Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1990, Side 4
LAUGARDAGUK 20. JANp-ARi 1990;;
4 ?,
Fréttir
Gengið frá aflamiðlun, kjarasamningum og fiskverði samtímis:
Kvóti verði settur á
ísfisksútflutninginn
- verkalýðshreyfingin krefst þess að dregið verði úr ísfisksútflutningi
Aflamiölun, sem sjávarútvegsráö-
herra, Halldór Ásgrímsson, hefur
verið aö tala um aö koma á fót í
meira en eitt ár, viröist nú vera í
sjónmáli. Stofnun hennar verður
ákveöin um leið og gengið veröur frá
kjarasamningum og nýju fiskverði,
sem á að vera tilbúiö 1. febrúar.
Halldór Ásgrímsson sagöi í samtali
viö DV í gær aö hann væri tilbúinn
með ákveðnar tillögur um aflamiðl-
unina, en vildi ekki greina frá hveij-
ar tillögur hans væru.
Samkvæmt heimildum DV eru
uppi hugmyndir um að ákveða fyrir-
fram í byrjun hvers árs hve mikið
magn af ísflski leyft verður að flytja
út á árinu. Síðan þarf að skipta því
á milli útgerðar og fiskvinnsluaðila.
Einnig hefur verið rætt um að út-
flutningsleyfin verði hægt að fram-
selja. Útgerðarmenn vilja það en sjó-
mannasamtökin eru því algerlega
andvíg. Þau eru líka andvíg því að
hægt sé að framselja aflakvóta. Þetta
deilumál getur orðið snúiðaö leysa.
Rætt er um að í þeirri nefnd, sem
stýrir aflamiðluninni, veröi „þunga-
vigtarmenn" frá hagsmunasamtök-
um sjómanna, útgerðarmanna og
verkalýðshreyfmgarinnar. Með því
móti á að reyna að skapa um hana
frið.
Með þessu móti telja sumir að hægt
verði að jafna kjör sjómanna inn-
byrðis. Það er nú viðurkennt af öll-
um að óviðunandi óréttlæti sé að
sumir sjómenn fái aðeins verðlags-
ráðsverð fyrir afla sinn, aðrir fái yfir-
borganir, þriðji hópurinn fái innlent
fiskmarkaðsverð og sá fjórði erlent
fiskmarkaðsverð fyrir aflann. Fisk-
verðsdeilan á Austfjörðum leiddi það
skýrt í ljós.
Þetta er langstærsta vandamálið
sem fulltrúar í Verðlagsráði sjávar-
útvegsins fá að glíma við að þessu
sinni en ákveðið er að reyna að leysa
þetta með einhveijum hætti um leið
og fiskverð verður ákveðið.
Þá er það mjög ákveðin krafa hjá
verkalýöshreyfingunni að stórlega
verði dregið úr ísfiskútflutningi.
Þessi krafa er sett fram í þeirri von
að auka megi atvinnu með því að
landa meira magni af fiski hér heima
en gert hefur verið undanfarin ár.
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra sagði að ætlunin væri að
leysa samtímis öll málin þijú, afla-
miðlun, kjarasamninga og fiskverð.
-S.dór
Gæsirnar, sem dvelja vetrarlangt á Tjörninni í Reykjavik, bera sig heldur illa þessa dagana eftir að veturinn gekk
í garð af fullri hörku. Þær þurfa þó ekki að una sinum hlut illa meðan alltaf koma gjafmildir menn með brauð í poka.
DV-mynd GVA
Bolvíkingur 1 hrakningum:
Mokaði jeppanum leið
„Það var svo dimmt og mikið snjó-
kóf að ég sá ekki neitt. Ég keyrði
jeppann út af veginum skammt frá
Ósvitanum. Ástæðan var bara sú að
ég sá svo illa út í snjókófinu - maður
sá ekki neitt. Mér tókst að moka leið
fyrir jeppann upp á veginn aftur.
Mér tókst svo að bakka honum aftur
upp á veginn. Þegar ég var búinn að
því þá leist mér ekkert á bhkuna -
framundan var algjör blindbylur,“
sagði Brynjólfur Lárusson sem var
einsamall á leið til vinnu sinnar í
Lödujeppa á sjöunda tímanum í gær-
morgun. Brynjólfur býr í Bolungar-
vík en sækir vinnu til ísafjarðar.
