Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1989, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 27. DESÉMBER 1989.
11
dv Útlönd
Sovésk stjómvöld:
Hafna
sjálfstæðum
flokki
í Litháen
Flokksforysta sovéska kommún-
istaflokksins lýsti í gær yfir stuðn-
ingi sínum við fordæmingu Gor-
batsjovs Sovétforseta á samþykkt
kommúnistaflokks lýðveldisins Lit-
háen frá fyrri viku er kveður á um
slit flokksins við móðurflokkinn í
Moskvu.
Á fundi miðstjómar sovéska
kommúnistaflokksins í gær lýsti
Gorbatsjov því yfir að hann sam-
þykkti ekki ákvörðun flokksins í Lit-
háen. Sagði forsetinn að Litháar
hefðu ekki rétt til að stofna nýjan
flokk og því væri ákvörðun þeirra
ólögmæt. Fréttaskýrendur telja ekki
að þessi ákvöröun forystunnar muni
skaða kommúnistaflokks Litháen
þegar til langs tíma er htið, þvert á
móti telja sumir að þetta geti orðið
til að auka vinsældir hans.
Litháar ákváðu í síðustu viku að
setja á laggirnar sjálfstæðan komm-
únistaflokk sem væri ekki undir for-
ystu og leiðsögn kommúnistaflokks
Sovétríkjanna. Er það gert til að
reyna að ýta undir vinsældir flokks-
ins fyrir fyrirhugaðar bæjar- og
sveitarstj ómarkosningar.
Sovéskir embættismenn sögðu í
gær að forsetinn hygðist sækja Lit-
háa heim á næstu dögum til að reyna
að fá kommúnista í lýðveldinu til að
falla frá ákvörðun sinni. Loka-
ákvörðun miðstjómarinnar um Lit-
háen verður ekki tekin fyrr en að
lokinni þeirri ferð. Ólíklegt er talið
að forsetinn muni grípa til hervalds
gegnEystrasaltslýðveldinu. Reuter
19 9 0
Kannski sá besti
Fallegt útlit
og frábærir eiginleikar
prýöa þennan vinsæla bíl,
sem fæst nú með auknum búnaöi.
Verð frá 786.000,-stgr.
fU) HOIMDA
VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900
O Mestu vinningslíkur í happdrœtti hérlendis
© Priðji hver miði vinnur 1990 218 milljónir dregnar út
Q Óbreytt miðaverð: 400 kr.