Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1989, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1989, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 27. DESEMBER 1989. Meiming Innan múranna Bríet Héöinsdóttir og Kristbjörg Kjeld í hlutverkum sinum í „Húsi Vernhörðu Alba“. Þjóðleikhúsið sýnir: HÚS VERNHÖRÐU ALBA Höfundur: Federico Garcia-Lorca Þýðing: Guðbergur Bergsson Tónlist og áhrifshljóð: Hjalmar H. Ragnarsson Leikmynd: Þórunn Sigriður Guðjónsdóttir Lýsing: Ásmundur Karlsson Leikstjórn: Maria Kristjánsdóttir Þegar múrar hrynja verður fyrst aö fuUu ljóst hvílíkri kúgun og grimmd er hægt aö beita í skjóh valds og undirokunar. Múram- ir, bæði þeir, sem eru rammlega byggðir og hinir, sem eru ósýnilegir, fela valdbeitinguna og henta einnig vel til þess að láta líta svo út utan frá að allt sé í stakasta lagi innan þeirra. Litlu máh skiptir hvort heilu þjóðfélögin búa þannig við frelsissviptingu eða hvort harðstjórinn heldur sinni eigin fjölskyldu í helgreipum valds og kúgunar. Eöli og til- gangur valdbeitingarinnar er hinn sami hvort heldur er. Leikrit Federicos Garcia-Lorca um heimils- harðstjórann, Vernhörðu Alba, hefur löng- um veriö heimfært upp á stjómmálaástand- ið, sem ríkti í heimalandi hans, Spáni, á þeim ámm, þegar það var skrifað. Örlög höfundar- ins sjálfs, sem var myrtur af útsendurum falangista skömmu eftir að hann lauk við það, árið 1936, undirstrikuðu sannleikann í orðum hans og þau skilaboð sem heimurinn mátti lesa úr verkinu. Og nú um jólin, einmitt þegar Þjóðleik- húsið fmmsýnir þennan magnaða fjöl- skylduharmleik, hljóma orð Lorca enn sterk- ar en ella, vegna þeirra heimssögulegu at- burða, sem hafa verið að gerast síðustu daga. Leikritið hefur tvisvar sinnum verið fært upp hér á landi áður, og er skemmst aö minn- ast sýninga Leikfélags Akureyrar nú í haust. Sjónvarpið sýndi líka nýlega þáttaröð um ævi Garcia-Lorca og einnig spánska kvik- mynd, gerða eftir leikritinu um Vernhörðu og dætur hennar. Það er flarri lagi að bera þessar þrjár sýn- ingar saman. Textinn er hráefnið, en síðan kemur úrvinnslan, sem gerir hverja upp- færslu að sérstöku og sjálfstæðu verki. Ur- vinnslan fer að sjálfsögðu eftir efnum og ástæöum á hverjum stað og tíma og þær væntingar, sem gerðar eru fyrirfram, fara hka eftir því, hver stendur að sýningum hverju sinni. Umgjörð sýningarinnar í Þjóöleikhúsinu er dökk og dimm og háir veggir lykja um þann kvennaheim sem höfundur lýsir í verk- inu. Sviðið er þrengt með leikmyndinni og gerist fyrri hlutinn innan dyra á heimhi Vemhörðu Alba, en sá seinni í garðinum, sem girtur er háum múr. Þórunn Sigriður Þorgrímsdóttir er höfund- ur leikmyndarinnar. Hún leggur áherslu á sýnhega innhokun og það fangelsisandrúms- loft, sem ríkir innan veggja heimilisins. Stór og mikih stigi er þungamiðjan í sviösmynd- inni í fyrri hlutanum og nýtir leikstjórinn hann óspart til að skapa hreyfmgu. Búningar voru hannaðir af Sigríði Guö- jónsdóttur og voru mjög upp og ofan, e'nda sinn úr hverri áttinni og mynduðu einkenn- hegt stílrof sumir hverjir. Svörtu sorgar- klæðin voru þó ágæt svo dæmi sé tekiö um shkt. Ekkjan, Vernharða, kemur í upphafl leik- ritsins heim í hús sitt, frá jarðarfór eigin- mannsins, ásamt fimm uppkomnum dætrum sínum. Hún lýsir því yfir, að í átta ár skuli sorgin ríkja í lífi þeirra, og engin þeirra fái svo mikið sem að fara úr húsi. María Kristjánsdóttir leikstjóri velur þá leið að færa ýmislegt í verkinu nær okkar stað og tíma. í stað þess að staðsetja at- burðina í því innvígða spænska andrúms- lofti, sem því er ætlað að gerast í, er farin einhver- millheið. Þetta auöveldar að sumu leyti túlkunina, sem þá þarf ekki að vera kórrétt samkvæmt spánskri hefö, er veldur um leið ruglingi, veikir hehdina og sam- skipti kvennanna verða ekki eins trúleg fyr- ir vikið. Þetta verk byggist á aðstæðum sem eiga rót aö rekja th aldalangrar kúgunar kvenna og stéttaskiptingar, sem gerir það aö verkum að samskipti einstaklinga eru háð óskráðum lögmálum, sem ekkert getur