„Mér skilst að um svipað leyti og
ég var þarna á ferðinni hafi snjóflóð
fallið í Óshlíðinni. Skriðan hefur
sennilega verið fallin þegar ég var
þarna. En ég sneri við og var kominn
heim aftur á áttunda tímanum,"
sagði Brynjólfur.
-ÓTT
Margir í hrakningum
Vegaeftirlitsmenn, ásamt lögreglu
á Selfossi og í Reykjavík, stóðu í
ströngu í gær við að bjarga öku-
mönnum sem höfðu fest bíla sína á
Hellisheiði og á Þrengslavegi í gær.
Margir bílar áttu einnig erfitt með
að komast leiðar sinnar í Hveragerði
og á Selfossi.
Talsverður fjöldi bíleigenda varð
fyrir því fara út af vegi, festast eða
þá að þaö drapst á vél bílanna. Lög-
regla þurfti að flytja starfsmenn á
sjúkrahúsinu á Selfossi til vinnu
sinnar. Að sögn lögreglunnar á Sel-
fossi var mikið um að bílar væru
vanbúnir til aksturs í færðinni sem
var mjög slæm í gær. Skyggni var
auk þess lítið vegna skafrennings.
Bæjarstarfsmenn unnu í gær við að
ryðja götur og aðstoöa ökumenn.
Mikil hálka var á Hellisheiði og í
Kömbum.
Hellisheiði var vörðuð mannlaus-
um bílum eftir að eigendur höfðu
yfirgefið þá. Nokkrir bíleigendur
fengu aðstoð vegaeftirlitsmanna við
að draga bílana aftur upp úr snjó-
sköflum. Við Litlu kaffistofuna í
Svínahrauni voru og nokkrir bílar
sem eigendurnir höfðu yfirgefið.
-ÓTT
Eitt vitnanna dregið í efa
- af Jónasi Aðalsteinssyni, verjanda Páls Braga Kristjónssonar
Jónas Aðalsteinsson, hæstarétt-
arlögmaður og veijandi Páls Braga
Kristjónssonar, dró í efa áreiðan-
leika Jóns Sævars Jónssonar verk-
fræðings sem var vitni í Hatfskips-
málinu í Sakadómi í gær en Jón
Sævar var starfsmaður hjá Haf-
skip. Jón Sævar sá meðal annars
um áætlanagerð fyrir félagið.
í skýrslu, sem hann gaf hjá Rann-
sóknarlögreglu þegar forystumenn
félagsins voru í gæsluvarðhaldi,
hafði hann sagt aö fleiri en ein
áætlun hefðu veriö í gangi og það
hefði ráðist af því hvar ætti að nota
áætlanimar hvaða áætlun var
sýnd. Hann sagði meðal annars að
tÚ hefði verið svartsýnisáætlun
sem ætluð var til nota innanhúss
og svo aðrar sem sýndar voru utan
fyrirtækisins.
Jónas Aðalsteinsson spurði Jón
Sævar mikið um afskipti hans af
áætlanageröum. Jónas sýndi meðal
annars fjögur skipurit frá Hafskip,
öll frá árinu 1983. Samkvæmt þeim
og dagbók Páls Braga Kristjónsson-
ar var Jón Sævar ekki í störfum
hjá hagdeild Hafskips á þeim tíma
sem gagnrýni hans á áætlanagerð-
ina náði hvaö mest yfir.
Jónas Aðalsteinsson spurði Jón
Sævar hvort honum hefði ekki ver-
ið kunnugt um að helstu forsvars-
menn félagsins hefðu verið í gæslu-
varöhaldi þegar hann gaf skýrslu
hjá Rannsóknarlögreglu. í fyrstu
• sagði Jón Sævar að sér hefði ekkf
verið kunngt um þaö. Síðar sagðist
hann hefðu haft sömu vitneskju
um það og aðrir, það er úr fiölmiðl-
um.
