Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1990, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1990, Side 15
LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1990. 15 Venjuleg aðalfundarstörf Aðalfundir félaga eru auðvitað hinar merkustu samkomur. Flest alvörufélög halda aðalfundi árlega eins og lög gera ráð fyrir. Stundum vill það dragast að aðalfundur sé haldinn. Þá er oftast um að kenna erfiðri stöðu félagsins eða stjórnar þess. Þá draga menn fundinn í von um að betur ári síðar eða aö minnsta kosti draga á langinn óþægilega samkomu. Það er ekki nema mannlegt. Það getur tekið á taugarnar að horfa framan í félag- ana með allt niður um sig. Slíkt uppgjör verður þó varla umflúið. Stuö ræður aðalfundi En ekki er staðan slæm í öllum félögum þótt langt sé á milli aðal- funda. Þannig er pistilskrifari í mjög merkilegu félagi sem heldur aðalfundi sína á um það bil fimm- tán ára fresti. Fimmtán ára reglan er að vísu ekkert heilög i þessu sambandi. Það geta allt eins liðið tíu ár á milli aðalfunda eða jafnvel tuttugu. Ekkert í lögum félagsins kemur í veg fyrir þessa fijálslegu skipan mála. Aðalfundur félagsins skal haldinn þegar einhver félag- anna er í stuði til að kalla á hina og halda þeim uppi á guðaveigum og snarli heila kvöldstund og helst fram á nótt. Sú skipan hefur kom- ist á að halda aðalfund félagsins á þessum tíma sólarhringsins. Var- legt er þó að tala um hefð í þessu sambandi því aðalfundur félagsins hefur aðeins einu sinni verið hald- inn eftir að regluleg starfsemi fé- lagsins lagðist af. Breyttar áherslur íþróttafélags Nú er hins vegar komið að því að halda aðalfund hins merka fé- lags og hefur verið boðað til hans í kvöld. Vel fer á því að halda fund félagsins á laugardagskvöldi. Til- gangur félagsins og takmark hefur nefnilega breyst í tímans rás. Félag þetta er fótboltafélagið Knötturinn, íþróttafélag sem á sér merka sögu, en fáir vita þó um tilvist þess. Starf- semi félagsins hefur enda farið fram í kyrrþey á liðnum árum og það ekki notið opinberra styrkja. Fótboltafélag þetta var stofnað af nokkrum knáum piltum í Smá- íbúðahveríinu. Stofndagur er ekki nákvæmlega skráður en nærri læt- ur að félagið hafi starfað í þijá ára- tugi. Slíkur líftími félags þykir góð- ur nú á dögum. Raunar er óþarft að tala um að stofnfélagarnir hafi verið dreifðir um hverfið því þeir voru allir búsettir við þá ágætu götu, Langagerði. Wembley Lífiö var fótbolti í þá tíð, að minnsta kosti yfir sumartímann. Handboltinn hafði hins vegar yfir- höndina að vetrarlagi. Skólinn varð að víkja fyrir þessum áhuga- málum, raunar með lítilli eftirsjá. Strax eftir stofnun fótboltafélags- ins Knattarins rann það upp fyrir félögum að aðstaða þess var engin. Slíkt óx mönnum þó engan veginn í augum. Landrými var nóg enda minna byggt en síðar varð. Menn tóku því skóflur og haka feðra sinna traustataki og hófu valiar- gerð. Fótboltavelli félagsins var valinn staður þar sem nú standa stórhýsi manna sem eflaust hafa aldrei heyrt á Knöttinn minnst, hvaö þá moldarvöll félagsins. Framkvæmdir við vallargerðina stóðu stutt yfir. Aöeins þurfti að fjarlægja gijót og slétta völlinn. Ekki var haft fyrir því að bera ofan í hann möl, hvað þá að tyrfa. Áhorf- endasvæði voru á steinum í kring en í minningunni er ekki mikið um áhorfendur, hvað sem veldur. Loks var vellinum geflð nafn. Það var ekki slorlegt enda stórhuga menn að verki. Völlurinn fékk nafnið Wembley. Hinar ungu fótboltahetj- ur hafa sennilega heyrt af stóra bróöur í London og þótt fram- kvæmdir það stórkostlegar að ekki jöfnuðust þær á við neitt, nema ef vera skyldi þjóðarvöll Englend- inga. Leikið undan brekkunni í skjóli hinnar nýju aðstöðu var hægt að bjóða öðrum hverfafélög- um til keppni. Heimavöllur var auðvitaö dijúgur og því meiri líkur á sigri þar en ef keppt var á óvin- veittum stöðum. Völlurinn var auk þess búinn þeim ótvíræða kosti að hann hallaðist undan brekkunni í vesturátt. Heimamenn voru auð- vitað húsbændur á sínum velli og gátu því leikið sinn fótbolta niður í móti á meðan keppinautarnir áttu á brattann að sækja. Slíkt hjalpar í heilum leik. Einkennilegt er það að Knattspyrnusambandinu skuli ekki hafa dottið þetta í hug. Árang- ur landsliðsins í knattspyrnu væri kannski örlítið skárri ef Laugar- dalsvöllurinn væri búinn þessum kostum. Þessu er hér með komið á LaugardagspistiU Jónas Haraldsson framfæri við þá háu herra. Þá veitti okkar gamla hverfisfélagi, Víkingi, sem