Á morgun verður suðvestanátt,
5-7 vindstig og skýjað víðast hvar
á landinu. Súld á Suður- og Vest-
urlandi en annars þurrt. Hitinn
verður 7-14 stig.
vBíl Asró
ÞROSTUR
68-50-60
VANIR MENN
BÍIASPRAUTUN
ÍLARÉTTINGAR
BÍLASPRAUTUN
Almálun og bláttanir.
RÉTTINGAR og hvers
konar boddivlógerólr.
Varmi
Sími 44250