Þær bestu sýndar
Þegar Jón Sævar var spurður
nánar um áætlanagerðina sagði
hann að eðlilega hefðu áætlanir
verið endurmetnar. Þær sem voru
bestar voru sýndar annars staðar,
svo sem 1 Útvegsbankanum. Jón
Sævar sagði að hann teldi ekki að
forsvarsmenn félagsins hafi sýnt
sérstakar áætlanir í blekkingar-
skyni. Hann sagði einnig að bank-
inn hefði fengiö þær áætlanir sem
framkvæmdastjórar Hafskip voru
ánægðir með og gerðar eftir þeim
forsendum sem þeir vildu. Hann
Idómsa]num
Sigurjón M. Egilsson
sagðist ekki halda þvi fram að um
hefði verið að ræða rangar eða vfs-
vitandi rangar forsendur.
Þegar Jón Sævar var spurður enn
og aftur hvort hann teldi að þessar
áaétlanir hefðu verið gerðar til að
blekkja vísvitandi stjóm Hafskip
og Útvegsbankans sagðist hann
ekki telja að svo hefði verið.
Jón Sævar sagðist hafa verið
mjög óánægður með hvemig staðið
var að áætlanagerðinni og að hann
hefði rætt það við Pál Braga Krist-
jónsson og Ragnar Kjartansson.
Hann sagði aö vegna þess hversu
margar áætlanir vom til hafi skap-
ast ruglingur í því hver væri sú
rétta. Hann sagði að margar þessar
áætlanir hefðu verið gerðar á skjön
við réttar forsendur.
Hlutafjárkaupin bakfærð
Ragnhildur Ágústsdóttir, en hún
sá um að ganga frá kaupum á
hlutabréfum eftir hlutafiáraukn-
inguna, sagði meðal annars að
nokkrir aðilar, sem höfðu skráð sig
fyrir hlutafé, hefðu hætt viö. Hún
nefndi Hagkaup, Ágúst Ármann og
Plastprent í því sambandi. Þegar
hún var spurð um hlutafiárkaup
Ragnars og Björgólfs sagði hún að
þeir heföu fyrst skráð sig fyrir 2,5
milljónum hvor en síðar var það
bakfært og þeir skráöir fyrir 1.750
þúsund krónum hvor.
Georg H. Tryggvason, forstjóri
S. Óskarsson og Co, sagði að hann
hefði mætt á hlutahafafundinn þar
sem ákveðið var að auka hlutafé
um 80 mifljónir. Fyrirtæki hans
átti þá 30 þúsund króna hlut í félag-
inu. Hann sagði aö á hlutahafa-
fundinum hafi andinn verið eins
og á vakningasamkomu og sér ekki
litist á að auka hlutafé í Hafskip.
Síðar fór hann til Páls Braga Kris-
tjónssonar og eftir samtal við hann
ákvað Georg að kaupa 100 þúsund
króna hlut. Georg kærði forvígis-
menn Hafskips síðar til Rannsókn-
arlögreglu fyrir blekkingar.
Georg var spurður hvað hann
teldi að forvígismönnum Hafskips
hefði gengið til með blekkingunum.
Hann sagði þetta ekki vera samið
af sér heldur af lögmanni sínum.
Valdimar lofaði
Fundur með umboðsmönnum
Hafskips var haldinn í Danmörku
og Atlantshafssiglingamar voru
fundarefnið. Á fundinum kom fram
bjartsýni um gang þessara sigflnga.
Engin gagnrýnisrödd heyrðist á
þessum fundi.
Sigurbjörn Svavarsson, sem
starfaði hjá Hafskip, meðal annars
við uppgjör vegna Atlantshafssigl-
inganna, sagði að öll gögn hefðu
veriö lengi að berast frá Bandaríkj-
unum - mun lengur en frá Evrópu.
Fram kom í máli Guðmundar
Guðjónssonar lögreglumanns að
ekki var kannað sérstaklega mat
Hafskips á verði skipsins Rangár,
eins og saksóknari vijdi aö yrði
gert. Ekki var heldur kannað, svo
hann vissi, hver launakjör for-
stjóra annarra stórfyrirtækja voru.
-sme