haggað. Það er erfitt að slíta leikritið úr samhengi við þenn- an bakgrunn. í uppsetningunni gætir óþarfa ofuráherslu, eins og áhorfendum sé ekki fylhlega treyst th að lesa á mhh línanna. Þetta var sérstak- lega áberandi í fyrri hlutanum og alveg óþarft, vegna þess aö textinn stendur alveg fyrir sínu. Yfirborðið skal vera slétt og fellt á heimili Yernhörðu, hvaö sem tautar og raular. Ástríöur og gagnkvæm tortryggni krauma undir yfirborðinu, en tilfmningamar koma framan af verkinu ekki svo berlega upp á yfirborðiö. Hugsanir og draumar allra systranna snú- ast um hina forboðnu ávexti, karlmenn, og þó einkum um einn, Pepe Romano (Róm- verja). Hann er unnusti elstu systurinnar, Angústías, sem komin er fast að fertugu, og Vernharða hefur af náð sinni valiö henni þennan heitmann. Dæturnar bregðast á mismunandi hátt við yfirgangi og miskunnarleysi móður sinnar en beygja sig þó undir vöndinn allar nema sú yngsta, sem í bjartsýni æskunnar heldur að hún geti sloppið úr helgreipum hennar. Hún nær ástum Pepes og þá er fjandinn laus. Sigrún Waage er einlæg og fersk í hlut- verki Adelu, sem horfir með hryllingi fram á það, að verða eins uppþornuð og systur hennar í innhokuninni. En hún náði hins vegar ekki fyhhega tökum á að túlka þrjósku hennar og síðan hyldýpi örvæntingar í lokin. Helga Jónsdóttir leikur Angústías, sem móð- irin segir að sé læpuleg. Hún hefur prýðilegt útht í hlutverkiö, en geröi fullmikið úr vælu- skap og undirgefni piparmeyjarinnar. Ragn- heiður Steindórsdóttir mótaöi Magdalenu skýrum dráttum og Guðrún S. Gísladóttir Leiklist Auður Eydal var mjög sannfærandi, sem hin bæklaða Martíríó. Leikur hannar var eftirminnilegur og sterkur, persónan hehsteypt og skýr. Tinna Gunnlaugsdóttir var látlaus í fremur litlausu hlutverki Ameliu og Herdís Þor- valdsdóttir fór á kostum í hlutverki ömm- unnar Maríu Josefu. Það vald, sem Vernharða hefur yfir dætr- um sínum, verður skiljanlegt sé litiö á þann jaröveg sem verkiö er sprottið úr. Hún vhl fyrir hvern mun vernda stöðu sína og eignir og besta ráðið er að viðhalda óbreyttu ástandi. Th þess beitir hún öllum ráðum. Þessi illvígi harðstjóri er í uppfærslu Þjóð- leikhússins túlkaður af Kristbjörgu Kjeld. Kristbjörg leikur á köflum „út á við“ í stíl viö heildarsvip sýningarinnar. Á stundum voru áherslurnar allt að því í Gestapo stíl og undirstrikaöar með klæðnaði í ætt viö einkennisbúninga fangavarða. Sterkustu þættirnir í leik Kristbjargar voru hins vegar, þegar hún slakaöi á og sýndi að undir yfirborðinu bjuggu thfinningar, sem að minnsta kosti í augum Vernhörðu sjálfrar réttlættu harðstjórnina, þó að öðrum væru boð hennar og bönn hlskiljanleg. Hlutverk Vernhörðu er órjúfanlega tengt hlutverki ráðskonunnar Poncíu, sem er augu Vernhörðu og eyru, utan húss, sem innan. Á mihi þeirra ríkir einhvers konar fiandvin- átta, Vernharða getur ekki án Poncíu veriö, hún þorir ekki í hana á sama hátt og dæturn- ar, en heldur henni þó í skefium, ef á þarf að halda. Briet Héðinsdóttir leikur Poncíu og gerir persónunni ágæt skil eftir upphaf- skaflann, en þar þótti mér túlkunin of yfir- drifin. (Sú hugsun læddist að mér oftar en einu sinni i sýningunni, að stórfróðlegt heföi ver- iö að sjá þær Kristbjörgu og Bríeti hafa hlut- verkaskipti í verkinu. En það stóð nú reynd- ar ekki til.) Hjálmar H. Ragnarsson hefur samið tónlist og áhrifshljóð, sem féllu vel að verkinu, þeg- ar hljóðstyrk var sthlt í hóf. Lýsing Ásmund- ar Karlssonar var mjög vel unnin, sérstak- lega í seinni hluta verksins. Þýðing Guðbergs Bergssonar er ný af nál- inni, gerð fyrir þessa uppfærslu Þjóðleik- hússins. Oröfærið er ákveðið og kjarnyrt og hugnaðist ágætlega við fyrstu kynni. Heimili Vernhörðu Alba er ákaflega magn- að og stórbrotið listaverk, sem fyrir löngu hefur unniö sér fastan sess í heimsbók- menntunum. Sýning Þjóðleikhússins er áhugaverð en náði því ekki á frumsýning- unni að standa fyllilega undir þeim vænting- um sem fyrirfram voru gerðar til hennar. AE

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.