raunar var yfir Knöttinn sett, ekki af því að hagnýta sér svona fiff. Félagið hefur nú verið í fallbar- áttu sumar eftir sumar. Slíkt er hættulegt áhangendum liðsins, mönnum sem eru að komast á miðjan aldur. Þeir þola ekki álagið. Við það bætist svo að gengi hand- boltaliðs Hæðargarðsljúflinganna er orðið svipað og knattspyrnuliðs- ins. Hér áður fyrr mátti þó alltaf stóla á einn til tvo meistaratitla árlega hjá þeim. Bókhaldið í lagi En þetta var útúrdúr. Víkingur og landsliðið eru fótboltafélaginu Knettinum að mestu óviðkomandi, að minnsta kosti eins og starfsemi Knattarins er orðin nú. Leiðir Knattarins og Víkings hafa að vísu legið saman þannig að nokkrir stofnfélagar Knattarins hafa orðið ráðamenn Víkings, stjórnað þar deildum og gert aöra góða hluti. Slík störf eru þó í raun hjáverk miðað við félagsaðildina að Knett- inum. Knötturinn er samnefnari æskuvináttunnar, þeirra vináttu- banda sem aldrei slitna, jafnvel þótt félagarnir hittist ekki árum saman. Því er annar aðalfundur fótboltafélagsins Knattarins merkileg samkoma þótt aðeins fáir viti af henni. Fótbolti undir merkj- um Knattarins er löngu aflagður. Dregið hefur úr úthaldi stofnfélaga til slíkra líkamsæfinga sem hægt var að stunda þindarlaust á árum áður. Eins og í öllum alvörufélögum var haldið bókhald fótboltafélags- ins Knattarins. Þar var lítið um debet og kretit en þess í stað færð inn mörk og aörir snilldartaktar leikmanna félagsins. Þá voru færð- ar inn í bækur úrklippumyndir um aðra snjalla íþróttamenn. Ein- hvem veginn var það nú svo að íþróttafréttamenn dagblaðanna komu ekki auga á leikmenn Knatt- arins og þeir höfðu ekki í sér geð að koma sér á framfæri við frétta- mennina. Myndirnar, sem færðar voru inn í bækur félagsins, voru því af Þórólfi Beck og öörum sem lengra voru komnir í sportinu. Félagsþroski Ein regla var líka viö lýði hjá fót- boltafélaginu Knettinum. Liðs- menn voru ekki fleiri en svo að allir komust í lið. Slíkt er ómetan- legt. Enginn varð útundan og því lítil hætta á að upp á vinskapinn slettist. Vandi stærri íþróttafélaga er einmitt sá að ekki komast allir í lið. Hluti liðsmanna verður því fúll og ómögulegur. Þetta þekldst jafnvel á stærri vinnustöðum. Þar getur hluti starfsmanna ekki á heil- um sér tekið vegna þess að sjálf- skipaður liðstjóri telur þá vanhæfa í fírmalið. Félagslegur þroski í fót- boltafélaginu Knettinum var hins vegar slíkur að menn létu slíkt ekki henda. Aðlögun Enn þann dag í dag viðgengst sami félagsþroski Knattarmanna. Aðalfundir eru ekki fjölmennari en svo að allir komast fyrir í sæmi- legri stofu. Eini vandinn, sem aðal- fundarmenn hafa þurft að taka á, er kynskipting. Fótboltafélagið Knötturinn var hreinræktað drengjafélag. Á þeim árum var orð- ið jafnrétti ekki til í orðabókum félagsmanna. Stelpur voru svo sem ágætar. Það var hægt að skreppa með þeim í sto og fallin spýtan á vorkvöldi, ef þannig lá á mönnum. En fótbolta kunnu þær ekki. Um það mál var ekki deilt og stelpum- ar gerðu ekki athugasemdir við slíkt. Breýting hefur hefur hins vegar orðið á. í fyrsta lagi eru allir stofn- endur fótboltafélagsins Knattarins löngu gengnir í þaö heilaga og í öðru lagi hefur orðið mikil breyting á samfélaginu. Hlutirnir eru ekki eins einfaldir og þeir voru á upp- hafsárum Knattarins. Konur telja sig nú jafnar körlum á öllum svið- um, ef ekki ennþá jafnari. Því nýttu Knattarmenn rómaðan félags- þroska sinn og margra ára reynslu- heim karla úr hjónaböndum og samþykktu að eiginkonur stofnfé- laga teldust fullgildir aðalfundar- menn. Nasl á aðalfundi Samþykkt sem þessi er auðvitað gerð af mönnum sem þekkja allt sitt heimafólk og vita því hvað hentar. En ákvörðunin er ekki síð- ur tekin af praktískum ástæðum. Hinir nýju Knattarfélagar búa yfír annarri þekkingu og reynslu en stofnfélagamir. Þessi reynsla ný- liðanna kemur sér ákaflega vel i venjulegum aðalfundarstörfum fótboltafélagsins Knattarins. Eftir að starfsemi félagsins breyttist og minni áhersla var lögð á knatt- tækni hentar betur kunnátta í ídýfugerð, vali á alls konar nash og jafnvel bakstri ostabrauðs með skinkubitum þegar líður á aðal- fund og stofnfélagar taka að mæð- ast. Með þessum breyttu áherslum í félagsstarfinu og þátttöku nýlið- anna kann svo að fara að ekki líði svo langur tími milli aðalfunda. Þyki sérstök ástæða til má svo allt- af grípa til afbrigða og kalla saman framhaldsaðalfund. Jónas Haraldsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.